Morgunblaðið - 31.12.1994, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 31.12.1994, Qupperneq 16
 UNCLINCA- CETRAUN , Svarið hverri spurningu með því að merkja við einn möguleika af fjórum. Skrifið nafn og aðrar upplýsingar í þar til gerðan reit, klippið síðuna út, setjið í umslag og skrifið utan á: Morgunblaóió — Áramótagetraun, Kringlunni 1, 103 Reykiavik. Úrlausnir þurfa að berast Morgunblaðinu fyrir kl. 16.00 mánudaginn 16. janúar 1995. 1 • Þúsundir íslendinga urðu af hátíðarhöldum á Þingvöllum í tilefni af 50 ára afmælis lýðveld- isins vegna: □ Veðurs. Færðar. □ Umferðartafa. | □ Óeirða. 2* Hljómsveitin Todmobile lagði upp laupana á árinu. Hljóm- sveitarmeðlimir stofnuðu ásamt fleirum tvær hljómsveitir upp úr því. Þær heita: □ Bang og Olufsen. □ Bong og Tweety. □ Bongo og Twiggy. □ Tod og Mobile. 3. Nýr forseti tók við í Suður- Afríku í maí, fyrstur blökku- manna. Hvað heitir hann? □ Hastings Banda □ Desmond Tutu □ Nelson Mandela □ Jessie Jackson 4» Söngleikurinn Hárið var sýndur við miklar vinsældir í Gamla bíói á árinu. Hver leik- stýrði? □ Benóný Ægisson. □ Berger forystuhippi. □ Hilmir Snær Guðnason. □ Baltasar Kormákur. 5* Tólf ára strákur var á dög- unum valinn borðtennismaður ársins, af sljórn Borðtennissam- bands íslands, annað árið í röð. Hver er hann? □ Guðmundur Stephensen. □ Magnús Scheving. □ Magnús Stephensen. □ Ólafur Stephensen. 6* Forsprakki hljómsveitarinn- ar Nirvana svipti sig lífi á árinu. Hvað hét hann? □ Eddie Vedder. □ Kurt Cobain. □ Cob Curtain. □ John Wayne Bobbit. T. Ný stjórnmálasamtök voru stofnuð síðari hluta árs. Forsp- rakki þeirra er Jóhanna Sigurð- ardóttir, en hvað heita samtökin? □ Þjóðvaki. □ Þjóðarstolt. □ Þjóðstjóm. □ Þjóðbjörg. 8. Músiktilraunir Tónabæjar fóru fram síðla vetrar. Sigur- sveitin í ár heitir: □ Nabblarnir. □ Púl og sviti. □ Maus. □ Loftpressa. 9. Ungur íslenskur skákmaður varð heimsmeistari unglinga, 20 ára og yngri, og jafnframt öðlað- ist hann stórmeistaratign. Hann heitir: □ Helgi Bess Ólafsson. □ Helgi Áss Grétarsson. □ Helgi S. Gunnarsson. □ Helgi S. Grétarsson. 10 • Nýtt íslenskt spennuleik- rit um unglinga var frumsýnt í Borgarleikhúsinu á árinu. Hvað heitir það? □ Óþekka stúlkan. □ Stúlkan með eldspýturnar. □ Ófælna stúlkan. □ Piltur og stúlka. 1 • Bandariskur ruðnings- kappi og leikari var tekinn hönd- um á árinu, sakaður um að hafa orðið fyrrverandi eiginkonu sinni og vini hennar að bana. Hvað heitir hann? □ O.J. Simpson. □ C.J. Simpson. □ Homer Simpson. □ Wallis Simpson. 13. Fjandskapur ríkir á milli bandarísku skautadrottninganna Nancy Kerrigan og Tonyu Hard- ing. Almenningur snerist á sveif með þeirri fyrrnefndu er í Ijós kom að: □ Tonya Harding hafði leikið í klámmyndum. □ Harding var eiturlyfjaneytandi. □ Lífverðir Harding hugðust ráða Kerrigan af dögum. □ Lífverðir Harding skemmdu skauta Kerrigan. 14 • íslenska kvennalandsliðið 12. Björk Guðmundsdóttir hélt tónleika á Listahátíð. Það vakti sérstaka athygli að: □ Enginn mætti á tónleikana. □ Forseti íslands tók lagið. □ Björk var á vaðstígvélum. □ Björk söng allt á íslensku. í knattspyrnu komst í 8 liða úr- slit Evrópukeppninnar. Hver úr liðinu var valin knattspyrnumað- ur ársins? □ Vanda Sigurgeirsdóttir. □ Ásta B. Gunnlaugsdóttir. □ Margrét Óláfsdóttir. □ Ásthildur Helgadóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.