Morgunblaðið - 31.12.1994, Síða 8

Morgunblaðið - 31.12.1994, Síða 8
8 B LAUGARDAGUR 31. DESEMBER1994 MORGUNBLAÐIÐ þeirra og gildismat. Eitt einkenni alþýðunnar á 19. öld var að hún var menntuð. En hvers vegna ætli það sé? Sigurður telur ástæðuna m.a. felast í erfiðleikunum sem herj- uðu á fólkið. Dauðinn var sífellt nálægur og hjó oft stór skörð í fjöl- skyldur. Hver hjón gátu gert ráð fyrir því að missa eitthvað af böm- um, ekki aðeins á fyrsta ári heldur alveg fram undir fermingu. Sam- kvæmt t.a.m. vitnisburði Indriða Einarssonar, leikritaskálds, sem var einn 15 systkina, hvarflaði varla að honum að hann kæmist yfir barnaveikisaldurinn og yrði 14 ára. Einnig var, að sögn Sigurðar, fólki beitt svo stíft til vinnu að lesturinn var nánast eina dægrastyttingin. Skýringin á hinu almenna læsi gæti því legið í lönguninni til að gleyma hversdagsáhyggjunum og fá óskir sínar uppfylltar í heimi bókmenntanna. Þar gátu menn ver- ið hetjur og ranglát yfirvöld fengu makleg málagjöld. íslendingasögumar voru einmitt slíkur heimur, enda má segja að þær séu þráðurinn sem bindur hinar íslensku aldir saman. Alþýðan las íslendingasögunar, að mati Sigurð- ar Gylfa, m.a. til að leita sér að fýrirmyndum. Unga fólkið hugsaði þegar það glímdi við erfiðleikana: „Hvað myndi Gunnar á Hlíðarenda 'eða Egill Skallagrímsson gera?“ Hetjur Islendingasagnanna kenndu fólki að taka því sem að höndum bar með æðruleysi. Það var í raun aðeins um tvennt að velja; að taka á heiminum líkt og Bjartur í Sumar- húsum, eða brotna og verða undir. Alþýðan sótti því að öllum líkindum styrk sinn í hetjur bókmenntana og vonaðist eftir betri tíð. Vitnisburður sjálfsævisagnanna styður þetta og sýnir að skipta hafi mátt íslendingum í tvo hópa: Sjálfstæða einstaklinga sem létu ekkert buga sig, hvorki dauða ann- arra né erfiðar aðstæður og hins- vegar einstaklinga sem bognuðu undan oki hversdagsins og urðu undirstéttin í landinu. Er æskan ekki einkamál hvers og eins? í spumingaskránni er spurt um heimanám barna, t.d. „A hvaða aldri byijaðir þú að lesa og hvernig fór kennslan fram?“ „Til hvaða ráða var gripið ef börn slógu slöku við lærdóminn?" „Lásu böm íslenskar fornsögur á aldrinum 5-10 ára?“ „Telur þú að íslendingasögurnar hafi haft áhrif á lífsviðhorf þitt sem barn, hvernig komu áhrifin fram?“ Einnig er spurt um lestur þjóðsagna og ævintýra, um bókakost á heimil- inu o.s.frv. En kemur okkur þetta nokkuð við? Skiptir það máli hvaða dagblað var keypt á heimilið, hvaða lög voru sungin á æskuheimili svarenda eða hvernig fataþvottur fór fram? Er þetta ekki einkamál hvers og eins? Sigurður Gylfi er ekki á því. Hann er viss um að væntanlegir svarend- ur spurningaskrárinnar séu sam- mála því að ef við skiljum ekki fyr- ritíðarmenn, getum við ekki heldur skilið samtiðina og öðlast framtíð- arsýn. Segja má að hann hafi sér- stakar mætur á kynslóðinni sem upplifði æsku sína á fyrsta fjórð- ungi aldarinnar, því hún átti for- eldra sem stóðu frammi fyrir vali. Þetta val hafði aldrei áður staðið til boða í íslandssögunni. Fólkið stóð frammi fyrir knýjandi spurn- ingu: Á ég að setjast að í heimahér- aði eða á ég að flytja á mölina? Það var m.ö.o. rót á þjóðinni vegna þessa. Lífsferilsrannsóknir Sigurðar Gylfa Spurningaskrá þjóðháttadeildar- innar er víðfeðm og spurt er spurn- inga sem einar og sér virðast lítjl- vægar eins og „Hve oft þvoðu heim- ilismenn sér um allan líkamann?" „Kváðust börn og fullorðnir á?“ Eða „Hvað leið langur tími frá andláti til jarðarfarar?" En svörin við þeim veita upplýsingar til að fylla upp í stærri sögu og styðja eða ekki kenn- ingar um alþýðusöguna. Sigurður Gylfi fékk fyrst áhuga á þessari sögu eftir að hafða skrifað ritgerð um Rögnvald Olafsson, sem oft er nefndur fyrsti íslenski arkitektinn. Hann safnaði síðan efni í aðra rit- Eg vil deyja líka. Ég vil deyja líka.“ „Kannski þú fáir það,“ anzaði móðir mín. Annað sagði hún mér ekki til huggunar," vitnaði sjálfsævisögu- ritari á síðustu öld og annar skrifaði að honum kæmi varla til hugar að hann næði 14 ára aldri. Svona vitnis- burðum safnar þjóðháttadeild Þjóð- minjasafnsins, en á hennar vegum er nú verið að senda út spurninga- skrá um líf og dauða æskunnar í dreifbýli og þéttbýli á 20. öld. „Telur þú að dauði nákominna ættingja hafi haft umtalsverð áhrif á lyndiseinkunn þína? Fannst þér sem þú stæðir eftir ein(n) eða þótti þér mótlætið styrkja þig?“ Þessi spurning er ein af 110 sem þjóð- háttadeildin er að senda út til 500 einstaklinga sem eru 70 ára og eldri. Markmiðið er að afla heimilda um hversdagslíf frá bernsku og æsku- dögum þessa fólks sem valið er úr þjóðskránni. Þjóðháttadeildin hefur í 30 ár sent út spurningalista um ýmiskonar efni en heimildamenn hafa aldrei áður verið valdir með slembiúrtaki úr þjóðskránni. Krist- ján Eldjám forseti hóf þetta starf og nú eru til um 200 þúsund skrifað- ar síður frá svarendum um ólíkleg- ustu hluti, m.a. huldufólk. En hver ætli sé tilgangurinn með að afla nú heimiida um hversdagslífið á fyrsta fjórðungi 20. aldar? Fyrsti fjórðungur aldarinnar er afar merkilegur vegna breytinganna sem urðu á íslensku þjóðfélagi og þeir sem eru 70 ára og eldri sitja uppi með reynslu sem innan við 10 prósent af þjóðinni hafa lifandi vitn- eskju um. En það er líka annað sem hangir á spýtunni: Mikið hefur verið fjallað um stjórnmála- og hagsögu og sögu ýmissra stofnana þjóðfé- lagsins, en það vantar bækur um alþýðufólkið og hversdagslífið. Hvemig upplifði fólk stofnanir eins og kirkjuna, hvernig hugsaði það og hvaða langanir bærðust með því? Hvemig brást það við umskiptum eins og að flytja á mölina? Hvernig höfðu sögulegir atburðir áhrif á lífs- feril þeirra? Þetta eru spurningar sem avonefndir félagssagnfræðingar hafa áhuga á að leita svara við. Er eitthvað að marka sjálfsævisögur? Sigurður Gylfi Magnússon er fé- lagssögumaður og nýútskrifaður doktor frá Pittsburg í Bandaríkjun- um. Fræðasvið hans er alþýðumenn- ingin á íslandi á 19. og 20. öld. Það kom því í hans hlut að semja spurn- ingaskrána um hversdagslífið fyrir þjóðháttadeildina. Svarendur eru beðnir um að rifja upp bernsku sína og eru minningamar flokkaðar í átta hluta; ytri aðstæður, heilsufar, vinnu bama á aldrinum fimm til tíu ára, heimanám barna, menntun og vinnu 10 til 14 ára bama, ferming- una, árin eftir ferminguna, dauðann og daglegt líf. Það má velta því fyrir sér hvort fólk á efri ámm geti rifjað upp raunsanna mynd af æsku sinni. Sig- urður Gylfi telur svo vera. Hann telur að einstaklingar geri upp líf- skeið sín með reglulegu millibili og geymi síðan þetta uppgjör í minn- ingunni. Kynslóðin sem upplifði fyrsta ijórðung aldarinnar hefur fyrir löngu fest æsku sína í minni með slíku uppgjöri og svör þeirra muni því gefa góða mynd af henni. Sigurður Gylfi hefur á undanförn- um árum verið að rannsaka sjálfsæ- visöguritun, en hún felst í því að einstaklingur tekur sig til og skrifar ævisögu sína sjálfur. Sjálfsævisögu- ritari skrifar einfaldlega það sem hann telur vega þyngst í lífi sínu, óháð því hvað aðrir telja. Ævisögur á hinn bóginn sem eru skrifaðar af utanaðkomandi aðila em verk tveggja manna. Sigurður segist hafa greint hundruð sjálfsævisagna niður í einstök lífsþrep þeirra sem þær skrifa. Hann ber þær svo sam- an við þær breytingar sem eiga sér stað í þjóðfélaginu á sama tíma. Einnig er hægt að bera saman sjálf- sævisögur þéttbýlisfólks og dreif- býlisfólks. Engin bylting á hugsunarhætti Ein af uppgötvunum Sigurður er að það hefur ekki verið eins mikill munur á hugsun og hátterni Dauðinn og daglegt líf Þjóðháttadeild Þjóðminjasafnsins hefur sent út spurningaskrá til 500 einstaklinga, sem eru 70 ára og eldri, um líf og dauða æskunnar í dreif- býli og þéttbýli á 20. öld. Markmiðið er að afla heimilda um hversdagslíf frá bernsku og æskudögum þessa fólks. Gunnar Hersveinn kynnti sér málið og ræddi meðal annars við dr. Sigurður Gylfa Magnússon og Árna Bj örnsson þjóðháttafræðing. SIGURÐUR Gylfi Magnússon dreifbýlis- og þéttbýlisfólks og menn hafi viljað vera láta. Hann telur að menningarlegur styrkur bændasamfélagsins hafi einnig gert vistaskipti fólks úr sveit í bæ auð- veld. Þau vom vandalítil vegna þess að breytingarnar sem urðu á 20. öld kröfðust ekki afgerandi um- skipta í hugsun fólks. Hann segir að íslenskir sagnfræðingar hafi lagt of mikla áherslu á fábreytileika og efnahagslegan einfaldleika bænda- samfélagsins á 19. öld og á stórstíg- ar framfarir á 20. öld. Það varð engin bylting á hugsunarhætti í upphafi 20. aldar, m.a. vegna þess að alþýðumenningin var ekki háð efnahagslegum breytingum. Fólk hugsaði áfram á svipuðum nótum þrátt fyrir alla nýju togarana. Sigurður hefur komist að þessari niðurstöðu með því að rýna í hug- arfarssöguna, en það er gert með því að lesa vitnisburði einstaklinga um skoðanir sínar, hegðun og til- fínningar. Þessi vitnisburður glatast ef hann er ekki skráður í sjálfsævi- sögur, dagbækur og persónuleg bréf. Svörin við spurningaskrá þjóð- háttadeildar geta því orðið framtíð- inni fjársjóður, mikilsverð heimild til að skilja og draga réttar ályktan- ir um kynslóðina sem ólst upp á þessum merkilega fjórðungi. Hvers vegna las alþýðan Islendingasögnrnar? Saga alþýðunnar hefur verið van- metin á íslandi og saga valdhafanna ofmetin, því eins og valdamenn höfðu áhrif á fólkið, hafði fólkið áhrif á valdamennina, heimsmynd

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.