Morgunblaðið - 30.12.1994, Side 1

Morgunblaðið - 30.12.1994, Side 1
64 SÍÐUR B/C flk iti öPnl 4; 1 A | l Morgunblaðið/Landhelgisgæzlan Vonirum vopnahlé ankast Pale. Reuter. VIÐRÆÐUM Sir Michaels Rose yfirmanns friðargæsluliðs Samein- uðu þjóðanna (SÞ) í Bosníu við leið- toga hersveita Bosníu-Serba, miðaði vel í gær en lauk þó án þess að Serbar undirrituðu samkomulag um vopnahlé til fjögurra mánaða frá áramótum. Serbar og stjórnvöld í Sarajevo samþykktu grið af því tagi fyrir milligöngu Jimmy Carters fyrrver- andi Bandaríkjaforseta fyrir jól. Rose sagði að engin meginvanda- mál stæðu í veginum, aðeins væri eftir að skilgreina nokkra þætti samkomulagsins. Kvaðst hann von- ast til að undirritun gæti farið fram um helgina. Lýsti Ratko Mladic yfir- maður hersveita Bosníu-Serba sig sammála túlkun Sir Michaels á stöðu málsins og kvaðst búast við að málinu lyki fyrir áramót. Samkvæmt ákvæðum samkomu- lagsins myndu gæslusveitir SÞ ganga á milli sveita múslima og Bosníu-Serba. Svokallað þing Bosníu-Serba samþykkti í gær að hefja friðarvið- ræður á grundvelli vopnahlés- tillagna Carters og nýjum hugmynd- um bandarískra sendimanna um útfærslu svonefndrar friðaráætlun- ar fimmveldanna. Dúdajev reiðubúinn til viðræðna án skilyrða Reuter 54 fórust í flugslysi Grosní. Reuter. DZOKHAR Dúdajev, leiðtogi Tsjetsjníju, lýsti því yfir í gær að hann væri reiðubúinn til að hefja viðræður við Viktor Tjernómyrdín, forsætisráð- herra Rússlands, án nokkurra skilyrða. Sendi hann skeyti þessa efnis til rússneskra stjórnvalda síðdegis. Pavel Grachev, varnarmálaráðherra Rúss- lands, sagði í gær að Rússar hygðust halda inn í höfuðborgina Grosní með hersveitir sínar. Var það í fyrsta skipti sem jafn háttsettur stjórn- málamaður lýsir því yfir að Rússar ætluðu áð hertaka borgina en ekki einungis króa hana af. Atta manns bjargað úr sjávarháska LANDHELGISGÆZLAN og björgunarsveit varnarliðsins björguðu í gær 8 manns, þar af einu ungbarni úr leku hollcnzku skipi um 100 sjómílur suðsuðvest- ur af Vestmannaeyjum. Myndin er tekin úr þyrlu gæzlunnar, þeg- ar hún kom að hollenzka skipinu. ■ Baksíða og bls. 6. -----»-4-+---- Tugir ríkja staðfesta GATT Genf. Reuter. RÍKI þau er standa að hinu nýja GATT-samkomulagi keppast nú við að staðfesta það fyrir áramót þannig að þau geti orðið stofnaðilar að Al- þjóðaviðskiptastofnuninni (WTO), sem þá tekur við af GATT. Japanir staðfestu samkomulagið fyrr í vikunni og í gær afhentu nokk- ur ríki Rómönsku Ameríku, þar á meðal Chile og Uruguay, skrifstofu GATT tilkynningu um staðfestingu. Búist er við að Evrópusambandið og Kanada staðfesti samkomulagið endanlega í dag en Japan og Suður- Kórea á morgun. „61 ríki hefur þeg- ar gengið frá sínum málum og við búumst við að um 80 ríki muni hafa skilað inn staðfestingargögnum sín- um til okkar um helgina," sagði embættismaður á skrifstofu GATT. FIMMTÍU og fjórir fórust er Bo- eing 737-vél frá Turkish Airlines brotlenti í gær í austurhluta Tyrk- lands. 22 lifðu slysið af. Blindbyl- ur var er slysið átti sér stað og skyggni nær ekkert. Greindi tyrk- neska sjónvarpið frá því að ÍÍug- maðurinn hefði verið hvattur af nugumsjónarmönnuin til að reyna ekki lendingu. Hann hefði þrátt fyrir það reynt lendingu og tví- vegis hætt við vegna slæms skyggnis. I þriðju tilrauninni rakst vélin á hæð. Embættismenn sögðu að ástæða slyssins yrði ekki að fullu ljós fyrr en flugriti vélar- innar fyndist. 69 farþegar og sjö í áhöfn voru í flugvélinni. Sjónarvottar skýrðu frá hörðum skotárásum í útjaðri Grosní. „Sprengjuregnið hófst klukkan fimm að morgni allt í kringum borg- ina. Mér var ekki ljóst hvert skot- hríðinni var beint. Hún virtist reyndar fara í allar áttir. Þetta var martröð líkast,“ sagði maður sem lagði á flótta og komst til borgar- innar Sleptsovsjk á landamærum Tsjetsjníju og Ingúshetíu í gær. Hörð átök Þá sögðu rússneskir og tsjetsjn- ískir embættismenn frá gífurlega hörðum átökum við bæinn Khank- ala sem er sex kílómetrum austan við Grosní. Rússnesk fréttastofa hélt því fram að hersveitir Moskvu- stjórnarinnar hefðu hrundið þar sókn um 200 manna liðs uppreisn- arsveitanna sem beitt hefðu skrið- drekum. Sögðust Rússar hafa náð frá þeim sex skriðdrekum, sex stór- skotabyssum og brynvarinni her- flutningabifreið. Deiluaðilar í Tsjetsjníju, rússnesk stjórnvöld og uppreisnarmenn undir forystu Dzhokhars Dúdajevs, hafa háð hatrammt áróðursstríð sam- hliða vopnaviðskiptum og erfitt hef- ur verið að sannreyna ásakanir og yfirlýsingar. Hafa rússneskir emb- ættismenn hvatt blaðamenn til þess að yfirgefa Tsjetsjníju þar sem þeir hafa ekki treyst sér til að tryggja öryggi þeirra. í gær sagði Interfax-fréttastofan frá því að rússnesku hersveitirnar hefðu eyðilagt tvær mikilvægar brýr og þyrlu Dúdajevs með há- tæknivopnum sem stýrt hefði verið á skotmörk með leysigeislum. Bonner fordæmir herför Þá sagði Interfax, að Jelena Bonner, ekkja andófsmannsins Andrejs Sakharovs, hefði fordæmt Borís Jeltsín forseta fyrir herför rússneska hersins í Tsjetsjníju og sagt sig úr mannréttindanefnd hans í mótmælaskyni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.