Morgunblaðið - 26.01.1995, Síða 2
2 B FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Grand
Hótel
Reykja-
vík opn-
að í mars
STEFNT er að því að opna
hótelið við Sigtún 38 þar sem
áður var Hótel Holiday Inn
seinni hluta marsmánaðar und-
ir nafninu Grand Hótel Reykja-
vík. Fram að þeim tíma verður
unnið að endurbótum á hótelinu
og er málningarvinna þegar
hafín. Skipt verður um teppi á
göngum og sameign ásamt því
að nokkrrar endurbætur verða
gerðar á herhergjum. Þar þarf
að skipta um gardínur, rúm-
teppi, borðplötur ásamt því að
hurðir verða plastlagðar.
Hótelstjóri á Grand Hótel
Reykjavík er Bjarni Ásgeirsson
en hann er jafnframt hót-
elstjóri á Hótel Reykjavík við
Rauðarárstíg sem að hluta er
í eigu sömu aðila. Mótttöku-
stjóri er Jóhann Sigurólason,
sem var áður í sama starfi á
Holiday Inn.
Góðar bókanir
Jóhann sagði í samtali við
Morgunblaðið að mjög góðar
bókanir hefðu borist fyrir maí,
júní, júlí og ágúst hefðu borist
frá því hinir nýju eigendur tóku
við hótelinu fyrir tveimur vik-
um. Þar væri að einhveiju leyti
um að ræða bókanir sem önnur
hótel hefðu orðið að vísa frá
en hótelið nyti einnig að sumu
leyti góðs af því að hafa verið
undir merki Holiday Inn áður.
Þá væri búið að fullbóka hótel-
ið kringum heimsmeistara-
keppnina í handknattleik sem
haldin verður í maí. „Ég er
mjög bjartsýnn á að nýtingin
verði allgóð í sumar enda þótt
hótelið sé ekki lengur inn í
flestum ferðabæklingum og
getum því ekki treyst á stöðuga
sölu.“
Fjármálaráð-
gjöf utan af-
greiðslutíma
SPARISJÓÐUR Reykjavíkur og
nágrennis hefur ákveðið í samráði
við starfsmenn sína að lengja af-
greiðslutímann með því að hafa
afgreiðsluna á 2. hæð á Skóla-
vörðustíg 11 opna til klukkan
18.30 alla fimmtudaga.
Á þessum tíma verður aðallega
veitt fjármálaráðgjöf en ekki al-
menn afgreiðsla. Munu þjónustu-
fulltrúar og einn af yfirmönnum
annast fjármálaráðgjöf, greiðslu-
mat vegna fasteigna- eða bfla-
kaupa og gera greiðsluáætlanir
varðandi greiðslujöfnunarreikn-
inga.
Brimborg hlutskörpust í
bílaútboði Ríkiskaupa
ALLS bárust tilboð frá ellefu fyrir-
tækjum í útboði Ríkiskaupa á bif-
reiðum sem opnað var sl. mánudag.
Ríkið áætlar að kaupa um 130 bif-
reiðar í 23 flokkum á þessu ári og
reyndust níu fyrirtæki eiga lægstu
boð í þessum flokkum.
Útboðið fór fram að undangegnu
forvali á Evrópska efnahagssvæð-
inu. í útboðinu voru tilteknar bif-
reiðagerðir valdar til þátttöku og
var þeim sem uppfylltu sambærileg-
ar notkunarþarfir raðað saman í
flokka. Viðkomandi bílaumboðum
var síðan boðið að gera tilboð og
verður skipt við lægstbjóðanda í
hveijum flokki. Fram kemur í frétt
frá Ríkiskaupum að eftir sé að yfir-
Samið um að Brimborg taki við
umboði fyrir Ford og Citroen
fara tilboðin og meta endanlega
ávinning af útboðinu en almennt
þyki hafa tekist vel til. Ekki feng-
ust frekari upplýsingar hjá Ríkis-
kaupum um boð einstakra fyrir-
tækja.
Lægsta boð í níu flokkum
Hins vegar segir Egill Jóhanns-
son, markaðsstjóri Brimborgar hf.,
að fyrirtækið hafi verið hlutskapast
í útboðinu. Það hafi sent inn tilboð
í 13 flokka bifreiða og átt lægsta
tilboð í 9 flokkum. Þarna sé um að
ræða 42 bíla af 130 bílum sem
boðnir hafi verið út. Kvaðst hann
eiga von á því að fyrirtækið fengi
þessi viðskipti enda væri það yfir-
lýst stefna í útboðinu að taka
lægsta tilboðinu. Brimborg bauð
bæði fram Ford, Volvo og Daihatsu-
bifreiðar í útboðinu.
Endanlega var gengið frá samn-
ingum á þriðjudag um að Brimborg
tæki við umboðinu fyrir Ford og
Citroen af Globusi. Að sögn Jó-
hanns Jóhannssonar, hjá Brimborg,
er reiknað með því að fyrirtækið
taki formlega við þessum umboðum
um næstu mánaðamót. Hann sagði
að ekki yrði lögð nein áhersla á
sölu Citroen fyrr en á árinu 1996
en þjónusta við eigendur þessara
bíla yrði auðvitað veitt frá upphafi.
Aftur yrði ráðist í markaðsátak til
að auka sölu á Ford þar sem mikl-
ir möguleikar væri fyrir hendi. Þar
væri um að ræða breiðari línu en
í þeim bíltegundum sem fyrirtækið
hefði haft á boðstólum hingað til.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins er líklegast að Bílheimar
taki við umboði fyrir Saab-bifreiðar
af Globusi.
ÚR verslun Hagkaups í Kringlunni. Velta Hagkaups
árið 1994 var tæpir 12 milljarðar.
Gefa út skrá yfir
hæstu greiðendur
NÚTÍMA samskipti hf. í Kópavogi
hafa gefið út skrá yfír 14.000 hæstu
greiðendur útsvars á íslandi eftir
að lögfræðingur fyrirtækisins
komst að þeirri niðurstöðu að opin-
ber birting á þeim upplýsingum
væri heimil samkvæmt gildandi
skattalögum. Tölvunefnd hafði
lagst gegn birtingu skrárinnar í
tölvutæku formi þegar fyrirtækið
hugðist gefa hana út í nóvember á
fyrra ári.
Tölvunefnd sagði nei
Hermann Valsson hjá Nútíma
samskiptum sagði að fyrirtækið
væri þegar búið að selja fyrsta ein-
takið af skránni í riti, en eftir væri
að taka afstöðu til þess hvort skrá-
in yrði líka gefin út á tölvutæku
formi, sem gæti verið á sveig við
anda laganna.
Tölvunefnd sagði 21. nóvember
í svari við fyrirspurn Nútíma sam-
skipta að „sala eða önnur afhending
úr skrám á nöfnum og heimilisföng-
Um tiltekinna hópa einstaklinga,
stofnana, fyrirtækja eða félaga [er]
óheimil án starfsleyfis sem Tölvu-
nefnd veitir.“ Þar sem fyrirtækið
hefði ekki aflað starfsleyfis Tölvu-
nefndar væri útgáfa skrárinnar eins
og henni væri Iýst óheimil.
í greinargerð lögfræðings Nú-
tíma samskipta, Jóhannes Alberts
Sævarssonar, segir hins vegar að
ekki verði annað séð eri að með
lögum frá 1984 hafi verið lögfestur
grundvöllur fyrir opinberri birtingu
á upplýsingum um álagða skatta
sem fram kæmu í álagningarskrá,
svo og útgáfa þeirra upplýsinga í
heild eða að hluta.
Verslun
Veltuaukning Hag-
kaups um 1,3% ífyrra
HEILDARVELTA Hagkaups hf.
að meðtöldum virðisaukaskatti
nam alls 11.600 milljónum króna
á síðasta ári samanborið við
11.453 milljónir árið 1993. Þetta
er um 1,3% veltuaukning en í því
sambandi þarf að taka tillit til
lækkunar virðisaukaskatts af
matvælum í byijun ársins 1994.
Að sögn Ragnars Atla Guð-
mundssonar, framkvæmdastjóra
fjármálasviðs Hofs, móðurfélags
Hagkaups, voru jafnmargar Hag-
kaupsverslanir í rekstri á árunum
1993 og 1994 en áætlað væri að
selt magn hefði aukist um nálægt
3,5% milli ára.
Miklatorg hf. sem rekur Ikea
verslunina í Holtagörðum var með
um 1.060 milljóna veltu í fyrra
samanborið við 842 milljónir
þannig að aukningin er 26%. Vart
þarf að taka fram að þessi aukn-
ing skýrist af flutningi verslunar-
innar í Holtagarða í ágúst.
Ragnar Atli sagði að fyrirtæki
innan Hofs hefðu notið góðs af
stöðugleikanum í efnahagslífinu
og lágri verðbólgu. Þau ættu jafn-
an erfítt með að bregðast við auk-
inni verðbólgu í efnahagslífinu
vegna þess hversu þau væri undir
ströngu verðlagseftirliti frá sínum
viðskiptavinum.
* *
Uttekt ráðgjafarfyrirtækisins Islandskosts á mötuneytum hins opinbera
Hægt að spara 200-300 m
RÁÐGJAFARFYRIRTÆKIÐ íslandskostur hf.,
sem unnið hefur að úttektum á rekstri nokkurra
mötuneyta hjá ríki og sveitarfélögum, hefur
komist að þeirri niðurstöðu að hægt sé að ná
fram 200-300 milljóna króna sparnaði á ári á
þessum lið með breyttum_ vinnubrögðum.
Fram kemur í frétt frá íslandskosti að í mötu-
neytum ríkis og sveitarfélaga séu afgreiddar að
meðaltali 22 þúsund máltíðir á degi hveijum
allan ársins hring. Áætlar fyrirtækið að þessi
rekstur kosti um þijá milljarða króna á ári en
þar af sé hráefniskostnaður 2 milljarðar.
Hægt að fækka vinnustundum um 30%
Þá segir að með raunhæfum aðgerðum sé
yfirleitt hægt að auka verulega á hagkvæmni í
heildarrekstri mötuneyta og stóreldhúsa. Sér-
staklega eigi þetta við um hráefnisinnkaup, nýt-
ingu hráefnis og vinnuskipulag starfsfólks. í
mörgum tilvikum sé unnt að fá ákveðnar vörur
á mun hagstæðara verði en verið hefur með því
að skipuleggja innkaup lengra fram í tímann
og bera saman verð á vörutegundum og svo
verð á milli verslana. Auk þess séu dæmi um
að hægt sé að fækka vinnustundum um allt að
30% með því að taka upp nýtt vaktafyrirkomu-
lag, bæta nýtingu á húsnæði o.s.frv.
Islandskostur hefur annast ýmiskonar ráðgjöf
í tengslum við mötuneytisrekstur fyrirtækja og
stofnana. Hefur fyrirtækið m.a. þróað sérstakt
hugbúnaðarkerfi í samstarfi við Hugbúnað hf.
í Kópavogi fyrir mötuneyti eins og greint hefur
verið frá í viðskiptablaði. Hægt er að setja upp
uppskriftir í kerfínu, stilla upp áætlunum, mat-
seðlum o.s.frv. Þetta kerfi er hægt að sam-
tengja við bókhaldskerfi og kassakerfí.
AGA-bréf-
in seldust á
tveimur
dögum
ÖLL skuldabréfín í 200 millj-
ón króna útboði sænska fyrir-
tækisins AGA seldust upp á
tveimur dögum, að sögn Guð-
mundar Haukssonar forstjóra
Kaupþings hf., sem hafði
umsjón með útboðinu.
„Þarna voru á ferðinni bréf
sem henta mjög vel inn í verð-
bréfasafn margra hér á
landi,“ sagði Guðmundur.
„Þetta er í fyrsta sinn sem
menn eiga þess kost á að
kauþa bréf í íslenskum krón-
um þar sem skuldarinn er
álitinn jafn traustur og ríkis-
sjóður Islands og það á betri
kjörum en ríkissjóður íslands
býður.“
Guðmundur sagði að menn
hefðu átt von á að útboðið
hlyti góðar viðtökur. Það
hefði vakið athygli vegna
þess að þetta var í fyrsta sinn
sem erlendur aðili byði út
skuldabréf í íslenskum krón-
um. Hann byggðist ekkert
síður við að annað slíkt útboð
myndi fá góðar viðtökur,
jafnvel þó nýjabrumið væri
farið af, þegar menn hefðu
fengið reynslu af þessum við-
skiptum.