Morgunblaðið - 30.12.1994, Side 40

Morgunblaðið - 30.12.1994, Side 40
40 FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ BREF HL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reylgavík • Sími 691100 • Simbréf 691329 Nuddmenntun og þróun hennar Frá Rafni Geirdal: Á UNDANFÖRNUM árum hefur átt sér stað geysimikil þróun á nuddmenntun. Segja má að með afskiptum menntamálaráðuneytis- ins á síðasta ári hafí verið brotið blað í sögu nuddmenntunar á þann veg að tekið var upp samkomulag milli ráðuneytisins, Ármúlaskóla og Félags íslenskra nuddara um að bjóða fram námsbraut fyrir nuddara, sem tæki um tvö ár í dagnámi og í framhaldi af því færu nemendur í Nuddskóla ís- lands, tækju þar eitt ár í nudd- kennslu og í framhaldi af því tækju þeir um eitt starfsár á samning hjá meistara. Embættismenn menntamála- ráðuneytisins hafa sagt mér að slíkt samkomulag sé nýmæli og hafí aldrei verið gert fyrr í sögu ráðuneytisins. Því hefur mér þótt fróðlegt að fylgjast með framvindu mála. Svo virðist sem geysimiklar fyrirspurnir hafi verið um náms- brautina og fjölmargir hafa skráð sig og stundað nám á brautinni og einnig látið meta stöðu sína í bóklegum fögum. Jafnframt hafa fjölmargir skráð sig í Nuddskóla Islands og stundað þar nám. Eins og margir hafa eflaust tekið eftir í fréttum Morgunblaðsins braut- skráðust fyrstu 3 nemendurnir frá Ármúlaskóla sem nuddarar rétt fyrir jólin. Sjálfsagður grunnur Einnig hef ég tekið eftir að þær mótbárur um að hér sé um of mik- ið bóklegt nám að ræða hefur lægt að miklu leyti. Þær raddir að þetta sé sjálfsagður grunnur að nuddn- ámi hefur mér heyrst vera mun almennari. í ljósi þessa lagaði Fé- lag íslenskra nuddfræðinga og í framhaldi af því Nuddskóli Rafns sig að þessum nýju menntunarskil- yrðum og tóku þau að fullu gildi 1. júlí síðastliðinn. Munurinn er þó sá að þeir sem hefja nám þurfa ekki nauðsynlega að vera búnir að taka námsbraut fyrir nuddara áður en þeir hefja nám, heldur mega allt eins taka það meðfram eða eftir verklega þáttinn en þurfa að ljúka bóklegum fögum að fullu til að geta útskrifast sem nuddfræð- ingar. Einnig er gefinn kostur á að samskonar áfanga megi taka í hvaða framhaldsskóla sem er á landinu. í þriðja lagi eru áfangam- ir metnir inn í Nuddskóla Rafns, en þurfa ekki að vera metnir af Ármúlaskóla, eða öðrum skólum, nema nemandinn vilji það frekar. Framlag skólanna til þjóðfélagsins mikið Heildarframlegð nuddskólanna beggja til þjóðfélagsíns er allmikið þegar horft er til fjölda nemenda sem hafa innritast. Alls innritaðist 21 nemandi í Nuddskóla íslands síðastliðinn vetur en 32 í Nudd- skóla Rafns. Alls innrituðust 22 nemendur síðastliðið haust í Nudd- skóla íslands, en horfur eru á að um 22 nemendur innritist á þessu námsári hjá Nuddskóla Rafns. Þannig hafa um 43 innritast í heild í Nuddskóla íslands á' þessum tveimur vetrum en um 54 í Nudd- skóla Rafns. Þetta gera um 97 nemendur. Auk þess eru um 20-40 nemend- ur á Námsbraut fyrir nuddara sem hyggja á nuddnám að loknum bók- legum fögum. Að auki hefur heilsunuddstofa Þórgunnu boðið upp á nuddnám sem felst í því að allmargir danskir nuddkennarar koma hingað til lands með reglu- legu millibili og kenna ákveðnum nemendahópi, sennilega um 5-20 nemendum. Einnig fara jafnan ein- staklingar í nuddskóla erlendis og það kæmi mér ekki á óvart að um 5-10 væru í slíku námi í dag. Að auki hefur verið töluvert af svæðanuddnámskeiðum sem lýkur með útskrift eftir um 104 kennslu- stundir í svæðanuddi og um 100 stundum til viðbótar í verklegri þjálfun. Svæðameðferðarfélag Is- Iands hefur í samvinnu við Félag íslenskra nuddara ákveðið að bók- leg inntökuskilyrði séu sambæri- leg; þannig að að mörgu leyti má telja svæðanuddnám með nuddn- ámi. Mér er ekki ljóst hve margir hafa stundað slíkt nám undanfarin 2 ár, en það kæmi mér ekki á óvart að um 20-100 manns hafi lokið slíku námi á þeim tíma. Markaðurinn að mettast Nú eru æ fleiri raddir farnar að heyrast um að markaðurinn fyrir nudd sé að mettast og ekki sé þörf á fleiri útskrifuðum nuddur- um. Svar mitt er það að verulegur hluti af þeim sem bjóða fram þjón- ustu sé aðeins búinn með fáein námskeið, en ekki útskrifaðir úr fullgildum skólum. Þó svo að ég sé mjög fylgjandi almennu nám- skeiðahaldi, til að auka menntun á þessu sviði og veita þátttakend- um innsýn í nudd, er nauðsynlegt að þeir sem hyggja á starf í iðn- greininni fari í viðurkennda skóla á þessu sviði. Ef þessir aðilar eru teknir frá og aðeins rætt um full- gilda nuddara eða nuddfræðinga sem hafa útskrifast af stofum eða nuddskólum hérlendis eða erlendis myndi ég telja að enn vanti veru- lega mikið upp á að markaðurinn mettist að fullu. Von mín er sú að núddmenntun hér á landi haldi áfram að þróast þar til að hún nær sinni fullbúnu mynd og nuddnám verði sett til jafns við aðrar iðngreinar í þjóðfé- laginu. Með því sé ég fram á bjarta tíma fyrir viðkomandi aðila, þar sem nuddarar/nuddfræðingar geta boðið neytendum upp á þjónustu þeim til heilsuauka. Megi svo vera. Virðingarfyllst, RAFN GEIRDAL, skólastjóri, Smiðshöfða 10, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það- an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. \ ( l ( < i ( i \ i i i ( i ■1 ( i 1 ( ( 1 ( ( ( i 4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.