Morgunblaðið - 30.12.1994, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Tonn af
þúsund
áraís
UM EITT tonn af 1000-1500 ára
gömlum ís verður notað í skreyt-
ingar á nýársfagnaði Perlunnar
um þessi áramót. ísklumpurinn er
um 1,5 metrar að þykkt og 2 metr-
ar að lengd og breidd. Þeir Völ-
undur Völundarson og Guðbrand-
ur Björgvinsson unnu á miðviku-
dag við að saga út ártalið 1995,
sem sett verður í anddyri Perlunn-
ar. Einnig verður hluti íssins mul-
inn í klaka sem settir verða í
drykki gestanna, að sögn Sturlu
Birgissonar hjá Perlunni. ísinn er
tekinn úr Breiðamerkurlóni, en -
kemur upphaflega úr Breiða-
merkurjökli. Hann er mjög þéttur
í sér og alveg glær, að sögn Sturlu,
og er því lengi að bráðna.
Þingi frest-
að í nótt
Framkvæmdastj óri Vinnslustöðvarinnar
Allt hlutaféð selt
HÆTT er við að leggja niður emb-
ætti héraðslækna í Reykjavík og á
Norðurlandi eystra samkvæmt
samkomulagi stjómar og stjómar-
andstöðu á Alþingi í gærkvöldi.
Ákvæði þessa efnis var tekið út
úr fmmvarpi um ráðstafanir í ríkis-
íjármálum. Einnig varð samkomu-
lag um að skerða framkvæmdafé
til flugmála minna en áður var
áformað. Þetta var liður í sam-
komulagi til að greiða fyrir þing-
störfum.
Tvö frumvörp lögfest
I gærkvöldi var áformað að
fresta þingfundum upp úr mið-
nætti eftir lögfestingu framvarpa
um tekju- og eignaskatt og um
ráðstafanir í ríkisfjármálum.
Áætlað er að Alþingi komi aftur
saman 25. janúar.
HLUTAFÉÐ sem óselt var í 300
milljóna króna hlutafjárútboði
Vinnslustöðvarinnar hf. í Vest-
mannaeyjum, samtals 40 millj. kr.,
seldist í einu lagi í gær á genginu
1,05, að sögn Sighvats Bjamason-
ar, framkvæmdastjóra Vinnslu-
stöðvarinnar. Sighvatur vildi ekki
greina frá hver kaupandinn væri
en sagði að nú ætti ekkert að
standa lengur í vegi fyrir því að
hlutabréf í félaginu verði skráð á
Verðbréfaþingi Islands, en eins og
fram kom í Morgunblaðinu í gær
hefur stjórn Verðbréfaþingsins
ekki viljað taka bréfin á skrá fyrr
en hlutafjárútboðinu er lokið.
Að sögn Eiríks Guðnasonar,
stjómarformanns Verðbréfaþings-
ins, höfðu ekki borist fréttir af út-
boðinu í gær, en hann sagði að ef
tilkynning bærist frá umboðsaðil-
um um að því væri lokið væri ekk-
ert að vanbúnaði að skrá bréfin.
Ráðuneytið skoðar
kæruna vandlega
Vinnslustöðin hf. og Handsal hf.
hafa óskað eftir rannsókn við-
skiptaráðuneytisins á málsmeðferð
stjómar Verðbréfaþingsins á um-
sókn um skráningu hlutabréfa í
Vinnslustöðinni á Verðbréfaþing-
inu og sagðist Eiríkur hafa átt fund
með fulltrúa ráðuneytisins í gær
vegna þessa máls þar sem hann
skýrði frá afgreiðslu stjómarinnar.
„Ég hef óskað eftir því við emb-
ættismenn í ráðuneytinu að þeir
skoði þessa kæra mjög vandlega.
Kæran er mjög alvarlegs eðlis og
málið þarf því að fá ítarlega skoð-
un,“ sagði Sighvatur Björgvinsson
viðskiptaráðherra í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Sighvatur sagði að reynt yrði
að hraða afgreiðslu málsins eins
og frekast væri unnt. Hann sagðist
ekki geta svarað því hvenær niður-
staða myndi liggja fyrir. Sighvatur
sagðist ekki vita til þess að kæra
af þessum toga hefði áður borist
viðskiptaráðuneytinu, a.m.k. hefði
hann ekki fengið svona kæru áður
í sinni ráðherratíð.
Island verður eitt stofnríkja Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar
Alþingi gaf sam-
hljóða samþykki í gær
TILLAGA um að heimila ríkisstjórn-
inni að fullgilda fyrir íslands hönd
aðild að Alþjóðaviðskiptastofnuninni
var samþykkt samhljóða á Alþingi
! gærkvöldi. 41 greiddi atkvæði með
tillögunni en fjórir sátu hjá, þeir
Hjörleifur Guttormsson þingmaður
Alþýðubandalagsins og Anna Ólafs-
dóttir Björnsson, Kristín Einarsdótt-
ir og Kristín Ástgeirsdóttir þing-
menn Kvennalistans. Átján þing-
menn voru fjarverandi.
Umræður um tillöguna stóðu yfir
á Alþingi í allan gærdag. Páll Péturs-
son, fulltrúi Framsóknarflokksins í
utanríkismálanefnd, sagði að Al-
þingi hefði nokkur misseri til að
ganga frá lagasetningu um innflutn-
ing landbúnaðarafurða vegna
GATT, jafnvel upp í ár. Það yrði
verkefni nýrrar ríkisstjómar að
ganga frá því máli.
Lausnarbeiðni í reynd
Ólafur Ragnar Grímsson, formað-
ur Alþýðubandalagsins, sagði að
utanríkisráðherra hefði haft þá
frumskyldu að tryggja að embættis-
mannanefnd, sem vann að því að
gera tillögur um framkvæmd GATT-
samkomulagsins, lyki störfum með
viðunandi hætti. Þegar til kom hefði
textinn frá nefndinni ekki verið not-
hæfur og utanríkismálanefnd orðið
að vinna þá vinnu, sem þurfti.
Ólafur Ragnar sagði að eftir að
utanríkismálanefnd hefði ákveðið að
taka í sínar hendur að leysa málið,
hefði enginn embættislegur fulltrúi
utanríkisráðherra tekið þátt í þeirri
vinnu. „Þvert á móti var það þannig
að aðstoðarmaður utanríkisráð-
herra, Þröstur Ólafsson, og fulltrúi
utanríkisráðherra í embættismanna-
nefndinni komu hlaupandi með íraf-
ári ofan úr utanríkisráðuneyti og
voru að þvælast um gangana í Þórs-
hamri til að reyna að kynna sér
hvað væri að gerast, grípa þar inn
í, en var aldrei hleypt inn á fund-
inn,“ sagði Ólafur Ragnar.
Hann sagði að ráðuneytisstjóri
forsætisráðuneytisins og aðstoðar-
maður landbúnaðarráðherra hefðu
tekið virkan þátt í starfí nefndarinn-
ar. „Til þess að geta afgreitt þetta
mál varð ekki aðeins að taka það
úr pólitískum höndum hæstvirts ut-
anríkisráðherra. Það varð líka að
taka það úr embættislegum höndum.
utanríkisráðuneytisins," sagði Ó!af-
ur Ragnar. „Þetta heitir, hæstvirtur
utanríkisráðherra, að biðjast de facto
(í reynd) lausnar fyrir hæstvirtan
utanríkisráðherra."
Jón Baldvin Hannibalsson svaraði
þessum ummælum ekki beint úr
ræðustól, en tók þó fram að embætt-
ismannanefndin heyrði undir forsæt-
isráðherra. Jón Baldvin sagði að
hann og Alþýðuflokkurinn fögnuðu
því að Alþingi hefði tekið þá sögu-
legu ákvörðun að gerast stofnaðili
að Alþjóðaviðskiptastofnuninni, taka
á sig þær skuldbindingar sem í því
fælust og marka þannig stefnu til
framtíðar. „Hitt getur vafalaust
valdið deilum hvernig við útfærum
þetta innanlands. Það er hins vegar
í vinnslu á vegum þessa [embættis-
mannajstarfshóps og það er á
hreinu, að þar til sá starfshópur
hefur skilað niðurstöðum hefur eng-
in afstaða verið tekin til þeirra ein-
stöku kosta sem þar eru til um-
ræðu,“ sagði Jón Baldvin.
Alræðisvald til
Iandbúnaðarráðherra
Ingi Bjöm Albertsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, sagði að með
breytingartillögu utanríkismála-
nefndar virtist eiga að færa alræðis-
vald í hendur landbúnaðarráðherra.
Það gæti hann ekki sætt sig við og
sagðist myndu greiða atkvæði gegn
tillögunni en með fullgildingu samn-
ingsins. Hann vísaði þarna í þá setn-
ingu tillögunnar að landbúnaðarráð-
herra verði tryggt forræði um allar
efnislegar ákvarðanir í því stjórn-
kerfi sem varðaði landbúnað og kom-
ið verði á fót á grundvelli GATT.
Kvennalisti situr hjá
Þingmenn Kvennalistans sátu hjá
í atkvæðagreiðslunni í gær. Anna
Ólafsdóttir Björnsson, fulltrúi
Kvennalistans í utanríkismálanefnd,
sagði Kvennalistann þó ekki leggjast
gegn afgreiðslu GATT. Hún sagði
Kvennalistann hins vegar telja að
meira tillit hefði þurft að taka til
umhverfissjónarmiða. Þá vöknuðu
spurningar, er stofnanaþáttur samn-
ingsins væri skoðaður, hvort verið
væri að færa yfirþjóðlegum stofnun-
um meira vald en æskilegt væri.
-----------»-♦-■«----
Lést af slys-
förum
LITLA stúlkan
sem lést af slysför-
um á miðvikudag
hét Svandís Unnur
Sigurðardóttir, til
heimilis að Folda-
hrauni 40 í Vest-
mannaeyjum.
Svandís Unnur
var fædd 31. októ-
ber 1988, dóttir
Sigurðar Friðriks Karlssonar og
Sólrúnar Helgadóttur.
Sjómannasam-
band íslands
Sjómenn
sam-
þykkja
verkfalls-
heimild
SJ ÓM ANNAS AMB ANDINU
hafa borist heimildir til verk-
fallsboðunar frá sjómannafélög-
um í Grindavík, á Húsavík og
Siglufírði. Sævar Gunnarsson,
formaður Sjómannasambands-
ins, sagðist hafa vitneskju um
að heimild væri á leiðinni frá
Akranesi. Heimildin hefði verið
samþykkt einróma þar og í
Grindavík. Nokkrir fundir voru
boðaðir í gær og í dag.
Sævar sagði að óskað hefði
verið eftir að sjómenn funduðu
um heimild til verkfallsboðunar
fyrir formannafund um miðjan
janúar. Nokkrir fundir hefðu
þegar verið haldnir, enda væru
flestir sjómenn í landi yfir hátíð-
ar og yrði væntanlega búið að
taka málið fyrir í félögunum
fyrir áðumefndan fund. A fund-
inum yrði tekin afstaða í við-
ræðum og því sem framundan
væri.
Endurskoða þarf
aðalkjarasamning
Sævar sagði að eftir því sem
hann kæmist næst hefði verk-
fallsheimild verið samþykkt þar
sem hún hefði verið tekin fyrir.
Hann sagði að kröfugerð lægi
í megindráttum fyrir og hefði
reyndar Iegið fyrir í tvö til þijú
ár. „Stærstu póstamir í sér-
kjarapakkanum eru að gerður
verði kjarasamningur um veiði-
greinar þar sem ekki er samn-
ingur fyrir, s.s. loðnufrystingu,
rækjuveiðar á vinnsluskipum
með tvíburatrolli, humarfryst-
ingu og tvíburatrolli. Saltfisk-
samningur var í þessum pakka.
Síðan eru margir þættir í aðal-
kjarasamningi okkar sem ekki
hafa verið endurskoðaðir í mörg
ár sem þarf endurskoðunar við
en það hefur ekki verið eins
mótað.“
Sókn leggur fram
kröfugerð
Krefst 10
þús. kr.
launahækk-
unar
STARFSMANNAFÉLAGIÐ
Sókn kynnti viðsemjendum sín-
um hjá ríkinu, Reykjavíkurborg
og nokkrum sjálfseignarstofn-
unum kröfugerð félagsins
vegna komandi kjarasamninga
í gær.
Meginkrafa félagsins er að
allir launaflokkar hækki um
10.000 krónur. Þórunn Svein-
björnsdóttir, formaður Sóknar,
segir að krónutöluhækkun
komi hinum lægst launuðu
meira til góða en prósentu-
hækkun launa.
I kröfugerð Sóknar er einnig
farið fram á að launaþrepa-
hækkanir geti ráðist bæði af
lífaldri og starfsaldri en ekki
eingöngu lífaldri eins óg samn-
ingar félagsins hafa gert ráð
fyrir. Félagið hefur ekki sett
fram ákveðnar hugmyndir um
gildistíma samninga og sagði
Þórunn að það réðist af efnis-
innihaldi samninga og hvort
hægt yrði að ná fram einhverri
kaupmáttartryggingu. Þá
sagði hún að félagið vildi að
sameiginleg mál verkalýðs-
hreyfingarinnar yrðu á borði
Alþýðusambandsins.