Morgunblaðið - 04.10.1994, Page 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
MIIMNIIMGAR
Hjartkær systir okkar, +
ELÍN KARÍTAS THORARENSEN,
Hagamel 42,
lést 30. september. Hildur Thorarensen, Ólafur Thorarensen,
Aðalsteinn Thorarensen.
+
Elskuleg eiginkona mín,
INGIBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR,
Ölduslóð 14,
Hafnarfirði,
lést á heimili sínu aðfaranótt
2. október.
Fyrir hönd aðstandenda,
Magnús Gunnarsson.
t
Eiginkona mín, móðir, dóttir, systir og tengdadóttir,
HELGA EINARSDÓTTIR,
Stýrimannastíg 3,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík, fimmtudaginn
6. október 1994 kl. 15.00.
Daníel Sigurðsson,
Einar Þór Daníelsson,
Hildigunnur Daníelsdóttir,
Þórunn Sigurðardóttir,
Erna Einarsdóttir,
Sigurður Einarsson,
Arnþrúður Gunnlaugsdóttir.
+
Sonur okkar, sonarsonur, bróðir og
fósturbróðir,
HALLDÓR ÁSMUNDSSON,
Baughóli 50,
Húsavík,
lést af slysförum 30. september.
Jarðarförin fer fram frá Húsavíkurkirkju,
laugardaginn 8. október kl. 14.00.
Ásmundur Halldórsson,
Halldór Ásmundsson,
Ingólfur Arnarson,
íris Dögg Ásmundsdóttir,
Guðrún Eiriksdóttir,
Sigrún Harðardóttir,
Sigrún Guðmundsdóttir,
Linda Arnardóttir,
Ásrún Ásmundsdóttir,
Hörður Eiríksson.
+
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og útför móður minnar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
RANNVEIGAR ÁSGEIRSDÓTTUR,
Laugavegi 70b,
Reykjavík.
Hallur Páll Jónsson, Ágústa Bragadóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Ástkær móðir okkar og tengdamóðir,
GUÐRÚN ELÍN ERLENDSDÓTTIR
frá Mógilsá,
Kópavogsbraut1A,
Kópavogl,
verður jarðsungin frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 5. október
kl. 13.30.
Erlendur Lárusson, Áslaug Káradóttir,
Pálmi Lárusson, Elsa G. Vilmundardóttir.
+
Innilegar þakkir færum við öllum þeim er sýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför
GYLFA GRÍMSSONAR,
Njarðarholti 12,
Mosfellsbæ.
Ragnheiöur Kjartansdóttir og börn,
Kristín Steinadóttir og systkini hins látna.
LA UFEY G UÐMUNDSDÓTTIR
+ Laufey Guð-
mundsdóttir
Sveinbjörnsson
fæddist í Reykjavík
12. janúar 1903.
Hún lést á Elli- og
hjúkrunarheimilinu
Kumbaravogi á
Stokkseyri 25. sept-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Guðmundur
Sigurðsson klæð-
skerameistari í
Reykjavík og Svan-
laug Benediktsdótt-
ir húsmóðir. Laufey
átti tíu systkini, tvö dóu ung,
en hin hafa öll komist upp.
Laufey var tvígift. Seinni mað-
ur hennar var Þorsteinn Svein-
björnsson kaupmaður, sem lést
1972. Þau eignuðust einn son,
Þorstein L. Þorsteinsson. Einn-
ig ól hún upp sonardóttur sína,
Laufeyju. Jarðarförin fer fram
frá Kristskirkju í Landakoti í
dag.
ÞAÐ er skrýtið að hugsa til þess
að Laufey Guðmundsdóttir sé ekki
lengur á meðal vor. Hún hafði síð-
astliðin fjögur ár dvalist á Vistheim-
ilinu Kumbaravogi á Stokkseyri.
Hún náði háum aldri, hefði orðið
92 ára í janúar næstkomandi. Kona
mín, Laufey Elsa, var sonardóttir
hennar og fósturdóttir og afa henn-
ar heitins. Þær voru nánir lífsföru-
nautar og er konu minni að vonum
mikil eftirsjá að henni, en við hjón-
in höfum um tíma heimsótt hana
öðru hveiju á vistheimilið og man
ég það, hvað hún leit vel út síðast
er við sáum hana, og alltaf bar hún
sig vel þrátt fyrir háan aldur.
Laufey Guðmundsdóttir var sjálf-
stæð kona og mikill
persónuleiki og fór oft
sínar eigin leiðir í líf-
inu. Var hún barngóð,
en uppeldi og umönnun
Laufeyjar konu minnar
var mikið á hennar
bandi og reyndar einn-
ig sonar Laufeyjar,
Þorsteins, sem barns
og lítils drengs, en það
var hennar vilji að
hann dveldi hjá henni
um tíma á meðan hún
gat haft hann er við
hjónin fluttum frá
Langholtsvegi 159.
Laufeyjar er minnst með mikilli
þökk. Blessuð sé minning hennar.
Laufey Elsa Sólveigardóttir,
Friðrik Friðriksson
og fjölskylda.
Á gömlu skólaspjaldi frá Barna-
skólanum í Reykjavík 1914 erum
við 19 sparibúin börn ásamt kenn-
ara okkar, séra Bjarna Hjaltesteð.
Meðal þeirra eru þrjár systradætur,
dætra Guðríðar og Benedikts í Skál-
holtskoti, þær Unnur Pétursdóttir
dóttir Guðrúnar, Guðríður dóttir
Sigríðar og Laufey dóttir Svanlaug-
ar, sem í dag er kvödd hinztu kveðju
frá Dómkirkju Krists konungs
Landakoti.
Laufey var borin og barnfæddur
Reykvíkingur. Foreldrar hennar
voru hjónin Svanlaug Benedikts-
dóttir og Guðmundur Sigurðsson
klæðskerameistari. Hann var einn
helsti klæðskeri bæjarins eftir alda-
mótin. í Sögu Reykjavíkur sem út
kom 1991 segir að 1903 hafi unnið
hjá honum milli 30 og 40 manns.
Og samkvæmt sömu heimild rak
Svanlaug fyrstu blómabúðin í
Reykjavík á Skólavörðustíg 5.
+
Útför eiginmanns míns, föður, tengda-
föður og afa,
HELGA JÚLÍUSSONAR
úrsmiðs,
sem andaðist 27. september síðastlið-
inn, fer fram frá Akraneskirkju miðviku-
daginn 5. október kl. 14.00. Þeim sem
vilja minnast hans er bent á líknarfélög.
Hulda Jónsdóttir,
Pjetur Már Helgason, Sigurbjörg E. Eiríksdóttir,
Hallfríður Helgadóttir, Sfmon Jón Jóhannsson,
Sigri'ður K. Óladóttir, Agnar Guðmundsson
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okk-
ur samúð og hlýhug við fráfall móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
OLGU J.ÁRNASON.
Sérstakar þakkir fær starfsfólkið á
Hjúkrunarheimilinu Hulduhlíð, Eskifirði,
fyrir veitta umönnun og hlýhug við Olgu
undanfarin ár.
Kittý Óskarsdóttir, Sverrir G. Ásgeirsson,
Guðbjörg Óskarsdóttir, Kristján Jónsson,
Olga Elísa Óskarsdóttir Lundberg,
Dagmar Óskarsdóttir, Garðar Eðvaldsson
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför
SÆMUNDAR BJARNASONAR,
FREYJUGÖTU 6,
Reykjavík,
Auður Sæmundsdóttir,
Þorsteinn Sæmundsson,
Ásthildur Torf adóttir,
Bjarni Óskarsson,
Þorsteinn Bjarnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Francisco Dominguez Ravelo,
Brynja K. Lárusdóttir,
Hrafnhildur Ingimarsdóttir,
Sigríður Aðalsteinsdóttir,
Þeim hjónum varð átta barna
auðið og var Laufey næstelzt þeirra.
Nú er Sverrir einn á lífi af þessum
stóra systkinahópi. Það var mikill
harmur kveðinn að Ijölskyldunni er
Svanlaug féll frá í spönskuveikinni.
1918. Þá var yngsta barnið nýfætt.
Laufey fékk hefðbundið reyk-
vískt uppeldi. Hún var í sveit hjá
Þorleifi á Háeyri á sumrin, en að
loknu barnanámi fór hún í Kvenna-
skólann og stundaði jafnframt nám
í pianóleik hjá Eggert Gilfer. Seytj-
án ára gömul fór hún til Danmerk-
ur í húsmæðraskóla og stundaði þar
einnig píanónám. í Kolding kynntist
hún fyrri eiginmanni sínum, Knud-
sen, sem var af þekktri ætt þar.
Hann var glæsimenni, töluvert eldri
en hún. Hann bar hana á höndum
sér. Þau ferðuðust mikið um Evrópu
og það leyndi sér ekki hve ham-
ingjusöm þau voru. Eftir tíu ára
hjónaband fékk hann áfall og þá
fluttust þau til Kaupmannahafnar
til að leita honum lækninga. Þar
lézt hann ári seinna.
Eftir að Laufey var orðin ekkja
ákvað hún að snúa aftur heim til
föður síns. En þá var allt breytt.
Gamla heimilið leyst upp og yngri
systkinin komin í fóstur til ætt-
ingja. Þá tók hún á ný upp sam-
band við gömlu félagana og minnis-
stætt er það þegar hún lék á píanó
undir söng skólasystur okkar, Ónnu
Þórhallsdóttur, á skemmtun hjá
Nemandasambandi Kvennaskólans.
Hún kenndi píanóleik, var góður
kennari og hélt nemendum vel að
verki. Samhliða stundaði hún nám
hjá dr. Victor Urbancic.
Laufey giftist á ný. Seinni maður
hennar var Þorsteinn Sveinbjörns-
son kaupmaður. Þau eignuðust einn
son, Þorstein Laufkvist, og var það
hennar mesta gleði í lífinu. Hann
er kaupsýslumaður, búsettur í
Bandaríkjunum. Fyrri kona hans
var Sólveig Ólafsdóttir sem féll frá
langt um aldur fram. Þá tóku þau
Laufey og Þorsteinn sonardótturina
Laufeyju í fóstur og hefur verið
mjög kært með þeim nöfnum alla
tíð.
Eftir lát Þorsteins Sveinbjörns-
sonar hefur Laufey yngri og fjöl-
skylda hennar lengst af búið á
Langholtsvegi 159 hjá ömmu sinni
og fóstru og verið henni stoð í ell-
inni. Hin síðustu ár dvaldi Laufey
á vistheimilinu Kumbarvogi á
Stokkseyri.
Minningarnar sækja á og ég kveð
vinkonu mína með söknuði. Fyrir
eyrum mér hljómar Tunglskinssón-
ata Beethovens sem hún lék svo
snilldarlega einu sinni í sauma-
klúbbnum okkar. Ég votta fjöl-
skyldu hennar innilega samúð mína.
Blessuð sé minning Laufeyjar.
Valgerður Helgadóttir.
ERFIDRYKKJUR
PERUN
sími 620200
Erfidrykkjur
Glæsileg kafli-
hlaðborð lallegir
Siilir og mjög
gi)ð þjónusta.
Upplýsingar
ísínva22322
&
FLUGLEIDIR
IlðTEL LOFTLEIIIR