Morgunblaðið - 11.03.1995, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 11. MARZ 1995 E 11
ÓPERUI—IÁTÍÐIM
í SAVONLINNA
JORMA Hynninen og Cynlhia Makris sem Macbeth og Lady Macbelh
i sýningu óperuhátidarinnar á Macbeth eftir Verdi.
Aulis Sallinen ÚR SÝNINGU á Hollendingnum fljúgandi.
Hin árlega óperuhá-
tíó í Savonlinna í Finn-
landi veróur haldin í
júlí. Súsanna Svav
arsdóttir kynnti sér
efnisskrá hátíðarinnar
þar sem fluttar veróa
fimm óperur, haldin
einsöngvarakeppni,
og tónleikahald er
mjög fjölbreytt í ár.
OPERUHÁTÍÐIN í Savonlinna
í Finnlandi stendur í sumar
frá 8. júlí til 5. ágúst. Hátíðin þyk-
ir með mikilvægustu óperuhátíðum
heimsins í dag og benda sérfræð-
ingar á hana sem raunhæfan val-
kost á móti Salzburg-Bayeruth
hátíðunum.
í sumar verður hátíðin fjölbreytt
eins og endranær. Auk uppfærslu
á hefðbundnum óperum, verður
frumflutt nýjasta ópera finnska
tónskáldsins Aulis Sallinen The
Palace eða Höllin. Gestir hátíðar-
innar koma frá Marinsky leikhús-
inu í Pétursborg og sýna Lady
Macbeth of Mtsensk eftir Shos-
takovich og Tosca eftir Puccini.
Tvær aðrar óperur verða sýndar á
hátíðinni; Macbeth eftir Verdi og
Hollendingurinn fljúgandi eftir
Wagner. Auk þess verður fjöldi
tónleika á hátíðinni og ber þar
hæst flutningur á Jóhannesarpass-
íu Bachs, undir stjórn Peter Schrei-
ers. Sem fyrr er óperusöngvarinn
Jorma Hynninen listrænn stjórn-
andi hátíðarinnar og framkvæmda-
stjóri Paavo Suokko.
Höll Sallinens
Höil Sallinens er samin við texta
þýsku höfundanna Hans Magnus
Enzensberger og Irene Dische.
Efniviður óperunnar kemur úr
tveimur ólíkum áttum, sem þó
tengjast á sérstæðan hátt. Nöfn
söguhetjanna Constance og Valm-
onte, Petruccio og Ossip virðast
skyld Konstanze og Belmonte,
Pedrillo og Osmin í Brottnáminu
úr kvennabúrinu eftir Mozart og
hér og þar í óperu Sallinens má
greina sömu einkenni og þær per-
sónur hafa. Hin uppsprettan kemur
frá skáldsögu pólska rithöfundar-
ins Ryszard Kapuscinski og fjallar
um fall síðasta keisara Eþíópíu,
Haile Selassie.
Hirðlíf með sínum hallærislegu
seremóníum og sérkennilegu regl-
um um tignarröð er tilvalið efni í
satíru, en þannig lýsir Sallinen
Höllinni. Hann segir tónlistina létt-
ari og líflegri en í fyrri óperum
sínum. En á bak við allt Spaugið
gerast vofeiflegir atburðir.
Höllin fjallar um vald og áhrif
þess. Þeir sem lifa næst því hafa
köfnunartilfinningu og verða að
komast í burtu. En þegar þeir
halda að þeir séu frjálsir komast
þeir að því að þótt valdið færist á
annarra hendur, hefur ekkert
breyst. Til að búa undir verndar-
væng valdsins verður fólk að temja
sér „gróteska" undirgefni, eða
þrælslund og að því er óspart gert
grín í Höllinni.
Óperan hefst á forleik, þar sem
skósveinar keisararns, Petruccio
og Ossip, velta því fyrir sér hvers
vegna hann hefur ekki birst í þtjá
daga. Lofsöngur hirðmanna hefur
ekki einu sinni fengið hann til að
láta sjá sig. Vangaveltur þeirra
leiða síðan áhorfandann inn í 1.
þátt þar sem dularfullur maður,
Valmonte, hefur birst í kastalanum
og komið sér í mjúkinn hjá sjálfri
hátigninni. Seinna reynir hann að
fá Constance drottningu til að flýja
með sér út í hinn frjálsa heim utan
hirðarinnar. Keisarinn kemst að
áætlunum hans og til að fá nánari
upplýsingar klæðist hann dular-
gervi og blandar geði við hirð sína,
en er handtekinn sem æsingamað-
ur og hýddur. Á meðan hefur
valdarán átt sér stað í höllinni og
nýr harðstjóri tekið yfir. Hann er
Valmonte.
Verkið er satíra og satírur geta
verið fyndnar, en undir niðri eru
þungir straumar ...
Frumsýningin verður 26. júlí og
er óperan sungin á finnsku. Hljóm-
sveitarstjóri er Okku Kamu og leik-
stjóri Kalle Holmberg.
Hollendingurinn
fljúgandi
Fyrsta sýning á Hollendingnum
fljúgandi verður 15. júlí. Hljóm-
sveitarstjóri er Gintaras Rinkevic-
ius og leikstjóri Ilkka Báckman og
er óperan sungin á finnsku.
Hollendingurinn er undir álög-
um. Honum hefur verið gert að
sigla um heimsins höf um alla ei-
lífð, nema honum verði bjargað af
ást trygglyndrar konu. Einu sinni
á ári fær hann að fara í land til
að leita að þannig konu. Hann
langar til að deyja.
Norski skipstjórinn Daland er
að koma til heimahafnar sinnar
eftir langa sjóferð. Hann hittir
Hollendinginn, sér að hann hefur
mikil auðævi meðferðis og býður
honum dóttur sína, Sentu, sem eig-
inkonu.
Senta 'þekkir goðsögnina um
Hollendinginn og þegar Daland
kemur með hann í heimsókn, þekk-
ir Senta manninn sem örlögin hafa
ætlað henni að bjarga og hún sver
honum ævarandi ást sína. En
Senta er þegar lofuð veiðimannin-
um Erik, sem þrábiður hana að
skipta um skoðun. Hollendingurinn
heyrir örvæntingarfullt tiltal Eriks
og er sannfærður um að Senta
hafi svikið sig. Hann gefur skip-
veijum sínum skipun um að sigla
á brott. Senta, trú skyldum sínum,
stekkur fram af hamri og deyr og
bjargar þarmeð Hollendingnum frá
álögunum.
Macbeth
Fyrsta sýning á Macbeth verður
19. júlí. Hljómsveitarstjóri er Leif
Segerstam og leikstjóri Ralf
Lángbacka.
Á leið heim úr bardaga hitta
Macbeth og Banquo nornir sem spá
þvi að Macbeth verði konungur og
að afkomendur Banquos verði kon-
ungar. Macbeth sendir konu sinni
skilaboð og segir henni frá spá-
dóminum. Hún fréttir að konung-
urinn, Duncan, ætli að heimsækja
kastala þeirra.
Á meðan konungurinn sefur,
drepa þau hjónin hann. Macbeth
lýsir sig konung Skotlands. Hann
byijar að óttast spádóm nornanna
um að afkomendur Banquos verði
konungar og lætur drepa hann, en
sonur Banquos kemst undan. Á
mikilli hátíð sem haldin er í kastal-
anum birtist vofa Banquos og
ásækir Macbeth.
Macbeth vill fá að vita nánar
um örlög sín og leitar ráða hjá
nornunum. Þær vara hann við
Macduff, en segja Macbeth að eng-
inn maður fæddur af konu geti
drepið hann. En spurningum hans
um hver taki við krúnunni að hon-
um gengnum, geta þær ekki svar-
að.
Enskur her, undir stjórn Malc-
olms, sonar hins myrta konungs,
Duncans, binst samtökum við
skoska útlaga sem hafa Macduff
að leiðtoga. Þeir stefna að kastala
Macbeths, sem snýst til varnar,
áhyggjulaus vegna spádóms norn-
anna. Macduff skorar á Macbeth
í einvígi, þar sem Macbeth fellur
og Macduff afhendir Malcolm
krúnuna og hann er lýstur konung-
ur.
Marinsky leikhúsió meó
tvær óperur
Marinski leikhúsið (áður Kirov)
frá Pétursborg sýnir Toscu og
Lady Macbeth of Mtsensk á hátíð-
inni. Fyrsta sýning á Toscu verður
8. júlí og á Lady Macbeth 10. júlí.
I Lady Macbeth of Mtsensk er
Katerina Ismailova, sem er leið á
lífi sínu sem eiginkona hins auðuga
kaupmanns Zinovy Ismailov.
Henni er bjargað út úr leiðindunum
af Sergei, nýjum aðstoðarmanni
eiginmannsins, og hefja þau eld-
heitt ástarsamband á meðan
Zinovy er í burtu.
Tengdafaðir hennar, Boris,
kemst að sambandinu og lætur
hýða Sergei, nærri til dauða, að
Katerinu aðsjáandi. Katerina þolir
ekki niðurlæginguna og drepur
Boris með því að setja rottueitur
í matinn hans.
Þegar Zinovy kemst að sambandi
Katerinu og Sergeis, drepa þau
hann og fela líkið í kjallaranum.
Þau gifta sig og í brúðkaupinu
finnur drukkinn bóndi lík Zinovys
og flýtir sér af stað til að láta lög-
regluna vita. Katerina og Sergei
eru send fótgangandi til Síberíu
með hópi af afbrotamönnum. Ser-
gei yfirgefur Katerinu og finnur
sér huggun hjá hinni fögru Sny-
etka. Katerina hrindir henni út í á
og fleygir sjálfri sér út í á eftir.
Afbrotamennirnir halda göngu
sinni til Síberíu áfram.
Tónleikar
Hátíðin hefst á sýningu Marin-
sky leikhússins á Toscu, 8. júlí.
Þann 9. júlí verða síðan ljóðatón-
leikar, þar sem Barbara Hendricks
sópransöngkona syngur við undir- *
leik Ralfs Gothónís.
Aðrir ljóðatónleikar verða 16.
júlí, þegar Jorma Silvasti tenór og
Ilkka Paananen píanóleikari flytja
Die Schöne Múllerin eftir Schubert.
17. júlí verða píanótónleikar.
Risto Lauriala leikur verk eftir
Bach, Beethoven, Schubert og
Liszt.
Trúarleg tónlist verður flutt á
tónleikum í dómkirkjunni í Savonl-
inna 20. júlí oæg 23. júlí verður
Jóhannesarpassían flutt. Flytjend-
ur eru Avanti! kammerhljómsveit-
in, Peter Schreier kórinn og ein-
söngvarar eru Peter Schreier, Sile
Isokoski, Monica Groop, Jorma
Silvasti, Walton Grönroos og Tom
Krause.
25. júlí verða tónleikar þar sem
flutt verður tónlist eftir ýmis
finnsk tónskáld við ljóð eftir skáld-
ið Eino Leino. Flytjendur eru
Jorma Hynninen tenór og Vesa-
Matti Loiri sópran, Ukka Paananen
píanó og Peter Lerche gítar.
1 lok hátíðarinnar fer fram
Mustakallio söngvarakeppnin og
hefst hún á tónleikum þar sem
fyrrum vinningshafar keppninnar
koma fram. Að þessu sinni eru það
sópransöngkonan Pia Freund og
bassinn Sami Luttinen. Lokadagur
keppninnar í ár er hins vegar 30.
júlí og verða verðlaunin þá afhent.
Hátíðinni lýkur 5. ágúst með
sýningu á hinni nýju óperu Höllin
eftir Aulis Sallinen.