Morgunblaðið - 04.10.1994, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 04.10.1994, Blaðsíða 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ More tölvnr 4Mb minni, 210 Mb disknr, VESA Local Bns, 14" SVGA skjár, lyklaborð og mns Tilboflfrákr. 104.900,- BOÐEIND Austurströnd 12. Sími 612061. Fax 612081 's_____________________________________/ TJtsala Árnað heilla ÍDAG •irsmeg ^rsmeg Víkveiji skrifar... Fram hefur kómið að undan- förnu að einstaka læknar hafa fengið uppgerð svonefnd námsleyfí umfram það, sem kjarasamningar kveða á um, hafí þeir ekki getað notfært sér námsleyfín. Það vekur óneitanlega furðu, að almannafé skuli ráðstafað með þessum hætti. Einkafyrirtæki geta tekið slíkar ákvarðanir að vild, þótt segja megi að það geti orkað tvímælis hjá þeim einkafyrirtækjum, sem skráð eru á hlutabréfamarkaði. Þegaf hins veg- ar opinberir aðilar taka upp á því að greiða mönnum nánast eftir geðþótta þess eða þeirra, sem ákvörðun tekur eða taka, gegnir öðru máli. Hér er um almannafé að ræða. Þeir sem eiga rétt á greiðslum úr almannasjóðum verða að geta gengið út frá því sem vísu, að eitt gangi yfír alla. Hvernig eiga læknar t.d. að bregðast við, þegar þeir sjá dæmi um uppgjör af því tagi, sem upplýst hefur verið um opinberlega að undanförnu? Hversu margir læknar hafa ekki látið sér detta í hug að fara fram á annað en það, sem kjarasamningar kveða á um en fá nú upplýsingar um, að þeir sem aðgangsharðari hafa verið hafi náð meiru í sinn hlut. Það er einfald- lega ekkert vit í vinnubrögðum sem þessum og þau á að stöðva tafar- laust. XXX Svokallað ráðstöfunarfé ráðherra hefur verið töluvert til umræðu í tengslum við þá gagnrýni, sem Guðmundur Arni Stefánsson, fé- lagsmálaráðherra, hefur sætt. Hér er um að ræða ákveðna fjárupp- hæð, sem ráðherrar fá úthlutað skv. fjárlögum og þeir virðast geta ráðstafað að vild en vafalaust fyrst og fremst til þarfra verkefna. En hvar er gerð grein fyrir meðferð þessa fjár? Eðlilegt hlýtur að teljast, að ein- hvers staðar sé opinber aðgangur að yfirliti yfír ráðstöfun ráðherra á þessum peningum. Hvar? ótt ráðherrar og aðrir talsmenn stjórnmálaflokkanna hafi gagnrýnt fjölmiðla fyrir ábyrgðar- lausan fréttaflutning og umfjöllun um ásökunarefni á hendur núver- andi félagsmálaráðherra, má búast við, að þessar umræður hafí mikil áhrif í þá átt að hvetja stjórnmála- menn og embættismenn til varkárni í meðferð almannafjár. Auðvitað hefur umfjöllun fjöl- miðla verið mismunandi eins og gengur en þegar á heildina er litið má telja líklegt að þessar umræður hafi jákvæð áhrif á vinnubrögð í hinu opinbera kerfí. Eitt af því, sem vonandi breytist til batnaðar er upplýsingamiðlun opinberra aðila. Morgunblaðið hefur vikum saman reynt að fá upplýs- ingar um, hver tók ákvörðun um að kaupa listaverk af erlendum listamanni fyrir 3 milljónir af skatt- peningum Hafnfírðinga. Það hefur enn ekki tekizt að fá þær upplýs- ingar á bæjarskrifstofum Hafnar- fjarðar. Ný lína í heimilistækjum JT /~|ÁRA afmæli. tj 1/Fimmtudaginn 6. október verður fimmtugur Bjöm Sverrisson, 1. vél- fræðingur við Sigöldu- og Hrauneyjafossvirkjun. Kona hans er Sólveig Indr- iðadóttir. Þau taka á móti samstarfsmönnum, ætt- ingjum og vinum frá kl. 20 í sal starfsmanna við Búr- fellsvirkjun á afmælisdag- inn. SKÁK llmsjön Margeir Pétursson ÁSKORENDAMÓTI kvenna lauk í Tilburg í Hollandi um helgina. Þessi staða kom upp í skák þeirra Christine Fois- or (2.405), Rúmeníu, og Maju Tsjíburdanidze (2.505) frá Georgíu, fyrrum heimsmeistara í kvenna- flokki. Maja hafði svart og átti leik og fann laglegt mát: 41. - Dxh2+! og sú rúm- enska gafst upp því 42. Hxh2 - Rg3+ er mát. Úrslit á áskorendamótinu: 1.-2. Zsuzsa Polgar, Ungverja- landi og Tsjíburdanidze lOVÍz v. af 16 mögulegum, 3. Pia Cramling, Svíþjóð 8V2 v. 4.-5. Alisa Galliamova, Úkraínu og Alisa Maric, Serbíu 8 v. 6. Peng, Kína V/i v. 7.-8. Foisor og Nana Ioseiiani, Georgíu 7 v. af 9. Ketevan Arakhamia, Georg- íu 5 v. Tvær efstu tefla ein- vígi um áskorendaréttinn á Xie Jun, heimsmeistara. Við flytjum inn vönduð heimilistæki frá Smeg og Piere Roblin. Tækin marka tímamót í hönnun, eru stílhrein og auðveld í notkun. EIRVÍK heimilistæki hf. Suðurlandsbraut 22,108 Rvík, sími 91-880200. fyrir dömur, herra og börn BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 2. júlí sl. í Kópavogs- kirkju af sr. Kristjáni Þor- varðarsyni Silva Þóris- dóttir og Gunnar Guð- mundsson, til heimilis á Skjólbraut 2, Kópavogi. i.jósmyndastofa Ólafs Ámasonar, BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 27. ágúst sl. í Akra- neskirkju af sr. Birni Jóns- syni Hafdís Hannesdóttir og Sævar Freyr Þráins- son, til heimilis á Eggerts- götu 2, Reykjavík. Ljósmyndastofa Kópavogs BRÚÐKAUP. Gefin voru saman í Háteigskirkju af sr. Helgu Soffíu Konráðsdóttur Halldóra Margrét Gylfa- dóttir og Ryan Hollins- head, til heimilis í Stórholti 12, Reykjavík. Ljósmyndastofa Reykjavíkur BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 27. ágúst sl. í Dóm- kirkjunni í Reykjavík af sr. Frank M. Halldórssyni íris Þráinsdóttir og Jón Þrá- insson, til heimilis á Haga- mel 33, Reykjavík. Ljósmyndastofa Reykjavfkur BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 3. september sl. í Bessastaðakirkju af sr. Sigfínni Þorleifssyni Guð- rún Gestsdóttir og Gunn- ar Skúlason, til heimilis á Boðagranda 1, Reykjavík. Ljósmynd: Ófeigur BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 12. ágúst sl. í Sel- tjamameskirkju af sr. Sol- veigu Láru Guðmundsdóttur Kolbrún _ Kristiansen og Hörður Orn Bragason, til heimilis á Álfaskeiði 54, Hafnarfirði. Ljósmyndastofa Reykjavíkur BRÚÐKAUP. Gefin vom saman 3. september sl. í Laugarneskirkju af sr. Hirti Magna Jóhannssyni Hrönn Harðardóttir og Jón Örv- ar Kristinsson, til heimilis á Hrísateigi 15, Reykjavík. Ljósmyndastofa Reykjavíkur BRÚÐKAUP. Gefin vom saman 10. september sl. í Neskirkju af sr. Frank M. Halldórssyni Svava Hans- dóttir og Jóhannes Kristj- ánsson, til heimilis á Greni- mel 2, Reykjavík. Ljósmyndastofa Reykjavíkur BRÚÐKAUP. Gefin vora saman í Fríkirkjunni í Hafn- arfirði af sr. Einari Eyjólfs- syni Vilborg Arnardóttir og Halldór Már Þórisson, til heimilis á Bakkastíg 8, Bolungarvík. Brjóstahaldarar frá kr. 900,- Calida dömu-/herranáttskyrtur frá kr. 1.500,- Telpnanærfatasett frá kr. 490,- Brjóstahaldari á mynd kr. 1.680,- CALIDAI NEffB -------- umm\ 30 slm bum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.