Morgunblaðið - 30.12.1994, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 30.12.1994, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1994 35 Ég minnist tengdaföður míns, Harðar Karlssonar, bókbindara. Það er erfitt að trúa því að hann Hörður verði ekki lengur hinn trausti hlekkur í fjölskyldukeðjunni sem hann var, klettur í hringiðu lífsins, traustur og áreiðanlegur. Ég kynntist Herði fyrst árið 1974, þegar ég og dóttir hans felld- um hugi saman. Þá sannaðist hið fomkveðna, að heimurinn er oft svo óskaplega lítill. Þegar ég kom fyrst á heimili Harðar og Hjördísar á Kaplaskjólsveginum, var fljótlega dregið fram gamalt fjölskyldualbúm og þar var mér sýnd ljósmynd af móður minni. Kom þá í ljós að Erla, systir tengdamóður minnar og hún höfðu verið vinkonur á yngri áram. Það var því eins og að koma í gaml- an vinahóp að tengjast þessari fjöl- skyldu. Það fyrsta sem vakti athygli mína, þegar ég kom inn á heimili Harðar, vora allar þær fallegu bæk- ur, sem prýddu þar veggi og hann hafði bundið inn sjálfur. Hörður var ekki aðeins bókbindari að atvinnu, heldur einnig af einskæram áhuga. Bækur voru ástríða hans og sýndu þessi handunnu listaverk áð þarna hafði mikill listamaður verið að verki. í hvert sinn sem tal okkar barst að bókum og bókagerð, birti yfír honum og kom þá í ljós að hann var hafsjór af fróðleik og að bækur hans voru ekki aðeins til skrauts, heldur voru þær einnig mikið lesnar. Hörður var ekki einungis mikill bókaunnandi, heldur naut hann einnig náttúrunnar fram í fingur- góma. Hjördís, kona hans, vann við sumarhótelið á Héraðsskólanum á Laugarvatni árin 1956 til 1972 og dvaldist öll fjölskyldan þar í sumar- leyfum sínum þessi ár. Þessara stunda minntist Hörður alltaf eins og aðrir minnast sólarlandaferða. Var augljóst að þessar minningar voru honum mjög kærar. Hann sagði þó ekki skilið við Laugarvatn þó að Hjördís starfaði þar ekki leng- ur, heldur fóru þau hjónin iðulega í bílferðir þangað með barnabörnin til þess að kynna fyrir þeim þennan stað, sem var þeim svo hjartfólginn. Árið 1991 komum við hjónin okkur upp sumarbústað austur í Biskupstungum og komu þá Hörður og Hjördís all oft til okkar þangað. Þar naut Hörður þess að sitja úti á veröndinni og dást að því mikla útsýni sem þar er að hafa. Hafði hann þá á orði að ekki þyrftu að vera myndir á veggjum, hvað þá sjónvarp, þar sem slíks útsýnis nyti við. Þau hjónin fluttu á Eiðistorg 5 snemma árs 1990. Þar háttaði þannig til, að eldhúsglugginn sneri út á flóann mót norðri og þar blöstu við þau fjöll, sem eru öllum Reyk- víkingum svo kær. Fannst Herði svo mikið til koma, að hann gat setið tímunum saman og horft á síbreytileika náttúrunnar. Aldrei kom til gi’eina að byrgja þetta út- sýni með gluggatjöldum og mátti því oft sjá þau hjónin sitja saman við eldhúsborðið og horfa út. Það eru svo ótal margar minning- ar, sem hrannast upp þegar hugsað er til baka, en sjaldnast auðnast okkur að setja slíkar minningar á blað fyrr en við leiðarlok. Hann Hörður hefur nú hlotið þá hvíld sem við öll fáum. Á slíkri stundu er það eðlilegt að nokkur sorg og söknuður sæki að. Elsku Hjördís mín, Didda og Bjarni, hann Hörður er nú við upphaf nýrrar og dásamlegrar tilvera; tilvera ljóssins, sumarsins og hinnar fögru náttúru sem hann unni svo mjög og fær nú að njóta eilíflega. Ég bið Guð að blessa ykkur nú og um alla fram- tíð. Og eins og barnið rís frá svefnsins sæng, eins sigrar lífið fuglsins mjúka væng. Er tungan kennir töfra söngs og máls, þá teygir hann sinn hvíta svanaháls. Nú fljúga mínir fuglar, góða dís. Nú fagna englar pðs í Paradís. (Davíð Stefánsson) Pétur M. Hanna. KORNELÍA ÓSKARSDÓTTIR + Kornelía Ósk- arsdóttir fædd- ist í Reykjavík 16. desember 1943. Hún andaðist á heimili sinu í Reykjavík 20. des- ember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Guðbjörg Sig- ríður Kornelíus- dóttir, húsmóðir, f. 12. ágúst 1915, d. 6. október 1957, og Óskar Axel Sig- urðsson, bakara- meistari, f. 15. maí 1911, d. 31. maí 1987. Systir Kornelíu er Jó- hanna Óskarsdóttir, f. 13. des- ember 1937. Hinn 29. ágúst 1964 giftist Komelía eftirlif- andi eiginmanni sínum Magnúsi Hauki Guðlaugssyni, fram- kvæmdastjóra skartgripaversl- unar Guðlaugs A. Magnússon- ar, og eru dætur þeirra Hanna Sigríður Magnúsdóttir, mark- aðsfræðingur, f. 17. júlí 1963, og María Hrönn Magnúsdóttir, nemi í hjúkrunarfræðum, f. 11. júlí 1967. Komelía Óskarsdóttir verður jarðsungin frá Dóm- kirkjunni í Reykjavík í dag. GÓÐ kona er gengin vel fyrir aldur fram. Það varð okkur hjónun- um mikið áfall þegar Magnús vinur okkar hringdi á afmælisdaginn sinn hinn 20. desember sl. og tjáði okk- ur að Komelía eiginkona sín hefði látist þá um morguninn. Konný fæddist í Reykjavík og sleit bamsskónum á Báragötu 11 hjá umhyggjusömum foreldrum og það var þar sem sorgin knúði dyra þegar móðir hennar féll frá þegar Konný var tæpra 14 ára gömul, en þær mæðgur vora mjög samrýndar og var Konný lengi að ná sér eftir móðurmissinn. Óskar faðir hennar kvæntist á ný Hönnu R. Guðmunds- dóttur, sem lést í janúar 1977. Konný hafði oft á orði að hún yrði ævinlega þakklát fyrir þá væntum- þykju, sem Hanna bar í hennar garð og að betri stjúpmóður væri vart hægt að hugsa sér. Vora sam- skipti þeirra eftir því. Meistararéttindi í hárgreiðslu hafði Konný og starfaði við það tímabundið ásamt heimilisstörfum, en þegar dæturnar voru orðnar tvær helgaði hún sig heimilinu og uppeldi þeirra og er þær uxu úr grasi hóf hún starf 'við hlið eigin- mannsins í skartgripaverslun Guð- laugs A. Magnússonar og starfaði þar til dauðadags. Fjölskyldan var henni eitt og allt og tekið var eftir því hve samhent og samrýnd þau hjónin voru og ber gott uppeldi dætranna þess glögg merki, enda tók Konný virkan þátt í áhugamál- um þeirra, studdi þær og hvatti í námi og leik eða eins og þær sögðu við okkur: „Hún kenndi okkur það sem við kunnum." Vart verður betra sagt um góða og fyrirhyggjusama móð- ur þegar haft er í huga hversu glæsilegir og góðir fulltrúar sinnar kynslóðar þær eru. Eiginmanni sínum var Konný mikil stoð og stytta ef eitthvað bját- aði á, hvort sem var af heilsufarsástæðum eða á öðrum sviðum og vakti það aðdáun manns hversu vel hún stóð við hlið hans í blíðu sem stríðu og var trygglyndi hennar viðbrugðið. Fjölmarga kosti hafði Konný til að bera, hún var alla tíð trúuð kona og samkvæmt því sannur vinur vina sinna, alltaf fús til hjálpar og fljót að fyrirgefa yfirsjónir ásamt með mörgu öðra, sem of langt mál yrði að telja upp hér. Hennar er nú sárt saknað af stórum vinahópi, og teljum við hjón- in okkur það til láns að hafa verið þar á meðal. Söknuður og missir eiginmanns og dætra er þó mestur. Ástkær eig- inkona og móðir er nú kvödd og biðjum við og vonum að almættið megi styrkja þau í sinni miklu sorg. Við kveðjum þig með trega, kæra vinkona — hafðu þökk fyrir allt og allt. Sigríður Guðjónsdóttir, Jón Lárusson. Þær sorgarfréttir bárast mér að- faranótt 20. desember að Kornelía Óskarsdóttir væri dáin. Dáin í blóma lífsins öllum að óvörum. Ég kynntist Kornelíu í ársbyrjun 1984 í gegnum dóttur hennar Hönnu Sigríði Magnúsdóttur. Mér var strax tekið opnum örmum á heimili Korn- elíu og Magnúsar Guðlaugssonar eftirlifandi eiginmanns hennar í Hjallalandi 13, ásamt Maríu Hrönn yngri dóttur Kornelíu, og ekki má gleyma hundinum Kolla sem allir elskuðu. Komelía hafði skemmtilegt fas, hún var jákvæð, kímin, forvitin og stríðin. Kornelía var mjög tilfínn- ingarík kona og tók öllum vel hvort sem þeir máttu sín minna eður ei. Hún einstaklega þjónustulipur og sem verslunarstjóri í verslun þeirra hjóna, Guðlaugi A. Magnússyni, stóð hún sig ávallt með prýði og má segja að þolinmæði hennar og umburðar- lyndi sé eitt það besta veganesti sem fólk þarf að hafa í þessari starfs- grein. Kornelía stríddi -mér oft á því hversu stressaður ég væri og bað mig að fara mér hægt. Hún vildi öllum vel, gjafmild og kærleiksrík. Minning góðrar konu mun lifa í hjörtum okkar allra sem hana þekktu. Kveð ég hana með söknuði og Guð blessi fjölskyldu hennar á þessum erfíðu tímum. Allt eins og blómstrið eina upp vex á sléttri grund fagurt með fijóvgun hreina fyret um dags morgunstund, á snöggu augabragði afskorið verður fljótt, lit og blöð niður lagði, líf mannlegt endar skjótt. (H.P.) Kveðja, Bárður Jósef Ágústsson. Kveðja til ástkærrar móður ' okkar, Kornelíu. Ég veit, að það besta, sem i mér er, í arfleifð ég tók frá þér. Ég veit, að þú gafst mér þá glöðu lund, sem getur brosað um vorfagra stund, og strengina mína, sem stundum titra, er stráin af náttköldum daggperlum glitra, stemmdi þín móðurmund. Ég veit það af reynslunni, móðir mín, hve mjúk hún er höndin þín. Þín umhyggja er föpr sem himinninn hár, ég hef ekki skoðað þau grátsöltu tár, sem þú hefur kysst burt af kinnunum mínum og klappað í burtu með höndunum þínum í fjöldamörg umliðin ár. (Jóhann Siguijónsson) Þínar dætur, Hanna Sigríður og María Hrönn. Þegar við fregnuðum skyndilegt og ótímabært fráfall vinkonu okkar og skólasystur, Kornelíu Óskars- dóttur, vorum við enn á ný minntar á að enginn veit sína ævi fyrr en öll er. Kynni okkar Konnýjar, eins og hún var jafnan kölluð, hófust í Gagnfræðaskóla Vesturbæjar og Gagnfræðaskóla verknáms og hefur sá kunningsskapur haldist síðan óslitinn. Við voram allar við nám í saumadeild skólans og stofnuðum því fljótlega saumaklúbb þar sem pijónað var og saumað af kappi milli þess sem drukkið var kók og borðað prins póló. Með áranum urðu veitingarnar fjölbreyttari og handa- vinnan fábreyttari, en því meira var talað og hlegið. Við eigum einnig góðar minning- ar um Konný og fjölskyldu hennar frá þeim tímum sem saumaklúbbur- inn gerði víðreist og reisti tjöld um landsins sveitir. í þeim ferðum efld- ust vináttubönd fjölskyldna okkar enn frekar. Þessar samverustundir í sauma- klúbbnum hafa alltaf átt sinn fasta sess í lífi okkar, en nú við fráfall okkar kæru vinkonu hefur myndast vandfyllt skarð í hópinn. Við eigum þó minningar um góðar stundir saman og þær minningar munum við ávallt geyma. Með þeirri vissu að nú sé hún í góðum höndum, reynum við að sætta okkur við fráfall hennar langt um aldur fram. Við kveðjum hana í dag með söknuði í huga og þökk- um henni góða samfylgd sem og allar þær ánægjustundir sem við höfum átt saman á liðnum áram. Elsku Maggi, Hanna Sigga, Mar- ía Hrönn og aðrir ástvinir, við send- um ykkur okkar innilegustu samúð- arkveðjur og biðjum þess að æðri máttarvöld veiti ykkur styrk. Við kveðjum þig nú hinsta sinni, elsku Konný, og biðjum Guð að geyma þig. Þótt við sjáumst oftar eigi undir sól er skín oss hér, á þeim mikla dýrðardegi Drottins aftur finnumst vér. (V. Briem) Saumaklúbburinn. Vinkona mín er látin. Hún var i mér afar kær og langar mig að kveðja hana með hlýju frá mér og mínum. Ég var döpur að frétta andlát hennar. Hún var sérstök kona og sérlega falleg. Móðir mín heitin sagði alltaf að hún liTi út sem gyðja og er það sannarlega réttnefni. Maggi minn og dætur. Þið eigið um sárt að binda. Gæfan fylgi ykk- ur. Ég er með hugann hjá ykkur. S amúðarkveðj ur, Sigurlaug (Silla). Það var sveiflufall hjá okkur djassvinum Komelíu Óskarsdóttur er við fréttum lát hennar. Tæpri viku áður höfðum við hitt hana glaða og reifa ásamt Magnúsi manni sín- um á útgáfutónleikum minningar- diska meistarapíanistans Guðmund- ar Ingólfssönar, en Guðmundur var í miklu uppáhaldi hjá Komelíu. Bæði létust þau í blóma lífsins, hann varð 52 ára, hún 51 árs. Það þarf tvo til að djassinn þríf- ist - spilara og hlustanda - og má hvorugur án hins vera. Kornelía og Magnús voru í hópi þeirra er settu svip á djasstónleika og djass- hátíðir og það var á einni slíkri sem ég kynntist þeim fyrst; Djasshátíð Egilsstaða. Þar voru þau einn af föstu punktunum og var sárt sakn- að er þau komust ekki í sumar. Þau létu sig þó ekki vanta á RúRek djasshátíðina í haust og vænt þótti mér um komu þeirra á djasstónleika á Kringlukránni í • tilefni af fímm- tugsafmæli mínu. Ég á eftir að sakna Kornelíu, það verður ekki fagnað á fleiri djasshá- tíðum með henni, ekki skálað oftar fyrir frábæram djassmeisturam, en Magnús mun vonandi halda merk- inu á loft - honum, dætrunum og öðram aðstandendum flyt ég inni- legustu samúðarkveðjur íslenskra djassunnenda. t - Vernharður Linnet. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æski- legt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-texta- skrár. Ritvinnslukerfin Word og Word- perfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýs- ingar þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina og hálfa örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 3600-4000 slög. Höf- undar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. MARÍA ELÍSABET OLGEIRSDÓTTIR ín, María Angela (lát- in), Gunnar Már, Fjóla Hansen og Guðmund- ur. Útför Maríu fer fram frá Fossvogs- kirkju í dag. í DAG kveð ég elsku- lega tengdamóður mína. Fyrir 22 áram þegar ég kom fyrst í litla húsið á Álfhólsveg- inum, var tekið vel og innilega á móti mér. Þessi litla hlýja kona fékk strax sinn stað í hjarta mínu. Sjö barna 1. apríl 1912. Börn þeirra hjóna móðir sem gekk götu lífsins með eru: Olgeir Svavar, Lilja, Krist-- æðruleysi og kærleika. Aldrei + María Elísabet Olgeirsdóttir fæddist í Stykkis- hólmi 12. júní 1912. Hún lést á Land- spítalanum 26. des- ember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Una Guð- mundsdóttir og 01- geir Kristjánsson skósmiður. Hinn 20. janúar 1935 giftist María eftir- lifandi eiginmanni sínum, Gísla Guð- mundssyni tré- smíðameistara, f. heyrðist hún kvarta þessi kona sem var búin að missa eina dóttur af slysförum aðeins þriggja ára eða vegna veikinda manns síns. Aðeins var látin í ljós von um betri tíð. Bláu augun hennar endurspegl- uðu sakleysi kærleikans og gleði, faðmur hennar var ávallt opinn. Gaman var að ferðast með henni og hafði hún gaman af að syngja og dillaði hún sér þá með. Gleði hennar yfir einföldustu hlutum var mér minnisstæð og bar vott um þroskaða sál. Að fara í bíltúr, kaupa sér ís, heimsækja tengdafólk og vini á Selfossi var henni upplyfting og gleði. Veraldleg gæði og hégómi voru ekki til fyrir henni. Mér eru minnisstæðar stundir þegar við fórum í kirkjugarðinn á aðfangadag að kveikja á kertinu hjá Maríu litlu og á vorin þegar sumarblómin voru sett niður, þá rifjaði hún upp gamla tíma. í sum- ar fórum við á æskustöðvar hennar í Stykkishólmi og var henni það mjög kært, þá var hún ekkert þreytt eða lúin, vildi skoða alla staðina, gamla húsið sem hún var fædd og uppalin í, fjöruna þar sem hún lék sér og Súgandisey. Elsku tengdapabbi, guð gefí þér styrk í sorg þinni. Elsku Olli, Lilja, Kiddi, Gunnar, Fjóla og Guðmundur minn, ég votta ykkur mina dýpstu samúð. Hún er mín stjarna sem skín nið- ur til mín og lýsir mér þegar mér verður hugsað til hennar. Ég þakka fyrir að hafa fengið að kynnast henni. Elskulega mamma mín mjúk er alltaf höndin þín tárin þoma sérhvert sinn sem þú strýkur vanga minn. Þegar stór ég orðin er allt það skal ég launa þér. (Sig. Júl. Jóhannesson.) Sigríður Guðjónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.