Morgunblaðið - 02.10.1994, Blaðsíða 16
16 B SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER1994
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNUAUGl YSINGAR
Varnarliðið
Laus störf tveggja tölvunar-
kerfisfræðinga
Sjúkrahús varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli ósk-
ar að ráða tvo tölvunar- eða kerfisfræðinga til
starfa, annan á vélbúnaðarsviði og hinn á hug-
búnaðarsviði. Um er að ræða föst störf. Störf-
in felast í viðbótaruppsetningu tölvubúnaðar,
gera tillögur um breytingar ásamt því að
annast daglegan rekstur þeirra tölvukerfa
er undir starfið heyra. Um er að ræða net-
tengd kerfi. Einnig að annast uppsetningu
nýrra forrita ásamt kennslu og þjónustu við
starfsfólk. Að fylgja öryggisþáttum sam-
kvæmt stöðlum og gera tillögur um breyting-
ar ef við á er einnig hluti starfsins.
Kröfur:
Umsækjendur séu tölvunar- eða kerfisfræð-
ingar með sem víðtækasta reynslu á sviði
vél- og hugbúnaðar. Þurfa að geta unnið
sjálfstætt og eiga gott með samskipti við
annað fólk auk þess að hafa góða aðlögunar-
hæfni. Mjög góðrar enskukunnáttu er kraf-
ist, bæði á talað mál og skrifað.
Umsóknir skulu berast ráðningardeiíd varn-
armálaskrifstofu, Brekkustíg 39, Njarðvík,
sími 92-11973, ekki síðar en 12. október nk.
Starfslýsingar liggja þar frammi til aflestrar
fyrir umsækjendur og er þeim bent á að lesa
þær, þar sem í auglýsingunni er aðeins tæpt
á því helsta og aðskilin lýsing er fyrir hvort
starf.
Umsóknareyðublöð fást einnig á sama stað.
Umsóknum sé skilað á ensku.
Þekking - Úrval - Þjónusta P||
REKSTRARVÖRUR LJlJ
Réttarhálsi 2 ■ Sími: 91-685554 - Fax: 91-687116
H O F S F.
TÖLVARI
HOF sf., sem er eignarhaldsfélag Hag-
kaups, IKEA, Kosta Boda, Baugs, Bónus
o.fl., óskar eftir að ráða tölvara til starfa í
tölvudeild fyrirtækisins.
STARFSSVIÐ tölvara er að annast dagleg-
an rekstur tölvukerfa HAGKAUPS og
veita aðstoð til notenda. Meginmarkmið
er að rekstur tölvukerfa gangi sem liðleg-
ast fyrir sig.
HÆFNISKRÖFUR eru að umsækjendur
séu menntaðir á sviði rafeindavirkjunar
og/eða kerfisfræði, hafi haldbæra reynslu
og þekkingu á eftirfarandi; netstýrikerfi
Lan Manager, Unix (TCP/IP,-DNS) og not-
endahugbúnaði; Word &. Exel. Áhersla er
lögð á góða hæfileika 1 mannlegum sam-
skiptum, útsjónarsemi, skipulagsgáfu auk
dugnaðar og eljusemi í starfi.
UMSÓKNARFRESTUR er til og með
7. október nk. Ráðning verður fljótlega.
Vinsamlega athugið að umsóknar-
eyðublöð og allar nánari upplýsingar
eru eingöngu veittar hjá STRA Staxf s-
ráðningum hf. Skrifstofan er opin
alla virka daga frá kl. 10.00-16.00, en
viðtalstímar eru frá kl. 10.00-13.00.
Ungmennafélag
íslands
Skinfaxi - starfsmaður
Óskað er eftir að ráða mann til starfa við
tímaritið Skinfaxa. Skinfaxi er málgagn ung-
mennafélagshreyfingarinnar og kemur út
fjórum sinnum á ári. Starfsmaðurinn mun
hafa aðstetur í þjónustumiðstöð UMFÍ í Fells-
múla 26, Reykjavík. Starfið felst í auglýsinga-
söfnun, söfnun éskrifenda, og innheimtu
áskriftagjalda. Auk þess þarf viðkomandi að
geta sinnt tilfallandi störfum í þjónustumið-
stöð UMFÍ, svo sem símavörslu, tölvuvinnslu
og fleiru.
Umsóknarfrestur er til 7. október nk.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem
fyrst.
Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri UMFÍ,
Fellsmúla 26, Reykjavík, sími 91-682929.
Ungmennafélag íslands.
Mosfellsbær
10L. Samvinnuháskólinn
«■■■ Bifröst, 311 Borgarnes
Rektor
Samvinnuháskólans
Skólanefnd Samvinnuháskólans á Bifröst
auglýsir starf rektors Samvinnuháskólans
laust til umsóknar. Núlíðandi starfstímabili
rektors lýkur 31. júlí 1995 eða fyrr sam-
kvæmt nánara samkomulagi.
Rektorsstarfið er veitt til fjögurra ára í senn
og má endurráða sama mann einu sinni í
samfellu. Gert er ráð fyrir að rektor geti að
starfstíma loknum starfað áfram við Sam-
vinnuháskólann sem lektor eða með æðri
háskólatitli.
Skólanefnd veitir starfið að undangengnum
úrskurði dómnefndar um starfsgengi um-
sækjenda og að undangengnum skoðana-
könnunum meðal kennara og annarra starfs-
manna Samvinnuháskólans og námsmanna,
bæði þeirra sem nú stunda nám við skólann
og þeirra sem brautskráðst hafa frá Sam-
vinnuskólanum og Samvinnuháskólanum.
Nöfn allra umsækjenda verða birt.
Umsóknum skal sannanlega komið til Jóns
Sigurðssonar skólanefndarmanns og lektors
við Samvinnuháskólann á Bifröst, 311 Borg-
arnesi, og veitir hann allar frekari upplýs-
ingar um starfið, starfskyldur, kjör o.þ.h., í
síma 93-50000/93-50018. Með umsókn fylgi
staðfestar upplýsingar um menntun, próf-
gráður, fyrri störf, þar á meðal um stjórnun-
arstörf, háskólakennslu, rannsóknir og/eða
önnur sérfræðistörf umsækjanda.
Umsóknarfrestur er til 31. október 1994.
Stefnt er að því að taka ákvörðun um starfið
í ársbyrjun 1995.
Hönnun - umbrot
Otgáfufyrirtæki vill ráða vanan mann (Quark
Xpress) í hlutastarf til að sjá um hönnun og
umbrot á reglubundnu fréttablaði.
Umsóknir með upplýsingum um reynslu og
fyrri störf sendist afgreiðslu Mbl., merktar:
„Hönnun - 16005“, fyrir 12. okt.
, Starfsrádningar hf
Suðurlandsbraut 30 ■ 5. hæð ■ 108 Reykjavík
RÁ
Sími: 88 30 31 ■ Fax: 88 30 10
Guðný Harðardóttir
Sjúkraþjálfarar
atvinna
Á Höfn í Hornafirði er laus staða sjúkraþjálf-
ara. Starfsaðstaðan er til húsa í Heilsugæslu-
stöðinni og telst vera mjög góð. Lang-
stærsti hluti vinnunnar fer fram þar en einn-
ig í Skjólgarði sem er elli/hjúkrunar- og fæð-
ingarheimili. íbúðarhúsnæði er til staðar.
Á Höfn er blómlegt mannlíf og atvinna góð.
Allar nánari upplýsingar veita: Ásmundur
Gíslason, s. 97-81118/81221 eða Þorvaldur
Viktorsson s. 97-81039/81019.
Skjólgarður,
Heilsugæslus töðin, Horna firði.
Fulltrúi
óskast til starfa á Félagsmálastofnun Mos-
fellsbæjar. Um er að ræða afleysirigarstarf í
6 mánuði frá og með 1. desember 1994.
Fulltrúi er gjaldkeri stofnunarinnar, sér um
atvinnuleysisskráningu, vinnumiðlun, rit-
vinnslu, skjalavörslu, almenna afgreiðslu og
símavörslu. Fulltrúi annast jafnframt síma-
vörslu og ritvinnslu fyrir tómstundafulltrúa,
húsnæðisnefnd og Heilbrigðiseftirlit Kjósar-
svæðis. Umsækjandi þarf að hafa stúdents-
próf eða sambærilega menntun, þekkingu
og reynslu af ritara- og gjaldkerastörfum, auk
þess að hafa hæfni til að umgangast fólk
og geta unnið sjálfstætt. Laun eru sam-
kvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitar-
félaga og Starfsmannafélags Mosfellsbæjar,
Ifl. 67.
Umsóknum með upplýsingum um menntun
og fyrri störf skal skilað á Félagsmálastofn-
un, Þverholti 3, fyrir 20. október 1994.
Frekari upplýsingar veitir félagsmálastjóri í
síma 668666 kl. 10.00-11.00 virka daga.
Félagsmálastjóri.
HÓTELVINNA 0G MÁLASKÓLI
I B0URNEM0UTH I BRETLANDI
Ný lelð fyrlr ungt fólk tll að vlkka
sjóndelldarhrínglnn, læra ensku og
öðlast starfsreynslu I ferÖaþjónustu.
í samstarfi við ENGLISH 2000, SCHOOL OF
ENGLISH bjóðum við ungu fólki upp á
starfsnám (work experience) í Bretlandi.
Frítt fæði og húsnæði, auk vasa-
peninga. Málaskóli er 2 sinnum
í viku (2 x 2,5 kennslustundir).
Um er að ræða störf á ýmsum
hótelum í Bournemouth við mót-
töku, í veitingasal, herbergisþjónustu,
í eldhúsi ofl. Hótelið velur hvaða starf
hentar hverjum og einum. Tekið er mið af
reynslu og þjálfun viðkomandi, auk ensku-
kunnáttu.
Hægt er að hefja dvöl hvenær sem er
ársins, en ætlast er til að þú mætir á sunnu-
degi og hættir á laugardegi. Dvalartími er
1-6 mánuðir.
AuPAIR
VISTASKIPTI & NÁM
ÞÓRSGAT/^26 101 REYKJAVÍK SlMI S1- 62 23 62 FAX 91-62 96 62
ISAMSTARFIMED VIDURKENNDUM MENNINGARSKIPTASAMTÖKUM
lAUSTURRlKI, BANDARtKJUNUM. BRETLANDI. DANMÖRKU, FRAKKLANDI.
HOLLANDI, ITALÍU. NOREGI. SPANIOG ÞÝSKALANDI.