Morgunblaðið - 09.05.1995, Page 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
-l
HM I HANDKNATTLEIK
Árangur þjóða í 1 IM
Hér er maraþontaflan yfir árangur liða í heimsmeistarakeppninni
frá upphafí, eða fjórtán HM. Fyrst er hvað þjóðirnar hafa oft
tekið þátt, þá leikir, sigrar, jafntefli, töp, markatala, stig og árang-
ur þjóða í prósentum. Þetta er taflan eins og hún var eftir lelkina í gærkvöldi.
1. Svíþjóð 14 77 50 1 26 1.518:1.321 100 65%
2. Rúmenía 12 68 44 4 14 1.366:1.168 92 68%
3. Tékkóslóvakía 12 72 41 7 24 1.443:1.207 89 62%
4. Júgóslavía 10 59 35 5 19 1.249:1.063 75 64%
5. Sovétríkin . 8 51 35 2 14 1.173: 899 72 71%
6. Danmörk 13 70 34 4 32 1.222:1.207 72 51%
7. Ungveijaland 11 65 32 6 27 1.333:1.265 70 54%
8. V-Þýskaland .. 9 47 30 4 12 888: 776 64 68%
9. A-Þýskaland .. 8 45 24 6 15 875: 755 54 60%
10. Spánn .. 8 41 21 3 17 825: 848 45 55%
11. Pólland .. 8 44 20 3 21 873: 874 43 49%
12. Þýskaland .. 5 23 16 2 5 460: 316 34 74%
13. ÍSLAND ..10 46 16 1 29 860: 937 33 36%
14. Sviss ..10 42 13 4 25 716: 825 30 36%
15. Frakkland ..10 42 13 2 27 720: 858 28 33%
16. Japan .. 9 39 10 2 27 748: 983 22 28%
17. Noregur .. 6 27 8 2 17 440: 443 18 33%
18. Rússland ..2 8 7 1 0 213: 152 15 94%
19. Austurríki .. 3 12 6 1 5 213: 218 13 54%
20. Kúba .. 4 19 4 2 13 456: 519 10 26%
21. S-Kórea .. 4 21 5 1 15 526: 576 11 26%
22. Búlgaría ..2 9 2 0 7 168: 207 4 22%
23. Alsír .. 5 22 1 2 19 407: 546 4 9%
24. Tékkland .. 1 1 1 0 0 25: 16 2 100%
25. Kúveit ..2 7 1 0 6 134: 210 2 14%
26. Egyptaland .. 3 11 2 0 9 208: 242 4 18%
27. Króatía ..1 1 1 0 0 26: 24 2 100%
28. Finnland ..1 3 0 1 2 46: 60 1 17%
29. Hvíta-Rússland ... 1 1 0 0 1 28: 29 0
30. Slóvenía ... 1 1 0 0 1 24: 26 0
31. Marokkó ... 1 1 0 0 1 16: 25 0
32. Holland ... 1 2 0 0 2' 18: 54 0
33. Túnis ...2 4 0 0 4 45: 92 0
34. Brasilía ...2 4 0 0 4 53: 110 0
35. Luxemborg ... 1 3 0 0 3 20: 128 0
35. Kanada ...2 6 0 0 6 49: 165 0
37. Bandaríkin ... 5 16 0 0 16 231: 481 0
Fargi af
okkur létt
>■:■.
Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson
20.000. HM-markið
SUÐUR-Kóreumaðurinn Yoon Kyung-shin skoraði 20.000.
markið sem er skorað í heimsmeistarakeppni síðan farið var
að leika í HM innanhúss 1938 — þegar hann skoraði tíunda
markið gegn Ungverjalandi, 10:4. Hann lyfti sér (sjá mynd)
fyrir utan punktalínu og sendi knöttinn örugglega í netið.
Suður-Kóreumenn tók fyrst þátt í heimsmeistarakeppni 1986
í Sviss og fyrstu mótherjar þeirra voru íslendingar, sem
máttu sætta sig við tap, 21:30.
Minnstu munaði að gamla kempan Peter Kovacs skoraði
tímamótamarkið — þegar hann fékk gott færi í hraðaupp-
hlaupi, en markvörður Suður-Kóreu varði auðveldlega laust
skot hans. Kovacs, sem hefur skorað 150 HM-mörk, lék ekki
í sóknarleiknum hjá Ungverjum.
I\/ar
Benediktsson
skrífar
- sagði Zlato Lukic,
þjálfari Króatíu
KRÓATAR sigruðu fyrrum sam-
landa stna frá Slóveníu 26:24 f
viðureign liðanna f B-riðli í
Kaplakrika í gærkvöldi. Króatar
voru sterkari aðilinn allan leikinn
en Slóvenar voru þó alltaf innan
seilingar. Lokatölur 26:24.
Við erum ánægðir með þennan
sigur og með honum er fargi
af okkur létt. Við töpuðum fyrir Sló-
venum fyrir tíu dög-
um sjðan- í æfinga-
leik. Ég vona að leik-
um betur í næstu
Ieikjum og það verði
stígandi í leik okkar, sagði Zlato
Lukic, þjálfari Króatíu að leikslok-
um. „Við verðum að leika betur en
í kvöíd í næstu leikjum en annars
óska ég Króötum til hamingju með
sigurinn," sagði Slavko Ivezic, þjálf-
ari Slóvena og var óánægur með tap
sinna manna.
Króatar skoruðu fyrsta mark leiks-
ins og héldu forystunni allan leikinn
að því undanskildu að Slóvenaar
komust einu sinni yfir í síðari*hálf-
leik. Króatar léku 6:0 vörn enda með
hávaxnara lið, en þeir áttu í vandræð-
um lengst af með lipra sóknarmenn
Slóvena. Slóvenar léku 3:3 vöm allan
leikinn og gekk frekar illa. Þeir létu
mikið reka sig út af vegna klaufa-
brota því þeir voru oft staðir. Bæði
lið léku lítt kerfísbundin sóknarleik
og fremur bitlausan.
Urslit í HM / B15
Staðan í HM / B15
Gleðilega hátíd!
SPENNA og eftirvænting fá ílofti Laugardalshallarinnar á-—•
sunnudaginn — stóra stundin var runnin upp; heimsmeistara-
keppnin í handknattleik var hafin á íslandi. Menn innan hand-
knattleikshreyfingarinnar óskuðu hver öðrum gleðilegrar há-
tíðar og til hamingju með daginn og þeir gátu gert það með
stolti. Umgjörðin í „nýrri“ Laugardalshöll var stórkostleg og
hápunkturinn var setningarathöfnin.
Það hefur runnið mikið vatn til
sjávar síðan fyrsti landsieik-
urinn fór fram í Laugardalshöllinni
Sigmunduró. tímamótaár í sögu
Steinarsson handknattleiksins á
sknfar íslandi — gamli
Hálogalandsbragginn í Vogahverf-
inu í Reykjavík var kvaddur. Fáum
hefði dottið í hug fyrir þijátíu árum,
þegar Laugardalshöllin var hrá, að
heimsmeistarakeppnin í hand-
knattleik ætti eftir að verða sett
þar. Maðurinn sem á heiðurinn að
því, er tvímælalaust Jón Hjaltalín
Magnússon, fyrrum landsliðsmaður
íslands og formaður Handknatt-
leikssambands íslands, sem hefur
unnið ómetanlegt starf fyrir hand-
knattleikinn — starf sem lengi verð-
ur þakkað.
Undirritaður var í Laugardals-
höllinni þegar hún var tekin í notk-
un 1965, þegar Reykjavfkurúrval-
ið lék gegn tékkneska liðinu Kar-
víná. Stuttu áður en tékkneska lið-
ið kom til Reykjavíkur vantaði
talsvert uppá að hún væri tilbúin
til leikjahalda. Það var þá sem
handknattleiksmenn, undir for-
ystu Karls G. Benediktssonar,
fyrrum landsliðsþjálfara og Birgis
Lúðvíkssonar hjá handknattleiks-
deild Fram, hlupu undir bagga og
luku nauðsynlegum undirbúningi,
svo að leikurinn gæti farið fram
i höllinni — unnið var dag og nótt
síðustu dagana fyrir heimsóknina
við smíðar. Margir voru þá vantrú-
aðir á, að takast mætti að ljúka
verkinu, en svo fór að endar náðu
saman. Síðustu hamarshöggin
hljómuðu aðeins klukkutírna áður
en fyrsti leikurinn fór fram.
Þá þótti Laugardaishöllin glæsi-
leg, þó svo að hún væri hálfklár-
uð. 3000 áhorfendur sáu fyrsta
landsleikinn, gegn Sovétmönnum
1965. Rúmlega 5000 áhorfendur
sáu leik íslands og Bandaríkjanna,
en þess má geta til gamans að það
var við hæfi að íslendingar léku
gegn Bandaríkjamönnum I sínum
fyrsta HM-leik. Það voru einmitt
Bandaríkjamenn sem léku fyrsta
landsleikinn innanhúss á íslandi —
22. febrúar 1964 í íþróttahúsi
bandaríska hersins á Keflavíkur-
flugvelli, sem var þá eini völlurinn
á íslandi sem bauð upp á völl með
löglegri stærð til landsleikja. Þá
var ísienska liðið að undirbúa sig
fyrir heimsmeistarakeppnina í
Tékkóslóvakíu. Svo mikill áhugi
var fyrir leikjunum gegn Banda-
ríkjamönnum að uppselt var á leik-
ina í forsölu — fyrir leikinn
streymdu hundruðir bifreiða frá
Reykjavík og Hafnarfírði eftir
Reykjanesbrautinni; allt að tveim-
ur klukkustundum fyrir leik.
Þessi ævintýri lifa í minning-
unni. Laugardalshöllin er orðin
glæsileg keppnishöll — það hefur
tekist vel til með að breyta henni.
Andrúmsloftið var stórkostlegt í
höllinni og ekki nema eðlilegt að
menn óskuðu hver öðrum til ham-
ingju með daginn og sögðu; Gleði-
lega hátfð!.
Rubin gerði 700.
HM-mark Sviss
ÖRVHENTA skyttan Martin Rub-
in, sem er á leið til þýska liðsins
Dormagen, sem Kristján Arason
þjálfar, skoraði 700. mark Sviss-
íendinga í heimsmeistarakeppninni,
síðan þeir tóku fyrst þátt í HM
1961 í V-Þýskalandi. Þetta tíma-
mótamark var 10. mark Iiðsins
gegn Túnis í Laugardalshöll á
sunnudag. Rubin skoraði markið,
10:8, með skoti utan að velli eftir
24,30 mín.
Islendingar voru fyrstu mótheij-
ar Svisslendinga í heimsmeistara-
keppni, 1961, og lauk leikníim, sem
fór fram í Wiesbaden, með sigri
íslendinga 14:12.
■ DAGUR Sig-urðsson hefur átt
í viðræðum við svissneska liðið
Thun í Sviss. Þjálfari liðsins er
Hald sem er aðstoðarlandsliðs-
þjálfari Sviss.
■ ERWIN Lanc forseti IHF sagði
á blaðamannafundi með Juan
Antonio Samaranch að hann von-
aðist til að skipulag keppninnar
hér sýndi ólympíuhrsyfingunni að
handknattleikshreyfingin í heimin-
um sé sterk.
■ UPPLÝST var á fundinum að
Samaranch hafí leikið handknatt-
leik á sýnum yngri árum, þegar
leikið var á knattspyrnuvelli og 11
voru í liði.
■ LIN Jin-suk, leikmaður S-
Kóreu meiddist í leiknum gegn
Ungverjalandi, þegar bátsbein á
hendi hans brotnaði. Lin mun ekki
leika meira í HM.