Morgunblaðið - 01.02.1995, Side 2
2 B MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Morgunblaðið/Emilía
FULLTRÚAR samstarfsaðilanna sem hannað hafa nýja afhreistr-
unarvél: Helgi Geirharðsson lyá Samstarfsvettvangi sjávarútvegs
og iðnaðar, Bjarni Elíasson hjá Basis International og Karl Ág-
ústsson framkvæmdastjóri hjá Baader Island.
Ný afhreistrunarvél
frá Baader Islandi
Kvótinn er minn
þó bankinn hafi
tekið Drangavík
„ÉG LIT svo á að
ég sé endanlega
búinn að missa
Drangavíkina, en
baráttunni við
bankann er enn
ekki lokið. Ég tel
að íslandsbanki hafi tekið skipið upp í skuldir, því það var vissulega veð-
sett, en ég til mig eiga varanlegar aflaheimildir skipsins ennþá. Þær voru
ekki veðsettar, enda óheimilt samkvæmt lögum, og því getur bankinn ekki
tekið aflaheimildirnar af mér,“ segir Signrður Ingi Ingólfsson, útgerðarmað-
ur í Vestmannaeyjum í samtali við Verið.
Rætt við Sigurð Inga
Ingólfsson, fyrrum
eiganda Drangavíkur VE
Fréttir vikunnar
Sóknarstýring
í stað kvótans
■FRAMB JÓÐENDUR Sjálf-
stæðisflokksins á Vestfjörð-
um vi^a að núverandi fisk-
veiðistjórnarkerfi verðí tek-
ið til gagngerrar endurskoð-
unar. „Höfuðmarkmið hinn-
ar nýju stefnu er eins og
hinnar fyrri að hámarka
afrakstursgetu fiskistofn-
anna. Þessum markmiðum
verður náð með öflugri
flota- og sóknarstýringu,
sem komið verður á í áföng-
um,“ segir í greinargerð
sem þeir lögðu fram á fundi
málefnanefndar Sjálfstæðis-
flokksins um sjávarútvegs-
mál. Einar Oddur Kristjáns-
son, einn frambjóðendanna,
segir að sjálfstæðisflokkur-
inn verði að þora að horfast
í augu við þetta vandamál
sem sjávarútvegsstefnan sé
og þora að ræða um það.
Kristján Ragnarsson for-
maður LÍÚ segir að tillög-
urnar þýði aukna miðstýr-
ingu og ríkisafskipti og
muni aldrei ná því markmiði
að byggja upp þorskstofn-
inn. Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra segist hins vegar
ekki sjá að það valdi neinum
skaða að ræða tillögumar
af fullri einlægni.
Ætla að bjóða
í óséðan alla
■SAMTÖK sjómanna, Far-
manna og fiskimannasam-
handið, Sjómannasamband-
ið og Vélstjórafélag íslands
hafa komist að samkomu-
lagi við Samtök fiskvinnslu
á útgerðar, en innan hennar
eru 65 fyrirtæki, um að síð-
araefndu samtökin bjóði í
allan fiskafla sem ekki
stendur til að selja á upp-
boðsmarkaði. Boðið verður
í aflann óséðan um borð í
skipum og munu samtök sjó-
manna tryggja að réttar
upplýsingar um aflann liggi
fyrir.
Fyrsta loðnan
komin á iand
■FYRSTA loðnan á vetrar-
vertíðinni barsttil Seyðis-
fjarðar á laugardaginn þeg-
ar loðnuskipið Öra KE kom
til hafnar með fulifermi, um
700 tonn. Loðnunni var
landað hjá SR-mjöii og fer
i bræðslu. Nánast engin
loðnuveiði hefur verið frá
því i haust og nú síðustu
daga hefur brælan verið
loðnusjómönnum og leið-
angursmönnum Hafrann-
sóknastofnunar afar óhag-
stæð.
NOfíCSREN
MARTONAIR
LOFTLOKAR, LOFTTJAKKAR
RÖR OG FITTINGS
♦
HÖNNUM 0G TEIKNUM VÉLBÚNAÐ
LOFTSTÝRINGAR OG LOFTKERFI
SKIPULEGGJUM VINNSLURÁSIR
INTEK
ÍSLENSKAIÐNIÆKNIWONUSIAN HF
BÆJARHRAUNI 14, 220 HAFNARFIRSI
SÍMI: 91-654904 FAX: 91-652015
BAADER ísland hf. hefur í sam-
vinnu við Basis International og
Samstarfsvettvang sjávarútvegs og
iðnaðar hannað nýja afhreistrunar-
vél sem hentar fyrir karfa, ýsu og
annan hreisturfisk. Bjami Elíasson
hjá Basis Intemational, sem annast
mun markaðssetningu vélarinnar á
erlendri gmnd, segir að hún stand-
ist allar öryggiskröfur og sé að auki
hljóðlát og afkastamikil. Áætlað
verð er innan við 1.300,000 krónur.
Vélin þarf ekki nema eins fer-
metra rými og segir Bjarni hana
kjöma fyrir frystitogara, ekki síst
í ljósi þess að sókn í úthafskarfa
hafi aukist mjög upp á síðkastið.
Hann segir að vélin sé afar með-
Helgi Már Reynisson, útgerðar-
stjóri Valeikur hf. útgerðar Ásgeirs
Frímanns, segir í samtali við Verið,
að engin ákvörðun hafi verið tekin
um það, hver framvinda mála verði.
Engin skip séu til sölu innan lands
nema gömul og dýr. „Við stóðum
frammi fyrir fyrir því að tapa 30
færileg og geti tekið fisk sem sé
yfir fimm kíló að þyngd.
Prufukeyrð hjá Granda
Bjarni segir að gamlar hreistur-
vélar hér á landi séu úr sér gengn-
ar og gerir því ráð fyrir að nýja
vélin eigi greiðan aðgang að mark-
aðnum. Þá eigi hún mikla markaðs-
möguleika erlendis; með smá út-
færslu og aðlögun.
Ragnar Þórsson hafði umsjón
með hönnun vélarinnar en hún fer
senn í prufukeyrslu hjá Granda hf.
og ef til vill víðar. Mun þá koma í
ljós hvort einhveiju er ábótavant
en vélin verður að líkindum komin
á markaðinn í apríl.
milljónum króna af eigin fé, seldum
við ekki núna og nýttum okkur úr-
eldingarstyrkinn áður en hann lækk-
aði. Við fengum nú tæpar 90 milljón-
ir króna í úreldingu, en ég vil ekki
gefa upp söluverð skipsins," segir
Helgi Már.
Sigurður Ingi hefur átt í lang-
vinnum deilum við íslandsbanka um
eignarhald og útgerð á togbátnum
Drangavík VE 555, sem hann keypti
til Vestmannaeyja í apríl 1992.
Skipið var keypt nýtt til landsins á
vormánuðum 1991, hét þá Æskan
og var fyrst gert út frá Höfn í
Hornafirði. Samkvæmt núgildandi
lögum er bannað að taka veð í afla-
heimildum skipa, sem keypt eru til
landsins eftir þann tíma. Vegna
þessara deilna hefur útgerð skipsins
verið stopul að undanförnu, en
bankinn eignaðist skipið eftir flókin
málaferli með úrskurði Hæstaréttar
fyrir tæpum þremur mánuðum. Það
er enn óselt og hefur ekki verið
gert út síðan bankinn eignaðist það.
Sigurður Ingi efast um lögmæti
ýmissa þátta í gangi mála og hefur
ákveðið að kæra það til sjávarút-
vegsráðuneytisins, að íslandsbanki
telur sig hafa eignast afiahlutdeild
skipsins. Þá dregur hann einnig {
efa að bankanum hafi verið heimilt
að taka erlent lán til 15 ára til að
endurlána útgerðinni, en aðeins til
7 ára. Sigurður segir að lánstími til
hans hefði átt að vera sá sami og
á erlenda láninu. Hefði svo verið,
hefði reksturinn orðið mun léttari,
Veiðar Færeyinga drógu
verulega úr möguleikunum
Helgi Már segir, að veiðarnar
hafi gengið mjög vel í fyrstu, en
útgerð skipsins var byggð á sókn í
tegundir utan kvóta, einkum lúðu
og keilu. Hins vegar hefði sigið á
ógæfuhliðina, þegar þorskkvótinn
var skorinn niður og sókn í þessar
veiðar hefði margfaldazt. Að auki
hefðu veiðar Færeyinga dregið veru-
iega úr möguleikum íslenzku línu-
bátanna til að klára sig sæmilega.
Flytja 3.000 tonn af fiski
út á ári
„Á þessum tíma fór keiluafli við
landið úr 5.000 tonnum í 9.000 tonn,
enda greiðslubyrði dreifðari til
lengri tíma.
„Við höfum verið að gera mjög
góða hluti í þessari útgerð og hefð-
um haldið því áfram. Aflaverðmæti
á skipið á síðasta kvóta ári var um
188 milljónir króna og tekjur á
stöðugildi um 5,5 milljónir króna.
Aflaverðmæti er um 50 milljónum
króna meira en á næsta bát ís ama
útgerðarflokki. Þetta tókst okkur
með útsjónarsemi og með því að
selja aflann á mörkuðum. Nú stefnir
allt í það, að skipið verði selt fyrir-
tæki, sem er bæði með veiðar og
vinnslu á sinni könnu. Það þýðir að
aflanum verður landað á um 35%
lægra verði en við höfum verið að
fá á mörkuðunum. Það þýðir þá um
leið að mannskapurinn lækkar veru-
lega í launum, en skipstjóranum og
fleirum í áhöfninni hefur verið mein-
að að kaupa skipið. Ég er mjög
ósáttur við þessi málalok, en er þar
um hreina eignaupptöku að ræða
af hálfu bankans. Bankinn krafðist
þess að ég seldi eitt þriggja ksipa
minna til að grynnka á skuldum.
Ég gerði gott betur og seldi tvö,
en salan klúðraðist í höndum bank-
ans og því missi ég Drangavíkina,“
segir Sigurður Ingi Ingólfsson.
sem reyndist meira en stofninn þoldi.
Þá fór aflinn af lúðu út 200 kílóum
á bala í 70 og meðalþyngd keilu
lækkaði úr 2,8 kílóum í 1,5. Það er
erfitt að eiga við þetta, þegar aflinn
dregst svona mikið saman og þó
okkur hafi gengið vel á veiðunum
við Grænland. Við höldum okkur nú
við útflutningi á saltfiski, en látum
útgerðina eiga sig í bili. Við höfum
á undanförnum árum flutt út aflann
af eigin bát, auk þess að flytja út
saltfisk fyrir aðra. Nú er svo komið
að við flytjum um 3.000 tonn utan
árlega og ætlum að láta það hafa
forgang næstu mánuði að minnsta
kosti. Það er ýmislegt í deiglunni,
en tíminn verður að leiða framhaldið
í ljós.“ segir Helgi Már Reynisson.
Seaflower Whitefish með hagnað
immmmmm^^mMmmmmmM^^M^mmm^M REKSTUR Seaflower Whitefish Corp. í
T |L||n vvfeil/i]|i niilrnimni Luderitz gekk vei á siðasta ári og skilaði
l^lKUr a miKllil aUKnmgU hann hagnaðii en ísienzkar sjávarafurðir
lýsingskvóta útgerðarinnar fru fe?ndur Þess eignarhaidafé-
v 43 0 lagi 1 eigu stjornvalda. Horfur eru a þvi
að kvóti fyrirtækisins á lýsingi geti aukizt verulega og næsta haust er stefnt að því að hefja sölu
á flökum til Bandaríkjanna í töluverðum mæli.
Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri
nýsköpunarsviðs IS, segir að lögð hafi verið
áherzla á landframleiðslu á lýsingi og búið sé
að koma upp þokkalegu frystihúsi í landi, sem
getur bæði framleitt hausaðan og slægðan fisk
og flök, ýmist með roði eða roðflett. „Þá hefur
einnig verið unnið dálítið af ferskum Iýsingi
til sölu á Spáni,“ segir Guðbrandur. „Nú er
verið að byrja að endurskipuleggja landfram-
leiðsiuna og hanna vinnslulínur, þannig að
hægt verði að fara út í framleiðslu roð- og
beinlausra flaka upp úr miðju árinu. Þá bindum
við vonir við að fara með töluvert magn inn
til Bandaríkjanna, en það hefur ekki verið
unnt til þessa.
Kvótinn gœtl orðlð 33.000 tonn
Aflinn í fyrra var um 8.500 tonn, mest fryst
úti á sjó eða í landi en við seljum allar frystar
afurðir fyrir fyrirtækið, en þeir selja smávegis
ferskt innan lands sjálfir. Fiskifræðingar hafa
spáð því að lýsingsstofninn þama geti gefið af
sér allt að 400.000 tonn á ári. Við erum nú með
um 11.000 tonna kvóta. Þegar farið var í þessa
samvinnu við stjórnvöld í Namibíu í fyrra, var
látið í það skína, að yrði heildarkvóti aukinn,
fengjum við hlutfallslega sömu aukningu á kvóta
okkar. Gangi það eftir að stofninn rétti úr kútn-
um, gæti þetta fyrritæki fengið kvóta upp á um
33.000 tonn.
Á síðasta ári var mikið um þörungamyndun i
sjónum við Namibíu, en talið er að það hafi haft
slæm áhrif á sardínuna. Kvóti á henni var meðal
annars dreginn saman á síðasta ári en auk þess
er sardínan mikilvæg fæða fyrir lýsinginn. Þegar
kom fram í júlí ágúst var veiði á lýsingi orðin
mjög légleg og nánast enginn náði sínum kvóta.
Þess vegna var kvóti á lýsingi ekki aukinn í ár,
hvað sem verða kann.
Ránin flaggskiplA
Seaflower Whitefish gerir út tvo stóra frysti-
togara og Ránina, sem var gerð út hér á landi
áður. Útgerð hennar hefur gengið mjög vel og
er hún flaggskip flotans í Luderitz. Hún er vel
tækjum búin og veiðir meira en nokkur annar
undir stjórn Hlöðvers Haraldssonar, en hún er
á ísfiski og veiðir fyrir vinnsluna í landi.
Á þessum þremur togurum eru allir yfirmenn
íslendingar. Yfirmenn á netaverkstæði eru ís-
lendingar svo og útgerðarstjórinn og aðrir yfir-
menn í landi. Allt í allt eru þarna um 40 íslend-
ingar og alveg má búast við því að enn fjölgi
þeim á svæðinu,“ segir Guðbrandur.
Asgeir Frímanns seldur til Noregs
mmmmmmmmmmmmmmmmi^m* línubáturinn ás-
egi fyrir tæpum 5 árum og stundaði meðal annars veiðar á lúðu og keilu
á línu og línuveiðar við Grænland. Útgerð Ásgeirs Frímanns gekk vel,
en samdráttur í afla tegunda utan kvóta, dró verulega úr möguleikum
útgerðarinnar og því var báturinn seldur.
Samdráttur í lúðu- og
keiluafla gerði útslagið
geir Frímanns ÓF hefur
verið seldur til Noregs.
Báturinn var keyptur
hingað til lands frá Nor-