Morgunblaðið - 07.04.1995, Side 5

Morgunblaðið - 07.04.1995, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. APRÍL1995 B 5 KOSNINGAR 8. APRÍL Vöruverðið sem hækkar með ESB KORNVORUR eins og grjón og pasta, sykur og ávextir eins og ban- anar, epli og appelsínur munu hækka í verði við inngöngu okkar í ESB. Þetta er hin hliðin á ESB-málinu sem Al- þýðuflokkurinn hefur ekkert minnst á, en er brýnt að komi fram þeg- ar reynt er að telja fólki trú um að matarverð muni lækka um 40% með inngöngu okkar í ESB. Því miður eru út- reikningar Alþýðu- flokksins vafasamir og þeir munu ekki styðja málstað okkar sem teljum að innganga íslands í ESB eigi að vera á dagskrá. Þvert á móti getur málatilbúnaður sem þessi staðið í vegi fyrir heilbrigðri umræðu um ísland og ESB. Tökum dæmi af nokkrum fyrirsjá- anlegum hækkunum á matvælum með inngöngu okkar í ESB. Að sögn forráðamanna Bónus-verslananna mundi kílóverð af banönum hækka um allt að 100 kr. við inngöngu okk- ar í ESB. Á sl. ári voru flutt inn 3.600 tonn af banönum. Reikningur til innlendra neytenda yrði 360 millj- ónir króna. Þá mundum við ekki njóta niðurgreiðslna af appelsínum sem skattgreiðendur Evrópusambandsins þurfa að greiða með útflutningi. Nið- urgreiðslan nemur um 5 krónum á kílóið og útsöluverðið mundi því hækka um 20 kr. kílóið. Flutt eru inn rúmlega 2.000 tonn af appelsín- um á sl. ári. Reikningur til innlendra neytenda yrði um 40 milljónir króna. Þegar og ef við göngum í Evrópu- sambandið munum við niðurgreiða appelsínur til útflutnings frá Evrópu- sambandinu! Ef tekinn er saman áætlaður um- framkostnaður neytenda vegna hækkunar á sykri, komvörum og ávöxtum með inngöngu í ESB má ætla að hann verði rúmlega 1,1 millj- arður króna, miðað við sama inn- flutningsmagn og árið 1994. Þeir verslunarmenn sem náð hafa hvað lengst í því að lækka vöruverð hérlendis, eins og Bónus, hafa leitað fanga um vörur í Suður-Ameríku, Bandaríkjunum, Asíu og Evrópu. Áhyggjur þeirra eru þær að ef Island gangi í ESB minnki möguleikar þeirra á að nýta hag- kvæmustu innkaup hvaðan sem er í heim- inum og þeir verði neyddir til að einblína á Evrópumarkað. Áhyggjur þeirra eru ekki ástæðulausar. Það ríkir vemdarstefna í ESB-ríkjunum sem leiðir til þess að að- gangur annarra ríkja og hagkvæmustu framleiðslu utan Evrópusambandsins að Evrópumark- aði er takmarkaður. í staðinn er ver- ið að hygla vonlausum atvinnugrein- um og neytendur þurfa að greiða fyrir verndarstefnuna með hærra verði. Kvótar, tollar og innflutnings- takmarkanir eru í algleymingi í Evr- ópusambandinu. Innflutningstak- markanir eru á eplum, bananar eru með kvóta og vínber eru með kvóta Ýmsar vörur hækkuðu með ESB-aðild, segir Þór Sigfússon, en það er sú hlið málsins sem Alþýðu- flokkurinn þegir um. og tolla, svo eitthvað sé nefnt. Verð á þessum vörum mun hækka með inngöngu okkar í ESB en grænmeti og aðrar landbúnaðarafurðir munu lækka. Sjálfstæðismenn voru í farar- broddi þeirra sem vildu ganga í Frí- verslunarbandalag Evrópu, EFTA. Það er hins vegar grundvallarmunur á ESB og EFTA, í því fyrrnefnda ríkir vemdarstefna á ýmsum sviðum sem dregur niður lífskjör og eykur atvinnuleysi. Við sem teljum að inn- ganga íslands í ESB eigi að vera á dagskrá verðum að vera trúverðugir í okkar málflutningi og gagmýna úrelta vemdarstefnu, hvort sem hún er framkvæmd á íslandi eða í Evr- ópusambandinu. Höfundur er hagfræðingvr. Þór Sigfússon Verðbólga sanmefn- ari vinstri stjómar ÉG KEMST ekki hjá þvi að minna kjósendur, bæði húsbyggjendur, námsfólk og aðra lántakendur, sem eru með verðtryggð lán, á hvað taki við ef verðbólgan fer úr böndunum. En það gerir hún ef vinstri stjóm nær völdum. Skoðum eftirfarandi Valið ætti að vera auð- velt fyrir þá, segir Karl Ormsson, sem ekki vilja staðreyndir: Vinstristj. Verðb. fór í% 1956-1968 11,6 1971-1974 12,0 1978-1979 46,3 1980-1983 82,6 1988-1989 25,7 1989-1990 23,3 Ríkisstjóm Davíðs Oddssonar vera gjaldþrota. verðbólgan fór úr 5,3% „niður fyrir 0%“. Nú ætti valið að vera auðvelt fyrir þá sem ekki vilja verða gjald- þrota vegna verðbólg- unnar. Við búum við eitt lægsta verðbólgu- stig sem þekkist. Þessi lága verðbólga gerir það að verkum að nær óþekkt er að bankar láni verðtryggð lán, það borgar sig einfaldlega ekki. Það er ekkert út í bláinn þegar við sem erum búin að þrauka nokkrar vinstri stjómir, aðvörum alvarlega með- borgara okkar. Að veita vinstri flokk- unum aðstöðu að stjórn landsins er svo mikið ábyrgðarleysi og hrein sjálfseyðingarhvöt að engu tali tek- ur. Það eru engin dæmi þess að Karl Ormsson vinstri stjóm, samkvæmt meðfylgj- andi tölum, ráði við verðbólgudraug- inn. Það er ekki tilviljun að fyrir 8-10 árum var algengt að helmingur afborgana af lánum voru verðbætur. í dag eru verðbætur nánast mjólkur- peningar, nokkur hundruð krónur á ári af milljón króna láni. Þeir milljarðar í hús- bréfum, námslánum og rekstrarlánum mundu hækka í óviðráðanlegar upphæðir, aðeins við 10-12%o verðbólgu. Sumir kjósendur hafa verið spurðir: „Hvað ætlar þú að kjósa?“ Svarið er oftast: „Ég hef ekki ákveðið mig ennþá.“ Ef spurt væri: Vilt þú láta gera þig gjaldrþota? Skyldi fólk segja það sama? Að lokum vil ég segja þetta: Kjósum ekki yfir okkur vinstri glundroðann, og athug- um það, að engin vinstri stjóm hefur setið út heilt kjörtímabil. Höfundur er raftækjavörður. Yér mótmælum allir - ESB! HVERS VEGNA þessi mikla andstaða við ESB? Svar: Kvennalistinn er á móti karlmönnum; Al- þýðubandalagið er á móti athafnamönnum; Jóhanna er á móti Jóni Baldvini. Framsókn, hins vegar, er á móti þéttbýli. En Sjálf- stæðisflokkurinn? Hvers vegna þessi hat- ramma andstaða Sjálf- stæðisflokksins við ESB? Það er meira að segja bannað að ræða málið! Svar: Sjálfstæð- isflokkurinn er á móti breytingum. Næst er spurt: Hvers vegna vill Sjálfstæðisflokkurinn, málsvari áræðis og athafna, engu breyta? Við þessari þversagnakenndu spumingu fæst þversagnakennt tví- þætt svar: A) Framsókn í Sjálfstæð- isflokknum er dragbítur á allar framfarir og breytingar i Sjálfstæð- isflokknum. B) Kjördæmaskipunin á Islandi er dragbítur á allar fram- farir og breytingar á íslandi. Þessi þversagnakenndu svör, við þver- sagnakenndri spurningu, þarfnast að sjálfsögðu nánari útskýringar. A) Systraflokkamir, Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn, eru ná- skyldir eins og eineggja tvíburar. Framsókn er í Sjálfstæðisflokknum; Sjálfstæðisflokkurinn er í Fram- sókn. Frá hugmyndafræðilegu sjón- arsmiði er því nánast enginn munur á flokkunum, og ekki nema áherslu- munur: Framsókn (í Sjálfstæðis- flokknum) er aðallega málsvari landbúnaðarins; Sjálfstæðisflokk- urinn (í Framsókn) meira málsvari sjávarútvegs. Hvortveggja flokkur- inn er þannig fyrst og síðast málsvari fmm- vinnslugreinanna og því málsvari átaks og athafna, liðins tíma. (Rætur Framsóknar era í bændasamfélagi 19. aldar; Sjálfstæðis- flokkurinn svona tveim áratugum yngri, hug- myndafræðilega séð.) Þar fyrir utan er tví- flokkurinn á margan hátt vinveittur nú- tímaatvinnuháttum eins og þjónustu og iðnaði; að því tilskildu þó að hvergi halli á framvinnslugreinarnar. Framsókn í Sjálfstæðisflokknum er þar af leiðandi á móti ESB. Inn- ganga í ESB mundi ögra forrétt- indastöðu íslensks landbúnaðar á markaðinum. Eða eins og landbún- aðarráðherra svo skorinort orðaði það á dögunum í sjónvarpinu (í útsendingu með formanni Neyt- endasamtakanna): Sjálfstæðis- flokkurinn tekur ekki svari neyt- enda í þéttbýlinu, þ.e. 90% lands- manna, í baráttunni við miðstýrðan áætlunarbúskap í landbúnaði. Punktur, basta! (Svona inni á milli sviga: í reynd er ESB-andstaðan eingöngu frá landbúnaðinum og ekki sjávarútveginum, eins og þó oft er látið í veðri vaka. ESB-málið er raunar sjávarútveginum og yfir- ráðunum yfir fiskimiðunum aldeilis óviðkomandi.) B) Kjördæmaskipunin veldur því að atkvæðin á landsbyggðinni era miklum mun gildari en atkvæðin á mölinni. Við óbreytta kjördæma- skipun kemur því aldrei til eðlilegs uppgjörs í landinu á milli frum- Sjálfstæðisflokkurinn er of stór til þess að taka pólitíska afstöðu, segir Þór Rögnvaldsson, og pólitíska áhættu. vinnslugreinanna annars vegar; þjónustu og iðnaðar hins vegar. (Fyrr eða síðar kemur þó að því. Fyrr eða síðar bankar nútíminn upp á, líka, og kannski ekki síst, hjá Sj álfstæðisflokknum.) Að endingu þetta. Hvortveggja systraflokkurinn, þ.e. tvíflokkurinn, gefur sig út fyrir að vera „öfgalaus miðjuflokkur", og sækir fylgi sitt til „allra landsmanna". Þetta á ekki síst við um Sjálfstæðisflokkinn sem þegar á í mestu brösum við að halda öllu sínu mikla fylgi innanborðs. Við þessar erfiðu aðstæður er kannski ofurskiljanlegt að flokkur- inn meti stöðuna sem svo að öfga- laust afstöðuleysið, þ.e. óbreytt ástand og andstaða við ESB, sé besti kosturinn fyrir komandi kosn- ingar. Flokkurinn er einfaldlega of stór til þess að taka þá pólitísku áhættu að taka pólitíska afstöðu. í öfgalausu pólitlsku afstöðuleysi sínu fær Sjálfstæðisflokkurinn svo á sig nýtt yfirbragð sem einna helst minnir á fyrirtækjasamsteypu (frekar en stjómmálasamtök); þ.e. Atkvæðasmölun hf. Þeir mótmæla allir kalli tímans, sem ríghalda í fagrar hugsjónir lið- ins tíma, og þverskallast með öllu við því að ganga hugsjónum sam- tímans á hönd. Höfundur er heimspekingur. Þór Rögnvaldsson Fatlaðir hafa verið ósýnilegur hópur ALÞÝÐUFLOKK- URINN hefur einn flokka sett málefni fatlaðra á oddinn í sinni kosningabaráttu. Á lof- orðalistum hinna stjórnmálaflokkanna hafa málefni fatlaðra í mesta lagi, ef þeirra er að nokkra getið, verið afgreidd í einni setningu sem gjaman byijar á: „Stuðla skal að bættum hag ... o.s.frv." Fatlaðir hafa verið lítið sýnilegur hópur í okkar þjóðfélagi og málefni þeirra mest verið rædd í þröngum hópum hagsmunaaðila. Afar lítið hefur farið fyrir þeim í almennri stjórnmálaumræðu, svo lítið að til tals hefur komið að fatlaðir stofn- uðu sinn eigin stjórnmálaflokk. Það hefur þó helst verið fyrir tilstilli Alþýðuflokksins, t.d. við setningu og endurskoðun laga um málefni fatlaðra að þessi þjóðfélagshópur og þeir sem honum tengjast hafa komist á dagskrá. Það þarf kjark til að draga málefni minnihluta- hópa fram í dagsljósið. Alþýðu- flokkurinn hefur þann kjark sem til þarf. Fatlaðir og aðrir minni- hlutahópar hafa ekki verið vinsælt umræðuefni stjórnmálanna hér á landi. Reynsla annarra landa sýnir að það er ekki fyrr en fatlaðir eign- ast öfluga talsmenn á þjóðþingum sem mál þeirra komast í virka umræðu og öðlast það vægi sem þeim ber. Skipan framboðslista flokksins staðfestir að Alþýðuflokknum er alvara með því að vinna áfram og enn betur að bættum hag fatlaðra. Ásta B. Þor- steinsdóttir sem er í baráttusæti flokksins í Reykjavík er kona sem þekkt er af störf- um sínum að hags- muna- og réttindamál- um fatlaðra. í henni eiga fatlaðir og þeir sem bera hag þeirra fyrir bijósti von um að eignast öflugan talsmann á Alþingi íslend- inga. Bættur hagur fatlaðra þýðir bættan hag fyrir flesta ef ekki alla aðra og leiðir þannig til betra mannlífs, betra samfélags. Framf- arir í búsetumálum og aukinn rétt- ur fatlaðra í félagslega húsnæði- skerfmu gagnast ekki einungis fötl- uðum heldur ófötluðum einnig. Stuðningur við fatlaða í mennta- kerfinu, t.d. með innkomu fleiri fagstétta í skólum, kemur öllum nemendum til góða. Það gildir gjarnan það sama um okkur sem vinnum með fötluðum og fatlaða sjálfa. Störf okkar eru meira og minna ósýnileg. Erfitt hefur reynst að fá þessi störf metin að verðleik- um og þar með til launa. Þær stétt- ir sem eru að vinna með fötluðum eru láglaunastéttir. Við í Alþýðu- Efnahagsbatinn þarf, að mati Hrefnu Har- aldsdóttur, að skila sér til láglaunafólks. flokkpum viljum sjá breyttar áherslur. Bætt og aukin þjónusta við fatlaða þýðir fleiri stöðugildi, betri kjör og meiri atvinnu. Kröpp kjör og of lítil mönnun á stofnunum og heimilum fatlaðra hefur leitt af sér mikið álag á starfsfólk. Þrátt fyrir atvinnuleysi hefur þó stundum reynst erfítt að fá fólk til starfa á þeim kjörum sem okkur eru boðin sem sinnum þessum störfum. Það kemur síðan fram í aukinni veikind- atíðni og öram mannabreytingum sem leiðir af sér verri þjónustu. Alþýðuflokkurinn vill að sá efna- hagsbati sem hefur áunnist á síð- ustu misseram skili sér til þeirra sem lægst hafa launin, til þeirra sem mest hafa lagt á sig til að gera þennan efnahagsbata að vera- leika. Trúum á að betri tíð sé fram- undan og að jafnaðarstefnan nái að sanna gildi sitt. Tryggjum að verðugur málsvari fatlaðra og ann- arra minnihlutahópa, Ásta B. Þor- steinsdóttir, nái kjöri í kosningun- um laugardaginn 8. apríl. Höfundur er formaður Félags þroskaþjálfa og starfsmaður Styrktarfélags vangefinna. Hrefna Haraldsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.