Morgunblaðið - 11.04.1995, Blaðsíða 7
6 C ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
+
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1995 C 7
SKIÐAMOT ISLANDS
SKIÐAMOT ISLANDS
Amór Gunnarsson
sterkur á heimavelli
ARNÓR Gunnarsson var sigur-
sæll á heimavelli sínum á
Skíðamóti íslands á ísafirði.
Hann sigraði í svigi á laugar-
daginn og um leið í alpatví-
keppni því hann varð þriðji í
stórsviginu á föstudag. Hann
bætti síðan öðrum sigri í safnið
er hann varð fyrstur í alþjóð-
lega svigmótinu á sunnudaginn
og síðan bronsverðlaunum fyr-
ir samhliðasvig sem var síð-
asta keppnisgrein landsmóts-
ins. „Það hefur alltaf verið
draumurinn að verða íslands-
meistari á heimavelli og nú er
sá draumur orðinn að veru-
leika," sagði Arnór. Jóhann
Haukur Hafstein, sem er á
sextánda ári, kom mjög á óvart
með því að lenda í öðru sæti
og sama má segja um Val
Traustason frá Dalvík, sem
varð þriðji.
Arnór var með lang besta tímann
eftir fyrri umferð svigsins,
1,41 sekúndu á undan Vilhel Þor-
steinssyni, sem varð
ValurB. annar °g rúmlega
Jónatanssor þremur sekúndum á
skrítar undan Gunnlaugi
Magnússyni sem var
með þriðja tímann. Kristinn Björns-
son, sem fyrirfram var talinn sigur-
stanglegastur, datt í fyrri umferð-
inni: „Eg fór á efra skíðið og yfir-
kantaði. Það var voðalega erfitt
færi í brautinni og hentað mér alls
ekki,“ sagði Kristinn. Haukur Arn-
órsson keyrði einnig útúr í fyrri ferð.
Vilhelm fór næstur á undan Arn-
óri niður í síðari umferð og keyrði
mög greitt og náði frábærum tíma.
Arnór kom á eftir og var með tveim-
ur sekúndum lakari tíma en Vilhelm.
Síðar kom í Ijós að Vilhelm hafði
tekið stöng í klofið og þvf sleppt
hliði og það sama gerði Gunnlaugur
Magnússon. Jóhann Haukur Haf-
stein átti mjög góða síðari umferð
og náði þá næst besta tíma íslend-
inganna, 0,82 sekúndum á eftir Arn-
óri. „Þetta var rosalega erfitt. Ég
er svo kvefaður að ég átti erfitt með
öndun. En ég er í sjöunda himni
með silfurpeninginn,“ sagði Jóhann
Haukur.
Mótið var jafnframt eitt af sex í
Icelandair Cup mótaröðinni sem
fram fer hér á landi þessa vikuna.
Mikið fall var í sviginu og voru að-
eins 14 keppendur af 36 sem kom-
ust niður báðar umferðirnar. Brautin
var krefjandi og eins var færið í
brautinni nokkuð erfitt.
Rosalega gaman
„Þetta var rosalega gaman að
vinna hér á heimavelli og þetta gekk
betur en ég þorði að vona. Ég var
búinn að segja að ég ætlaði mér að
ná í gull hér og stóð við það,“ sagði
Islandsmeistarinn eftir sigurinn í
sviginu.
„Ég náði mér vel á strik í fyrri
umferðinni enda var brautin þá
fryst. í síðari umferðinni reyndi ég
einnig að keyra en náði því ekki
alveg, en það dugði samt. Það var
leiðinlegt að Vilhelm var dæmdur
úr leik, en svona er þetta nú einu
sinni og rétt skal vera rétt. Það
hefði verið enn skemmtilegra ef
Kristinn og Vilhelm hefðu klárað
bæði svigin.“
Arnór segist hafa tekið miklum
framförum í svigi í vetur. „Ég er
nú kominn með 28 punkta í svigi,
en stórsvigið er ekki alveg nægilega
gott hjá mér og þar þarf ég að
bæta mig því ég er aðeins með 44
punkta. Eg er ákveðinn í að halda
áfram að æfa næsta vetur. Við höfð-
um mjög gott af dvölinni í Austur-
ríki í vetur, en það má alltaf gera
enn betur. Ef við ætlum að bæta
okkur verðum við að vera erlendis,"
sagði Arnór.
Skammvinn gleði
hjá Vilhelm
SVIGIÐ á laugardag var nokkuð sögulegt. Akureyringurinn
Vilhelm Þorsteinsson var með besta timann eftir báðar umferð-
ir og fagnaði vel „sigri“ er hann kom í markið. En sú gleði var
skammvinn því hann var dæmdur úr leik fyrir að sleppa porti.
Vilhelm var ekki alveg sáttur við það. „Ég sleppti ekki, ég trúi
því ekki,“ sagði hann og lagði inn kæru. Eftir klukkustundar
rekistefnu dómnefndar þar sem m.a. myndband Sjónvarpsins
var notað. Það var erfið bið hjá þeim Vilhelm og Arnóri meðan
dómnefnd fundaði, enda mikið I húfi því sigur í sviginu gaf
einnig sigur i alpatvíkeppninni og alþjóðamótinu Icelandair
Cup. Síðan kom niðurstaðan; „kæran er ekki tekin til greina“
og þá gekk Vilhelm niðurlútur í burtu en Arnór fagnaði. „Ég
gat bara ekki trúað því þegar ég kom niður að ég hefði sleppt
— mér fannst það ekki. En eftir að ég sá atvikið endursýnt í
sjónvarpinu var það rétt ákvörðun að dæma mig úr leik,“ sagði
Vilhelm daginn eftir.
' __ if///
jsr£
Égerfarinað
þekkja þessa t'rtla
- sagði Ásta S. Halldórsdóttir sem varð fjórfaldur meistari
ÁSTA S. Halldórsdóttir frá
ísafirði stal senunni á Skíða-
móti íslands að þessu sinni
eins og reyndar mörg undan-
farin ár. Hún hafði mikla yfir-
burði og sigraði í öllum grein-
unum; svigi, stórsvigi, alpatví-
keppni og samhliðasvigi. „Ég
er farin að þekkja þessa titla
ágætlega. Ég er mjög ánægð.
Það gekk allt upp hjá mér,“
sagði Ásta sem hefur unnið
alls 20 íslandsmeistaratitla
síðan 1987.
Asta var rúmlega sex sekúndum
á undan næsta keppanda í
svigfinu á laugardaginn og það segir
allt um yfirburði hennar. Sigríður
Þorláksdóttir varð önnur og Hallfríð-
ur Hilmarsdóttir þriðja, en þær keppa
báðar fyrir Akureyri. Aðeins sex
stúlkur komust í gegnum svigið báð-
ar ferðir, enda brautin mjög erfið
og krefjandi.
„Ég reyni auðvitað að standa mig
í þessum fáu mótum sem ég keppi
í hér á íslandi," sagði Ásta. En er
ekki of mikill tímamunur á henni og
hinum stúlkunum? „Ég held að mun-
urinn á mér og hinum hafi hvorki
aukist né minnkað síðan í fyrra.
Þannig að ég hugsa að okkur hafi
öllum farið fram. Ég hef bætt mig
mjög mikið í stórsvigi í vetur og það
er gaman að sjá að þær hafa einnig
bætt sig verulega þar. Það verður
líka að segjast að ég er búin að vera
í þessu mun lengur en þær,“ sagði
Ásta sem er 24 ára.
„Mótið heppnaðist mjög vel. Það
var gaman að þetta tókst svona vel
því það áttu fáir von á því að ísfirð-
ingar gætu haldið mótið í ár. Færið
var reyndar ekki upp á það allra
besta. Það má alltaf búast við svona
mjúkum snjó hér á íslandi, en móts-
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Arnór á sigurbraut
ARNÓR Gunnarsson var sigursæll á heimavelli sínum á ísafirði. Hann varð tvöfaldur íslandsmeistari
og sigraði auk þess í tveimur alþjóAlegum svigmótum. Hér er hann ð fullri ferA í sviginu á sunnudag.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
ÁSTA var sigursælust allra keppenda á SkíAamóti íslands.
Hér er hún í góðum félagsskap norsku helmsblkarkvenn-
anna, Trude Glmle og Trlne Bakke, sem voru mjög ánægðar
með skíðabrekkurnar á ísafirðl.
A útopnu
VILHELM Þorsteinsson
mættl Kristni Björnssyni í
úrslitum í samhllðasviglnu
og hafði betur. Þetta var
annar sigur hans í samhlið-
asvlgi á landsmóti.
Vilhelm hreppti
gullið í síðustu grein
VILHELM Þorsteinsson frá
Akureyri <?g Ásta S. Halldórs-
dóttir frá ísafirði urðu íslands-
meistarar í samhliðasvigi,
sem var síðasta grein 54.
Skíðamóts íslands sem lauk á
ísafirði á sunnudaginn.
Vilhelm mætti Kristni Bjöms-
syni frá Ólafsfirði í úrslitum.
Þeir fóru aðeins eina ferð því
Kristinn krækti fyrir stöng og
hætti og þar með var Vilhelm
meistari. „Ég vissi ekki fyrr en
Kristinn kom æðandi framúr mér
í brunstöðu og þá vissi ég að eitt-
hvað hafði komið fyrir hjá hon-
um.“ sagði Vilhelm.
í undanúrslitum mættust
frændurnir Vilhelm og Arnór
Gunnarsson frá ísafirði. í fyrri
umferðinni voru þeir alveg hníf-
jafnir og í síðari umferðinni var
Vilhelm aðeins 0,02 sekúndum á
undan og komst í úrslit. Kristinn
mætti Agli Birgissyni í undanúr-
slitum og vann báðar ferðir. Arnór
vann síðan Egil í keppninni um
bronsið.
„Ég er sérstaklega ánægður
með að hafa náð að slá bæði Krist-
in og Arnór út. Það má því segja
að ég hafi fengið uppreisn æru
eftir það sem á undan var gengið.
Þegar vel gengur gleymir maður
því sem illa gekk. Ég get heldur
ekki verið annað en ánægður með
stórsvigið. Ég sýndi í seinni ferð-
inni að ég get þetta vel. Ég fer
því nokkuð ánægður frá ísafirði,
með ein gullverðlaun og ein silfur-
verðlaun í farangrinum,“ sagð
Vilhelm sem vann einnig þessa
grein á landsmóti 1992.
Létt hjá Ástu
Ásta S. Halldórsdóttir sigraði í
samhliðasviginu og var þetta fjórði
sigur hennar í samhliðasvigi á
landsmóti, vann fyrst 1987. Hún
mætti Sigríði Þoriáksdóttur frá
Akureyri í úrslitum og vann nokk-
uð létt í báðum umferðum.
Ásta vann Hallfríði Hilmars-
dóttur fyrst og síðan mætti hún
Hrefnu Oladóttur í undanúrslitum.
Ásta vann allar ferðirnir. Hrefna
hafnaði í þriðja sæti eftir að Eva
Björk Bragadóttir gaf því hún
meiddist á hné í ferðinni á undan
og treysti sér ekki til að keppa
um bronsið.
Skíðafærid er vandamálið á íslandi
LANDLIÐSÞJÁLFARINN
Zbigniew Kaminski var á
ísafirði og fylgdist með lands-
mótinu. Hann sagði að mótið
hafi tekist nokkuð vel en var
ekki ánægður með skíðafærið
fbrautunum. „Það er mikil-
vægt að brekkurnar séu vel
undirbúnar og það háði bestu
skfðamönnunum nokkuðog
þá sérstaklega Kristni," sagði
Kaminski.
Kaminski sagði að brekkurnar
væru í sjálfum sér ekkert
vandamál, heldur væri það snjór-
inn. „Þegar ég kem hingað til
íslands spyija allir um veðrið. Ég
tel að veðrið sé ekkert vandamál
heldur er það snjórinn í brautun-
um sem er númer eitt tvö og þrjú.
Þegar snjórinn er svona mjúkur
eins og hann var hér geta kepp-
endur ekki notfært sér þá tækni
sem þeir hafa verið að tileinka sér
í allan vetur. Þetta er eins og ef
handboltalið væri að æfa í fal-
legri íþróttahöll, en gólfið væri
úr grasi eða sandi — það yrði
ekki sama íþrótt,“ sagði þjálfar-
inn.
„Vandamálið hér á íslandi er
að færið er yfirleitt svo mjúkt og
þá er ekki hægt á æfa þá tækni
sem þarf til að ná árangri erlend-
is. í Áusturríki þar sem við höfum
verið með landsliðið í vetur, slepp-
um við að fara á skíði ef færið
er ekki eins og við viljum hafa
það. Þá er betra að gera eitthvað
annað. Það er mikilvægt að halda
áfram með landsliðið í Austurríki
ef bæta á árangurinn. Landsliðs-
strákamir hafa sýnt miklar fram-
farir í vetur og er það fyrst og
fremst vegna aðstöðunnar sem
þeir hafa umfram aðra sem æfa
hér á íslandi."
- Verður þú áfram með landslið-
ið næsta vetur?
„Ég veit það ekki. Ég hef áhuga
á að vera áfram, en ég verð ekki
áfram ef ég á að vera einn með
liðið. Það gengur einfaldlega ekki
upp, ég er alveg búinn eftir þenn-
an vetur því þetta hefur verið
mjög erfitt og krefjandi starf. Það
eru ekki bara æfingarnar heldur
allt annað í kringum liðið, sem
tekur mikinn tíma. Við erum til
dæmis búnir að keyra yfir 40
þúsund kílómetra í mót í vetur.
En þetta kostar allt mikla peninga
og Skíðasambandið verður að
leggja línurnar fyrir næsta vetur.“
- Krístinn hefur veríð að gera
góða hiuti í vetur, sérstaklega í
risasvigi. Hveriir eru möguleikar
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
KAMINSKI seglst ekkl treysta sér tll að vera ðfram elnn með lands-
IIAIA. „Ef ég fæ annan þjáifara meA mér er ég tilbúlnn annars mun
ég lelta mér aA öðru starfi,“ sagðl hann. Hér rœðlr hann vlð Vllhelm
Þorstelnsson, sem bíður hér eftlr niAurstöðu dómnefndar í svlginu.
hans á að bæta sig enn meira?
„Hann á vissulega mikla mögu-
leika, en hann verður líka að fá
að æfa við bestu aðstæður. Hann
er kominn það langt á undan hin-
um í liðinu að hann á varla sam-
leið með þeim næsta vetur. Hann
þyrfti helst einkaþjálfara og það
kostar að sjálfsögðu mikla pen-
inga og það er jú vandamálið.“
- Hefur þú trú á því að Kristinn
nái árangri í heimsbikarnum og
þá sérstaklega í risasvigi?
„Það veltur á ýmsu. Hann hef-
ur þegar náð góðum árangri í
vetur og er góð auglýsing fyrir
Island. Það er mikill munur á
Evrógubikarnum og heimsbikarn-
um. Ég held að það sé best fyrir
hann að einbeita sér að Evrópu-
bikarnum næsta vetur og ef það
gengur vel er alltaf hægt að fara
í eitt og eitt heimsbikarmót."
Hann sagði að auðvitað væri
erfitt fyrir strákana að vera svona
lengi frá fjölskyldum sínum. „Það
tekur oft á taugarnar að vera
svona lengi fjarri heimilum sínum.
Þeir hafa haft mjög gott að þvi
andlega að koma heim á lands-
mótið og hitta fjölskyldur sínar,
þó svo að ég hefði kosið að þeir
tækju þátt í sterkari mótum er-
lendis á sama tíma.“
haldarar reyndu að gera það sem
þeir gátu. Ég get ekki sett út á neitt,
brautimar vom allar mjög góðar
þegar ég fór niður. Góður skíðamað-
ur á að geta skíðað í öllu færi,“ sagði
skíðadrottningin.
Norskur
sigur
Norsku stúlkurnar, Trude Gimle
og Trine Bakke, skiptu með
sér gullverðlaununum í alþjóðlegu
svigmótunum Icelandair Cup sem
fór fram samhliða Skíðamóti ís-
lands á laugardag og sunnudag.
Gimle sigraði á laugardag og var
þá rúmlega sekúndu á undan Ástu
Halldórsdóttur, sem varð önnur.
Bakke varð í þriðja sæti og Sigríður
Þorláksdóttir frá Akureyri fjórða.
í sviginu á sunnudag sigraði hins
vegar Trine Bakke með yfirburðum.
Hún var rúmlega sex sekúndum á
undan Sigríði Þorláksdóttur og
Hallfríður Hilmarsdóttir varð
þriðja. Bæði Tmde Gimle og Ásta
keyrðu út úr í síðari umferð eftir
að hafa haft tvo bestu brautar-
tímana eftir fyrri umferð.
Arnór Gunnarsson sigraði í báð_-
um alþjóðlegu svigmótunum. Á
laugardag var hann fjóram sekúnd-
um á undan Matjaz Stare frá Slóv-
eníu sem varð annar. Jóhann Hauk-
ur Hafstein varð þriðji, rúmlega sex
sekúndum á eftir Amóri.
Á sunnudaginn var Arnór aftur
í fyrsta sæti, Haukur Amórsson úr
Reykjavík í öðru, en hann hafði
besta tímann í fyrri umferð. Matjaz
Stare frá Slóveníu varð þriðji.
Alþjóðamótaröðin heldur áfram á
Akureyri í dag og á morgun og
verður keppt í svigi karla og
kvenna.
Gott mót á
nýju svæði
Björn Helgason, mótstjóri
Skíðamóts íslands, var
ánægður með framkvæmd móts-
ins. „Ég get ekki verið annað en
ánægður með mótahaldið miðað
við það að við eram á nýju svæði
í Tungudal. Ég held að það sé einn-
ig samdóma álit keppenda. Við
erum með gott starfsfólk sem
kann til verka og eins lék veðrið
við okkur. Það eina sem er hugsan-
lega hægt að setja út á er að
brekkurnar voru ekki nægilega vel
undirbúnar — ekki nógu harðar.
Við fengum ekki nýja snjótroðar-
ann fyrr en nokkram dögum fýrir
mót og eins var ekki búið að skíða
mikið í keppnisbrekkunum. Við
reyndum að gera okkar besta,
meðal annars að frysta brautimar.
Það vora allir mjög ánægðir með
brekkurnar og ég er viss um að
aðalkeppnissvæði okkar ísfirðinga
verður í Tungudal í framtíðinni."
Björn sagði að göngugreinarnar
hafi tekist mjög vel, en göngu-
svæðið er á fallegu svæði í Tugu-
skóginum og gefur mikla mögu-
leika. „Ef á heildina er litið getum
við borið höfuðið hátt. Við höfum
sýnt og sannað að hér hefur
heimavinnan verið unnin,“ sagði
Bjöm.
íntinm
Ef þú smellir á
íHám
færðu allt sem
skrifað er um
íþróttir í
Morgunblaðinu
í dag.
Prófaðu!
r
http://www.strengur.is