Morgunblaðið - 02.10.1994, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 1994 B 5
ið sé að skýrslu um beit og vörslu
hrossa. Nú eru hross aðeins rekin á
fáeina afrétti, einkum á Norðurlandi
vestra, og beitartími stuttur, 5-7 vik-
ur. Engin afréttarsvæði sem hross
ganga á eru talin vera „gróðurfars-
lega viðkvæm" nema Eyvindarstaða-
heiði, segir í skýrslunni. Vegna fjöig-
unar hrossa og vegna þess að upp-
rekstur þeirra á afrétt er víðast hvar
ekki leyfður eru sum heimalönd ofset-
in. Hér sé um staðbundin vandamál
að ræða, bæði á einstökum jörðum
og í sumum beitarhólfum í þéttbýli.
Þau mál þurfi að taka fastari tökum
og grípa til viðeigandi ráðstafana, svo
sem ítölu. Sigurður Þórhallsson hjá
landssambandinu segir mér að skiln-
ingur á þessum málum meðal hesta-
manna sé alltaf að aukast og á því
að land þurfi áburð og frið á sprettu-
tíma. Sé fræðsla og upplýsinga-
streymi mjög að aukast á vegum
héraðssambanda og hestamannafé-
laga. Sé landssambandið í góðri sam-
vinnu við Landgræðslu ríkisins og
skógræktina um hæfilega hagabeit
hrossa sem geti líka í mörgum tilfell-
um verið til bóta fyrir jarðveginn.
Svo mörg reiðhross og aukin um-
ferð ríðandi fólks í útivist krefst
auðvitað reiðvega og í samþykktum
vegalögum hafa reiðvegir nú fengið
aukna lagastoð. Hefur verið unnin
reiðvegaáætlun um allt land í sam-
vinnu við hestamenn sem hafa beitt
sér mjög fyrir því enda er alltaf ver-
ið að fækka þeim leiðum í nánd við
þéttbýli sem þeir geta notað. Nýjasta
dæmið þegar malbikuð var Flótta-
mannaleiðin svokallaða milli hesta-
húsa í Reykjavík og hesthúsabyggð-
anna fyrir sunnan. Sem dæmi má
nefna að um 4.000 reiðmenn fara
um Mosfellsheiði á ári. Af slíkri
umferð verður slysahætta. Með þeirri
áætlun, sem unnin hefur verið um
reiðvegi í framtíðinni, má ætla að á
næstu árum verði lagning reiðvega
engu síður en akvega og viðhald
þeirra talsvert atvinnuskapandi.
Fjörleg útgáfustarfsemi.
Það kemur kannski ókunnugum á
óvart hve mikil útgáfustarfsemi er í
gangi hjá hestamönnum. Tvö rit ei-u
gefin út, Eiðfaxi í um 4.000 eintökum
og Hesturinn okkar um 3.000.
Landssambandinu ber að sjá tii þess
að gefið sé út slíkt rit um hesta og
hestamennsku og leigir það útgáfu-
réttinn á Hestinum okkar til Skjald-
borgar en Hjalti Jón Sveinsson er
ritstjóri. Ritstjóri Eiðfaxa er Erlingur
A. Jónsson. Það bar til tíðinda í sum-
ar á landsmótinu að Eiðfaxi var gef-
inn út á ensku og þýsku líka og
munu vera hugmyndir um að halda
áfram á þeirri braut vegna erlendra
unnenda íslenska hestsins. Þetta eru
hvort tveggja mjög vegleg rit. Fleiri
rit koma út reglulega og má þar
nefna að ársrit Búnaðarfélags ís-
lands um hrossarækt, Hrossaræktin,
hefur verið gefið út frá 1986 og sér
Kristinn Hugason, ráðunautur, um
útgáfuna nú, en þar er stefnt að víð-
tækari útgáfu.
Erlendis eru gefin út 17 tímarit,
sem fjalla eingöngu um íslenska gæð-
inginn, í líkingu við þessi tvö. Eru
þau eðlilega á ýmsum tungumálum,
enda koma þau út í Kanada, Þýsk-
landi, Hollandi, Belgíu, Skotlandi,
Sviss, Austurríki, Svíþjóð, Finnlandi,
Noregi, Danmörku, Frakklandi og
Bandaríkjunum. Er þetta ekki svo lít-
il kynning á íslenska hestinum og
heimkynnum hans.
Mikil gróska er í útgáfu bóka;
fræðslubókum svo sem ættbókum,
kennslubókum um hesta og reið-
mennsku og fleira, að ógleymdum
hestabókunum öllum og myndabók-
unum á almenna markaðinum sem
íjörleg útgáfa er á fyrir hver jól.
Einnig er töluverð útgáfa af þessu
efni á myndböndum.
Ekki treysti ég mér til að segja
um hve mörg störf í landinu tengjast
eða eru beinlínis í hestamennsku. í
árslok 1993 skrifar Kristinn Huga-
son, hrossaræktarráðunautur, að
telja megi líklegt að hrossaræktin
skapi á einn eða annan hátt u.þ.b.
300 til 500 ársverk í landinu. Af
ofangreindu held ég að sé óhætt að
fullyrða að sú tala er alltof lág.
Annar maður kunnugur hesta-
mennskunni kvaðst telja að ekki
væru færri en 1.000 manns í landinu
sem hefðu af þessu allt að heils árs
tekjur. Eg hefi ekkert í höndunum
til að vefengja það, en ansi þykir
mér það lág tala og rökin geta les-
endur séð i ofangreindri úttekt.
• ÓDÝRAR FRYSTIKt STUR, K Æ L I - OG FRYSTISKÁPAR*
VESTFROST A FRABÆRU VERÐI
gf. $tO
Frystikistur í mörgum stœrðum
• Yflr 25 ára reynsla á íslandi.
• Niðurfall í botni fyrir afþíðingu
• Óryggisrofar v/hitabreytinga og bama
• Sparnaðarstilling - djúpfrystirofi
• Ljós í loki
• Danfoss kerfi
Dönsk gœðavara - 3ja ára ábyrgð
Úrval kœli- og
frystiskápa
• Orkusparandi -
• Tvœr pressur í
sambyggðum
skápum
• Hœgri eða vinstri
opnun
• Djúpfrystirofi -
öryggisrofi
• Danfoss kerfi
oariÍŒi
• FAXAFEN 12 • SlMI 38000 •
•ÓÝRAR FRYSTIKISTUR, K Æ L I - OG FRYSTISKÁPAR*
HVER HELDUR
ÞÉR UPPI
eftir aðþú hœttir að vinna?
FRJALSI
LÍFEYRISSJÓÐUMNN
-tilaSnjóta Itfsins
■KANPIA • LAUOAVm 170 • slMI B1 B7 OO
I^Skandia
tyimu bömin þín halda þér uppi
eða sýnir þú þá fyrirhyggju að greiða
í lífeyrissjóð? Frjálsi lífeyrissjóður-
inn erhugsaðurfyrirþá sem ekki eru
skyldaðir til að greiða
í hefðbundiui lífeyris-
sjóði og þá sem gera
kröfu um hœrri lífeyri
en fœst úr tryggingakerfinu
og almennum lífeyrissjóðum.
Sjóðurinn er þín eign, þú rœður
iðgjaldinu og þú rœður hvernig
greiðslum úrsjóðnum er báttað.
Hafðu samband við okkur hjá
Skandia ogfáðu sendan
bœkling og forrit sem
reiknar út þínar lífeyris-
greiðslur. Haltu vel á
þínum lífeyrismálum og njóttu
lífsins með Frjálsa lífeyrissjóðnum