Morgunblaðið - 30.12.1994, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 30.12.1994, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1994 21 LISTIR HÁTÍÐARTÓNLEIKAR verða haldnir í Kristskirkju í Landakoti í kvöld, 30. des- ember kl. 21. Flytjendur eru Sverrir Guðjónsson, kontr- atenor, Eggert Pálsson, slag- verk, Pavel Manásek, orgel, Martial Nardeau, þverflauta, og Jóhann Sigurð- arson, leik- ari. Kveikj- an að þess- um tónleik- um er frumflutn- ingur á nýju verki eftir Áskel Másson, samið fyrir kontrate- nor og slagverk. I frétta- tilkynn- ingu segir: „Hér er um ljóðræna „Bæn“ eða lofgjörð að ræða, út frá grískum texta, „To Axion Esti“ eftir Odysseas Elýtis, í þýðingu Sigurðar A. Magnússonar. Alls kyns klukkur og bjöllur gegna veigamiklu hlutverki í þess- Hátíðartón- leikar í Kristskirkju ari tónsmíð og koma þær víðs vegar að úr heiminum. Klingjandi klausturbjöllur, sem söngvarinn leikur á, koma alla leið frá Japan. Auk þess hljóma „tubular bells“, „crotales" og „gongs“, af mis- munandi stærðum og gerð- um, sem sérstaklega þurfti að flytja inn til landsins. „Lofað veri ljósið“ er óður til náttúrunnar, manneskj- unnar, Guðs, eilífðarinnar, augnabliksins. Sú ljóðræna stemmning sem textinn vekur, hafði áhrif á val annarra verka úr smiðju Áskels Más- sonar. Á efnis- skránni er „Bæn“, kontratenor og slagverk, „Sýn“, orgel og slagverk, „Elegie“, orgel, „La- ment“, þver- flauta, og „Vocalise", kontratenor og orgel. Auk tón- listarflutnings mun Jóhann Sigurðarson, leikari, lesa ljóð, sem sérstaklega eru val- in út frá þema þessara tón- leika“. Aðgöngumiðar verða seld- ir við innganginn. Post-graduate TONLIST Norræna húsinu PÍ ANÓLEIKUR Arnhildur Valgarðsdóttir. Píanóleikur. Miðvikudaginn 28. desember 1994. í RAUN og veru veit ég ekki hvort ætlast er til að um tónleika þessa sé fjallað opinberlega í formi gagnrýni, en um var að ræða lið í lokaprófi Arnhildar að mér skilst, og verður því að líta á tónleikana sem einskonar nemendatónleika. Enga efnisskrá var heldur að fá við innganginn og kom í hlut Arn- hildar sjálfrar að kynna verkefnin sem hún lék. Fyrri hluti efnisskrár- innar var helgaður J.S. Bach, fyrst Prelúdía og fúga úr Das Wohlte- merierte Klavier. Sjálf kynnti Arn- hildur Bach sem höfund er semur undir ströngum formum og agað mjög, sem vitanlega er alveg rétt hjá henni. Hins vegar var spil hennar mjög frjálst, ekki í þeim stranga aga sem við erum vönust í flutningi Bach-verka. Kannske má segja, að vegna þess hvað form Bachs eru þétt þoli hann, í þessum prelúdíum og fúgum, miklar styrk- leikasveiflur og nokkurt frelsi í hryn, en undirrituðum fannst þarna nokkuð langt gengið. Að vísu var spil Arnhildar skýrt og auðheyrt var hvað hún var að fara og þá er ekki lítið sagt, því ekki fara allir af stað með ákveðið markmið í huga. Fljótlega kom í ljós að minni Arnhildar er gott og hún var mjög fljót að bjarga smá mistökum, sem alltaf koma fyrir. í e-moll Partítu Bachs var eðlilega þessi sama frjálsa túlkun áberandi og þótt margt í Partítunni væri vel og fallega gert, varð úr henni einhverskonar enskur Bach, sem undirritaður getur ekki fyllilega skrifað undir. Þó er vitanlega ekki svo að til sé aðeins ein aðferð við að spila Bach, en til þess að fara langt út fyrir hefðina þarf þrosk- aðan listamann með langa reynslu, slíkir geta og leyft sér hvað sem er, ef góðir eru. Langur vegur er þó að því marki og fyrst er að losna frá kennurum sínum. Arn- hildur lauk tónleikunum með fyrsta þætti úr „Reliqué“-sónöt- unni eftir Fr. Schubert. Enn sýndi Arnhildur gott minni, sem er hljóð- færaleikara ekki lítils virði. Til þess að fá þessa löngu einþáttunga Schuberts til að lifa þarf langa reynslu og mikla orku. Arnhildi er óskað til hamingju með áfang- ann, framtíðin er alltaf óskráð, sem betur fer. Ragnar Björnsson Góð sjónvarpsmynd LEIKLIST Sjónvarpiö HVÍTI DAUÐINN Handrit og leikstjórn: Einar Heim- isson. Kvikmyndun: Haraldur Frið- riksson. Stjórn upptöku: Tage Ammendrup. 28. desember. ÞAÐ ER dálítið furðulegt hvað allt gerist hratt í þessum heimi - við meira að segja gleymum hratt. Það er ekki óalgengt að við sem fædd erum eftir miðja öldina lítum á berkla sem jafn fornan hluta af sögu landsins og svarta dauða. Samt teygði þessi sjúkdómur sig nokkuð fram yfir miðbik aldarinnar og við þekkjum fólk sem hefur skaðast af honum og vissulega hefur hann höggvið skarð í ættir okkar. Heimildarmynd sjónvarpsins, sem sýnd var í fyrrakvöld, færði þennan þátt íslandssögunnar nær okkur á mjög sérstæðan hátt. Þótt hér hafi verið um heimilda- mynd að ræða, var nægilega mikið af skáldskap í henni til að hún gerði sig sem sjálfstætt sjónvarpsleikrit. Sagan var einföld og laus við tilgerð - og ég verð að segja að mér fannst sú nálgun við viðfangsefnið sem Einar Heimisson kaus, þ.e. mann- eskjan andspænis þessum skæða sjúkdómi; sorgir hennar, einangrun, vonir, vonbrigði og söknuðurínn í bijósti hennar, gera það að verkum að örlög þeirra einstaklinga sem myndin fjallaði um, komu manni við. Barátta þeirra' snart mann. Það var mikill léttir að horfa á mynd um fólk, án þess að vera settur inn í tölfræði, sagnfræði eða eitthvert vitsmunakjaftæði. Mér finnst það gleðiefni að við skulum hafa eignast kvikmyndagerðarmann sem kann að nota vitsmunina til að koma frá sér sögu um þær tilfinningar sem mann- eskjan þarf að takast á við í veraldar- volkinu. Mér fannst handritið gott; vel uppbyggt, laust við tilgerð og ljóst að Einar treysti leikurunum til að koma þessari látlausu, fallegu sögu til skila - og það sem er ekki síður mikilvægt, treysti áhorfendum til að taka við henni. Tónlistin var vel valin; undirleikur við það hljóðfæri sem tilfinningaskalinn er og aldrei uppáþrengjandi. Myndatakan var að mestu leyti góð; sjónarhorn og hreyf- ing blátt áfram og eðlileg, þótt mér hafi þótt heldur mikið af of miklum nærmyndum. Fókusar á munna voru alveg að verða hlægilegir. Það sem ber þó hæst var, hversu vel leikin myndin var. í aðalhlut- verki var Þórey Sigþórsdóttir og man ég ekki eftir að hafa séð hana gera betur. Þorsteinn Gunnarsson var mjög góður í hlutverki Helga læknis og það sama má segja um Hinrik Ólafsson sem Jóhann sjómaður. Það var þó Aldís Baldvinsdóttir sem stal senunni í túlkun sinni á hinni ör- væntingarfullu konu, sem flýr af hælinu til að drekkja sorgum sínum eina nótt. Hvíti dauðinn er eitthvert best heppnaða leikna íslenska efni sem ég hef séð í sjónvarpi og verður til- hlökkun að fylgjast með verkum Einars Heimissonar í framtíðinni. Súsanna Svavarsdóttir AUGLÝSING UM INNLAUSNARVERÐ VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* FLOKKUR 10.000 GKR. 1976-2.fl. 25.01.95-25.01.96 kr. 13.927,09 1977-1 .fl. 25.03.95 - 25.03.96 kr. 12.998,61 1978-1 .fl. 25.03.95 - 25.03.96 kr. 8.813,32 1979-1 .fl. 25.02.95 - 25.02.96 kr. 5.827,74 INNLAUSNARVERÐ* FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL Á KR. 10.000,00 1981-1 .fl. 25.01.95-25.01.96 kr. 234.004,30 1985-1 .fl.A 10.01.95- 10.07.95 kr. 66.190,90 1985-1 .fl.B 10.01.95- 10.07.95 kr. 33.648,10** 1986-1 .fl.A 3 ár 10.01.95- 10.07.95 kr. 45.624,50 1986-1 .fl.A 4 ár 10.01.95- 10.07.95 kr. 51.714,50 1986-1 .fl A 6 ár 10.01.95 - 10.07.95 kr. 53.899,30 1986-1.fl.B 10.01.95- 10.07.95 kr. 24.816,70** 1986-2.fl.A 4 ár 01.01.95-01.07.95 kr. 42.784,50 1986-2.ÍI.A 6 ár 01.01.95-01.07.95 kr. 44.505,80 1987-1.fl.A2 ár 10.01.95 - 10.07.95 kr. 35.796,60 1987-1 .fl.A 4 ár 10.01.95 - 10.07.95 kr. 35.796,60 1989-1 .fl.A 2,5 ár 10.01.95-10.01.96 kr. 17.889,90 *) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur. **) Við innlausn fylgi ógjaldfallnir vaxtamiðar spariskírteinis. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka Islands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, 30. desember 1994. SEÐLABANKIÍSLANDS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.