Morgunblaðið - 17.03.1995, Side 1

Morgunblaðið - 17.03.1995, Side 1
HEIMILI fltagiittftfftfeffr B FOSTUDAGUR17. MARZ1995 BLA I'æiTi húsbréfa- umsóknir FÆRRI umsóknir um húsbréf voru lagðar inn hjá hús- bréfadeildinni í febrúar sl. en í sama mánuði i fyrra og voru umsóknirnar færri í öllum flokk- um nema vegna endurbóta. Ástæðurnar fyrir þessu kunna að vera fleiri en ein. í fyrsta lagi er hugsanlegt, að óvissa á vinnumarkaði hafi valdið því, að fólk bíði með fasteignakaup, þar til Ijóst yrði, hvernig kjarasamn- ingar myndu þróast. I öðru lagi er hert greiðslumat vafalaust farið að segja til sín, en gert hefur verið ráð fyrir, að það kunni að hafa minni hreyfingu á fasteignamarkaði í för með sér. Enn má gera ráð fyrir, að mark- aðurinn með húsbréf hafi haft einhver áhrif, en meðaltal ávöxt- unarkröfunnar í febrúar í ár var hærra en í sama mánuði f fyrra og afföll að sama skapi meiri. Veöurhjúpur í Mosfellsbæ IMOSFELLSBÆ er að rísa sér- stæð íbúðarbygging. Utan um íbúðarhúsið, sem verður rúmlega 100 ferm. og á einni hæð, er reistur 460 ferm. veð- urhjúpur úr gleri, sem verður yfir 6 metra hár, þar sem hann rís hæst. Veðurhjúpurinn verður því eins og hjálmur utan um íbúðarhúsið. Undir glerhjálmin- um verður ennfremur garður, þar sem skiptast á stéttir og stígar annars vegar og hins veg- ar gróðurbeð með suðrænum plöntum. Þarna eru að verki hjónin Svava Ágústsdóttir og Ólafur Sigurðsson arkitekt. I viðtali við Ólaf hér í blaðinu í dag er fjallað um þessa byggingu. Hérer vissulega um tilraun með nýstárlegt íbúðarform að ræða, segir Ólafur, sem mun henta íslending- um mjög vel í afar skjóllausu landi. Afgreiðslur i husbrefakerfinu Breyting í íebruan 1995 miðað við (eb. 1994 Greiðslumat (m.v. janúar 1995) Notaðar íbúðir -33,06% Endurbætur 9,52% Nýbyggingar einstaklinga -56,57% Nýbyggingar byggingaraðila -15,79% Samþykkt skuldabréfaskipti, fjöldi Notðar íbúðir -85,19% Endurbætur Nýbyggingar einstaklinga -34,29% Nýbyggingar byggingaraðila -36,00% Samþykkt skuldabréfaskipti, upphæðir Notðar ibúðir -35,48% -90,55% Endurbætur Nýbyggingar t instaklinga -40,20% Nýbyggingar byggingaraðiia -22,29% Samþykkt skuldabréfaskipti alls -43,46% Utgefin húsbréf, reiknað verð Núna er hagstætt að ávaxta peninga í skamman tíma. Hefur þú kynnt þér bankavíxla Islandsbanka og ríkisvíxla? Ef vextir á verðbréfamarkaði hækka getur verið ráðlegt að kaupa verðbréf til skamms tíma og eru því víxlar íslandsbanka og ríkisvíxlar til skamms tíma góður kostur. BANKAVÍXLAR íSLANDSBANKA: • Tímalengd: 45-120 dagar. • Lágmarksfjárhæð: 500.000 krónur. • Hægt að kaupa fyrir hvaða fjárhæð sem er þar yfir. • Enginn kostnaður við kaup og sölu. • Ókeypis innheimta víxlanna. • Þjónustufulltrúar íslandsbanka veita ráð- gjöf og upplýsingar. Ráðgjafar VÍB veita frekari upplýsingar um bankavíxla íslandsbanka og ríkisvíxla í afgreiðslunni í Ármúla 13a eða í síma 560-8900. Jafnframt er hægt að fá upplýsingar í útibúum íslandsbanka um allt land. Veríð velkomin í VIB. FORYSTA I FJÁRMALUM! VÍB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. • Aðili að Verðbréfaþingi íslands • Ármúla 13a, sími: 560-8900.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.