Morgunblaðið - 02.10.1994, Síða 1
SUNNUDAGUR
SUNNUDAGUR
2. OKTÓBER 1994
BLAÐ
Gífurleg aukning hefur orðið í hrossarækt,
hrossaeign og útflutningi reiðhesta og fer vax-
andi. í landinu eru um 75 þúsund hross og um 60
þúsund íslenskir hestar erlendis. Stór hluti
þjóðarinnar tengist hestamennsku og hestum
með einhverjum hætti, talið að um 40 þúsund
manns sé í beinni hestamennsku, og það er
orðinn drjúgur atvinnuvegur, sem teygir sig í allar
áttir, í fram leiðslu, þjónustu, flutningastarfsemi,
iðnað alls konar og túrisma, þar sem áætlað er að
nær 5 þúsund útiendingar komi hingað árlega í
hestaferðir. Á sl. ári voru fluttir út rúmlega 2.400
reiðhestar. Elín Pálmadóttir blaðamaður reynir í
eftirfarandi grein að ná utan um þessa miklu
grósku. Hún telur að ágiskun um að allt að 1.000
manns hafi ársatvinnu af hestaútgerð sé of lág.