Morgunblaðið - 31.12.1994, Síða 12

Morgunblaðið - 31.12.1994, Síða 12
12 B LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ Ásdís Stefánsdóttir fór í hjarta- og lungnaaðgerð í Gautaborg Heilsan stærsti lottóvinningurinn Morgunblaðið/Jón Trausti Guðjónsson. GOÐINN lá í briminu 150 m frá ströndinni og utar en Bergvíkin og gengu 8-9 m öldur yfir stýris- húsið sem upp úr stóð, þar sem mennirnir sex höfðu bundið sig. Omar Sigtryggsson bjargaðist ásamt 5 félögum sínum af Goðanum Vemdarhönd í Vöðlavík EINN stærsti atburður ársins var björgunarafrekið í Vöðlavík, þegar þyrlusveit vamarliðsins tókst að bjarga sex skipveijum af Goðanum, sem höfðu þá í meira en níu klukku- stundir beðið bundnir við leifamar af brúnni í sjógangi og kolvitlausu veðri. Þá hafði einn skipveija tekið út. Að- stæður vom ógnvænlegar. Vegna veð- urs og annarra aðstæðna var ekki hægt að bjarga mönnum af sjó eða landi og máttu þyrlur vamarliðsins ekki koma andartaki síðar. Einn skipveija, Ómar Sigtryggs- son, sagði í símtali við blaðið að þama hefði æðri máttur verið yfir þeim. Hann tryði því að allt væri fyrirfram ákveðið. Sjálfur var hann á vakt í brúnni með Geir heitnum Jónssyni, sem tók út með öðru brotinu. Þegar fyrsta brotið reið yfír fór hann niður til að ræsa skipveija. Skipstjórinn, Kristján Sveinsson, fór strax upp í brú. Þá kom annað brot- ið, braut hurðir og hreinsaði allt. Kristján stóð á stjómborða, en brotið kom á bakborða, opnaði stýrishúsið eins og sardínudós og sleit Geir af stýrinu og var hann þó enginn auk- visi. Feigum verður ekki forðað, eins og Ómar segir. Geir var með þeim í þessari einu ferð, annars var hann á Bylgju frá Vestmannaeyjum. Sjálfur var Ómar niðri þegar seinna brotið reið jrfir. Allt myrkvaðist og hann hafði náð í vasaljós og farið niður í vél með Niels. „Það var heppni yfir okkur Nielsi þegar hann sló á stjóm- borða, því þá kom gusa á ásrafalinn og hann sprakk í tætlur en engin brot lentu í okkur. En við komumst ekki aftur upp stigann. Þá lagðist hann á bak og við komumst upp. Það var mikið lán,“ segir Ómar. Þetta er í íjórða skiptið sem vemdarhendi er yfir honum. Brot skall yfír Þormóð goða við Hvarf er hann var 14 ára, í annað skipti fór hann út með troll- inu á Pétri Halldórssyni og inn aftur, á Vailanesinu GK tók hann út með færinu á drekanum og gat skorið það frá sér og enn bjargaðist hann. „Æðri máttarvöld héldu þarna yfir okkur verndarhendi," áréttar hann. Það hefði ekki verið sú ró og jafnaðar- geð yfir okkur allan tímann án þeirr- ar handieiðslu. Ifyrst gátum við hafst við í herbergi skipstjórans, en þegar fór að fylla sagði hann að við skyldum fara út og þar hlekkjuðum við okkur. Kristján er einhver albesti maður sem ég hefi verið með til sjós, svo klár og pottþéttur í öllu. Alltaf rólegur og svo góður mórall með honum. Það var þama í alla þessa níu tíma.“ Ómar segir að þeir hafí aldrei misst vonina, þótt ýmsar hugsanir fljúgi um hugann. „Veðrið var svo vitlaust að maður efaðist um að þyrla kæmist á staðinn. Þar til þeir í landi gáfu okkur merki með því að veifa hand- leggjunum eins og þyrluspöðum, en það gerðu þeir ekki fyrr en þeir voru vissir um að stóru bandarísku þyrlurn- ar vom að koma. Og bandarísku þyrlumennimir leystu björgunina af hendi af ótrúlegri list miðað við hve veðrið var bijálað," segir hann. Eftir að búið var að hífa þá tvo og tvo upp og selflytja í land, reyndi önnur þyrlan að fara með Ómar og Niels undir læknishendur og tókst að lenda við sjúkrahúsið á Norðfirði. Ómar kveðst vera með sykursýki og þar sem hann fékk engan morgun- verð náði hann heldur aldrei að sprauta sig. Því sótti svo á hann höfgi þarna á brúnni. Hann hafði líka farið i hjartaaðgerð í hitteðfyrra og raunar Kristján skipstjóri líka. En honum varð ekki meint af, nema hvað hann missti sex kíló, sem hann segir hina skjótvirkustu megmnaraðferð. Ómar kveðst hafa farið á sjóinn síðan, á varðskipið Óðip, en hefur líka verið á vinnuvélum. „Eg stefni á sjó- inn,“ sagði hann ákveðið. Bætir við að gott hafí verið um jólin heima hjá litlu dótturdótturinni og dótturinni, sem búa hjá honum. Móðir hennar er látin, svo þær hefðu mikið misst ef hann hefði ekki komið aftur. AÐ FÁ heilsuna er stærsti lottó- vinningur sem hægt er að fá,“ segir Ásdís Stefánsdóttir úr Garðin- um. Hún hafði beðið í meira en fimm ár eftir nýju hjarta og lungum þegar kallið barst frá Sahlgrenska-sjúkra- húsinu í Gautaborg snemma að morgni 9. september. Ásdís er fædd með hjartagalla og hafði hann haft þau áhrif á lungun að skipta þurfti um bæði líffærin. Fyrstu þijú árin beið Ásdís eftir líf- fæmm frá Bretlandi en hún og eigin- maður hennar Sveinbjörn Reynisson höfðu beðið eftir líffærum í gegnum Sahlgrenska-sjúkrahúsið í Gauta- borg í rúm tvö ár morguninn örlaga- ríka þegar hringt var frá sjúkrahús- inu. Ásdís segir að hringt hafí verið fyrir klukkan átta um morguninn og þau Sveinbjörn hafi verið í fasta- svefni á heimili sínu í Gautaborg. Eftir hana fór hröð atburðarás af stað. Áður en varði var aðgerðin hafin og um klukkan eitt var Svein- birni tilkynnt að hún hefði gengið vel. Einni og hálfri klukkustund síðar var Ásdís komin niður á gjörgæslu- deild. „Ég var ótrúlega heppin“ „Eg fór svo að vakna þegar ég var tekin úr öndunarvélinni um klukkan hálfsjö um kvöldið," segir Ásdís. Hún segist hins vegar ekki muna mikið eftir legunni á gjör- gæsludeildinni. „Ég var mikið deyfð og eiginlega hálfdópuð. Maður man svona óljóst eftir einum og einum punkti. Áuðvitað man ég að Svenni var þarna. Svo kom systir mín og maðurinn hennar,“ segir hún. Eftir fyrstu vikuna tók við hrað- stígur bati. „Ég var alveg órúlega heppin með hvað allt gekk vel,“ seg- ir Ásdís. „Nú þegar er ég farinn að ganga dálítið. Við göngum hérna upp á hæðirnar og förum niður í bæ. Áður var ég alltaf í hjólastjól," bæt- ir hún við. En bíður hún eftir að gera eitthvað sérstakt sem henni var ekki kleift áður. „Ég veit ekki hvort það er eitthvað sérstakt en ég gat til að mynda aldrei gengið um og skoðað náttúruna almennilega. Nú á ég það allt eftir. Reyndar á ég eftir að prófa svo margt og ég nefni sem dæmi að fara á skíði. Ég fékk líka badmintonspaða í jólagjöf.“ Lýðveldisafmæli á íslandi Litarháttur Ásdísar er ekki lengur með bláleitum blæ. Hún stundaði æfingar fimm sinnum í viku fyrir jól og verður þijá'daga í viku í regluleg- um æfíngum eftir jól. Hina virku dagana tvo er mælt með útivist og göngu. Ásdís og Sveinbjörn halda þslensk jól í Gautaborg og segist Ásdís búast við að þau flytjist aftur til íslands þegar mesta hættutímabil- ið, tæpt ár, er liðið eða með farfugl- unum í vor eða sumar. Hún segir að árið 1994 eigi eflaust eftir að standa uppúr í minningunni alla ævi vegna aðgerðarinnar. Engu að síður nefnir hún að Islandsheimsókn í til- efni af 50 ára afmæli lýðveldisins hafi líka verið minnisstæð. Hún ger- ir heldur ekki mikið úr því að þau hjónin hafí ekki komist á aðalhátíðar- svæðið fyrr en að verða níu um kvöld- ið. Þau hafí bara hlustað á dag- skrána í útvarpinu í bílnum á leiðinni. Morgunblaðið/Stefanía Eyjólfsdóttir SVEINBJÖRN og Ásdís í Gautaborg nú í haust. Utsalan hefst þribjudaginn 3. janúar kl. 9.00 —VEridÍstÍlUlL_ 0 v/Laugalæk, sími 33755

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.