Morgunblaðið - 30.12.1994, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1994 39
FRÉTTIR
STJÓRN MND-félags íslands kom saman á nýrri skrifstofu félagsins í gær. Á innfelldu myndinni
eru Rafn Jónsson, formaður og starfsmaður félagsins, íris Gústafsdóttir, Rósa S. Gunnarsdóttir og
Freysteinn Jóhannsson. Fimmti stjórnarmaður er Jóna Alla Axelsdóttir.
MND-félagið fær skrifstofu
MND-félag íslands hefur opnað
skrifstofu að Höfðatúni 12b í
Reykjavík. Verður skrifstofu-
haldinu komið í fastar skorður
strax á nýju ári, en skrifstofan
er hugsuð bæði sem upplýs-
ingamiðstöð og fundaraðstaða.
Kiwanisklúbburinn Katla hefur
fært MND-félagi íslands pen-
ingagjöf í tilefni af nýja hús-
næðinu.
MND-félag Islands var stofnað
fyrir tæpum tveimur árum. Fé-
lagið er opið MND-sjúklingum,
aðstandendum þeirra og öllum
öðrum, sem vi\ja leggja því lið.
Innan félagsins eru að fara af
stað tveir stuðningshópar, annar
fyrir sjúklinga og hinn fyrir að-
standendur. Félagið hefur tekið
upp samstarf við systurfélög er-
lendis, sent fulltrúa á fundi
þeirra og alþjóðaþing, stutt rann-
sóknir á MND-sjúkdóminum hér
á landi og erlendis og m.a. styrkt
hjúkrunar- og rannsóknastöð
fyrir MND í Bretlandi.
Getraunaleikur
Búnaðarbankans
Ábending frá
lögreglunni
Yarúð í
meðferð
áfengis
LÖGREGLAN hvetur fólk til þess
að gæta hófs í áfengisneyslu um
áramótin. Það er von lögreglunnar
að foreldrar gleymi ekki börnum
sínum á þeirri fagnaðarstundu.
Áfengisneysla fullorðinna, ætluð
til að auka gleðina, getur leitt til
þess að börnin gleymast og þá er
hætta á að eitthvað geti farið úr-
skeiðis sem ekki verður aftur tek-
ið. Foreldrar eru því hvattir til
þess að fagna nýju ári með sóma-
samlegum hætti og að þeir sjái til
þess að börn þeirra á öllum aldri
megi eiga ánægjuleg áramót.
Hverjum og einum á að vera
ljóst að meðferð áfengis og notkun
flugelda og blysa fara alls ekki
saman.
Lögreglan óskar öllum gleði,
farsældar og friðar á nýju ári.
ÞANN 10. desember sl. var dregið
í getraunaleik Búnaðarbankans,
sem staðið hefur yfir í Kringlunni
og ýmsum framhaldsskólum. Alls
tóku þátt í leiknum um 7.000 manns
og voru dregnir út 136 vinningshaf-
ar. Aðalvinningurinn, Hyundai
433DL-tölva, kom i hlut Jennýjar
Guðmundsdóttur, Reykhólum í
Barðastrandarhreppi, en hún er 19
ára nemandi í Fjölbrautaskólanum
í Breiðholti. Öllum vinningshöfum
hefur verið sent bréf með upplýs-
ingum um vinninga þeirra. Myndin
er tekin þegar Dóra Ingvarsdóttir,
útibússtjóri Búnaðarbankans í
Mjódd afhenti Jennýju Guðmunds-
dóttur vinninginn.
Fyrirlestur um breyt-
ingaskeið kvenna
Á VEGUM Sálfræðistöðvarinnar
verða haldnir fyrirlestrar um breyt-
ingaskeið kvenna fimmtudaginn 5.
janúar 1995 kl. 20 á Hótel Loftleið-
um.
Fyrirlestrarnir eru einkum ætlað-
ir konum á aldrinum 40 til 55 ára.
Varpað verður ljósi á hvernig þetta
lífsskeið markar tímamót í ævi
flestra kvenna:
Reynt verður að svara spurning-
um eins og: Hvaða áhrif getur það
haft á einkalíf og starf að vera á
miðjum aldri? Er þörf á endurmati
og breytingum til að njóta sín bet-
ur? Hvað gerist h'kamlega á þessum
tíma? Hvaða svör getur kvensjúk-
dómalæknirinn geflð konum?
Af þessu tilefni kemur hingað til
lands Anna Inger Eydal, sérfræð-
ingur í kvensjúkdómalækningum.
Hún hefur um langt árabil veitt
konum á breytingaaldri fræðslu og
meðferð. Anna starfar nú á einka-
stofnun í Lundi, Svíþjóð. Sálfræð-
ingarnir Álfheiður Steinþórsdóttir
og Guðfinna Eydal munu taka til
umfjöllunar ýmsa þætti sem hafa
áhrif á andlega líðan og heilsu
kvenna á þessu lífsskeiði.
Nánari upplýsingar eru veittar í
Sálfræðistöðinni kl. 11-12 virka
daga. Verð 1.200 kr., kaffi innifalið.
Flugeldasala
KFUM og
KFUK
HIN árlega flugejdasala KFUM og
KFUK er hafin. í ár er opið í húsi
félaganna við Suðurhóla 35, föstu-
dag kl. 16-22 og á gamlársdag kl.
10-14. Allur ágóði rennur til ný-
byggingar við Holtaveg.
Lausnir
j ólaskákþrauta
SKÁK
JÓLASKÁKÞRAUTIRNAR
skiptust í tvo flokka að þessu
sinni. Fyrstu þrjár voru enda-
töfl en hinar þrjár voru fengn-
ar úr heimsmeistarakeppni
skákþrautaleysenda frá því í
sumar og í þeim átti hvítur
að máta í öðrum leik. Lausn-
irnar eru þannig:
1. He4!! - dxe4+, 2. Kg2 -
e3+, 3. Kgl - Bf7 (3. - h5,
4. f7-l--Kh7, 5. f8=D er engu
betra) 4. exf7 — Dxc5, 5. f8=D+!
- Dxf8, 6. f7+ - Dg7+, 7.
Kh2! - Dxal, 8. f8=D mát!
Þeir sem lásu vísbendinguna
hafa líklega verið fljótir að leysa
þetta. Það er ekki oft sem sterk-
asta manninum er fórnað og
andstæðingnum leyft að skáka
í tveimur upphafsleikjunum.
■ b e d • f o h
1. G.M. Kasparjan 1936
Hvítur leikur og vinnur
Fallegasta afbrigðinu lýkur með
máti:
1. a4! (Ekki 1. Bxb5? - a2, 1.
Ra5+? — Ka4 eða 1. Rc5+? —
Kc4) 1. - Rc3+, 2. Kcl! -
Rxa4 (2. — Ka2 er svarað með,
3. Kc2! og, 2. — Ka3 með, 3.
Rd6! - Ra2+, 4. Kd2 - b3, 5.
Rc4+ - Kb4, 6. Rb2 - Ka5,
7. Kd3 — Kb4, 8. Kd4 og vinn-
ur) 3. Ra5-i--Ka3, 4. Rc4+ —
Kb3, 5. Rd2+ - Ka3, 6. Rbí+
— Kb3, 7. Be6 mát.
Slíkur riddarahringdans í
endatafli hafði sést áður í enda-
tafli sem Capablanca vann af
Yates í New York 1924.
4. Jaques Savournin 1994
Hvítur mátar í öðrum leik
1. Rc4! (Hótar, 2. Re3 mát) 1.
— Kxc4, 2. Dxb5 mát, 1. —
Dh3, 2. Bf7 mát, 1. — Hxc4,
2. Dd6 mát. Villulausnir voru
1. Rf3? sem svartur verst með
1. — Dg7! og hið lúmska 1. Rc6?
sem svarað er með 1. — Hd7!!
Eg undirritaður féll einmitt í síð-
astnefndu gryfjuna þegar ég var
að reyna að leysa dæmin þrjú á
20 mínútum.
a b c d • i o h
2. G.M. Kaspaijan 1937
Hvítur leikur og heldur jafn-
tefli
1. Kd7! - h5, 2. Kc7! - h4,
3. Kb6 - h3, 4. Ka5 a) 4. -
h2, 5. b6! - hl=D, 6. b5! -
Dbl, 7. a4 og hvítur leikur óveij-
andi næst, 8. b4 og verður þá
sjálfur patt. b) 4. — b6+, 5. Ka4
— h2, 6. a3 — hl=D, 7. b3 og
svartur getur ekki komið í veg
fyrir patt.
6. Jan Strydom 1994
Hvítur mátar í öðrum leik.
1. Kg5! (Hótar, 2. Rf6 mát)
— Dxe7+, 2. Bf6 mát, 1. —
2. Dc2 mát, 1. - Dd2+, 2. I
mát, 1. — lixg2, 2. Dd2 n
Margeir Pétursso
5. Tony Lewis 1994
Hvítur mátar í öðrum leik
Það ætti strax að vekja at-
hygli leysandans að svartur get-
ur engu leikið án þess að verða
mát. En það er ekki auðvelt ac
finna rétta biðleikinn sem er: 1
Hh5! Svartur er nú í leikþröng
Ef hann leikur nú drottningunn
kemur De5 mát eða Dxg4 mát
riddaraleik er svarað með, 2
Dg5 mát og 1. — Bxh5, 2. Dgí
er mát.
• bcdef o h
3. V. Evreinov 1959
Hvítur leikur og vinnur
Lausnarleikurinn er sérlega til-
komumikill: