Morgunblaðið - 11.03.1995, Side 9

Morgunblaðið - 11.03.1995, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ BÓK UM ÍSLENSK BÖRN OG LUNDA Flórída. Morgunblaðið. ÚT er komin í Bandaríkjunum bók einkum ætluð börnum enda fjallar hún um börn og lunda á Heimaey. „Nætur lundapysjanna" er heiti hennar. Höfundur er Bruce McMillan en útgefandi Houghton Miffin Company í Boston. Fyrsta upplag bókarinnar er 40 þúsund eintök og þegar hafa yfir 5000 bókasöfn og þúsundir skóla pantað eintök. í kynningu segir: „Spennuþráð- ur sögunnar er barátta barnanna við að bjarga lundapysjum, sem ekki ná til sjávar í fyrstu flugtil- raun sinni úr Stórhöfða. En bókin er einnig góð lýsing á háttalagi lundans. Ævintýrið um börnin og lund- ann er stutt í orðum en sterkast tala 43 gullfallegar litmyndir, og má með sanni segja að þar flytji hver mynd boðskap sem vart yrði sagður með þúsund orðum.“ Höfundur bókarinnar er búsett- ur í Maine í Bandaríkjunum og þaðan fór hann til íslands til að afla myndefnis í 32. barnabók sína, en þær þykja allar frábærar bæði sem vísinda- og náttúrurit. McMillan er líffræðingur frá Uni- versity of Maine. Bækur hans hafa hlotið ótal verðlaun. Höfundur tileinkar bókina vini sínum, Kristjáni Egilssyni for- stjóra sædýrasafnsins í Vest- mannaeyjum og telur hann í hópi fólks sem hafí gert honum kleift að semja þessa bók. TVÆR SYN- INGAR EFT- IRHJÁ SÖGU- SVUNTUNNI FYRIR skömmu frumsýndi brúðuleikhúsið Sögusvuntan nýtt leikrit fyrir börn: í húfu Guðs eftir Hallveigu Thorlac- ius. Leikstjóri sýningarinnar er Asa Hlín Svavarsdóttir. Hallveig Thorlacius gerði leik- mynd og brúður og leikur öll hlutverkin. Sigurður Guð- mundsson annast lýsingu. Nú eru aðeins tvær sýningar eftir, sunnudaginn 12. mars kl. 15 og sunnudaginn 19. mars kl. Í5. í kynningu segir: „Söguhetj- urnar í þessu leikriti, sem skrifað er fyrir börn á aldrin- um 3 ára og uppúr, eru sóttar í íslensku þjóðsögurnar. Þarna eru tröll og álfar og hinn skelfilegi Skuggabaldur sem hefur svo grimmilegt augna- ráð að enginn þolir að horfast í augu við hann, ekki einu sinni hann sjálfur. Áhorfendur fá ekki að sitja aðgerðarlausir í þessu leikhúsi, því þeir þurfa að leggja sig alla fram ef tröllastrákurinn hennar Skelli- nefju á að komast klakklaust í heiminn." Sögusvuntan er ferðaleik- hús og sýnir venjulega aðeins í skólum og leikskólum, en í tilefni af frumsýningunni verða örfáar sýningar til að gefa öllum sem þess óska kost á að sjá sýninguna. Sýningarnar eru að Frí- kirkjuvegi 11 og er miðasalan þar frá kl. 14. Sýningin tekur eina klukkustund. LAUGARDAGURll. MARZ 1995 E 9 KÓR LANGHOLTSKIRKJU SVIDSETUR JÓHANNESARPASSÍUNA EFTIR BACH KÓR Langholtskirkju undirbýr nú flutning Jóhannesarpassíunnar eftir J.S. Bach um bænadagana, þ.e. 13., 14. og 15. apríl nk. í kynningu segir: „Efni passíunn- ar er píslarsaga frelsarans sam- kvæmt frásögn Jóhannesar guð- spjallamanns. Form verksins er vissulega óratoríuform, en það form kemst næst óperuforminu. I með- förum meistara Bach á efninu er frásögnin svo leikræn að verkið gefur ekkert eftir mörgum óperum. Persónur eins og Jesús, Pílatus og Pétur, ásamt hópum sem saman- standa af t.d. hermönnum, æðstu- prestunum -og æstum lýðnum sem hrópar „krossfesstu hann“, verða ljóslifandi. Það hefur lengi verið draumur okkar að sviðsetja þetta verk og nú á að láta verða af því. Búið er að fá David Greenall dansa- höfund til að sjá um leikstjórn, en lögð verður áhersla á að undirstrika söguþráðinn fremur með hreyfing- um og uppstillingum en beinum leik.“ Hulda Kristín Magnúsdóttir mun sjá um búninga og sviðsmynd og Arni Baldvinsson um lýsingu. Svið- setning krefst fleiri einsöngvara en konsertuppfærsla, þar sem einn söngvari getur ekki sungið mörg hlutverk. Olöf Kolbrún Harðardóttir syngur sópranaríur, Sverrir Guð- jónsson altaríur, Kolbeinn Ketilsson tenóraríur og Loftur Erlingsson syngur bassaaríur. Michael Gold- thorpe fer með hlutverk guðspjalla- mannsins. Með hlutverk Jesú fer Sigurður Skagfjörð Steingrímsson og Eiríkur Hreinn Helgason syngur Pílatus. Með smærri hlutverk fara kórfélagar. Verkið verður flutt á skírdag, 13. apríl, föstudaginn langa, 14. apríl, og laugardaginn 15. apríl, alla dag- ana kl. 21.00. Tímasetningin er ákveðin eftir sólsetri, en sólsetur á skírdag er kl. 20.54. Þannig verður rökkrið hluti af lýsingunni, en sagan hefst á skírdagskvöld eftir að Jesús hefur neytt síðustu kvöldmáltíðarinnar með lærisveinum sínum og þeir halda út í grasgarðinn þar sem hann er tekinn höndum og hún endar þegar Jesús hefur verið lagð- ur í gröfina,“ segir ennfremur í kynningu. NELL KYNNIST SAMTÍMANUM Nóttúrubarnió Nell (Jodie Foster) ásamt leerimeisturum sin- um, Lovell (Liam Neeson) og Olson (Natasha Richardson). KVIKMYNÐIR Iláskólabíó Nell k 'k'lh Leikstjóri Michael Apted. Handrit William Nicholson og Mai'k Handley, byggt á leikritinu Idioglossia eftir Mark Handley. Kvikmyndatökustjóri Dante Spinotti. Tónlist Mark Isham. Aðalieikendur Jodie Foster, Liam Neeson, Natasha Richardson, Ric- hard Libertini, Nick Searcy, Robin Mullins. Bandarisk. 20th Century Fox/Polygram Film Intemational 1994. Nell (Jodie Foster) er ung kona sem alist hefur upp hjá móður sinni í fögru fásinni Blue Ridge Mounta- ins í Norður-Karólínufylki. Móðir hennar er málhölt og hefur haldið dóttur sinni í algjörri einangrun. Nell talar því sitt eigið hrognamál og er nánast villt og ótamin er læknirinn Lovell (Liam Neeson) finnur hana af tilviljun eftir að móðirin hefur fallið frá. Nú hefst mikil togstreita meðal vísinda- manna hvað eigi að gera við þetta undur náttúrunnar á atómöld. Lo- vell vill leyfa henni að vera í friði og lærir mál hennar, sálfræðingur- inn Paula Olsen (Natasha Richard- son) vill aftur á móti loka hana inni og verja fyrir umheiminum en þau snúa síðan bökum saman þeg- ar umheimurinn vill fá allt að vita um stúlkuna og framtíð hennar er í uppnámi. Oneitanlega frumlegt og athygl- isvert efni sem byggt er á leikriti sem heillaði svo stórleikkonuna Jodie Foster að hún framleiddi myndina sjálf. Hún fer einnig með brothætt aðalhlutverkið~ og er til- nefnd í ár til Óskarsverðlaunanna fyrir árangurinn. Nell er hlutverk sem býður uppá tilnefningar en tæpast verðlaun. Það er erfítt að kortleggja slíkar persónur, þær eru hreinn og klár spuni og Foster farnast ekkert of vel til að byija með (og minnir þá lengst af óþægi- lega á Brad Dourif) en nær því betri tökum á hinni smámsaman- tamdari Nell og það er reisn og hlýja yfir frábærum lokakaflanum þar sem leikstjóranum góðkunna, Michael Apted, og handrritshöf- undunum tekst ásamt Foster að ljúka þessu ótrúlega verki af metn- aði og trúverðugheitum. Án ódýrra niðurstaðna og þar liggur megin- styrkur myndarinnar ásamt hlýjum og mannlegum þáttum einsog sam- bandi Lovells og Nell, og dulúðin í kringum tvíburasambandið gefur Nell annað og meira gildi. Hinsvegar fer heldur lítið fyrir þeim ferskleika sem ætti að ein- kenna slíkt „náttúrubarn", hið framandi og óskerta er talsvert hollívúddlegt, vel kembt og þvegið með sitt kolgeitbros á hreinu. Sam- dráttur þeirra vísindamannanna, Lovells og Olson, er heldur aldrei trúverðugur (þó svo að þau séu gift í raunveruleikanum, Neeson og Richardson!). Nell er engu að síður óvenjulegt blóm í kvikmynda- flórunni sem á sína góðu kafla, einkum hvað snertir leikstjórnina og kvikmyndatakan og tónlistin eru i hæsta gæðaflokki. Þetta er metnaðarfull mynd en fullnægir því miður ekki í heild þeim kröfum sem maður gerir til hennar. Sæbjörn Valdimarsson MENNING/LISTIR NÆSTU VIKU MYNDLIST Kjarvalsstaðir Myndir Jóhannesar Kjarvals ór eigu safiis-1 ins. Kristín Jónsd. sýnir vefnað og teikning-1 John Lennons eru sýndar til 28. aprD. Ásmundarsafn Samsýn. á verkum Ásmundar Sveinss. I og Jóhannesar S. Kjarval til 14. maí. Safn Ásgríms Jónssonar Vatnslitam. Ásgríms til marsloka. Gerðuberg Jessie Kleemann sýnir til 19. mars. Listasafn Siguijóns Norræn höggmyndasýn.: Frá primitiv- isma til póstmódernisma til 20. mars. Norræna húsið Verk Antti Nurmesniemi til 2. apríl. Gallerí Borg Vignir Jóhannsson sýnir til 26. mars. Galleri Umbra Margrét Birgisdóttir sýnir til 29. mars. Hafnarborg Norræn höggmyndasýn.: Frá prímitív- isma til póstmódernisma til 20. mars. Listhús 39 Sveinn Björnsson sýnir til 13. mars. Listhúsið Laugardal Hlífar M. Snæbjömsson sýnir til 11. mars.| Gallerí Sævars Karls Margrét Adolfsd. sýnir til 15. mars. Gallerí Sólon íslandus Leo Santos sýnir textílverk til 15. mars. II hæð, Laugavegi 37 Verk Josefs Albers. Nýlistasafnið Helgi Þorgils Friðjónsson til 26. mars. | Við Hamarinn Samsýn. 12 ungra myndlistarmanna. Mokka Bjami Sigurbjömss. sýnir til 19. mars. Gerðarsafn Sýn. „Wollemi furan“ til 19. mars. Gallerí Birgis Andréssonar Fél. úr Myndlista- og handíðask. ásamt| Birgi Andréssyni til 26. mars. Gallerí Stöðlakot Heiðrún Þorgeirsd. sýnir til 26. mars. Gallerí Greip Þórdís Rögnvaldsd. sýnir til 19. mars. Listasafn íslands Verk Olle Bærtlings til 2. apríl. Listasafnið Akureyri Anders Boqvist, Ann Kr. Lislegaard, Peter| Hagdahl og Maria Lindberg sýna. Kirkjuhvoll Akranesi Auður Vésteinsdóttir sýnir til 19. mars. TONLIST Laugardagur 11. mars. Karlakórinn Lóuþrælar í Fella- og Hóla- kirkju kl. 17. Stórsveit Reykjavíkur i| Ráðhúsinu kl. 17. Lúðrasveitatónleikar | Perlunni kl. 15. Tónieikar í Digranes- kirkju; Rannveig Fríða Bragadóttir kl. I 17. Lúðrasveit Seltjarnamess í Seltjarn- arneskirkju kl. 17. Sunnudagur 12. mars Klassík fyrir börn. Tónsmiðurinn Her-| mes kl. 15. Tónl. Sinfóníuhlj. áhuga- manna í Fella- og Hólakirkju kl. 17.30. LEIKLIST Þjóðleikhúsið West Side Story lau. 11. mars., fös., lau. Taktu lagið, Lóa! lau. 11. mars., fim., fös., lau. Fávitinn sun. 12. mars., fim., lau. Snædrottningin sun. 12. mars kl. 14., sun. | Gauragangur þri. 14. mars., mið. Oleanna sun. 12. mars. Lofthræddi Örninn hann Örvar frums. sun. 12. mars kl. 15. Borgarleikhúsið Söngieikurinn Kabarett lau. 11. mars., lau.| Leynimelur 13 fös. 17. mars. Ófælna stúlkan þri. 14. mars. Framtíðardraugar lau. 11. mars, sun., mið, fim., lau. Dökku fiðrildin sun. 12. mars., fim. islenska óperan La Traviata lau. 11. mars, fös., lau. Sólstafir; Kammersv. Reykjav. sun. 12. | mare kl. 17. Frú Emiiía Kirsubeijagarðurinn sun. 12. mars., mán. Kaffileikhúsið Leggur og skel sun. 12. mars. Alheimsferðir Erna, lau. 11. mars., fös. ] Sápa tvö frums. fim. 16. mars. Skilaboð til Dimmu sun. 12. mars N emendaleikhúsið Tangó, lau. 11. mars., sun. Leikfélag Kópavogs Á gægjum lau. 11. mars. Leikfélag Mosfellssveitar Mjallhvít og dvergarnir sjö lau. 11. | mars. kl. 15, sun. kl. 15. Snúður og Snælda Reimleikar í Risinu sýn. alla þrid., fim. ] og lau. kl. 16., sun. kl. 18. Tjarnarbíó Baal lau. 11. mars. LISTAKLUBBUR LeikhúskjaUarinn „Ur ríki samviskunnar" Amnesty Int- emational mán. 13. mars kl. 20.30. KVIKMYNDIR MIR „900 dagar sem ekki gleymast*1 sun. kl. 16. | Norræna húsið Ronja ræningjadóttir sun. kl. 14.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.