Morgunblaðið - 04.10.1994, Qupperneq 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBEK 1994
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1994 29
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 691100.
Auglýsingar: 691111. Askriftir: 691122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 691329, frétt-
ir 691181, íþróttir 691156, sérbloð 691222, auglýsingar 691110, skrif-
stofa 681811, gjaldkeri 691115. Áskriftargjald 1.400 kr. á mánuði innan-
lands. í lausasölu 125 kr. eintakið.
FJÁRLÖG OG
EFNAHAGSBATI
SÍÐASTA fjárlagafrumvarp ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks
og Alþýðuflokks á þessu kjörtímabili var lagt fram eftir
þingsetningu sl. laugardag. Það ber merki nokkurs efnahags-
bata, öfugt við önnur fjárlagafrumvörp ríkisstjórnarinnar, sem
einkenndust af vaxandi efnahagskreppu.
Hallinn á ríkissjóði verður áfram verulegur samkvæmt nýja
fjárlagafrumvarpinu, eða 6,5 milljarðar króna. Heildartekjurn-
ar eru áætlaðar 109,4 milljarðar, en útgjöldin 115,9 milljarð-
ar. Gert er ráð fyrir því, að tekjur ríkissjóðs aukist talsvert á
næsta ári vegna efnahagsbatans, eða um 2,6 milljarða króna.
Segja má ríkisstjórninni og fjármálaráðherranum til hróss, að
öll þessi tekjuaukning er notuð til þess að draga úr hallanum
og fast er haldið við aðhaldsstefnu þá í ríkisfjármálum, sem
mótuð hefur verið undanfarin ár. Þetta er enn merkilegra,
þegar haft er í huga að þingkosningar standa fyrir dyrum og
mikil freisting fyrir ráðherra að koma sér í mjúkinn hjá kjós-
endum. Prófið hefur ríkisstjórnin staðizt miðað við ijárlaga-
frumvarpið eins og það er lagt fram. Friðrik Sophusson, fjár-
málaráðherra, sagði þegar hann kynnti frumvarpið:
„Við teljum, að það sé úrelt að reyna að sýna fram á betri
afkomu á kosningavetri en raunin er. Við höldum líka að það
sé liðin tíð að hægt sé að kaupa kjósendur með miklum útgjöld-
um rétt fyrir kjördag."
Þetta er að sjálfsögðu hárrétt hjá fjármálaráðherranum og
það eykur tiltrú á ummæli hans, að strangt aðhald er áfram
í ríkisrekstrinum þrátt fyrir batnandi tíð, m.a. er krafa gerð
til ráðuneytanna um 2% hagræðingu í rekstri til að mæta
óumflýjanlegum nýjum útgjöldum. Hins vegar á eftir að koma
í ljós, hvort þingmenn hafa þrek til aðhalds, þegar fjárlaga-
frumvarpið kemur til kasta þeirra. Því hefur ekki verið gleymt,
bvernig ráðherrar og stuðningslið ríkisstjórnar Steingríms
Hermannssonar slepptu algerlega fram af sér beizlinu fyrir
vorkosningarnar 1991.
Lækkun ríkissjóðshallans nú má glöggt sjá á því, að sam-
kvæmt fjárlögum yfirstandandi árs var gert ráð fyrir því, að
hann næmi ríflega 9,6 milljörðum króna, en nú er reiknað
með að hallinn verði tæpir 11 milljarðar. Takist að halda hall-
anum í 6,5 milljörðum er stórt skref stigið að takmarkinu um
hallalaus fjárlög, en á því er brýn nauðsyn eftir tugmilljarða
halla undanfarinna ára. Batnandi hag þarf að nota til að eyða
hallanum og síðan til að skila tekjuafgangi til að létta skulda-
byrði ríkissjóðs. Loks til að létta þunga skattabyrði, sem lögð
hefur verið á borgarana undanfarin samdráttarár og hefur
leitt með öðru til stóraukinnar skuldasöfnunar heimilanna.
I greinargerð frumvarpsins segir, að skatttekjur ríkissjóðs
á næsta ári verði talsvert minni en var í upphafi samdráttar-
skeiðsins 1991, hvort sem miðað er við landsframleiðslu eða
fast verðlag. Tekjur lækka nokkuð á næsta ári vegna þess,
að þá kemur lækkun virðisaukaskattsins á matvæli að fullu
til framkvæmda, svo og fellur brott sérstakur tímabundinn
5% tekjuskattur. Ánægjulegt er, að ekki verður höggvið í þann
knérunn að þyngja enn skattbyrðina og það eru viss tímamót,
að tímabundinn skattur verður afnuminn á réttum tíma. Ekki
sízt þar sem í ljós hefur komið, að svonefndur hátekjuskattur
hefur bitnað mest á ungu fólki, sem leggur á sig ómælda vinnu
til að koma yfir sig þaki, svo og sjómönnum, sem búa við
miklar sveiflur í tekjum.
Efnahagsbatann og aðhaldssemi ríkisstjórnarinnar í ríkis-
rekstrinum má einnig sjá í hreinni lánsfjárþörf ríkissjóðs og
opinberra aðila á næsta ári. Hún lækkar úr 22,1 milljarði króna
í ár niður { 14,4 milljarða á næsta ári, eða um ríflega þriðj-
ung. Árangurinn er að sjálfsögðu mikilsverður og á að geta
stuðlað að frekari lækkun vaxta ásamt minni ríkissjóðshalla.
í greinargerð með fjárlagafrumvarpinu er vikið að stefnu-
mörkuninni með þessum orðum:
„Boðskapur þessa fjárlagafrumvarps er skýr. Ekki verður
hvikað frá þeirri aðhaldsstefnu í ríkisfjármálum, sem ríkis-
stjórnin hefur fylgt. Nú þegar loksins rofar til í efnahagslífinu
eftir erfiðleika og samdrátt undanfarin ár er afar mikilvægt,
að sá tekjuauki, sem efnahagsbatinn skilar, gangi til þess að
minnka halla ríkissjóðs. Jafnvægi í ríkisbúskapnum er for-
senda þess að treysta hagvöxt í sessi og bæta lífskjörin. Það
er kjarni stefnunnar í ríkisfjármálum."
Þessi stefnumörkun ríkisstjórnarinnar er rétt. Engin goðgá
er að ætla, að ríkissjóðshailanum verði eytt á 2-3 árum með
auknum hagvexti, en það tekst ekki nema áfram verði gætt
ýtrustu sparsemi og aðhalds í ríkisrekstrinum.
Heitar umræður á löngum flokksstjórnarfundi Alþýðuflokksins
um siðferði í stjórnmálum og ásakanir á Guðmund Arna Stefánsson
Tillögu
um afsögn
vísað frá
Flokksstjórnarfundur Alþýðuflokksins á Hótel
Loftleiðum á sunnudag fór fram fyrir opnum
tjöldum og stóð yfír í tæpar fímm klukku-
stundir. Tillögu þar sem skorað var á
Guðmund Árna Stefánsson að segja af sér
varaformennsku og ráðherradómi var vísað
, ^
frá með 67 atkvæðum gegn 13. Omar
Friðriksson fylgdist með umræðunum.
Fundurinn hófst með því að
Jón Baldvin Hannibalsson,
formaður Alþýðuflokksins,
fjallaði í ítaríegu máli um
siðferði í stjórnmálum og í íslenska
þjóðfélaginu. Rakti hann mörg dæmi
um fyrirgreiðslupólitík og vék einnig
að siðferðilegum álitamálum í umfjöll-
un fjölmiðla. Hann vísaði því á bug
að hann væri að réttlæta mál sem
gagnrýnd hefðu verið með því að
benda á önnur sambærileg. „Það eina
sem ég er að segja er það, að þegar
við ræðum siðferðileg vandamál, þá
er strangasta krafan þessi, að líta í
eigin barm. Það sem þér viljið að aðr-
ir menn gjöri yður, það skuiið þér og
þeim gjöra,“ sagði hann.
Benti hann á að Alþýðuflokkurinn
hefði fyrir löngu sett sér þá reglu að
þingmenn flokksins sætu ekki í bank-
aráðum og sjóðsstjórnum. Alþýðu-
flokkurinn hefði barist gegn hópum
sem hefðu haft mestra hagsmuna að
gæta í gegnum pólitískt ’ forræði í
stjórnkerfinu.
„Við erum jafnaðarmenn og jafn-
aðarstefnan er ekki ströng eða hörð
kenning. Hún er í raun og veru sið-
ferðileg skoðun," sagði Jón Baldvin.
„Við eigum ekki í þessari umræðu að
víkjast undan að taka þátt í henni.
Við eigum ekki að kvarta undan henni,
jafnvel þótt hún sé ósanngjörn. Við
eigum einfaldlega að hafa þá trú á
sjálfum okkur, að við höfum hreinan
skjöld, höfum ekkert að fela og við
eigum að taka mark á þessari um-
ræðu,“ sagði hann.
í lok ræðu sinnar sagði Jón Baldvin
að eðlilega væru skiptar
skoðanir um þessi álitamál.
Skoraði hann á flokksstjóm-
armenn að flytja engar til-
lögur á fundinum, hvorki til
fordæmingar né stuðnings.
„Málið er komið í eðlilegan farveg og
það er ekki tímabært hér og nú að
kveða upp neina endanlega dóma í
formi slíkra tillagna. Komi slíkar tillög-
ur fram mun ég persónulega flytja
frávísunartiilögu á þær,“ sagði hann.
Guðmundur Árni Stefánsson, vara-
formaður flokksins, tók næstur til
máls og sagði að tekist hefði víðtæk
sátt um stefnu flokksins á seinasta
fiokksþingi en ekki hefði tekist að ná
sáttum um forystu flokksins, sem
hefði leitt til þess að Jóhanna Sigurð-
ardóttir yfirgaf flokkinn. í kjölfarið
hefði svo atlagan gegn sér hafist og
væri það ein hatrammasta herferð
íjölmiðla gegn einum stjórnmála-
manni sem sögur færu af hér á landi.
Sagði hann að ákvörðun þing-
flokksins væri ekki gerð með það í
huga að aðrir flokkar gerðu slíkt hið
sama. „Ef til þess kemur að aðrir
flokkar eða stjórnmálamenn vilja lítið
úr þessu gera og segja að þetta sé
einhverskonar kattarþvottur, þá vænti
ég þess að þeir hinir sömu aðilar séu
reiðubúnir að setja sig undir svipaða
smásjá," sagði Guðmundur Árni.
Lagði hann mikla áherslu á að nú
væri kominn tími til að þétta raðirnar
og standa saman í þeirri orrahríð sem
fram undan væri. „Ef við sláum ekki
skjaldborg utan um okkar mál og for-
ystu, þá gerir það enginn annar,“
sagði hann.
Rannveig Guðmundsdóttir þing-
flokksformaður gerði fundarmönnum
grein fyrir yfirlýsingu þingflokksins
frá því á föstudag. Hún sagði að al-
þýðuflokksmenn hefðu upplifað erfiða
og átakasama tíma frá lokum flokks-
þings í júní. Nú væri nauðsynlegt að
snúa bökum saman á örlagatímum,
rétta af það sem miður færi og sýna
og sanna að stefna og störf flokksins
væru traustsins verð.
Að loknum þessum framsöguræðum
hófust almennar umræður. Margrét
Bjömsdóttir, formaður Félags fijáls-
lyndra jafnaðarmanna, gerði grein fyr-
ir yfirlýsingum stjómar félagsins um
málefni Guðmundar Áma. Sagði hún
að skýringar og svör Guðmundar Áma
við þeim ávirðingum sem fram hefðu
komið væra ekki fuilnægjandi. Gagn-
rýndi hún viðbrögð hans við gagnrýn-
inni og vísaði því á bug að um skipu-
lagt samsæri innan fiokksins væri að
ræða. Sagði hún að enginn þingmaður
eða ráðherra Alþýðuflokksins hefði
haft hugmynd um þær umræður sem
fram hefðu farið í stjóm FFJ. Greindi
hún frá því að hún hefði boðið Sig-
hvati Björgvinssyni viðskiptaráðherra
að segja starfi sínu sem að-
stoðarmaður hans lausu
vegna gagnrýni sem fram
hefði komið á stjóm FFJ en
hann hefði hafnað því.
Margrét sagði óþarft að
biðja Ríkisendurskoðun um rannsókn
á embættisfærslum Guðmundar Árna
þar sem málsatvik lægju ljós fyrir í
flestum atriðum. Nú bæri hverjum og
einum að leggja mat á málavexti.
„Það er okkar niðurstaða, þegar mála-
vextir eru skoðaðir í heild, að Guð-
mundur Árni hafi með embættisfærsl-
um sínum misboðið almennum og
óskráðum siðareglum í stjórnmálum,
þannig að honum beri að segja af
sér. Hann hefur að okkar mati skaðað
Alþýðuflokkinn og valdið trúnaðar-
bresti milli sín og okkar,“ sagði hún.
Tíu alþýðuflokksmenn, stjórnar-
menn í FFJ og félagar úr Álþýðu-
flokksfélagi Reykjavíkur, lögðu síðan
fram svohljóðandi tillögu á flokks-
stjórnarfundinum: „Flokksstjórnar-
fundur Alþýðuflokksins, haldinn 2.
október 1994, skorar á Guðmund
Árna Stefánsson að segja af sér emb-
ætti varaformanns flokksins, svo og
ráðherrastöðu sinni. Með slíkri
Þungbær um-
ræða fyrir
jafnaðarmenn
Morgunblaðið/Kristinn
MARGRÉT Björnsdóttir, formaður Félags frjálslyndra jafnaðarmanna, á tali við Jón Baldvin Hannibals-
son, formann Alþýðuflokksins, og Guðmund Oddsson, framkvæmdastjóra flokksins og fundarstjóra.
GUÐMUNDUR Árni Stefánsson félagsmálaráðherra og bróðir
hans, Gunnlaugur Stefánsson alþingismaður, greiða atkvæði á
flokksstjórnarfundinum um tillögu formannsins um að vísa frá
áskorun á Guðmund Árna að segja af sér varaformennsku í flokkn-
um og ráðherradómi.
ákvörðun setti Guðmundur Árni hags-
muni flokksins í öndvegi. Það er mat
flokksstjórnar að Guðmundur Árni
styrki stöðu sína í íslenskum stjórn-
málum til lengri tíma með því að axla
ábyrgð á þeirri atburðarás, sem valdið
hefur trúnaðarbresti innan Alþýðu-
flokksins." Undir tillöguna skrifuðu
Hildur Kjartansdóttir, Vilhjálmur Þor-
steinsson, Bolli Valgarðsson, Ágúst
Einarsson, Gunnar Ingi'Gunnarsson,
Hulda Kristinsdóttir, Margrét S.
Björnsdóttir, Jónas Þór Jónasson, Öm
Þorláksson og Rúnar Geirmundsson.
Stjórn FFJ lagði einnig frám yfirlit
á fundinum yfir sjö mál sern varða
embættisfærslu Guðmundar Árna sem
ráðherra og bæjarstjóra í Hafnarfirði
sem stjórnin gagnrýnir hann harðlega
fyrir og telur að hann hafi ekki gefið
viðhlítandi skýringar á. Þetta eru mál
Björns Önundarsonar fyrrv. trygg-
ingayfirlæknis, Hrafnkels Ásgeirsson-
ar lögfræðings, Steens Johanssonar
kynningarfulltrúa, Jóns H. Karlssonar,
aðstoðarmanns ráðherra, ráðstöfun
íbúðar í eigu Hafnarfjarðarbæjar, íjár-
mál og stjórnun Listahátíðar í Hafnar-
firði hf. og biðlaun Guðmundar Árna
frá Hafnarfjarðarbæ.
Vilhjálmur Þorsteinsson, ritari FFJ,
vék að þessu yfirliti í ræðu sinni og
sakaði hann Guðmund Árna um
skrumskælingu á málstað jafnaðar-
manna með verkum sínum. Sagði Vil-
hjálmur að þessi umræða væri þung-
bær fyrir jafnaðarmenn en stjórnmála-
menn yrðu að þola aðhald fjölmiðla.
„Hér er spurt um siðferði, ábyrgð og
skyldur við iýðræðið. Með atkvæði
ykkar eru þið að draga ykkar persónu-
legu markalínu í siðferðismálum,“
Versta kreppa
í flokknum
Í40 ár
sagði Vilhjálmur.
Magnús Ámi Magnússon, formaður
Sambands ungra jafnaðarmanna,
kynnti ályktun sem samþykkt var á
sambandsstjórnarfundi SUJ sl. laug-
ardag. Þar er niðurstöðu þingflokksins
um siðbót í íslenskum stjómmálum
fagnað. Varaði Magnús alþýðuflokks-
menn við að efna til óvinafagnaðar
innan flokksins fyrir kosningabarátt-
una í vetur og sagði að flokkurinn
ætlaði sér að taka siðferðismálin föst-
um tökum. ---------
Kristmundur Árnason,
formaður Sambands Al-
þýðuflokksfélaga á Suð-
urnesjum, kynnti ályktun
stjórnar sambandsins frá “
sl. laugardegi þar sem lýst er yfir
ánægju með þá ákvörðun þingflokks
og ráðherra að fela Ríkisendurskoðun
að kanna þau gagnrýnisatriði sem
fram hefðu komið. Sigríður Einars-
dóttir sagði að flestir ráðherrar flokks-
ins hefðu orðið fyrir miklu aðkasti.
Sagðist hún trúa því að formaður
flokksins myndi leiða þetta mál farsæl-
lega til lykta.
Bolli Valgarðsson, formaður Félags
ungra jafnaðarmanna í Reykjavík,
kvaðst fagna niðurstöðu þingflokks
Alþýðuflokksins um siðbót í íslenskum
stjórnmálum. Sagðist hann vera á þeirri
skoðun að Guðmundur Árni ætti sem
varaformaður Alþýðuflokksins að axla
ábyrgðina og segja af sér. Tryggvi
Harðarson, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði,
fjallaði um þann þátt gagnrýninnar sem
sneri að alþýðuflokksmönnum í Hafnar-
firði og sagði aumkunarvert þegar
fimm manna stjórn félags í Reykjavík
felldi áfellisdóma yfir félögum sínum í
Hafnarfirði án þess að leita eftir sam-
ráði við þá.
Haukur Helgason sagði að ekki
hefði komið upp alvarlegri kreppa inn-
an Alþýðuflokksins og hann væri í nú,
í þá fjóra áratugi sem hann hefði starf-
að innan flokksins. „Eg tel að nú sé
tími að mál linni. Ég tel að niðurstaða
þingflokksins sér rétt og þar hafi ver-
ið skynsamlega að staðið," sagði hann.
Að mati Gunnars Inga Gunnarssonar,
formanns Alþýðuflokksfélagsins í
Reykjavík, er Álþýðuflokkurinn ekki
spilltur flokkur en hann stæði uppi
með mikinn vanda. Sagði hann að
þeir sem skrifað hefðu undir áskorun-
ina um að Guðmundur Árni segði af
sér kæmu úr fleiri félögum en FFJ
og sagðist ekki trúa því að gremja og
reiði sem þessi umræða hefði í för
með sér yrði látin bitna á þeim sem
hefðu mismunandi viðhorf til þessa
máls.
Ágúst Einarsson prófessor sagði að
þegar tekist væri á um siðferðileg
álitamál og fylgi í kosningum eða skoð-
anakönnunum væri enginn mælikvarði
á rétt eða rangt. Ágúst neitaði því að
einhver stæði fyrir ofsóknum á hendur
Guðmundi Árna innan Alþýðuflokks-
ins. Hann ætti að víkja vegna tiltek-
inna verka en ekki vegna persónu
sinnar og fyrri störf hans skiptu engu
máli í því sambandi. Hann hefði ein-
faldlega farið yfir strikið og ætti að
axla sína ábyrgð. Birgir Dýrfjörð,
þinglóðs flokksins, sagði að þingflokk-
urinn væri nú búinn að vísa þessu
máli í ákveðinn farveg og skoraði hann
á fundarmenn að láta málið fá sinn
framgang þar.
Áður en tiliagan um áskorun á
Guðmund Áma um að segja af sér var
borin undir atkvæði kom Jón Baldvin
aftur í ræðustól og iagði fram frávís-
unartillögu. Sagði hann að þessi fund-
ur væri einstakur í stjórnmálasög-
unni. „Umræðuefnið vekur heitar
---------ástríður. Það gerir það í
sjálfu sér og það má lítið
út af bera til þess að það
geti líka orðið meiðandi fyrir
þá einstaklinga sem um er
—— rætt og eru í okkar röðum,"
sagði hann. Sagðist hann vera ánægð-
ur með hvernig flokkurinn hefði stað-
ist þessa prófraun. Jón Baldvin sagði
fráleitt að halda því fram að nokkur
væri að biðja Ríkisendurskoðun um
siðferðisvottorð fyrir einstaka ráð-
herra. „Það hefur komið fram, meðal
annars af málsmetandi fulltrúum
stjórnarandstöðunnar og í fjölmiðlum,
að ekki séu öll kurl komin til grafar,
að hugsanlega sé ekki unnt að treysta
því að þær upplýsingar sem fyrrver-
andi heilbrigðisráðherra hefur gefið
séu trúverðugar og traustar, að ef til
vili séu mál á annan veg og ekki ver-
ið sagt satt frá. Það er þetta sem við
erum að segja að Ríkisendurskoðun
beri að kanna og við óskum eftir að
hún geri það,“ sagði Jón Baldvin.
Fundinum lauk svo með skriflegri
atkvæðagreiðslu um frávísunartillögu
formannsins og urðu úrslitin þau, að
67 samþykktu hana en 13 sögðu nei.
Tvö atkvæði voru auð og ógild.
STÚDENTARÁÐ
Skoðanir skiptar
um skylduaðild
Vökumenn hafa fengið
stuðning menntamála-
ráðherra við afnám
skylduaðildar að Stúd-
entaráði en Röskvumenn
eru hugmyndinni ein-
dregið andvígir. Sindri
Freysson ræddi við full-
trúa námsmanna og
ráðherrann.
Iumræðum á málþingi Sam-
bands ungra sjálfstæðis-
manna um seinustu helgi kom
fram í svari Ólafs G. Einars-
sonar við fyrirspurn, að hann hygð-
ist beita sér fyrir afnámi skylduað-
ildar háskólanema að Stúdentaráði
Háskóla íslands og að vinnubrögð
við samsvarandi afnám í Svíþjóð
verði höfð til hliðsjónar, en þar var
tveggja ára aðlögunartími. Hyggst
Ólafur kynna hugmyndir sínar um
afnám aðildar í ríkisstjórn í næsta
mánuði. Innan Háskóla íslands
skiptast menn í tvö horn í afstöðu
sinni til hugmynda ráðherrans.
Gjöld til Stúdentaráðs HÍ eru inn-
heimt með skrásetningargjöldum, og
nema þau um 2.175 kr. á hvern
námsmann. Um 1.000 kr. af þeirri
upphæð renna síðan til deildarfélaga
HI. Rekstrartekjur Stúdentaráðs af
félagsgjöldum eru því um fimm millj-
ónir á ári að jafnaði.
Vandinn með
laumufarþegann
Guðmundur Ingi Jónsson, formað-
ur Röskvu, kveðst alfarið á móti
afnámi skyiduaðildar að Stúdenta-
ráði Háskóla íslands, enda myndi
slík ráðstöfun veikja Stúdentaráð
verulega. Ráðið myndi þó tæplega
leggjast af. „Við þurfum ekki að leita
langt til að uppgötva hverjar afleið-
ingar afnáms yrðu. Skylduaðild að
Sambandi íslenskra námsmanna er-
lendis var afnumin fyrir um tveimur
árum með þeim afieiðingum að það
er nærri gjaldþrota. Ef skylduaðild
yrði afnumin, þyrftu nemendur utan
ráðsins líklegast að greiða þjónustu-
gjöld fyrir persónulega þjónustu
þess, en myndu hins vegar fá ókeyp-
is baráttu fyrir hækkuðu framlagi
til HÍ og réttindum þeirra í LÍN, svo
eitthvað sé nefnt. Þetta er vandamál-
ið um laumufarþegann í hnotskurn;
þann sem vill njóta ferðarinnar án
þess að greiða miðann.“
Guðmundur Ingi kveðst telja af-
nám aðildar varða alla framhalds-
skóla, sérskóla og í raun verkalýðs-
hreyfinguna einnig, þar sem Stúd-
entaráð starfi að hluta til svipað og
verkalýðshreyfing og semji um kaup
og kjör háskólanema. Málið snúist
hins vegar mikið um stjórnmálabar-
áttu innan HÍ. „Tvívegis hefur afnám
aðildar borjð á góma í kosningabar-
áttu innan HÍ og hafa Vökumenn
sett afnámið á oddinn, en beðið af-
hroð í bæði skiptin, sem sýnir að
mínu viti afstöðu þorra stúdenta
mjög vel. Þeir hafa hins vegar unnið
leynt og Ijóst að þessu máli síðan,
enda ieið til að þvinga sínu fram,
burtséð frá vilja nemenda. Ég efast
auk þess stórlega um að Vökumenn
væru jafn áíjáðir í að fá fyrirkomu-
laginu breytt, sætu þeir með meiri-
hluta í Stúdentaráði."
Guðmundur Ingi bendir einnig á
að gjaldtakap sé fest í reglugerð
um Háskóla íslands. Fyrirkomulag-
ið sé í raun þannig að Háskóli Is-
lands innheimti skrásetningargjöld
og styrki síðan Stúdentaráð um til-
tekna upphæð af þeim. „Með hugs-
anlegu afnámi væri ráðherra að
banna Háskólanum að styrkja ráðið
og skerða þannig sjálfstæði hans.
Háskólaráð er auk þess búið að
fjalla um þetta mál og komst að
þeirri niðurstöðu að ekki ætti að
hafa aðild að Stúdentaráði fijálsa.
Ég tel því fráleitt að ætla að snið-
ganga vilja lýðræðislegs meirihluta
nemenda og stjórnar HI með þessum
hætti,“ segir hann.
Stórt skref
Ólafur G. Einarsson segir að
áhugamenn um afnám þessarar að-
ildar hafi óskað eftir einfaldri reglu-
gerðarbreytingu, en hann ætli að
fara aðra leið og leggja málið fyrir
ríkisstjórn. „Skrefið er það stórt, ef
það verður stigið, að ég vil ekki gera
þetta með neinni skyndiákvörðun,
heldur kostar málið undirbúning og
aðlögun að því tilskildu að ríkis-
stjórnin vilji fara inn á þessa braut.
Ég mun l.eggja málið þannig fyrir
að þetta verði gert eftir einhvern
tiltekinn tíma, t.d. tvö ár,“ segir
Ólafur. Hann kveðst sjá ýmsa kosti
við afnámið. „Meginsjónarmið mitt
er að þetta eigi að vera fijálst, á
þessum sviðum sem mörgum öðr-
um,“ segir Ólafur og nefnir að verka-
lýðsfélögin hafi stundum verið nefnd
í því samhengi. „Stúdentar verða
síðan að skoða þetta frá öllum hliðum
í sínum hóp og gera sér grein fyrir
hvernig á að fjámiagna starfsemi
ráðsins, því allt kostar þetta fé,“
segir Ólafur.
Heimir Örn Herbertsson, oddviti
Vöku, kveðst vera fylgjandi afnámi
aðildar og hafi félagið séð þessa
þróun fyrir. Hafi Vaka komið af stað
umræðu um málið i Stúdentaráði,
en núverandi meirihluti stöðvað
hana.
Réttindamál og
til stuðnings
„Við sögðum fyrir tveimur árum
að ef stúdentar stæðu ekki sjálfii
að afnámi skylduaðildar á eigin for-
sendum, myndi ráðherra gera það í
samræmi við þróunina í kringum
okkur. Nú er það komið á daginn
en enginn undirbúningur hefur farið
fram innan HÍ og málið í fullkom-
inni óvissu. Er við því að búast að
eftir einhvern aðlögunartíma geti
menn valið um leið og þeir greiða
skrásetningargjaldið, hvort þeir
greiði til Stúdentaráðs eða ekki. Á
slíku fyrirkomulagi og því kerfi að
láta alla greiða til ráðsins, en þeir
fái síðan endurgreitt í upphafi sum-
ars ef þeir vilja, er grundvallarmun-
ur. Svigrúmið sem skapast yfír sum-
artímann fyrir Stúdentaráð til að
sannfæra stúdenta um hagkvæmni
aðildar er mjög dýrmætt, og það
glatast við það að ráðherra fram-
kvæmi þetta sjálfur. Auk þess sem
skammarlegt er að láta ráðherra
taka ráðin af stúdentum með þessum
hætti.“
Heimir segist ekki óttast fólks-
flótta úr Stúdentaráði við hugsan-
legt afnám skylduaðildar, en um
réttindamál sé að ræða. „Sú inegin-
regla gildir í þjóðfélaginu að menn
geti gengið í félög að eigin vild,
undantekningar frá slíku verður að
skoða þröngt. Við getum ekki fallist
á að Stúdentaráð sé svo sérstakt
félag að þurfi að vera skylduaðild
að því, frekar en íþrótta- eða taflfé-
lögum. í öðru lagi teljum við að
Stúdentaráð muni standa sterkara
á eftir. Afnám veitir ráðinu enn-
fremur aukið aðhald, og þótt nokk-
urt aðhald sé að ráðinu í gegnum
kosningar, myndi þetta veita ráðinu
aðhald í starfi á kjörtímabilinu og
veitir ekki af að mati okkar Vöku-
rnanna," segir Heimir.
Guðmundur Ingi
Jónsson,
formaður Röskvu.
Ólafur G.
Einarsson,
menntamálaráðherra.
Heimir Örn
Herbertsson,
oddviti Vöku.
Skylduaðild eður ei?
Segir þorra háskóia-
nema styðja skylduað-
ild að SHÍ og afnám
hennar væri brot á
vilja lýðræðislegs
meirihluta.
HyKgst leggja til i rík-
isstjórn að skylduað-
ild að Stúdentaráði
verði afnumin með
aðlögunartíma og
undir eftiriiti.
Segist ekki geta fall-
ist á að Stúdentaráð
sé svo sérstakt að
þurfi skylduaðild að
því, frekar en íþrótta-
eða taflfélögum.