Morgunblaðið - 04.10.1994, Blaðsíða 23
Nettó Itr. HæðxBreiddxDýpt Staögr.
HFL120DELUX j 125 86x 55x64 34.950,-
HFL 230 210 86x 84x64 42.400,-
HFL290 266 86x100x64 í 43.650,-
HFL390 365 86x130x64 ; 47.470,-
EL53 500 86x150x73 56.970,-
EL61 576 86x170x73 í 64.950,-
|| cc CQ á Æ Ð U R N 1 R
©JORMSSONHF
lo
i ttí
I "* AtG AíG AE« AEG AES A£G Altt AtG AtG At<
Lágmúla 8, Sími 38820
Umbobsmenn um land allt
A£ÍS ASCS MG MG ASG A£íS ASSS
HAPPDRÆTTI
HJARTAVERNDAR
1. VIMNINGUR
Ao verðmæti um
KR. 4.000.000.-
Pajero Super Wagon ieppi, sjálfskiptur, V.6. árg. 1995
MITSUBISHI
MOTORS
HJARTAVERND
URVAL UTSYN
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1994 23
Qff Strauss á Styrktarfélagstónleikum
í íslensku óperunni.
• •
Markús Orn
í 4. sæti
Stuðningsfólk!
Verið velkomin á
skrifstofuna
Suðurlandsbraut 20.
Opið : 16.30-21.30.
Laugard. og sunnud.:
13.30- 18.00.
Símar: 882299 &
883399
Ingveldur Ýr Jónsdóttir syngur verk
eftir Kaldalóns, Rossini, Bizet, Weill
INGVELDUR Ýr Jónsdóttir,
mezzosópran, heldur tónleika á
vegum Styrktarfélags íslensku óp-
erunnar á miðvikudagskvöld. Ing-
veldur segir að hún hafi leitast við
að hafa efnisskrá tónleikanna sem
fjölbreyttasta og syngi bæði íslensk
og spænsk lög, aríur og lög úr söng-
leikjum.
„Ég ákvað að syngja mína uppá-
haldstónlist, en eins og efnisskráin
gefur til kynna er hún af ýmsum
toga,“ sagði Ingveidur Ýr. „Af ís-
lensku lögunum
má nefna Betli-
kerlinguna eftir
Sig'/alda Kalda-
lóns, og iag Jóns
Ásgeirssonar,
Þótt form þín
hjúpi graflín. Þá
flyt ég einnig
lög eftir Karl O.
Runólfsson og
Jón Þórarinsson.
Ég hef mjög
gaman af að
syngja þessi ís-
lensku lög, því
ég gerði lítið af
því á meðan ég
var í námi erlendis.“
Ingveldur segir að hún vilji gjarn-
an syngja dramatíska texta, eins
og Betlikerlinguna og Wie lange
noch eftir Kurt Weill, sem hún ætl-
ar einnig að flytja á miðvikudag.
„Á tónleikunum flyt ég líka aríur,
til dæmis úr Carmen eftir Bizet,
Öskubusku eftir Rossini og Ariadne
á Naxos eftir Richard Strauss.
Óperur eftir Strauss hafa lítið verið
fluttar hér á landi og mér finnst
mjög gaman að fá að kynna þau
verk hans fyrir áheyrendum, því ég
held mjög upp á tónlist hans. Loks
má svo nefna flokk spæ.nskra laga
eftir Manuel de Falla.“
Hefur haft nóg að gera
Ingveldur segir að hún hafi nú
dvalið hér á landi um alllangan tíma,
þar sem hún hafi haft nóg að gera.
„Ég kom frá Vín til að taka þátt í
uppfærslu Óperunnar á Evgení
Ónegín fyrir ári, en það var fyrsta
hlutverk mitt á sviði hérlendis. Síðan
söng ég í Niflungahringnum og nú
fer ég með hlutverk Preziosillu í
Valdi örlaganna.“
Hlé verður gert á sýningum í
Morgunblaðið/Einar Falur
INGVELDUR Ýr Jónsdóttir
Þjóðleikhúsinu frá miðjum október
og fram til 25. nóvember og þann
tíma ætlar Ingveldur að nota til að
fara til fundar- við umboðsmann í
Bandaríkjunum. „Þar fer ég í ýmsar
prufur, bæði fyrir verkefni í Banda-
ríkjunum og Évrópu á næsta leik-
ári. Eftir að sýningum á Valdi örlag-
anna lýkur fer ég að huga að öðrum
verkefnum og fer þá líklega til Vín-
ar, þar sem ég hef verið búsett
undanfarin 10 ár. Ég veit ekki hvort
ég mun búa þar til frambúðar, því
vinnan ræður hvert leið mín liggur.“
Undirleikari Ingveldar á tónleik-
unum er Kristinn Örn Kristinsson.
„Kristinn Örn kennir við Tónlistar-
skóla Suzuki-sambandsins og er
reyndur undirleikari,“ segir Ingveld-
ur. „Samstarf okkar hefur þróast
nokkurn tíma og ég held mjög upp
á hann sem undirleikara, enda náum
við vel saman. Það er mjög gott að
eiga þess kost að leita ávallt til
sama manns. Kristinn er flinkur og
fljótur og það á vel við mitt skap.“
Tónleikar Ingveldar í íslensku
óperunni hefjast kl. 20.30 á mið-
vikudagskvöld, 5. október.
Nýjar bækur
Sigurður
A. Magnússon
M Út er komið alþjóðlegt ljóða-
safn sem ber yfirskriftina Ur ríki
samviskunnar. Þýðandi safnsins
og ristjóri er Sig-
urður Á. Magnús-
son rithöfundur,
en bókin kemur
út í tilefni af 20
ára afmæli ís-
landsdeildar Am-
nesty Internation-
al. Ljóðasafnið Úr
ríki náttúrunnar
inniheldur 130
ljóð eftir 102
skáld hvaðanæva
af heimskringlunni. Meðal þeirra
eru nokkur helstu skáld aldarinnar,
,svo sem Anna Akhmatova, Osip
Mandelsdam, Pablo Neruda, Wole
Soyinka, Seamus Heaney, Czeslaw
Milosz og Tomas Tranströmer.
Mörg skáldanna hafa orðið að þola
þrengingar og ofsóknir fyrir orð sín
og nokkur goldið fyrir þau með lífi
sínu. Öll hafa þau með einhveijum
hætti gert Sér þjáningar aldarinnar
innlífar og túlkað þær í ljóðum sem
vonandi eiga erindi við alla hugs-
andi menn.
Mál og menning gefur bókina út í
samvinnu við Islandsdeild Amnesty
International. Úr ríki samviskunnar
er 183 bls., unnin í prentsmiðjunni
Odda h.f. Kápuna hannaði Margrét
E. Laxness.
PRÓFKJÖR
28. og 29. október
LISTIR
Vill helst syngja
dramatískan texta
TINNA vekur athygli á breyttum
opnunartíma eftir 1. okt.
Fimmtudaga frá kl. 9-20
Laugardaga frá kl. 10-14
Aðra daga frá kl. 9-17
Tinna hárgreiðslustofa fyrir dömur og herra
____ Furugerði 3, sími 32935.