Morgunblaðið - 30.12.1994, Síða 32
32 FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1994
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+ Séra Jan Habets
fæddist í Scha-
esberg í Hollandi
19. nóvember 1913.
Hann andaðist í
Borgarspítalanum
20. desember síðast-
liðinn. Foreldrar
hans ráku korn-
myllu í Schaesberg
og hann mun hafa
átt tvær systur.
Önnur þeirra er lát-
in en hin verður við-
stödd útför hans. Hann stundaði
nám við menntaskólann í
Schimmert 1926 til 1932 og
lagði að því loknu stund á undir-
búningsnám til prestþjónustu til
1933.1 reglu hl. Montforts gekk
hann 8. september 1933 og nam
siðan heimspeki í Oirschot til
1935. Eftir það kenndi hann
eitt ár við menntaskólann í
í STYKKISHÓLMI er fátt ka-
þólskra manna þegar frá eru tald-
ar St. Franciskussystur og gafst
séra Habets því góður tími til að
sinna hugðarefnum sínum, sem
voru öll á vegum kaþólsku kirkj-
unnar, enda er þar af nógu að
taka. Hann var mikill lestrarhest-
ur, óþreytandi að auka við fróðleik
' sinn og fylgjast með því sem gerð-
ist í kirkjunni, hvar í heiminum sem
það var, enda var hann frábærlega
vel að sér um þau mál. Ennfremur
lá honum mjög á hjarta að miðla
af þekkingu sinni á kirkjunni til
íslendinga, enda áttu nokkrir menn
Ieið inn í hana eftir að hafa þegið
fræðslu hjá honum. Kunnastur
þeirra mun hafa verið Jón Sigurðs-
son sem Steinn Steinarr hefur gert
ódauðlegan með ljóði sínu um hann
sem „Jón Kristófer kadett í Hem-
um“.
Ég varð aldrei nákunnugur séra
Habets en hitti hann annað veifíð,
ýmist þegar ég kom í Stykkishólm
eða þegar hann kom hingað suður,
en mér hefur orðið minnisstætt það
sem hann benti mér á einu sinni
er við ræddum frásögur guðspjall-
anna. Ég spurði hann hvort nokkur
ástæða væri til að efast um að
María og Jósef hefðu átt fleiri
börn en Jesúm, þar sem það stæði
skýrum stöfum í guðspjöllunum.
Venjulega höfðu prestar bent mér
á, þegar ég spurði þá að þessu,
að orðin bróðir og systir hefðu á
þeim tímum oft verið notuð um
• náin skyldmenni, og gat það vitan-
lega verið gott og blessað. En séra
Habets benti mér á frásögnina af
því þegar Jesús hékk á krossinum
og sá móður sína og „lærisveininn
sem hann elskaði" standa þar. Þá
sagði hann við móður sína að nú
væri Jóhannes soriur hennar og
við hann að nú væri hún móðir
hans. Og lærisveinninn tók hana
heim til sín. „Það hefði hann ekki
þurft að gera,“ sagði séra Habets,
„ef hún hefði átt fleiri börn, því
þá hefði það verið siðferðileg
skylda þeirra að taka hana að sér.“
Séra Habets skrifaði mikinn
fjölda greina um málefni kaþólsku
-- kirkjunnar, bæði í Morgunblaðið
og Kaþólska kirkjublaðið. Það háði
honum mikið í því starfí að hann
lærði íslensku aldrei til neinnar
hlítar, enda hálfsjötugur þegar
hann kom hingað til lands, og varð
því að leita til annarra um þýðingu
þess sem hann skrifaði. En vilji
hans til að leggja kirkju sinni lið
var óbugandi og því lét hann aldr-
ei af þessum ritstörfum sínum,
þótt það kostaði hann meiri fyrir-
höfn en marga aðra að koma máli
sínu á framfæri.
Kaþólski söfnuðurinn hér á íandi
kveður nú séra Habets í hinsta
sinn hérna megin grafar og metur
mikils eldlegan áhuga hans á að
þjóna kirkjunni okkar sem best
hann gat. Eftirlifandi systur hans
og venslafólki vottum við innilega
samúð okkar. Hann hvíli í friði.
Torfi Ólafsson.
Schimmert. Þá hóf
hann guðfræðinám
sem hann stundaði
til 1940 og þáði
prestvígslu 3. mars
þaðár. 1941 til 1947
nam hann latinu og
grísku við háskól-
ann í Nijmegen og
kenndi síðan við
menntaskólann í
Schimmert 1947 til
1968. Að þessu
loknu kenndi hann
tvö ár við menntaskólann í Fa-
tíma í Portúgal. Hann starfaði
sem stúdentaprestur í Lissabon
1970 til 1977 en þá fluttist hann
hingað til lands og var prestur
við sjúkrahús St. Franciskus-
systra í Stykkishólmi til dauða-
dags. Utför hans fer fram frá
Kristskirkju í Landakoti í dag.
Séra Jan Habets er látinn. Þeg-
ar þessi frétt barst út um Stykkis-
hólm 20. desember sl. veit ég að
marga setti hljóða.
Hann var orðinn svo stór þáttur
í lífí Stykkishólmsbúa, alltaf hress,
frár á fæti og glaður. Engum hafði
komið til hugar að svo stutt væri
í burtför hans. í Hólminum átti
hann orðið marga kæra vini og
mun mér óhætt að telja mig einn
þeirra, svo mikil voru samskipti
okkar í gegnum árin.
Sr. Habets stundaði starf sitt
vel. 1 sautján ár var hann sóknar-
prestur kaþólska safnaðarins í
Hólminum og þótt hann lærði aldr-
ei íslensku til fulls var merkilegt
hvað hann kom boðskapnum vel
til skila. Boðun hans var hrein og
klár. Sunnudagsmessurnar hans
kl. 10 og svo spjallið á eftir yfir
kaffísopa settu sinn svip á starf
hans. Um margra ára skeið skrif-
aði hann eftirminnilegar greinar
um trúmál í Morgunblaðið, bæði
til að gera athugasemdir við það
sem áður hafði verið skrifað í blað-
ið og eins til að vekja athygli á
einlægri trúarskoðun sinni. Oft
mæltum við okkur mót þar sem
ég bar fram mínar fyrirspurnir sem
lúterskur trúmaður. Það stóð sjald-
an á svörum né rökum. Er ég
spurði hann eitt sinn hvort ekki
væri það honum eftirsjón að hafa
gerst kaþólskur prestur og þar
með neitað sér um lystisemdir
heimsins þá svaraði hann að
bragði: „Síður en svo, því himinn-
inn hefur gefíð mér svo mikið mið-
að við það sem heimurinn gefur.“
Séra Habets var mikill vinur
barnanna og átti ógrynni af leik-
föngum í sínum húsakynnum
handa þeim þegar þau heimsóttu
hann. Leikskóli systranna var
þarna rétt hjá og aðdáunarvert var
að fylgjast með er börnin kepptust
að komast á hans fund.
Við áttum margt saman að
sælda og ég tel mig hafa haft
mjög gott af samskiptum mínum
við séra Habets. Hljóðu bæna-
stundirnar með honum verða mér
ógleymanlegar og er ég ævinlega
þakklátur fyrir að fá að hafa notið
næruveru hans í samskiptum okk-
ar við Drottin allsheijar. Hann var
trúr sinni köllun og með þessum
fáu orðum kveð ég nú einn af þeim
bestu vinum sem ég hef eignast á
síðari árum.
Hólmurinn er vissulega fátækari
eftir að þessi góði maður hefur
kvatt. Ég vil því að lokum þakka
þessum góða vini mínum hans dyr-
mætu gjafir og góðu kynni. Ég
veit að honum hefur orðið að trú
sinni. Góður Guð blessi hann og
varðveiti.
Árni Helgason.
Fyrir nokkrum árum kynntist
ég þessum sérstæða kennimanni
og eignaðist trausta og sama vin-
áttu hans. Við heimsóttum hvor
annan, skrifuðumst á og ræddum
oft saman í síma. Hann sýndi heim-
ili mínu mikla vinsemd og trygg-
lyndi. Komu hans hingað og dvöl
hans hér var alltaf vel fagnað og
ánægjulegt var að fara í Hólminn
til þess að hitta séra Habets og
njóta ánægjulegra samverustunda
með honum og St. Fransiskus-
systrum. Þar réð hin sanna gleði
og einlæga gestrisni húsum. Og
þar var hann enn þjónandi prest-
ur, þótt kominn væri á níræðisald-
ur. Kærleiksrík og gefandi störf
hans voru löngum unnin í kyrrþey
og af fómfýsi og áttu því vel heima
í því umhverfi líknandi mannúðar
og kristilegs kærleika, sem syst-
umar hafa myndað á St. Fransisk-
usspítalanum í Stykkishólmi. Allt
það starf hefur lengi verið mikils
metið og rómað af mörgum, og
þangað hefur líka mörgum þótt
gott að leita vegna ýmissa mála
og í kapellunni fögra er blessun
að fá. Lengi hefur séra Habets
messað þar og flutt sinn boðskap
ákveðið og sköralega. En hitt vita
líka ýmsir, að presturinn kunni
fleira en að prédika. Hann kunni
líka listina að hlusta á aðra. Það
jók svo öryggi kenningarinnar, hve
biblíufróður hann var.
Séra Jan Habets SMM var hol-
lenskur eins og fleiri kaþólskir
prestar á íslandi og tilheyrði reglu
Montfortpresta. Hann var vel
menntaður, víðlesinn og því víða
heima. Auk þess að vera prestur
var hann guðfræðikennari og
starfsvettvangurinn því víðar en á
íslandi.
Eins og ég kynntist honum, var
hann sílesandi og skrifaði mikið.
Hann fylgdist afar vel með kirkju-
legum fréttum um alla heims-
byggðina og var þannig búinn að
viða að sér miklum og margþætt-
um fróðleik, sem hann þreyttist
aldrei á að miðla öðrum. Og ein-
mitt vegna þessa tókst honum oft
mjög vel að leiðrétta margar rang-
færslur og kveða niður ýmsa bá-
biljuna. Hann var einn þeirra góðu
útlendinga, sem fórnuðu veraldar-
auði og veraldargæðum fyrir trú
sína og hugsjón og færðu svo Is-
landi störf sín. Gleðin og mannkær-
leikurinn geislaði frá honum og það
voru þessi andlegu verðmæti sem
hann flutti íslendingum í ræðu og
riti og öllu dagfari. Þeir sem sögðu
að gott væri að leita andlegra og
trúarlegra ráða hjá honum, mættu
þar einmitt djúpum skilningi. Og
samúð hans hlutu margir, þegar
slíkt átti við. Hann lifði fögra og
djúpu trúar- og bænalífí eins og
systurnar, sem hann veitti sálu-
sorgun. Fórnfýsi og lítillæti þessa
fólks era nú æ fleiri íslendingar
að kunna að meta. Allt slíkt sting-
ur líka notalega í stúf við allt það
auglýsingaskrum og streitu, sem
margir virðast eiga orðið allt of
mikið af.
Oft tók ég eftir því, að séra
Habets gat maður alltaf treyst.
Aftur og aftur kom það vel í ljós
hjá honum, hvað mikill styrkur
getur sprottið upp af því samfé-
lagi, sem grandvallast á traustri
trú og þrotlausu bænastarfí. Auk
þess að vera mikill bókamaður var
séra Habets fyrst og fremst „prest-
urinn góði“, sem jafnframt var
mjög trúr og rökvís. Hugur hans
var opinn og einkar jákvæður.
Þess vegna var það rökrétt fram-
koma þessa prests, hversu fús
hann var alltaf að fræða og leið-
beina og benda á lausnir margra
erfiðra mála.
Það vakti oft athygli mína
hversu duglegur hinn aldurhnigni
prestur var að ferðast t.d. í skamm-
degi og vetrarbyljum, þegar hann
þurfti að þjóna og messa hjá er-
lendu fólki, sern starfaði á ýmsum
stöðum á Snæfellsnesi, en var í
kaþólsku kirkjunni. Aldrei heyrði
ég hann telja slík spor eftir, nema
síður væri.
Séra Jan Habets var áhugasam-
ur um margt sem íslenskt er og
beindi þá helst sjónum að því sem
er ekta, en lét einskisnýtar umbúð-
ir eiga sig.
Það var ánægjulegt að fá að
JANHABETS
kynnast þessum mæta og vamm-
lausa manni og fyrir þau kynni er
nú þakkað að leiðarlokum. Þessi
hjartahlýi og trúfasti Drottins
þjónn var burtkallaður af þessum
heimi rétt fyrir jólin. Ýmsir fengu
að eiga með honum marga hátíð-
lega jólamessuna. I kirkjunni á
himnum heldur svo lofsöngur
þeirra áfram, sem vígðust Guði og
gáfu honum allt sitt líf. Þar vona
ég að séra Habets fái nú að heyra
orðin góðu (Mt. 25,21): „Gott, þú
góði og trúi þjónn. Yfír litlu varstu
trúr, yfir mikið mun ég setja þig.
Gakk inn í fögnuð herra þíns.“
Séra Páll Pálsson,
Bergþórshvoli.
Kveðja frá Rotaryklúbbi
Stykkishólms
Vísa mér vegu þína, Drottinn,
kenn mér stigu þína.
Lát mig ganga í sannleika þínum og kenn mér,
því að þú ert Guð hjálpræðis míns,
alla daga vona ég & þig.
(Úr 25. Davíðssálmi.)
Höggvið hefur verið skarð í rað-
ir okkar Rotarymanna. Heiðursfé-
lagi okkar, séra Jan Habets, er lát-
inn. Hann var prestur St. Francisk-
ussystranna í Stykkishólmi í 17 ár.
Séra Jan var mikill mannvinur
og eldhugi og varði trúna hvenær
sem honum fannst á hana ráðist.
Það kannast margir við greinar
hans um trúmál á liðnum árum.
Þannig var hann einnig í daglegu
lífí. Hann var léttur og kátur og
kom alltaf til dyranna eins og hann
var klæddur. Hann var hrekklaus
maður. Séra Jan gerðist félagi í
Rotaryklúbbi Stykkishólms árið
1981 og var styrk stoð í starfsemi
hans allt fram í andlátið.
Dauði séra Jans kom okkur á
óvart. Aðeins tæpum þremur vik-
um áður en hann lést stóð hann í
ræðustól og flutti okkur Rotaryfé-
lögum sínum erindi um Messías.
Engum datt í hug að hann ætti
svo stuttan tíma eftir með okkur.
Með þessum fátæklegu orðum
viljum við þakka þér, séra Jan,
fyrir þann stutta tíma, sem við
áttum samleið. Við vottum fjöl-
skyldu hans, St. Franciskussystr-
um og öllum þeim, sem nú sjá á
eftir miklum og góðum vini, samúð
okkar. Blessuð sé minning séra
Jans H. Habets.
Góði Guð.
Minnst þú þjóns þíns, séra Jans
Habets, sem þú hefur nú kallað til
þín úr þessum heimi. Veit þú, að
hann, sem er samgróinn syni þín-
um, fyrir líkingu dauða hans, verði
það einnig fyrir líkingu upprisu
hans, þegar hann vekur upp látna
í holdinu frá moldu og myndar
auvirðilegan líkama hans í líkingu
við dýrðarlíkamann sinn.
Félagar í Rotaryklúbbi
Stykkishólms.
■Það voru mér óvænt sorgartíð-
indi, þegar ég heyrði prest minn
biðja fyrir sálu séra Jóns Habets
á jóladag og tilkynna jarðarför
hans fimm dögum síðar. Meðal
náinna vina minna var hann líklega
sá elzti, en þó var hann flestum
fremur fullur af lífi og starfsgleði,
uppörvun og gefandi kærleika.
Hann var ekki maður, sem lét lík-
amann og þarfir hans ganga fyrir
í lífi sínu - lifði í sjálfsafneitun
og stundaði, að ég held, enga lík-
amsrækt. Andinn leiddi hann í einu
og öllu: ósérplæginn og brennandi
áhugi að þjóna ríki Guðs, allt eins
í hinu smáa sem stóra. Andleg
atorka þessa manns á níræðisaldri
mátti virðast undarleg mótsögn við
hans veikburða líkama. En segir
ekki heilög ritning, að mátturinn
fullkomnist í veikleika?
Séra Jón Habets hafði legið
þijár vikur á sjúkrahúsi, þegar
andlát hans bar að, en ekki fyrr
en á næstsíðasta degi var bert
orðið, að líf hans væri í hættu.
Þegar hann lézt, var hann einn
síns liðs. Mér og mínum þótti afar
sárt að hafa vitað af honum á
sjúkrahúsi án þess að geta vitjað
hans, en engum hafði til hugar
komið að tilkynna okkur um veik-
indi hans. Var það ekki dæmigert
um lítillæti séra Jóns að kalla ekki
eftir vinum sínum að sjúkrabeði?
Hafí ég þekkt yfirlætislausan
mann, sem þó hafði ótrúlega mikið
á bak við sig í andlegum menntum,
þá var það hann.
Það var undarleg reynsla að
koma til séra Jóns í klaustrið í
Stykkishólmi, þar sem hann þjón-
aði sem prestur í hinni fallegu
kapellu Franziskussystranna.
Hann hafði þar svolitla íbúð fyrir
sjálfan sig; þar ægði saman bókum
og pappírum, ótal helgimyndum
og ljósmyndum úr ferðum hans
erlendis, einnig af vinum hans og
ýmsu, sem tengdist íslenzku þjóð-
lífi og menningu. Innan um þetta
allt voru svo merkin um litlu vinina
hans, sem sóttu til hans nánast
daglega, börnin sem gengu í leik-
skóla Franziskussystra og önnur
úr plássinu, sem fundu hjá þessum
gamla manni umhyggju, hlýju,
skemmtun og uppörvun. Þar voru
leikföng út um öll gólf og fjöldi
mynda, sem þau höfðu teiknað eða
málað og gefið honum. Þar var líka
fullt af blómum og jurtum, en það,
sem gaf stofunni einna mest líf
fyrir börnin, voru páfagaukarnir
hans, sífellt minnandi á sig með
kurri sínu. Séra Jón sat langtímum
saman við sitt stóra skrifborð og
lét ekkert koma sér úr jafnvægi,
þótt hann væri við rannsóknir eða
skriftir, en sinnti börnunum eins
og þau þurftu á að halda, las fyrir
þau o.s.frv.
Sr. Jón var einn mesti fræðimað-
ur, sem ég hef séð til hér á landi,
stofa hans fóðruð með ógrynni
bóka um guðfræði og önnur vís-
indi. Hann var hollenzkur að upp-
runa, prestur af reglu Montfort-
iana og átti að baki margháttuð
störf í Evrópu og víðar, þegar hann
kom hingað til lands; var m.a. lengi
við kennslu í grísku og latínu í
Portúgal. Það breytti ekki stað-
föstu eðli hans að taka við þjón-
ustu í lítilli kapellu í kauptúni við
Breiðafjörð. Hann stundaði rann-
sóknir af eðlislægri fróðleikshvöt,
sjálfum sér til gleði í trúnni, en
öðrum til nytsemdar. Predikanir
hans vora trúverðug útlegging
ritninganna, fyrst og fremst hug-
leiðing um sístæð sannindi trúar-
innar og þýðingu hennar fyrir
mannlegt líf, ekki fánýtt spjall um
dægurmál (sem eru forgengilegust
af öllu). Fáir, ef nokkrir, hygg ég,
að hafi á starfstíma sr. Jóns hér
á landi sent oftar frá sér skrif um
guðfræðileg efni til kynningar al-
menningi en einmitt hann. Aldrað-
ur kemur hann til íslands, leitast
þá óðara við að læra málið, tekst
það auðvitað aldrei nógu vel, en
lætur þó engan bilbug á sér fínna
í viðleitninni að ná til þessarar
þjóðar með erindið mikla, sem hon-
um hafði verið trúað fyrir. Starfs-
skyldu sinni hefði hann getað sinnt
án þess að birta nokkurn tímann
orð á prenti á íslenzku, en hugur
hans var meiri en svo. Vantrúaðir
tala stundum af dómhörku um
kristna trúboða, sem gangi fram
í fullkominni sannfæringu og hug-
sjónaeldi - kalla það fanatík; en
var ekki séra Friðrik Friðriksson
einn þeirra og sr. Jón Habets ann-
ar, þótt með ólíkum hætti væri?
Báðir voru þeir brennandi í hugsjón
sinni, en skildu eftir ótal þakkláta
vini og velunnara, sem voru eins
og snortnir af fingri Guðs í nálægð
þessara manna.
Sr. Jón skrifaði fjölda fræðandi
greina og pistla til skýringar krist-
inni og kaþólskri trú. Væri vert,
að hluta þeirra væri safnað saman
til útgáfu til minningar um hann
og til stuðníngs þeirri trúfræðslu,
sem kirkjan þarf að inna af hönd-
um. Einkum mun hann hafa skrif-
að í Morgunblaðið og Lesbókina
og í Safnaðarblað Kristskirkju (síð-
ar Kaþólska kirkjublaðið). Sem
einn ritnefndarmanna þess síðast-
nefnda get ég borið því vitni, að
,í
!
«
■i
I
£
«
C
«
«
1
I
6
i
i
i
i
(
(
(
I
I
I