Morgunblaðið - 30.12.1994, Qupperneq 46
46 FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
JOLAMYND 1994: JUNIOR
Ungur liðhlaupi verður bitbein - og leiksoppur - fjögurra gullfallegra og ákafra systra
og á erfitt með að gera upp á milli þeirra. Glæstir tímar er sannarlega sólargeisli í skammdeginu.
Sýnd kl. 2.50, 4.50, 7, 9 og 11.15.
JÓLAMYND 1994: LASSIE
j Skrautlegt og spennandi £
Falleg og skemmtileg
ævintýramynd um konung
sem er fastur í líkama
hvítabjörns.
Sýnd kl. 3 og 5.
....
HASKOLABÍÓ
SÍMI 22140
Háskólabíó
STÆRSTA BIOIÐ.
ALLIR SALIR ERU
FYRSTA FLOKKS.
JÓLAMYND 1994: RAUÐUR
RAUÐUR
Tilnefnd til ,
Golden J
Globe
verðlauna
sem besta
erlenda
myndin.
Míl
■„Rammgert,
| framúr-
Iskarandi og
t tímabært
listaverk."
★★★★
Ö.H.T. Rás 2
erfqQ
Rauður er lokapunkturinn í þríleik mesta
núlifandi kvikmyndagerðarmanns Evrópu og
besta mynd Kieslowskis að margra mati.
Aðalhlutverk: Irene Jacob (Tvöfalt líf Veróníku).
Sýnd kl. 3, 7, 9 og 11.
Á undan myndinni verður sýnd ný íslensk stuttmynd
Debutanten eftir Sigurð Hr. Sigurðsson.
niÆTURVORDURIIUM
p^fátíilega ógeðs-
neg hrollvekja og á
skjön við huggu-
lega skólann i
danskri kvik-
i j myndagerð"
Egill Helgason
|ft/lorgunpósturinn.
w ★★★ A.l. MBL
★ ★★ Ó.H.T. Rás2
■VAGTEN
Sýnd kl. 9 og 11. B.i. 16
Sýnd kl. 6.40 og 9.15.
Hinir frábæru leikarar Arnold Schwarzenegger, Danny DeVito og
Emma Thompson koma hér i frábærri nýrri grinmynd fyrir alla fjöl-
skylduna. Junior" er ný grinmynd frá leikstjóranum Ivan Reitman
sem gert hefur myndir eins og Ghostbusters", Twins" og Dave".
Junior" er jólamynd í Reykjavík, Los Angeles, New York, London,
Berlin... og, og... Junior" er grínmyndin sem öll heimsbyggðin horfir
á ÞESSIJÓLI!
Sýnd kl. 3, 5.15, 6.45, 9 og 11.10.
OSKARSVERÐLA UN: Besta erlenda myndin í ár!
„Stórfyndin og vel krydduð" 'v &
★★★ Ó.H.T. Rás 2 _
Kynningarþáttur um
kvikmyndir ársins 1995 verður
í Sjónvarpinu á gamlársdag
kl. 16.50
BOÐORÐIN,
10 myndir spunnar út
frá boðorðunum 10.
Fimmta og sjötta
boðorðin
SÝND í DAG KL. 5.
DTS
5ELECTED
„Sæt og skemmtileg mynd.
Þriggja stjörnu voffH"
★★★.Á.Þ. Dagsljó|
★★★ Ó.H.T. Rás:
FORREST
6UHPH
140 mín.
Tom Hanks og Forrést Gump eræbáðir
tilnefndir til Golden Globe vérðlauna!
hreyfimynda-
«4pélagiö
KIESLOWSKI DAGAR
BOÐORÐIN
ARNOLD m\ EMMA
JÓLAMYND
rj
KONUNGUR
Db eilífu.
Anægjuleg útgáfa
TONLIST
Geisladiskur
QUICKSILVER TUNA
Fyrsta breiðsklfa hljómsveitarinnar
Slowblow, Quicksilver Tuna. Liðs-
menn Slowblow, sem virðast föður-
nafnslausir, eru Dagur Kári, sem
leikur á gitara, trommur, bassa, org-
el, harmonikku og pianó og syngur,
og Orri, sem leikur einnig á tromm-
ur, gítara, bassa og syngur. Aðrir
sem komu að gerð plötunnar eru
einnig föðumafnslausir; Grímur spil-
ar á bassa í einu lagi, Steingrímur
lagði lið við upptökur, og Þórdis,
Steina, Matti, Jón Egill og Styrmir
klöppuðu og hrópuðu í einu lagi.
Sirkafúsk Records gefur út 40,10
min., 1.999 kr.
LIÐSMENN hljómsveitarinnar
Slowblow hafa fengist við tónlist
alllengi, þó sú breiðskífa sem hér
er til umfjöllunar sé fyrsta afurð
sveitarinnar. Það heyrist og á henni
að þeir eru liprir og liðtækir laga-
smiðir, því þrátt fyrir ýmsa galla
er Quicksilver Tuna bráðskemmti-
lega plata sem lofar góðu um fram-
tíð sveitarinnar.
Tónlist Slowblow er ekki gott að
flokka, því þó fyrsta lagið sé frekar
einföld nýbylgjufroða, innihaldslaus
að mestu, þá er annað lag plötunn-
ar, Is Jesus Your Pal?, framúrskar-
andi popplag með skemmtilega
bjagaðri útsetningu. Fleiri popp-
perlur eru á plötunni, þó stundum
sé erfitt að greina þær í krumpuðum
umbúðum, til að mynda Night and
Day, sem er grípandi og skemmti-
legt lag, en textinn er þunnur og á
köflum ósönglegur, til að mynda í
lok viðlagsins. I næsta lagi, Spiral
Eyes, nýta þeir félagar meðal ann-
ars harmonikku til að skreyta og
lyfta laginu, en söngnr í gegnum
einhver bjögunarapparöt er alltaf
þreytandi til lengdar, og full mikið
af slíku á plötunni. Söngurinn er
reyndar snöggur blettur á Slowblow
og þannig líður til að mynda Have
You Seen My Dream, fyrirtaks lag,
fyrir slakan söng. TelÍ Me if I
Should Care er aftur á móti prýði-
lega sungið og fyrir vikið eitt besta
lag disksins, með einföldum og hug-
myndaríkum gítarleik og hefði mátt
vera lengra.
Þeir Slowblow-félagar tóku plöt-
una upp sjálfir í bílskúr og hljómur
plötunnar er einmitt bráðskemmti-
lega bílskúrslegur; hrár og þvingað-
ur á köflum. Líklega hefði þessi
plata þó orðið öllu betri og helstu
vankantar verið sniðnir af ef tekið
hefði verið upp í fullkomnu hljóð-
veri, því stundum hljómar diskurinn
sem kynningarupptaka, frekar en
fullunnin breiðskífa. Þannig gefa
bestu lög plötunnar fyrirheit um
að Slowblow sé til stórræðanna,
þegar sveitin hefur sigrast á tak-
mörkunum bílskúrsins, til að mynda
No Credibility, lokalagið sem jafn-
framt er titillag plötunnar, áður-
nefnt Is Jesus Your Pal?, og Night
and Day. Hvað sem því líður þá er
plata Slowblow ein ánægjulegasta
útgáfa ársins; plata sem gefur
kannski stundum meira í skyn en
hún skilar, en kemur víða skemmti-
lega á óvart.
Árni Matthíasson