Morgunblaðið - 02.10.1994, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 02.10.1994, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ Konunglegarjfelenskar kartöflur í Arósum Það varð uppi fótur og fít á kontór stiptamtmanns í Reykjavík þegar bréf barst frá Konunglega danska landbúnaðarfélaginu árið 1849 undirritað af einum frægasta embættismanni Danaveldis, Jónasi Collin, með beiðni um íslenskar útsæðiskart- öflur. Pétur Pétursson rifjar upp þetta sérstæða mál og þátt „Erhvervsarkivet“ í Árósum, atvinnu- greinasafns sem geymir skjöl, er tengjast atvinnu- sögu Danaveldis og þar með íslands fyrr á tímum. MATTHIAS H. Rosenorn stift- amtmaður sendi kartöflurnar. JONAS Collin úthlutaði ís- lensku útsæðiskartöflunum. HANS CHRISTIAN Andersen við hliðið hjá Collin. Hér voru íslensku kartöflurnar afhent- ar haustið 1849. ERHVERVSARKIVET (Atvinnugreinasafnið) í Árósum geymir fjölda íslenskra skjala. að mun hafa verið haustið 1983 að ég leitaði til þáver- andi þjóðskjalavarðar, Bjarna Vilhjálmssonar, og bað hann að spyijast fyrir um bréf og skjöl er snertu samband íslenskra búnað- arsamtaka og konunglega danska landbúnaðarfélagsins. Bjarni brást vel við málaleitan minni og sneri sér til „Erhvervsarkivet" í Árósum, en það er atvinnugreinasafn er geymir skjöl, sem tengjast atvinnu- sögu Danaveldis. Hinn 17. nóvem- ber 1983 barst svar frá safninu. Henrik Vedel-Smith skjalavörður ritar bréf og tilkynnir að safnið varðveiti bréfasafn og gögn „Om islandske kartofler og dyrknings- forsög dermed" (1850/317). Jafn- framt þessum tíðindum sendir safn- ið ljósrit af öllum bréfum og blöðum er málinu tengjast. Bjarni Vil- hjálmsson afhenti mér bréfin vegna vitneskju um tengsl við Gaimard- leiðangur er hingað kom árið 1835. Var honum kunnugt um áhuga minn á ferðum þeirra félaga og tíð- indum er þeim tengdust. Um „Erhvervsarkivet“ má geta þess að þar er varðveittur margs- konar fróðleikur er varðar sögu lands og þjóðar. í ársskýrslu safns- ins, sem er myndarlegt rit, hafa oft birst gagnmerkar greinar um fyrir- tæki, stofnanir og einstaklinga, sem tengjast Islandi með ýmsum hætti. Starfsmenn safnsins bregðast skjótt við þegar til þerria er leitað. Ég leyfi mér að nefna dæmi. Þar sem ársskýrslur „Erhvervsarkivet", sem ijalla sérstaklega um ísland, voru ekki tiltækar á söfnum hér heima hringdi ég til Árósa og bað um að mér yrðu sendar bækurnar. Jafnframt lét ég í Ijós við stúlkuna, sem varð fyrir svörum, að ég vildi gjarnan eignast mynd af safninu. Bækurnar komu með fyrstu flug- ferð, en engin mynd. Alllöngu síðar kom forkunnar vel heppnuð ljós- mynd af safninu. Fylgdi með vin- samlegt bréf þar sem þess var get- ið að beiðnin hefði eigi gleymst, en beðið hefði verið eftir hentugu tæki- færi og góðum myndasmið. Er hér með þakkað fyrir fagra mynd, en sérstakt leyfi þarf til birtingar. Myndin, sem hér fylgir er teikning úr ársskýrslu safnsins. Það varð uppi fótur og fit á kont- ór Rosenörns stiptamtmanns í Reykjavík þegar bréf barst frá Kon- unglega danska landbúnaðarfélag- inu árið 1849 undirritað af einum frægasta embættismanni Dana- veldis, Jónasi Collin, með beiðni um íslenskar útsæðiskartöflu. Hverjum gat dottið í hug slík fásinna, að nokkur maður í hinum menntaða heimi hefði áhuga fyrir slíkri afurð? Og það sjálfur Collin.Elstur og virt- astur þeirra embættismanna er önnuðust málefni íslands. Stjórnar- maður Konunglega leikhússins. Verndari ævintýraskáldsins H.C. Andersens, vinur Thorvaldsens myndhöggvara, hollvinur og vernd- ari Þorsteins garðyrkjumanns Þor- steinssonar frá Úthlíð í Biskups- tungum, traustur hjálparmaður Þórðar Sveinbjörnssonar dómstjóra og Bjarna Thorarensens amtmanns og sá höfðingsmaður er Jónas Hall- grímsson sneri sér til með styrk- beiðni til rannsóknarferðar þegar hann hafði kveðið ljóð sitt, sem átti eftir að verða einkunnarorð Háskóla íslands: „Vísindin efla alla dáð.“ ... „fái ég enga hjálpina á ég aðeins um tvennt að velja, annað- hvort gefast upp í máttvana við- leitni minni eða leita á náðir Frakk- ans“. Hér á Jónas við Poul Gaim- at'd, franska vísindamanninn, sem hafði mælst til þess við Jónas að hann gerðist fylgdarmaður sinn ef hann kæmi þriðja sinni til íslands. Jónas skráir dagbók sína 1839 á gjafabók Gaimard’s. Svo enn sé vikið að útsæðispönt- un Collins þá ritar hann í nafni Konunglega landbúnaðarfélagsins. Rosenörn stiftamtmaður er á förum til Danmerkur. Hann felur Þórði Sveinbjörnssyni dómstjóra að senda útsæðiskartöflur. Það gerir hann með skonnortunni Reykjavík og bið- ur Þórð Jónasson amtmann í Frið- riksgáfu að senda eyfirskar kartöfl- ur. Þær fara með skonnortu Örum & Wulff. Þegar farmurinn kemur til Kaup- mannahafnar er mikið um dýrðir. Helstu forvígismenn ræktunar, greifar og þingmenn fá boð frá Collin um að koma á heimili hans að Amalie-götu. Þar er kartöfluúts- æðinu úthlutað. Frá þessu má skýra ítarlegar við hentugt tækifæri. Áhuginn á íslensku kartöflunum var sprottin af því að þær töldust nær ónæmar fyrir kartöflusýki. dVinátta Jónasar Collins og Þor- steins garðyrkjumanns frá Uthlíð var byggð á traustum grunni. Þor- steinn skírði son sinn Jón Collin. Einn af niðjum hans var Jón Collin, stjúpfaðir Kristínar, móður Guð- mundar Magnússonar fyrrum há- skólarektors: Hún ber nafn Collins. Höfundur er fyrrverandi þulur. SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 1994 B 25 TILKYNNING: Þar sem Rafmagnsveita Reykjavíkur hefur hætt að skoða eldri raflagnir, mun Rafsól taka að sér úttektir raflagna svo og gera kostnaðaráætlanir á þeim úrbótum sem þurfa þykir, eigandanum að kostnaðarlausu. Rafsól hf. er löggiltur rafverktaki og starfar á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Upplýsingar í síma 35600. Iw RAFSOL @ SKIPHOLTI33, SÍMI35600. LÖGGILTUR RAFVERKTAKI Frá starfsþjálfun fatlaðra Tekinn verður inn nýr hópur í starfsþjálfunina í janúar 1995. Umsóknarfrestur ertil 10. nóvember nk. Starfsþjálfunin er hugsuð sem endurhæfing eða hæf- ing til náms og starfa og ætluð einstaklingum eldri en 17 ára sem vegna sjúkdóma, slysa eða annarra áfalla þurfa að endurmeta og styrkja stöðu sína. Starfsþjálfunin tekur þrjár annir, kennd er tölvunotkun, bókfærsla, verslunarreikningur, íslenska, enska og samfélagsfræði. Einnig er veitt starfsráðgjöf og stuðningur við atvinnuleit. Tekið er á móti umsóknum í starfsþjálfun fatlaðra, Hátúni 10a, 9. hæð. Frekari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 29380. fr’ Stjórntækniskóli íslands — Höf6abakka9. Sími 671466 MARKAÐSFRÆÐI Stjórntækniskóli íslands gefur þér kost á beinskeyttu 250 stunda námi í markaðsfræðum. Náminu er ætlað að koma til móts við sívaxandi kröfur atvinnulífsins um hæfari starfskrafta. Námið er ætlað fólki með góða almenna menntun, starfsreynslu í viðskip- talífinu eða þeim sem vilja bæta við sig þekkingu og fá innsýn í heim markaðsfræðanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.