Morgunblaðið - 07.02.1995, Page 12
KORFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN
Leikmenn New York Knicks máttu sætta sig við tap í Orlando
Hittu aðeins úr vítum
í framlengingunni
Reuter
DAN Schayea og Charles Barkley hjá Phoenix berjast um knöttlnn vlð Otls Thorpe hjá Houston, í
leik sem lelkmenn Houston fögnuðu slgri. Phoenix og Orlando eru með bestan árangur í NBA-delldinnl.
SKIÐI / HEIMSBIKARINN
Tíundi sigur-
inn hjá Tomba
SHAQUILLE O’Neal var með
41 stig og tók 15 fráköst þeg-
ar Orlando vann New York
Knicks 103:100 eftir framleng-
ingu íæsispennandi leik í
NBA-deildinni í körfuknattleik
ífyrrinótt. Heimamenn höfðu
forystuna allan tímann, voru
með 15 stiga forystu í þriðja
leikhluta og þegar mínúta var
til leiksloka var munurinn sjö
stig. Patrick Ewing, sem gerði
38 stig og tók 13 f ráköst fyrir
Knicks, var atkvæðamikill und-
ir lok venjulegs leiktíma og
jafnaði 98:98 þegar 10 sek.
voru eftir, en illa gekk hjá gest-
, unum íframlengingu. Þeir
hittu ekki úr 10 skotum en
Ewing setti tvö vítaskot niður.
Það dugði skammt og Orlando
er ásamt Phoenix með besta
árangurinn ídeildinni. _
að var stuð í þessu í lokin,“
sagði Pat Riley, þjálfari
Knicks. „Við byrjuðum ekki al-
mennilega að beijast fyrr en í seinni
hálfleik en hittnin í framlenging-
unni var ekki nógu góð til að sigra.“
O’Neal sagði að sigurinn hafi
verið geysilega mikilvægur. „Við
höldum New York í ákveðinni fjar-
lægð. Það var varnarleikur okkar
í framlengingu sem gerði gæfu-
muninn.“
Leikmenn Houston Rockets léku
við hvern sinn fingur í Phoenix
og unnu 124:100. Hakeem Olajuw-
on var stigahæstur gestanna með
28 stig en Vernon Maxwell og Sam
Cassell gerðu sín 19 stigin hvor.
„Þegar þeir hitta úr þessum
þriggja stiga skotum sínum er nær
ómögulegt að sigra þá,“ sagði
Charles Barkley um mótherja sína
sem skoruðu úr 12 þriggja stiga
skotum. Barkley hefur leikið frá-
bærlega að undanförnu og leikið
við hvern sinn fingur eftir að hann
náði sér fullkomlega eftir meiðsli.
Houston hefur verið á mikilli
siglingu að undanförnu og sigrað
í síðustu fjórum leikjum með 19,3
stiga mun að meðaltali. „Þetta var
okkar bolti,“ sagði Rudy Tomj-
anovich, þjálfari gestanna. „Þetta
er kerfið okkar, hugsun og það sem
við viljum. Þegar við spilum svona
hef ég á tilfinningunni að við getum
sigrað alla. Það skiptir öllu að spila
sterka vörn, fá ekki stig á sig eftir
hraðaupphlaup og láta mótheijana
þurfa að fara í gegnum fimm menn,
en láta síðan boltann ganga í sókn-
inni.“
Þetta var annað tap Phoenix í
síðustu 12 leikjum. Barkley var
með 24 stig og Danny Ainge 23
en hann skoraði úr sex þriggja
stiga skotum. Dan Majerle, sem
hefur verið með 17,6 stig að meðal-
tali í leik, fékk engan frið og gerði
þijú stig.
Seattle vann Miami 136:109 og
var þetta 10. útisigur liðsins í röð
sem er met hjá félaginu, Shawn
Kemp var stigahæstur með 26 stig
en liðið hefur sigrað í 14 af síðustu
16 leikjum. Billy Owens var með
21 stig fyrir heimamenn.
Charlotte vann Washington
111:105. Alonzo Mourning var með
26 stig og tók 10 fráköst fyrir
heimamenn, en Larry Johnson
skoraði 16 stig, tók níu fráköst og
átti sjö stoðsendingar. Juwan How-
ard var atkvæðamestur gestanna
með 23 stig.
Scottie Pippen fór fyrir Chicago
með 35 stig og 11 fráköst í 97:93
sigri gegn Golden State. Tim
Hardaway skoraði 28 stig fyrir
Golden State og Chris Gatling 23
en Donnie Nelson stjórnaði liðinu
í öðrum leiknum í röð vegna veik-
inda föður síns.
Boston átti ekki í erfíðleikum
með Minnesota og vann 115:82.
Dee Brown og Greg Minor voru
með sín 23 stigin fyrir heimamenn
en Isaiah Rider 18 stig fyrir Minne-
sota.
■ Úrslit / B10
■ Staðan / B10
ALBERTO Tomba hélt sigur-
göngu sinni áfram í heimsbik-
arkeppninni í alpagreinum um
helgina. Keppt var í stórsvigi í
Adelboden í Sviss og þar vann
hann tíunda sigur sinn á tímabil-
inu og setti persónulegt met.
Hann hefur nú tæplega 500
stiga forskot í stigakeppninni
og virðast fáir geta ógnað sigri
hans þar.
Tomba var með næst besta tímann
á eftir Norðmanninum Harald
Strand Nilsen í fyrri umferð stórsvigs-
ins. En eins og svo oft áður stóðst
enginn honum snúning í síðari um-
ferðinni. Jure Kosir frá Slóvenlu
keyrði vel síðari umferðina og skaust
upp í annað sætið, en Nilsen varð að
gera sér bronsverðlaunin að góðu.
„Mér finnst eins og ég sé að
brenna upp,“ sagði Tomba. „Ég hef
nú verið í toppæfingu í næstum þijá
mánuði. Ég er ekki viss um að ég
nái að halda þetta út allt tímabilið."
Hann sagði að sigurinn væri vissu-
lega ánægjuefni, sérstaklega eftir
vonbrigðin að heimsmeistaramótinu
hafi verið aflýst í Sierra Nevada, en
þar stefndi hann á fyrsta sigur sinn
í heimsmeistaramóti og hafði undir-
búið sig sérstaklega fyrir það. Hann
hafði lýst því yfir að hann gæti
hætt með góðri samvisku eftir HM-
sigur. „Nú þarf ég að fara að hugsa
þetta allt upp á nýtt og spurningin
er hvort ég verði ekki að mæta næsta
keppnistímabil líka.“ Hann sagði um
möguleikana á sigri í stigakeppn-
inni: „Ég hef verið svo nálægt sigri
áður og alltaf misst af lestinni í síð-
ustu mótunum svo það of snemmt
að gera sér of miklar vonir.“
BORÐTENNIS
íslenska liðið
sigraði alla
mótherjana
ÍSLENSKA landsliðið í borð-
tennis sigraði alla andstæð-
inga sína i Evrópudeild lands-
liða sem fram fór í Liechten-
stein um helgina. í fyrsta leik
sigraði ísland landsUð Guern-
esey 6-1, síðan Jersey 5-2,
Liechtenstein 6-1, Mðu 5-2 og
loks úrslitaleikinn við Mðltu
7:0.
íslenska landsliðið var skip-
að eftirtöldum: Evu Jósteins-
dóttur, Guðmundi E. Stephen-
sen og Ingólfi Ingólfssyni, úr
Víkingi og Kjartani Briem,
sem leikur með dönsku liði.
Þjálfari landsliðsins er Sví-
inn Peter Nilsson.
KORFUBOLTI
Slaktí
Selja-
skóla
IR-ingar áttu ekki í vandræðum
með að sigra lið Snæfells í Selja-
skóla í gærkvöldi, lokatölur: 76:62.
Leikurinn var illa
leikinn af báðum lið-
Benediktsson um' ¥kmenu fóru
skrifar ser mJ°g hægt í oll-
um aðgerðum í fyrri
hálfleik og var lítið skorað. ÍR byij-
aði þó betur og náði fljótlega tíu
stiga forystu, en Snæfellingar
reyndu hvað þeir gátu til þess að
komast inn í leikinn og það tókst
þeim undir lok fyrri hálfleiks. í leik-
hléi munaði þremur stigum, 35:32,
ÍR í hag.
Meiri hraði var í leiknum í síðari
hálfleik. Snæfellingar byijuðu betur
og þeir héldu í við ÍR-inga fyrstu
fimm mínúturnar. Eftir það tókst
leikmönnum IR að keyra örlítið upp
hraðann og gera út um leikinn, þó
enginn glæsibragur hafi verið þar á.
Það setti talsvert strik í reikning-
inn hjá Snæfellingum að Tómas
Hermannson, meiddist á ökkla fljót-
lega í síðari hálfleik, en hann hafði
fram að því leikið einna best af leik-
mönnum Snæfells.
John Rhodes og Jón Örn Guð-
mundsson voru bestir hjá ÍR. í liði
Snæfells var Raymond Hardin best-
ur. En víst er að bæði liðin geta
leikið miklu mun betur en þau sýndu
í gærkvöldi í Seljaskóla.
Ljóslaust
ÞEGAR sex mínútur og fjörutíu
sekúndur voru liðnar af leik ÍR
og Snæfells í Seljaskóla í gær-
kvöldi slökknuðu öll ljós í saln-
um nema við neyðarútgangana.
Mjög brösuglega gekk að
kveikja á ljósunum að nýju þvi
lekaliðsrofinn fyrir salinn sló út
jafn óðum og búið var að slá
honum inn. Eftir tíu mínútur,
og talsvert stapp, tókst að fá
ljósin í salnum til þess að loga.
Þá gat leikurinn hafist að nýju.
Leikmenn fengu örlítinn tíma
til þess að hita upp en síðan var
haldið áfram þar sem frá var
horfið.