Morgunblaðið - 31.12.1994, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 31.12.1994, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1994 B 5 Halldór Ásgrímsson formaður Framsóknarflokksins Fólk í fyrirrúmi 1. ER UNNT að varðveita efna- hagslegan stöðugleika? Er ný þjóð- arsátt nauðsynleg forsenda við nú- verandi aðstæður? Það er unnt að varðveita efna- hagslegan stöðugleika ef stjórnvöld hafa nægan vilja og kjark til. Sá stöðugleiki sem við búum við í dag grundvallast á þjóðarsáttinni frá 1990. Aðilar vinnumarkaðarins sýndu mikla framsýni með því samkomu- lagi. Þó blikur séu á lofti í kjaramál- um vegna mikillar kjaraskerðingar er vonandi að reynslan af þessum samningum leiði í ljós að hagsmun- ir launþega og atvinnurekenda fara að miklu leyti saman. Kjarabætur eru best sóttar í þróttmikil fyrir- tæki. Að undanförnu hefur félagslegt óréttlæti aukist til muna og at- vinnuleysi er mikið og fer vaxandi. Engin framlenging á þjóðarsátt er möguleg nema fýrir liggi að tekist verði á við þau mál í alvöru. Ráð- stafanir ríkisstjórnarinnar í skatta- málum hrökkva hvergi nærri til að skapa nýjan grundvöll fyrir nýjum kjarasamningum. Launþegar sætta sig ekki við þær hugmyndir sem þar koma fram. Hætt er við að kjarasamningar dragist því á lang- inn. Fjárfesting í atvinnulífinu er sáralítiLog margt bendir til að at- vinnuleysi aukist enn frekar. Mark- visst átak í atvinnumálum og kjara- jöfnun er því forsenda fyrir efna- hagslegum stöðugleika á komandi árum. Við höfum fjarlægst þær hugmyndir og sáttfýsi sem þjóðar- sáttin 1990 byggði á, en ríkisvald og aðrir sem að málinu koma mega einskis láta ófreistað til að koma á friði og jafnvægi á ný. 2. Er ísland að einangrast þegar litið er til þróunar Evrópumála og norr- ænnar samvinnu? ísland er ekki að einangrast í Evrópu en ýmsar hættur blasa við sem verður að bregðast við. Með inngöngu þriggja Norðurlanda í ESB mun norræna sam- starfið breytast. Þessi lönd verða uppteknari við Evrópusamstarfið en norræna samstarf- ið. Það er því nauðsyn- legt að byggja brú á milli norræns sam- starfs og Evrópusam- starfsins. Eftir því sem víðtækara samstarf á sér stað á norrænum vettvangi þeim _ mun sterkara fyrir ísland og Noreg. Það mun skipta_ sköpum um hvort ísland og Noreg- ur fjarlægist nágrannalöndin að það takist að gefa norrænu samstarfi innihald sem er áfram áhugavert fyrir Danmörku, Svíþjóð og Finn- land. Ef það tekst geta Norðurlönd- in í sameiningu haft mikil áhrif á þróun mála í Evrópu. íslendingar og Norðmenn verða að vera mjög samstíga til að tryggja hagsmuni sína og samstaða þjóðar okkar er mikilvæg fyrir ráðið. Framsóknarflokkurinn telur að aðild að ESB komi ekki til greina. Sjávarútvegsstefna ESB er óásætt- anleg fyrir Islendinga. Hún er snið- in fyrir þjóðir þar sem sjávarútveg- ur er rekinn sem annars flokks at- vinnugrein og lifir á styrkjum og niðurgreiðslum. Slíkt kerfi myndi eyðileggja höfuðatvinnuveg þjóðar- innar. Við getum aldrei fallist á að aðalatvinnuvegur okkar sé með- höndlaður á öðrum forsendum en helstu atvinnugreinar annarra þjóða. Þjóðveijar og Bretar gætu aldrei fallist á að iðnaður væri rek- inn á scjmu forsendum og sjávarút- vegur í þessum löndum. Islendingar þurfa hins vegar að styrkja stöðu sína verulega að því er varðar samstarfið í Evrópu. Við þurfum að gera þá kröfu að eiga aðild að ýmsum nefndum og ráðum. ESB hefur skuldbundið sig til að hafa samráð við okkur á ýmsum sviðum. Úr því samráði mun draga verulega þegar hinar EFTA-þjóðirnar ganga inn. Úr þessu þarf að bæta með beinni aðild íslands að ráðum og nefndum ásamt sterk- ara norrænu samstarfi. Norðmenn hafa þegar farið af stað með margvíslegar kröfur á þessu sviði en lítið hef- ur orðið vart við það frá ríkisstjórn Islands. Ef ekki tekst vel að endurskipuleggja sam- starfið við ESB og við- halda sterku norrænu samstarfi með beinni tengingu við Evrópu- samstarfið er vissulega hætta á að ísland geti einangrast. 3. Ber að koma á jöfnum atkvæðis- rétti landsmanna, og hvað er viðun- andi niðurstaða í viðræðum flokk- anna um breytingar í þeim efnum? Gallinn á núverandi kosningafyr- irkomulagi er ekki aðeins ójafn at- kvæðisréttur' heldur er kerfið svo flókið og ruglingslegt að fáir skilja það. Þannig er kjósandi í Reykjavík sem kýs flokk sem þar hefur mikið fylgi oft á tíðum að tryggja veru þingmanna annarra kjördæma á Alþingi. Aðferðin um jöfnuð á milli flokka hefur orðið til þess að kosn- ingafyrirkomulagið er meingallað. Ekki er hægt að tryggja jafnan atkvæðisrétt landsmanna nema með því að gera landið að einu kjör- dæmi. Ég er andvígur einu kjör- dæmi vegna þess að ég tel að með því væri verið að ijúfa tengsl milli kjósenda og þingmanna. Ég er þeirrar skoðunar að ekki eigi að breyta núverandi kjördæmaskipan. Sérhvert kjördæmi á að hafa grund- vallarrétt en það er mjög álitlegt að allt að heimingur þingmanna verði kosinn á landslista. Það er viðunandi niðurstaða að sérhvert _ Halldór Ásgrímsson kjördæmi hafi aldrei færri en þijá þingmenn en þau fjölmennari fleiri. Með því að kjósa um það bil helm- ing þingmanna á landslista ætti sér stað mun meiri jöfnun en er í dag. Kosningar eiga að vera persónu- legri en nú er og kjósendur verða að geta ráðið meiru um uppröðun á lista. Ég get fyrirfram ekki sagt til um það hver er viðunandi niður- staða í viðræðum flokkanna um þessi mál. Sjónarmiðin eru ólík. Því er ekki gott að segja hvað kemur út úr viðræðunum. Ég tel það grundvallaratriði að niðurstaða í einu kjördæmi hafi ekki áhrif á nið- urstöðu í öðru. Kosningar eiga ekki að bera með sér svip happdrættis. Fólk á að geta gert sér grein fyrir hvaða frambjóðendur það er að styðja. Ég efast t.d. mjög um.að fólk sem hefur kosið Sjálfstæðis- flokkinn í Reykjavík hafi gert sér grein fyrir því á undanförnum árum að það hefur verið að senda marga þingmenn úr öðrum kjördæmum á þing. 4. Hver verða helztu baráttumál flokks þíns í kosningunum í vor? Alvarlegasta meinsemd þjóðfé- lagsins í dag er sívaxandi skulda- söfnun heimilanna sem mörg standa frammi fyrir gjaldþroti og upplausn. Þetta ástand markar djúp sár og enginn veit hvort nokkurn tima tekst að græða þau. Þúsundir manna ganga atvinnulausar, per- sónuleg gjaldþrot eru daglegt brauð og biðstofur félagsmálastofnana eru fullar af fólki sem ekkert þráir frekar en verk að vinna. Skyldurnar við þetta fólk hafa verið vanræktar. Við framsóknarmenn höfum ákveðið að ganga til næstu kosn- inga undir kjörorðinu ,Fólk í fyrir- rúmi“. Með því viljum við ítreka skyldurnar við fólkið í landinu og að stjórnmál snúist um fóik. Við leggjum áherslu á að okkur ber að sinna sérhveijum einstaklingi og fjölskyldu. Við verðum að búa svo um hnútana að hver og einn geti trúað því að hann eigi möguleika í samfélaginu. Fjölskyldurnar sem nú beijast í örvæntingu við ört vax- andi skuldir verða að fá tækifæri til að geta staðið í skilum og halda saiúan. Þær verða að fá möguleika til að lifa innihaldsríku lífi og leggja sitt að mörkum til þjóðfélagsins. Við teljum að framkvæma þurfi Jón Baldvin Hannibalsson formaður Alþýðuflokksins - Jafnaðarmannaflokks íslands Spurning um ábyrgðartil- finningu og heiðarleika í. ER UNNT að varðveita efnahags- legan stöðugleika? Er ný þjóðarsátt nauðsynleg forsenda við núverandi aðstæður? Já - það er unnt að varðveita stöðugleikann ef pólitískur vilji er fyrir hendi. Það er spurning um ábyrgðartilfínningu og heiðarleika. Allir sem að málinu koma vita hvað í húfi er. Ástæðan fyrir því að það er unnt að varðveita stöðugleikann er sú að gengisskráningin er hagstæð ís- lenskum fyrirtækjum, sem geta því nýtt sér sóknarfæri jafnt á erlendum mörkuðum sem á heimamarkaði. Það eina sem vantar til að hnykkja á efnahagsbatanum og festa stöð- ugleikann í sessi er nýir kjarasamn- ingar. Kjarasamningar sem stuðla að kjarajöfnun munu eyða skaðlegri óvissu um framtíðina. Fyrirtækin bíða átekta um ákvarðanir um nýjar fjárfestingar, sem batnandi hagur og ný sóknarfæri kalla á. Nýjar fjár- festingar er það sem okkur vantar til að útrýma atvinnuleysinu. Það er kjarni málsins. Ég sé einkum tvær Ieiðir til þess að festa stöðugleikann í sessi og skila raunverulegum kjarabótum til þeirra, sem mest þurfa á þeim að halda. Annars vegar er að nýta efnahagsbatann, bætta afkomu fyr- irtækja, með því að semja um krónu- töluhækkun á lægstu laun, sem deyr út eftir því sem ofar dregur í launastiganum. Þessi leið reynir fyrst og fremst á samstöðu og sið- ferðisþrek verkalýðshreyfingarinn- ar. Hins vegar geta stjórnvöld stuðl- að að lækkun verðs á lífsnauðsynj- um með því að stilla vemdartollum við gildistöku GATT-samningsins í hóf. í þessu efni ber að taka sann- gjarnt tillit til hagsmuna jafnt fram- leiðenda sem neytenda með það að leiðarljósi, að heilbrigð samkeppni er að lokum beggja hagur. Varðveisla stöðugleikans er öllum í hag og lífsnauðsyn þeim sem bera þunga greiðslubyrði vegna skulda. Hitt er jafn ljóst að efnahagsbatann verður að nýta til að bæta kjör þeirra, sem verst eru settir. Þeir eru verst settir sem minnst bera úr být- um og þeir sem skulda. Hvorir tveggja eiga allt sitt undir því að stöðugleikinn haldist. Þetta vita launþegar af sárri reynslu. Þetta þekkja atvinnurekendur í þaula. Þetta er öllum stjórnmálamönnum ljóst, hvort heldur er í stjóm eða stjórnarandstöðu. Þess vegna er þetta að lokum spurning um ábyrgð- artilfinningu og heiðarleika gagn- vart sjálfum sér og öðrum. 2. Er ísland að einangr- ast þegar litið er til þróunar Evrópumála og norrænnar sam- vinnu? Þvi miður er flest sem bendir til að svo sé. Þijú Norðurland- anna hafa markað sér framtíðarstefnu innan vébanda Evrópusam- bandsins. íslahd er spyrt saman við Nei- landið Noreg i eins kon- ar míni-EFTA sem hef- ur miklu minni burði til að tryggja áhrif á framkvæmd EES- samningsins en áður, meðan við nutum tilstyrks Norðurlanda- og Alpaþjóða í því samstarfi. Við stönd- um verr að vígi til að hafa áhrif innan fjölmargra alþjóðastofnana, t.d. á vettvangi Sameinuðu þjóðanna eða innan væntanlegrar Alþjóðavið- skiptastofnunar (GATT) en áður, vegna þess að Norðurlöndin koma ekki lengur fram sem sameiginlegur hópur. Ef við lítum til Vesturheims, þá leggja Bandaríkin og Kanada nú aukna áherslu á fríverslun við Mið- og Suður-Ameríkuríki. Bandaríkin ætla að gera fríverslun- ársamning næst við Chile en fríverslun við Mexíkó tók gildi um s.l. áramót, við gildis- töku fríverslunarsamn- ings Norður-Ameríku (NAFTA). í framtíðinni munu Bandaríkin líta æ meir til Asíu- og Kyrrahafsríkja og hafa ákveðið að stefna að friverslunarsamning- um við þau ríki. Við getum því búist við harðnandi samkeppni á Bandaríkjamarkaði á næstunni fyrir íslensk- an útflutning. Á þess- ari stundu er ekki einu sinni vitað, hvort þeim álitshnekki fyrir land og þjóð verði forðað að Island verði utanveltu við hina nýju Alþjóðavið- skiptastofnun, sem tekur til starfa nú um áramótin á grundvelli niður- stöðu Úrúgvælotu GATT-samning- anna. Við þurfum því ekki annað en að líta á landakortið og hugsa fáein ár fram í tímann. Fyrr en varir verð- ur Evrópusambandið orðið að alls- heijarsamtökum lýðræðisríkja í Evrópu, sem tekur ekki einungis til viðskiptasamstarfs heldur einnig Jón Baldvin Hannibalsson mjög umfangsmikla skuldbreytingu sem geri fólki kleift að standa í skilum. Við leggjum mikla áherslu á upp- byggingu atvinnulífsins. Við viljum endurskipuleggja stofnanakerfi at- vinnulífsins m.a. með því að breyta Byggðastofnun í atvinnuþróunar- stofnun og gera hana að samstarfs- vettvangi atvinnulífs, launþega, sveitarfélaga og ríkisvalds. Við telj- um jafnframt nauðsynlegt að örva fjárfestingu í atvinnulífinu með meiri þátttöku einstaklinga og líf- eyrissjóða og beita skattalegum ívilnunum í því skyni. Við viljum breyta Iðnþróunarsjóði í styrktar- og áhættulánasjóð með þátttöku annarra íjármálastofnana. Við telj: um líka mikilvægt að stórauka markaðsstarf erlendis og örva er- lenda fjárfestingu hér á landi. Við viljum ekki hækka skatta og teljum nauðsynlegt að hækka ekki ríkisútgjöldin. Við teljum mögulegt að ná niður ríkissjóðshallanum með auknum hagvexti á næstu árum, þannig að honum verði eytt á næsta kjörtímabili. Við teljum mögulegt að skapa svigrúm upp á 3 milljarða til að sporna við félagslegu órétt- læti í þjóðfélaginu. Við teljum skatt- svik og önnur fjármálasvik mikið vandamál í þjóðfélaginu og munum leggja mikla áherslu á að þau mál verði tekin föstum tökum á næsta kjörtímabili. 5. Hvaða stjórnarmynstur telur þú æskilegast að kosningum loknum? Við munum fyrst og fremst beij- ast fyrir því að koma núverandi ríkisstjórn frá. Ef við fáum til þess nægilegan styrk stefnum við að því að mynda næstu ríkisstjórn á ís- landi. Við teljum eðlilegt að ræða við núverandi stjórnarandstöðu um myndun ríkisstjórnar að loknum kosningum. Við viljum mynda ríkis- stjórn sem viðheldur efnahagsleg- um stöðugleika og hefur burði til að takast á við ríkisfjármál, at- vinnuuppbyggingu og félagslegan jöfnuð. Við munum ganga óbundnir til kosninganna og eins og oft áður er ekki hægt að fullyrða hvernig næsta ríkisstjórn verður skipuð. Klofningur Alþýðuflokksins skapar enn meiri óvissu í því sambandi enda lítið vitað um áform Þjóðvaka á þessari stundu. öryggis- og varnarmála. NATO er smám saman að breytast í tvíhliða samstarf Bandaríkjanna og Kanada annars vegar og Évrópusambands- ins hins vegar, sem vinnur nú að mótun sameiginlegrar evrópskrar varnarmálastefnu innan vébanda Vestur-Evrópusambandsins. Aðild að Evrópusambandinu er skilyrði fyrir fullri aðild að VES. Staða ís- lands innan NATO mun einnig breytast ef stækkun bandalagsins til austurs verður hrint í fram- kvæmd eins og nú er yfirlýst stefna bandalagsins. í höfuðborgum Evr- ópu er nú opinskátt talað um að Bandaríkin muni draga herlið sitt frá Evrópu; spurningin sé ekki hvort heldur hvenær. Flest ber því að sama brunni: Staða íslands er veikari en hún var fyrir nokkrum misserum og áhrif okkar fara þverrandi. íslendingar geta ekki slegið því á frest mikið lengur að gera upp við sig, hvar þeir vilji skipa sér í sveit í framtíð- inni þannig að viðskipta- og örygg- ishagsmunum þjóðarinnar verði borgið á óvissutímum sem framund- an eru. Það verður eitt stærsta málið sem bíður ákvörðunar á næsta kjörtimabili. 3. Ber að koma á jöfnum atkvæðis- rétti landsmanna; hvað er viðunandi niðurstaða í viðræðum flokkanna um breytingar í þeim efnum? Jafn kosningaréttur, án tillits til búsetu, efnahags, kynferðis, mennt- unar eða þjóðfélagsstöðu er með réttu grundvallarregla lýðræðis og þingræðis. Stjórnarskrá lýðveldisins Islands og kosningalögin eru því brot á grundvallar mannréttindum þegna í lýðræðisþjóðfélagi. Tillögur Alþýðuflokksins, seinast áréttaðar og rækilegar rökstuddar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.