Morgunblaðið - 30.12.1994, Síða 10

Morgunblaðið - 30.12.1994, Síða 10
10 FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/RAX Eldborg í skamm- degissól DAGINN er farið að lengja á ný, en myrkur vetrarins grúfir enn yfir landinu. í gær baðaði skammdegissólin Eldborg á Mýrum og snjófjúkið þyrlaðist um fjallið. -----» ♦ 4--- Skíðasvæðið í Bláfjöllum lokað Vantar um 30 sm snjó í fjöllin „ÞAÐ vantar enn herslumuninn eða um 30 sm af jafnföllnum snjó svo að hægt sé að opna skíðasvæð- ið,“ sagð Þorsteinn Hjaltason um- sjónarmaður skíðasvæðisins í Blá- fjöllum. Ekki skíðafæri í vetur „Það vantar svona einn dag.með góðri snjókomu, þá færi allt í gang,“ sagði hann. Það sem af er vetrar hefur ekki verið skíðafæri og skíðalöndin því lokuð. Sagði Þorsteinn að undanfama daga hafí verið hvasst í fjöllunum og náði vindhraði níu vindstigum í vikunni. Snjórinn fauk þá til ofan af hæðum og settist í lægðir. Að sögn Þorsteins hefur tíminn á milli jóla og nýárs alltaf runnið út í leiðindi og sjaldan verið hægt að skíða eins og vilji hafi staðið til. „Það hefur aldrei verið hægt að opna á þessum tíma vegna umhleypinga og vandræða. Ég er búinn að sjá það á þessum árum sem ég hef verið hér að ekki er hægt að gera ráð fyrir skíðaiðkun um jólin,“ sagði hann. „Það er bara draumur." Aldarafmæli Seyðisfjarðar- kaupstaðar SEYÐISFJARÐARKAUPSTAÐUR á 100 ára afmæli 1. janúar næst- komandi. Ráðgert er að fagna þess- um tímamótum með veglegum hætti. Bæjaryfírvöld hafa, í samráði við einstaklinga og félagasamtök, unnið að undirbúningi afmælisárs- ins undanfarið ár. Margir vinnuhóp- ar hafa verið að störfum og hefur hver um sig á hendi ákveðna þætti í framkvæmdum. Skemmtunum, sýningum og öðrum hátíðaratburð- um verður dreift á árið 1995, en hápunkturinn verður þriggja daga afmælishátíð 30. júní til 2. júlí næstkomandi. Vonir standa til að útgáfa verði nokkur í tengslum við afmælið. Nú þegar liggja fyrir nokkur handrit svo sem; að byggðasögu Seyðis- fjarðar sem séra Kristján Róberts- son hefur unnið, að sögu gamalla húsa á Seyðisfírði sem Þóra Guð- mundsdóttir vinnur að og handrit að sögulegri kvikmynd sem fyrir- tækið Gjömingur hefur gert. Gefínn verður út afmælispeningur auk þess sem Póstur og sími mun gefa út nýtt Seyðisfjarðarfrímerki og útbúa sérstimpil. Á árinu verður leikrit eftir seyð- firskar systur, Iðunni og Kristínu Steinsdætur, frumflutt og einnig afmælislag. Þá verða myndlistasýn- ingar, ljósmynda- og tækniminja- sýning, íþróttakeppni, söngur, leik- ir, glens og gaman auk dansleikja fyrir alla aldurshópa. Nýja miðbæj- artorgið verður vígt og listaverk Kristjáns Guðmundssonar þar af- hjúpað. Hátíðarhöldin byija reyndar strax í dag, föstudaginn 30. desem- ber. Þá verður kveikt á raflýstu ártali í Bjólfinum og ártalið 1994 látið lýsa þar síðasta sólarhring fyrstu aldar Seyðisfjarðarkaupstað- ar. Á gamlárskvöld verður svo ára- mótabrenna í Skagagrús og um miðnættið breytist ártalið í fjallinu í 1995 og mun lýsa þar fyrsta sólar- hring annarrar aldar kaupstaðarins. Nýársdagur hefst með áramóta- dansleik (aldamóta-) í félagsheimil- inu Herðubreið strax eftir miðnætt- ið. Seinna um daginn, klukkan 16.40, hefjast síðan útsendingar Útvarps Seyðisfjarðar á FM. Á sáma tíma hefst dagskráin í Seyðis- fjarðarkirkju. Flutt verður ávarp til Seyðfírðinga í tilefni afmælisins og síðan hátíðarmessa klukkan 17.00. Ávarpinu og messunni verður út- varpað og síðan seyðfirsku efni til klukkan 20 þegar glæsileg flug- eldasýning verður. Á þrettándanum verður álfadans og brenna fyrir alla fjölskylduna. Samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar Útsvarið verður óbreytt BÆJARSTJÓRN Garðabæjar hefur samþykkt að útsvar verði óbreytt fyrir árið 1995 eða 8,4%. Fasteigna- skattur verður 0,375% af fasteigna- mati íbúða og íbúðarhúsa og fast- eignaskattur 0,75% af öllum fast- eignum sem metnar eru í fasteigna- mati. Sorphirðugjald fyrir árið 1995 er 6.200 krónur. Jafnframt var samþykkt að vatnsskattur verði 0,15% af fast- eignamati og að holræsa- og rotþró- argjald skuli vera 0,07% af fast- eignamati húsa ásamt lóðaréttind- um. Afsláttur til elli- og lífeyrisþega Fasteignaskattur og holræsa- og rotþróargjöld hjá elli- og lífeyris- þegum lækkar samkvæmt ákveðn- GARÐABÆR: Reglur um lækk- un fasteignaskatts og holræsa- og rotþróargjalda hjá elli- og örorkulífeyrisþegum árið 1995 Tekjur Tekjur gefa einstaklings hjóna lækkunum allt að 830 1.030 þús. kr. 100% 880 1.090 90% 920 1.150 80% 960 1.210 70% 1.010 1.280 60% 1.050 1.340 50% 1.090 1.400 40% 1.140 1.460 30% 1.180 1.520 20% 1.230 1.580 10% hærri tekjur gefa engan afslátt Þennan afslátt fá lífeyrisþegar fyrst um þau áramót, sem þeir eru 67 ára. um reglum (sjá töflu). I tillögu meirihluta var gert ráð fyrir að gjaldagar fasteignagjalda yrðu fímm en Hilmar Ingólfsson, bæjarfulltrúi Alþýðubandalags, lagði til að þeir yrðu tíu. Sam- þykkti bæjarstjóm samhljóða að vísa tillögu um gjalddaga til bæjar- ráðs. Söfnun til Tsjernobyl-barna Islensk börn gefijólagjafir í SAMVINNU við friðarsamtökin Peace-2000 hefur Landsbjörg kom- ið upp söfnunarkössum á flugelda- sölum hjálparsveita í Reykjavík, Kópavogi og Garðabæ þar sem tek- ið verður á móti litlum jólagjöfum frá íslenskum börnum til munaðar- lausra barna í Hvíta-Rússlandi. Börnin þar urðu verst úti í Tsjernobyl-slysinu og munu sam- tökin ásamt írsku stofnuninni Tsjernobyl-bömin standa að send- ingunni fyrir 6. janúar þegar þar eru haldin jól. í frétt frá Landsbjörg kemur fram, að íslandsflug mun sjá um að koma jólagjöfunum frá íslensku börnunum héðan til Bretlands, ásamt lyfjum sem Lyfjaverslun ís- lands gefur. Kassagerð Reykjavíkur gefur umbúðir og Merkjaland í Kópavogi íslenskar merkingar. Sendingin verður síðan sameinuð sendingu frá írlandi en þar hafa samtökin Tsjemobyl-börnin staðið fyrir söfnun á nauðsynlegum lyfjum til bamanna undanfarnar vikur. Verður lyfjunum dreift til 20 sjúkra- húsa í Hvíta-Rússlandi. Betra að verja peningum til lyfjakaupa Áhersla er lögð á að fólk eyði ekki peningum í kaup á gjöfum, heldur að börn gefi lítinn pakka með einhveiju sem þau eiga, fengu í jólagjöf eða hafa ekki not fyrir lengur. Það sé ekki stærð pakkanna sem skiptir máli heldur hugurinn sem fylgir. Þá er fólki bent á að í stað þess að kaupa gjöf er betra að gefið sé til lyfjakaupa. Oskað er eftir að gjöfunum sé pakkað smekklega inn og þeir merktir drengjum og stúlkum eða báðum og sagt til um aldursflokk. P e (; i < , < < < € < < < I I < i i i i ( < i i < i i <

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.