Morgunblaðið - 09.05.1995, Síða 1
B L A Ð
LLRA LANDSMANNA
wjputÞfafttít
1995
KNATTSPYRNA
Eyjólfur
meistari í
Tyrklandi
Þetta var mjög erfiður leikur
gegn Gaziantespor og okkur
gekk illa að skora og náðum því
ekki fyrr en í síðari hálfleik og þar
með tryggðum við okkur titilinn.
Mér tókst ekki að skora en ég er
eigi að síður ánægður með minn
hlut í leiknum, sagði Eyjólfur Sverr-
isson, knattspyrnukappi, en hann
varð um helgina Tyrklandsmeistari
í knattspyrnu með félagi sínu Be-
siktas. Félagið tryggði sér titilinn
með 2:0 sigri á Gaziantespor á
heimavelli í Istanbúl.
„Fyrir leikinn var mikil pressa á
okkur að tryggja titilinn í þessum
leik því við eigum tvo erfiða leiki
eftir. Því var mikill léttir að klára
um helgina," bætti Eyjólfur við.
Hann hefur áður orðið meistari í
knattspyrnu. Það var árið 1992 er
hann lék með Stuttgart í Þýsk-
landi. í bæði skiptin hefur hann
verið undir stjóm sama þjálfara,
Christoph Daums. „Já, honum hefur
tekist vel til og ætlar að vera eitt ár
í viðbót hér,“ sagði Eyjólfur.
„Það er mikill munur að vera
meistari í Tyrklandi eða í Þýska-
landi. Hér er mikið meiri almennur
áhugi og lætin á vellinum, mjög
mikil og ýkt við það sem er í Þýska-
landi. Eg vonast til þess að fram-
haldið hjá mér skýrist á næstu
tveimur vikum. Það getur verið að
ég verði hér áfram, en ef eitthvað
býðst sem er meira spennandi mun
ég skoða það af gaumgæfni,“ sagði
Eyjólfur Sverrisson, Tyrklands-
meistari í knattspyrnu í gær, í sam-
tali við Morgunblaðið.
ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ
HM I HANDKNATTLEIK
BLAD
B
HANDKNATTLEIKUR
KA reynir að
fá Kúbumann-
inn Duranona
Julian Duranona frá Kúbu hefur verið í viðræðum
við KA-menn og er gert ráð fyrir að þessi fyrr-
um landsliðsmaður og markakóngur i HM í Tékkó-
slóvakíu 1990 komi til Akureyrar í næstu viku til
viðræðna.
Alfreð Gíslason, þjálfari KA, sagði við Morgun-
blaðið að Duranona hefði flúið til Argentínu í haust
sem leið og væri þar með dvalarleyfi í þijú ár. „Ég
var honum innan handar í vetur þegar hann vildi
fara til liðs i Sviss en ekkert varð af félagaskipt-
um,“ sagði Alfreð. „Hann hefur áhuga á að koma
til okkar en við eigum eftir að ræða betur saman.“
Morgunblaðið/RAX
Frábær stemmning í Laugardalshöll
ÍSLENSKA landsliðið haf Ai ástæðu til að fagna eftir fyrsta leik-
inn í heimsmeistarakeppninni, 27:16 sigur gegn Bandaríkja-
mönnum fyrlr framan um 5.000 áhorfendur í troðfullri Laugar-
dalshöll á sunnudagskvöldið. íslensku strákarnlr þökkuð áhorf-
endum stuðninglnn með því að taka bylgju, sem svo er kölluð,
úti á gólfl í leikslok. Frá vlnstrl: Dagur Sigurðsson, Patrekur
Jóhannesson, Sigurður Sveinsson, Jón Kristjánsson, Gústaf
Bjarnason, Valdlmar Grímsson, Bergsveinn Bergsveinsson, Guð-
mundur Hraf nkelsson, Júlíus Jónasson og Geir Sveinsson, fyrir-
llði. IMæsti leikur íslands verður gegn Túnls í Laugardalshöll í
kvöld og hefst hann kl. 20.00.
Nánar um HM / B2-B11, B15 og B16
Island þarfnast þfn
gegnr .'. n ;
„íslendingar mega ekki ■■■■■■
í DV í gær sagði Jóhann Ingi H
vanmeta Túnismenn" • ■
„íslendingar mega ekki
vanmeta Túnismenn"
sagði Andrei Lavrov,
markvörður Rússa á
blaðamannafundi á
dögunum.
I DV í gær sagði Johann Ingi
Gunnarsson þetta um næstu
mótherja íslendinga:
„Túnisbúar eru sýnd veiði en ekki
gefin og það er alveg Ijóst að -
við verðum að hafa fyrir þeim."
s
Miðasalan opnar kl. 10:00. Miði á alla
leiki dagsins í Höllinni kostar 3.300 kr.
í sæti og aðeins 1.990 kr. í stæði.
Láttu þig ekki vanta, troðfyllum Höllina.
Áfram ísland!
S5
O
4 H o B ^