Morgunblaðið - 30.12.1994, Síða 20

Morgunblaðið - 30.12.1994, Síða 20
20 FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Norður-Kórea birtir játningarbréf og sakar Bandaríkin um njósnir Þingmenn hóta að rifta nýgerð- um samningum Scoul. Reutcr. Reuter BRÉFIÐ sem Norður-Kóreumenn segja að bandarískur þyrlu- flugmaður, sem er í haldi þeirra, hafi skrifað til að játa ólög- legt flug inn fyrir lofthelgi landsins. NORÐUR-Kóreumenn birtu í gær játningarbréf sem þeir sögðu að bandarískur þyrluflugmaður, sem er í haldi þeirra, hefði skrifað. Banda- rísk stjórnvöld vísuðu því á bug að flugmaðurinn hefði verið í njósnaferð þegar þyrla hans hrapaði í Norður- Kóreu fyrir tveim vikum. Norður-Kóreumenn sögðu að flug- maðurinn, Bobby Hall, hefði skrifað játninguna á jóladag og beðist afsök- unar á því að hafa rofið lofthelgi Norður-Kóreu. Þeir birtu ljósmynd af bréfínu, sem er sjö síður. „Eg viðurkenni að þetta glæpsam- lega athæfí er ófyrirgefanlegt. Hins vegar bíða foreldrar mínir, eiginkona og böm og þrá að fá mig aftur heim,“ segir í bréfínu. Embættismaður í sameiningar- ráðuneyti Suður-Kóreu sagði að þótt orðið „njósnir" sé ekki notað í bréf- inu sé talað um „könnunarferð" og Norður-Kóreumenn líti á það sem játningu um njósnir. Embættismað- urinn sagði að þeir vildu með birt- ingu bréfsins bæta stöðu sína í samn- ingaviðræðunum við Bandaríkja- stjóm og hann bætti við að bréfíð hefði öll einkenni játninga í kjölfar harðræðis. Vilja rifta samkomulagi Bandaríkjastjóm kvaðst ekki geta staðfest að Hall, sem er 28 ára, hefði skrifað bréfið. Nokkrir bandarískir þingmenn sögðu að yrði Hall ekki sleppt ætti Bandaríkjastjóm að rifta samkomu- lagi frá í október þar sem Norður- Kóreumenn fallast á að hætta við kjamorkuáætlun sína gegn því að Bandaríkjamenn láti þeim í té olíu og nýja kjamakljúfa sem framleiða miklu minna af plútoni, sem nota má í kjarnavopn. Embættismenn í Suður-Kóreu hafa látið f ljós áhyggjur af því að Norður-Kóreumenn kunni að nota Hall til að knýja fram tilslakanir af hálfu Bandaríkjastjómar. Norður- Kóreumenn krefjast þess að Banda- ríkjastjórn biðjist afsökunar á fluginu en hún hefur neitað því, þótt hún hafí harmað atvikið og lofað að koma í veg fyrir að það endurtaki sig. Írak-Kúveit Skotið á SÞ>liða Kúveit. Reuter. SKOTIÐ var á hermann í gæsluliði Sameinuðu þjóðanna á landamær- um íraks og Kúveits í gær. Að sögn varnarmálaráðuneytisins í Kúveit voru íraskir hermenn að verki en skotin lentu í báðum fótum manns- ins. Danut Iovanov, foringi í gæslu- liðinu, var við venjulegt eftirlits- starf á landamærunum þegar skotið var á hann frá írak. Var strax gert að sámm hans á sjúkrahúsi og leið honum eftir atvikum. Hafði kú- veiska fréttastofan það eftir tals- manni vamarmálaráðuneytisins, að íraskir hermenn hefðu skotið að manninum. Frá því stríðinu við írak lauk 1991 hefur SÞ haldið uppi eftirliti á 210 km löngum landamærum ríkj- anna og nær eftirlitssvæðið fímm km inn í Kúveit og 10 km inn í írak. Skemmdir kannaðar J AP AN SKIR j ámbrautastarf s- menn kanna skemmdir á braut- arteinum milli Hachinohe og Mutsu-Ichikawa í Norður-Japan eftir öflugan jarðskjálfta í fyrra- dag. Kom hann af stað skriðuföll- um, sem grófu undan teinunum á nokkmm stöðum. Að minnsta þrír menn biðu bana í jarðskjálftanum og hátt á þriðja hundrað manna slasaðist. Þetta er annar stóri skjálftinn á þessum slóðum á þremur mánuðum. Vom upptökin á sjávarbotni en styrkurinn mæld- ist 7,5 á Richter-kvarða. Svíar óánægðir með skipulagningu WHO Minnka aðstoð- ina um helming Stokkhólmi. Reuter. SÆNSKA stjórnin kveðst hafa skýrt Alþjóðaheilbrigðismála- stofnuninni (WHO) frá því að hún hyggist minnka fjárhagsaðstoð sína við stofnunina vegna sér- stakra verkefna um helming. Ástæðan er óánægja með skipu- lagningu starfseminnar. „Við höfum farið fram á úrbæt- ur hjá stofnuninni í nokkur ár og bent henni á nokkra vankanta, en við höfum ekki séð margar vís- bendingar um að hún hafí tekið ábendingarnar til greina,“ sagði Hans Lundborg, embættismaður í sænska utanríkisráðuneytinu. „Við verðum að sýna ábyrgðar- kennd gagnvart skattgreiðendum og geta horfst í augu við þá og sagt: „Við notum peninga ykkar á skynsamlegan hátt.“ Ef við get- um það ekki verðum við að grípa til aðgerða,“ bætti embættismað- urinn við. Lundborg sagði að aðeins tvö ríki, Bandaríkin og Japan, hefðu veitt meiri fjárhagsaðstoð en Svíar vegna sérstakra verkefna WHO. Sænska stjórnin ákvað að rifta samningi við stofnunina sem kvað á um aðstoð upp á jafnvirði 940 milljóna ísl. króna. Þess í stað fengi stofnunin 470 milljónir. Lundborg sagði að stofnunin þyrfti einkum að efla vettvangs- starfsemi sína. „Svíar vilja öfluga heilbrigðismálastofnun," sagði hann og bætti við að Svíar myndu áfram greiða árleg aðildargjöld sín þótt aukaframlagið yrði minnkað um helming. Sameinuðu þjóðirnar veita egypskum yfirvöldum tiltal vegna vegalagningar Hraðbraut óguar píra- mítunum FREMSTUR er Keopspíramítinn, þá Kefrens- og loks Mýkerínos- arpíramítinn. Þeir voru reistir um 2.500 fyrir Krists burð. EGYPSKA stjórnin gerir nú hvað hún getur til að fínna lausn á erfíðu deilumáli sem skaut upp kollinum fyrr í mánuðinum. Það snýst um nýja hraðbraut, sem liggur allt of nálægt píramítunum í Giza að mati menningarmálayfírvalda Sameinuðu þjóðanna. Hraðbraulin er lögð til að létta á hinni gríðarlegu umferð í höfuðborginni Kaíró en samkvæmt núverandi skipulagi liggur hún að- eins um þijá km frá píramítunum. Vegarlagningin hófst árið 1987 og er 70% hennar Iokið. Hraðbrautin er 94 km að lengd og er áætlaður kostnaður um 330 milljónir dala. Þar sem hún liggur aðeins þijá km frá píramítunum óttast menn að umferð- arþunginn og mengunin sem honun fylgir, muni valda skemmdum á pír- amítunum. Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, hefur heitið því að finna lausn á vandanum og hefur skipað nefnd til þess. Brot á lögum Píramítamir, eitt af sjö undrum veraldar, eru um 4.000 ára gamlir. Var lagning hraðbrautarinnar stöðv- uð eftir að mótmæli bárust frá Egyptanum Said Zulficar, yfírmanni Mennta-, vísinda- og menningar- málanefndar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO). Segir Zulfícar vegar- lagninguna brot á alþjóðlegum lög- um sem sett voru til verndar merkum forn- og náttúruminjum. UNESCO hefur sent egypskum yfírvöldum bréf þar sem þeim er gefínn frestur fram til 1. maí til að koma í veg fyrir lagningu hraðbraut- arinnar og aðrar ógnir sem steðja að píramítunum, svo sem byggingu félagslegra íbúða, hermannaskála og öskuhauga. Takist stjórnvöldum þetta ekki, verði píramítamir teknir af lista yfír merkustu menningar- og náttúruarfleifðir heims. Stjórnin hefur nú þegar lagt til að vegurinn verði færður tveimur km lengra frá píramítunum en UNESCO hefur hafnað tillögunni. Vilja Sameinuðu þjóðirnar að lagn- ingu vegarins verði gjörbreytt, svo að hann liggi ekki um það svæði sem nýtur verndar samkvæmt lögum um menningar- og náttúruarfleifð en það nær um 27 km suður af Giza. Nú er útsýni frá píramítunum aðeins óspillt í eina átt en fornleifa- fræðingar segja að hraðbrautin muni að óbreyttu spilla því. Þá muni hrað- brautin auka Ioftmengun, koma i veg fyrir fornleifauppgröft og borgin muni færast æ nær píramítunum. SÞ og fomleifanefndir hafa lagt til að vegurinn verði fluttur um 22 km frá Giza. Því hafa þeir sem að lagningu hans standa mótmælt, segja hann mikilvæga tengingu Ka- író og 6. októberborgar, iðnaðar- borgar í eyðimörkinni um 15 km frá Kaíró. Verði hraðbrautin færð að ósk SÞ og fornleifafræðinga, sé hún gagnslaus. Þá segja þeir að hrað- brautin muni í raun draga úr loft- mengun þar sem hún muni létta umferð af veginum, sem liggur um 500 metra frá píramítunum. Lagning hraðbrautar er ekki eina tilfellið þar sem fólksfjölgun ógnar fornleifum i Egyptalandi. Stjórnin hefur hvað eftir annað hótað að flytja á brott húsaþyrpingar sem risið hafa í óleyfí við fornleifar í Kaíró og í Luxor. Hefur það komið berlega í ljós, hversu erfiðlega getur gengið að aðlaga nútímann að fortíðinni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.