Morgunblaðið - 28.04.1995, Blaðsíða 1
Hvers vegna byrja
unglingarnir að reykja
REYKSKÝ af völdum tóbaks ættu
víða að þynnast fimmtudaginn 4.
maí. Tóbaksvarnanefnd hefur
ákveðið að sá dagur verði reyklaus
og núna helgaður spurningunni
hvers vegna unglingar byiji að
reykja. Allir unglingar 15 til 18
ára eiga að fá blaðið Skýlaust sem
Tóbaksvarnanefnd og Krabba-
meinsfélagið gefa út.
Þar eru upplýsingar um skað-
semi reykinga, viðtöl og ráð til
þess að hætta að reykja. „Reyk-
laus á tíu' dögum“ segir á baksíðu
og fylgja hagnýt og einföld atriði
til _að hætta reykingum.
í apótekum og hjá Krabba-
meinsfélaginu fæst ókeypis smárit
„Ekki fórn - heldur frelsun" með
fróðleik um reykingar og leiðbein-
ingar til að láta af þeim. í ritinu
eru kaflar um undirbúning þess
að hætta reykingum, sjálfskönnun
og ábendingar og ráð um fyrstu
14 dagana eftir að drepið er í.
Reyklausi dagurinn er haldinn
árlega til að hvetja fólk til að láta
af tóbaksnotkun. Ljósinu er nú
beint að unglingum, enda hefur
aukning aftur orðið á reykingum
í aldurshópnum 15-16 ára. í bréfi
Tóbaksvarnanefndar til fjölmiðla
er bent á tískuna, sem virðist kalla
á auknar reykingar, og jafnframt
sag^ að notkun svokallaðs snuffs
fyrir nef og munn hafi aukist. Það
leiði oftar en ekki til reykinga.
Þá segir að sígarettuauglýsing-
ar í erlendum blöðum og bíómynd-
um virðist skila sér, þótt óheimilt
sé að auglýsa tóbak hér. Auk þess
virðist banni við sölu tóbaks til
yngri en 16 ára ekki vera fram-
fylgt. Fvrirmyndir skipti miklu og
fullorðnir ættu að láta tóbak vera
í návist unglinga og barna. ■
pltrgitwMííblíí
FÖSTUDAGUR
28. APRÍL 1995
B
SKÝLAUSAR skoðanir ungs
fólks á skaðsemi og tilgangs-
leysi reykinga koma fram í
blaði sem allir 15-18 ára eiga
að fá núna í tilefni reyklausa
dagsins.
BIÐRAÐIR verða Iíklegra styttri í Leifsstöð í framtíðinni.
Innritun í flug
í gegnum síma
N aflaskoðun
á norrænni ráðstefnu
VIÐHORF karla til húsverka, ólétti pabb-
inn, árásarhvöt, styijaldir, kynvald karl-
mannsins og hugmyndaflug skynseminnar.
■JP Þetta eru yfirskriftir á nokkrum
■gp þeirra fjölmörgu málstofa sem eru í
gangi á tveggja daga karlaráðstefnu í
Stokkhólmi sem lýkur síðdegis í dag,
föstudag.
"2 Á fjórða tug íslenskra karlmanna
■5 og nokkrar íslenskar konur sitja ráð-
^ stefnuna og það er athyglisvert hversu
mmm íslenski aldurshópurinn er breiður, tví-
tugir menn og karlar langt fram á sjötugsald-
ur lögðu leið sína til Stokk-hólms. ís-
lensku þátttakendumir eru ^ hlutfalls-
lega margir en nálægt _ 500
norrænir karlmenn
sitja ráðstefnuna,
Finnar eru til dæmis
færri en íslendingar
en Svíar í miklum
meirihluta.
Spurningar fleiri en svörin
Sænski varaforsætis- og jafnréttisráðherr-
ann Mona Sahlin, sem setti ráðstefnuna,
sagði í ávarp sínu að í jafnréttisbaráttunni
mætti ekki gleymast að fyrst og fremst
værum við öll manneskjur svo kæmi kynið.
Hún talaði um hversu mikilvægt væri að
karlmenn héldu sérkennum sínum og reyndu
ekki að líkjast konum og öfugt.
Það eru margar spumingar sem norrænir
karlmenn spyija sig hér á ráðstefnunni,
hvernig em norrænir karlmenn, hvar standa
þeir, hvemig vilja þeir að framtíðin sé, hveij-
ar eru þeirra óskir og kröfur í jafnréttisbar-
áttunni, hvernig geta norrænir karlmenn átt
þátt í að skapa betra þjóðfélag og eins og
finnski sjónvarpsmaðurinn og ráðstefnustjór-
inn Stefan Randstrom sagði: „Við fáum hér
einstakt tækifæri til að setjast niður og skipt-
ast á skoðunum og svara því hversvegna
spumingamar sem við höfum em miklu fleiri
en _svörin.“
íslenskir fyrirlesarar era 3, i gær talaði
Ástþór Ragnarsson um hagi karla á Norð-
urlöndum og sr. Bragi Skúlason um það
þegar strákar verða menn. Einar Kárason
rithöfundur las úr verkum sínum í skemmti-
dagskrá í gærkvöldi og í dag er Margrét
Pála Ólafsdóttir með erindi um stráka á
dagvistarstofnunum.
FARÞEGAR Flugleiða í millilandaflugi geta nú innritað sig í
flug í gegnum síma, allt að 23 klukkustundum fyrir brottför.
„Um miðjan maí verður bætt við þessa þjónustu og þá verður
hægt að innrita sig á Scandic-hótelunum í Reykjavík,“ segir
Gunnar Olsen forstöðumaður stöðvareksturs Flugleiða.
„Á Scandic-Hótel Loftieiðum
verður innritun við afgreiðsluborð
Kynnisferða frá kl. 18-22 fyrir flug
næsta dag. Á Scandic-Hótel Esju
verður innritun í gestamóttöku hót-
elsins á sama tíma. Þangað mætir
fólk án farangurs, með farseðla sí-
na og fær brottfararspjöld með
sætisnúmeri. Gefa þarf upp
hversu margar ferðatöskur
verða meðferðis og fær far-
þegi jafnmarka töskumiða,
sem hann festir sjálfur á
töskur sínar.
Breyttur mætingatími
Á háannatíma, í júní, júlí og
ágúst verður mætingatími fyrir flug
færður fram um 15 mínútur. Rútur
fara frá Kynnisferðum 2 klst. og
15 mínútum fyrir brottför vélar og
mæting í flugstöð verður 75
mínútum fyrir
Mun hraðari afgreiðsia
Fastlega má gera ráð
f fyrir að afgreiðsla verði
mun hraðari, hjá þeim
sem nýta sér símainnrit-
un og enn hraðari hjá
þeim sem innrita sig á hót-
elum þegar þar að kemur. Á há-
annatíma hafa stundum myndast
mjög langar biðraðir í flugstöðinni
og við mætum vandamálinu með
þessari auknu þjónustu."
Innritun gegnum síma gengur
þannig fyrir sig að farþegi hringir
í síma 690555 til 3. júní og eftir
þann tíma í síma 5050555. Starfs-
fólk Flugleiða í Keflavík annast
innritun gegnum síma allan sólar-
hringinn, úthlutar sætum og útbýr
brottfararspjöld 0g töskumiða.
„Þegar farþegar koma í Leifsstöð
fara þeir beint að borði sem merkt
er Síma- og hótelinnritun. Þar býð-
ur þeirra brottfararspjald ásamt
töskumiðum.
Þeir sem ferðast eingöngu með
handfarangur þurfa ekki að fara í
almenna innritun flugstöðvarinnar.
Þeir geta farið beint í gegnum vega-
bréfsskoðun að þjónustuborði í bið-
sal, þar sem þeir fá afgreiðslu. Ein-
hverra hluta vegna hefur þessi þjór.-
usta ekki náð fótfestu, þótt hún
geti sparað fólki talsverðan tíma.“
FARÞEGAR geta hringt og inn-
ritað sig allt að 23 tímum fyrir
brottför.
flug. Það er til að mæta miklu álagi
í flugstöð, en innritunarborð eru of
fá til að mæta miklu áiagi á háanna-
tíma.
— Væri ekki nær að leysa vandann
innanhúss, í flugstöð?
„Flugleiðir hafa leitað til ráða-
manna flugstöðvarinnar til að finna
lausn á þessum vanda. Varnarmála-
skrifstofa hefur málið nú til skoðun-
ar og vonast menn til að hægt verði
að stækka brottfararsal og fjölga
innritunarborðum. Endanlegar nið-
urstöður liggja enn ekki fyrir. Ef
lausn finnst, vonumst við til að
breytingarframkvæmdir hefjist
næsta vetur, svo innritunarþjónusta
verði orðin ferðaþjónustu til sóma
sumat'ið 1996.“ ■
Karlaráðstefna á íslandl '96
Á ráðstefnunni var tilkynnt að sumar-
ið 1996 yrði haldin karlaráðstefnan Men
For Men á íslandi. Það er breska stofn-
unin Spectrum sem stendur fyrir henni
en áður hafa verið haldin tvö karla-
námskeið á íslandi á vegum stofnunar-
innar. Að sögn Axels Guðmundssonar,
sem er að kynna þessa ráðstefnu, verð-
ur nálgunin á málefnum karla með öðru
sniði en hér í Stokkhólmi. Meira verður unn-
ið með tilfinningar karlmanna. ■
MIKILVÆGT er að karimenn
haldi sérkennum sínum en reyni
ekki að líkja eftir konum.