Morgunblaðið - 30.12.1994, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 30.12.1994, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Kristinn Við æfingar á Tjöminni JÓLAGJÖFIN í ár hjá þessari litlu Reykvíkurmær arinn átti leið þar hjá. Hún naut öruggrar leiðsagn- hefur ef til vill verið skautar, að minnsta kosti var ar eldra og reyndara skautafólks, svo vonandi líður hún iðin við æfingarnar á Tjörninni þegar ljósmynd- ekki á löngu þar til hún nær að fóta sig óstudd. Bráðabirgðatölur Slysavarnafélagsins fyrir 1994 42 fórust í banaslysum Fjöldi látinna í banaslysum á íslandi 1985-1994 L m B3 I F1 I I RPp 111111 n 1111 m 11 iii 11111 ii ii 1111 1985198619871988 198919901991 199219931994 Skipting á gerðir banaslysa 1994 Umferðar- slys iFlugslys 9,5% Sjóslys, 'drukknanir Ymis slys ÞAÐ SEM af er þessu ári hafa orð- ið 42 banaslys hér á landi samkvæmt bráðabirgðatölum Slysavarnafélags íslands. Þetta eru færri banaslys en verið hafa undanfarin ár. A síðustu tíu árum hafa 550 banaslys orðið á íslandi eða 55 að meðaltali á ári. Umtalvert færri deyja í umferðar- slysum nú en fyrir nokkrum árum. Á árinu létust 33 karlar og níu konur í banaslysum. Níu útlendingar fórust af slysförum hér á landi og einn Íslendingur fórst í umferðar- slysi erlendis. Flestir fórust í umferð- arslysum eða 18. Tíu drukknuðu eða fórust í sjóslysum. Fjórir fórust í flugslysum og í öðrum slysum fórust tíu. 550 banaslys hafa orðið á síðustu tíu árum Áberandi er að flest banaslys urðu í ágúst og september, en í þessum mánuðum létust 15 menn í slysum. í október, nóvember og desember urðu hins vegar aðeins 5 banaslys. Ekki hafa fleiri útlendingar farist í banaslysum hér á landi en á þessu ári ef horft er til síðustu tíu ára. í fyrra fórust hér tveir útlendingar í banaslysum, en í ár hafa níu utlend- ingar látist í banaslysum á íslandi. Af þeim 550 sem hafa látist í banaslysum hér á landi á síðasta áratug létust 258 í umferðarslysum, 137 drukknuðu eða létust í sjóslys- um, 24 í flugslysum og 131 í öðrum slysum. Umtalsvert færri farast í umferð- arslysum nú en fyrir nokkrum árum. Árið 1988 fórust 33 í umferðarslys- um, 30 árið 1989, 28 árið 1990 og 30 árið 1991. Það sem af er þessa árs hafa 18 farist í umferðarslysum. í fyrra og hittifyrra létust 22 í um- ferðarslysum hvort ár. Aldurstakmark a alla atvinnubflstíóra BÍLSTJÓRAR vöru- og langferða- bíla missa akstursheimild við lok árs þegar þeir ná 70 ára aldri, sam- kvæmt lagafrumvörpum sem Hall- dór Blöndal samgönguráðherra hef- ur lagt fram á Alþingi. Jafnframt þurfa sendi- og vöruflutningabíl- stjórar að afla sér akstursleyfis eins og aðrir sem stunda leiguakstur. Er þetta í samræmi við frumvarp um Ieigubifreiðar sem einnig hefur verið lagt fram á Alþingi. Aldurstakmark er nú í lögum um leigubifreiðaakstur og eru frumvörp- in um aðra atvinnubílstjóra flutt til að samræma starfsskilyrði þeirra hvað þetta varðar. Segir Halldór Blöndal að Mannréttindadómstóll Evrópu hafí úrskurðað að leigubíl- stjórar þurfi ekki að vera í stéttarfé- lögum og því hafi þurft að breyta lögunum. Auk þess hafí leigubílstjór- ar í Reykjavík og á Akureyri, þar sem takmörkun er á fjölda leigubíla, einvörðungu verið bundnir því ákvæði að hætta störfum sjötugir. Því hafi tvennt hafi verið til ráða í stöðunni, að afnema aldurstakmörk eða að samræma reglurnar fyrir alla atvinnubílstjóra. Samkvæmt frumvörpunum fá vöru- og langferðabílstjórar aðlög- unartíma til 1. janúar 1996. Hingað til hefur ekki þurft akstursleyfi til vöruflutninga hér á landi en í samn- ingnum um Evrópska efnahags- svæðið er kveðið á um leyfí til vöru- flutninga milli landa. Nú leggur samgönguráðherra til að aksturs- leyfi þurfi einnig til innanlandsflutn- inga og í greinargerð með frumvarp- inu segpr að það hafí verið samdóma álit allra hagsmunaaðila, sem leitað hafi verið til, að slíkt sé löngu tíma- bært. Bent hafi verið á, að á síðustu árum hafi fjölmargir hafið vöruflutn- inga, sem lítið eða ekkert hafi kom- ið nálægt þeim áður. Flutningabif- reiðar hafí verið keyptar á kaupleigu og kunnáttu á rekstri, bókhaldi og kvöðum um greiðslu skatta verið mjög ábótavant. „Mörg dæmi eru um að aðilar í vöruflutningum hafi orðið gjaldþrota með miklar skuldir á bakinu, t.d. þungaskatt, virðis- aukaskatt og viðskiptaskuldir. Slík skipan mála er ekki til þess fallin að stuðla að heilbrigðri uppbyggingu í atvinnugreininni,“ segir í greinar- gerðinni. Framkvæmdastjóri listahátíðar í Bergen Hátíðin á að þjóna því samfélagi sem hún er í Bergljót Jónsdóttir Bergljót Jónsdóttir var nýlega ráðin framkvæmdastjóri listahátíðarinnar í Bergen í Noregi. Hún tekur við starfinu þann 1. maí næst- komandi og gildir samning- ur hennar til ársins 1999. Bergljót var valin úr hópi 17 umsækjanda og 40 manna lista fólks sem leitað var eftir. - í hveiju felst þetta starf? „Það felst í raun í stjórn- un hátíðarinnar. Þetta er ekki venjuleg fram- kvæmdastjórastaða, því ég verð stjórnandi hátíðarinn- ar og ber bæði listræna og fjárhagslega ábyrgð á henni í þessi fjögur ár, en hátíðin er haldin einu sinni á ári. Með mér starfar stjórn hátíðarinnar og verkefnav- alsnefnd sem er fimm manna hóp- ur sem ég vel og vinn með fyrir hvetja hátíð fyrir sig.“ Listahátíðin í Bergen stendur í um 12 daga á vorin og laðar að jafnaði til sín um 40.000 áhorfend- ur sem velja úr þeim rúmlega 100 viðburðum sem í boði eru. Boðið er upp á atriði úr öllum listgreinum og hljóðar kostnaðaráætlunin upp á 160-170 milljónir íslenskra króna á ári. Þetta nýja starf hefur það í för með sér að Bergljót þarf að flytj- ast til Bergen og segir hún að það leggist bara vel í sig. „Það er ágætt að skipta um umhverfi," segir hún. „Það að flytja til Noregs fylg- ir bara starfinu. Flutningurinn er ekkert aðalatriði, heldur er það starfíð." - Munt þú standa fyrír einhveij- um breytingum á skipuiagi hátíð- arinnar? „Eg er í rauninni ráðin til þess að breyta og hef ég hug á því að standa fyrir einhveijum breyting- um. En ég er mjög treg til þess að láta í ljósi í hveiju þær eru fólgnar. Ég stefni að því að fara til Bergen í maí og byija á því að tala við fólk, hlusta og skoða. Hátíð eins og þessi er auðvitað skipulögð fram i tímann. Hátíðin á næsta ári er alveg klár og það er byijað að undirbúa hátíðina árið eftir. Ég mun setja mitt mark á hluta hátíðarinnar þá, en síðan ekki fyllilega fyrr en árið 1997.“ - Hvað finnst þér mest spenn- andi við þetta nýja starf „Mér finnst viðfangsefnið vera spennandi sem slíkt. Það er spenn- andi að geta tekið þátt í að þróa þessa listahátíð þannig að hún þjóni stærri hópi fólks en hún hef- ur gert til þessa. Ég vil að hátíðin þjóni því samfélagi sem hún er haldin í og þá er ég bæði að tala um norska áhorfendur og þá listamenn sem þar starfa. Einnig er mikil- vægt að hún höfði til þeirra er- lendu gesta sem hana sækja. - Hvernig gengur undirbúning- ur norrænu Iistahátíðarinnar sem haldin verður hér í febrúar og mars? „Það sér fyrir endann á því. Það sem hefur háð okkur í því starfi er skammur fyrirvari. Við sem vinnum að undirbúningnum höfum verið á fullu síðan í sumar. Það koma margir listamenn frá hinum Norðurlöndunum og stendur hátíð- in frá í febrúar og mars.“ Hún segir ástæðu þess að hátíð- in standi svona lengi vera að svo margt væri að gerast í íslensku menningarlífi á þessum tíma. „Við ► Bergljót Jónsdóttir er fædd árið 1954 og er því 40 ára göm- ul. Hún lauk prófi í píanó- kennslu frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1974. Árið 1978 lauk hún MA-prófi í tónlistar- kennslu í Bandaríkjunum og hóf síðan kennslu hér á landi. Árið 1986 varð hún fram- kvæmdastjóri íslensku tón- verkamiðstöðvarinnar og gegndi því starfi þar til í mars á þessu ári. Undanfarna mánuði hefur hún unnið á vegum menntamálaráðuneytisins að undirbúningi norrænnar lista- hátíðar sem haldin verður hér í febrúar og mars í tengslum við þing Norðurlandaráðs. Einnig vinnur hún að undirbún- ingi kynningar á norrænni tón- list í Bretlandi árið 1996. Berg- ljót er gift Oddi Bjarnasyni, geðlækni, og á hún eina dóttur, Æsu Björk Þorsteinsdóttur, myndlistarnema. erum að reyna að rekast ekki á það sem aðrir eru að gera,“ segir hún. „Svo er húsnæði fyrir listvið- burði af skomum skammti og það þarf að púsla þessu öllu saman. Við vildum einnig gefa fólki kost á að komast yfír þetta allt.“ - Hvernig gengur undirbúning- ur norrænu tónlistarkynningarinn- ar á Bretlandi? Það verkefni fór af stað í fram- haldi af Barbican-hátíðinni í Lond- on fyrir nokkrum árum sem var samnorræn hátíð. Sú hátíð var þannig uppbyggð að þar var stór hópur af norrænum listamönnum, sérstaklega tónlistarfólki, sem kom þangað og spilaði í Barbican Center og fór svo heim. Efnisskrá þessara hljómsveita var að mestu leyti tónlist sem ekki þarf að kynna í Bret- landi, til dæmis Grieg og Sibelius. Við sem vorum að vinna fyrir núlifandi tónskáld. vor- um sammála um það að þarna hefði mátt halda öðruvísi á málum og einnig að það væri mikilvægt að fylgja þessu átaki og þessari miklu fjárfestingu eftir. í framhaldi af því fórum við af stað með þetta verkefni sem á að stuðla að auknum flutningi á tón- list núlifandi tónskálda í Bret- landi. Nú er ljóst að það verða flytj- endur í London, Birmingham, Manchester og í Skotlandi sem taka munu þátt í þessu samstarfi. Norræn tónlist verður flutt á þess- um stöðum frá því í mars 1996 og fram á vetur og hafa flytjendur á hveijum stað frjálsar hendur um með hvaða hætti þeir taka þátt. Ágætt að breyta um umhverfi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.