Morgunblaðið - 09.05.1995, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 09.05.1995, Qupperneq 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ -l HM I HANDKNATTLEIK Árangur þjóða í 1 IM Hér er maraþontaflan yfir árangur liða í heimsmeistarakeppninni frá upphafí, eða fjórtán HM. Fyrst er hvað þjóðirnar hafa oft tekið þátt, þá leikir, sigrar, jafntefli, töp, markatala, stig og árang- ur þjóða í prósentum. Þetta er taflan eins og hún var eftir lelkina í gærkvöldi. 1. Svíþjóð 14 77 50 1 26 1.518:1.321 100 65% 2. Rúmenía 12 68 44 4 14 1.366:1.168 92 68% 3. Tékkóslóvakía 12 72 41 7 24 1.443:1.207 89 62% 4. Júgóslavía 10 59 35 5 19 1.249:1.063 75 64% 5. Sovétríkin . 8 51 35 2 14 1.173: 899 72 71% 6. Danmörk 13 70 34 4 32 1.222:1.207 72 51% 7. Ungveijaland 11 65 32 6 27 1.333:1.265 70 54% 8. V-Þýskaland .. 9 47 30 4 12 888: 776 64 68% 9. A-Þýskaland .. 8 45 24 6 15 875: 755 54 60% 10. Spánn .. 8 41 21 3 17 825: 848 45 55% 11. Pólland .. 8 44 20 3 21 873: 874 43 49% 12. Þýskaland .. 5 23 16 2 5 460: 316 34 74% 13. ÍSLAND ..10 46 16 1 29 860: 937 33 36% 14. Sviss ..10 42 13 4 25 716: 825 30 36% 15. Frakkland ..10 42 13 2 27 720: 858 28 33% 16. Japan .. 9 39 10 2 27 748: 983 22 28% 17. Noregur .. 6 27 8 2 17 440: 443 18 33% 18. Rússland ..2 8 7 1 0 213: 152 15 94% 19. Austurríki .. 3 12 6 1 5 213: 218 13 54% 20. Kúba .. 4 19 4 2 13 456: 519 10 26% 21. S-Kórea .. 4 21 5 1 15 526: 576 11 26% 22. Búlgaría ..2 9 2 0 7 168: 207 4 22% 23. Alsír .. 5 22 1 2 19 407: 546 4 9% 24. Tékkland .. 1 1 1 0 0 25: 16 2 100% 25. Kúveit ..2 7 1 0 6 134: 210 2 14% 26. Egyptaland .. 3 11 2 0 9 208: 242 4 18% 27. Króatía ..1 1 1 0 0 26: 24 2 100% 28. Finnland ..1 3 0 1 2 46: 60 1 17% 29. Hvíta-Rússland ... 1 1 0 0 1 28: 29 0 30. Slóvenía ... 1 1 0 0 1 24: 26 0 31. Marokkó ... 1 1 0 0 1 16: 25 0 32. Holland ... 1 2 0 0 2' 18: 54 0 33. Túnis ...2 4 0 0 4 45: 92 0 34. Brasilía ...2 4 0 0 4 53: 110 0 35. Luxemborg ... 1 3 0 0 3 20: 128 0 35. Kanada ...2 6 0 0 6 49: 165 0 37. Bandaríkin ... 5 16 0 0 16 231: 481 0 Fargi af okkur létt >■:■. Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson 20.000. HM-markið SUÐUR-Kóreumaðurinn Yoon Kyung-shin skoraði 20.000. markið sem er skorað í heimsmeistarakeppni síðan farið var að leika í HM innanhúss 1938 — þegar hann skoraði tíunda markið gegn Ungverjalandi, 10:4. Hann lyfti sér (sjá mynd) fyrir utan punktalínu og sendi knöttinn örugglega í netið. Suður-Kóreumenn tók fyrst þátt í heimsmeistarakeppni 1986 í Sviss og fyrstu mótherjar þeirra voru íslendingar, sem máttu sætta sig við tap, 21:30. Minnstu munaði að gamla kempan Peter Kovacs skoraði tímamótamarkið — þegar hann fékk gott færi í hraðaupp- hlaupi, en markvörður Suður-Kóreu varði auðveldlega laust skot hans. Kovacs, sem hefur skorað 150 HM-mörk, lék ekki í sóknarleiknum hjá Ungverjum. I\/ar Benediktsson skrífar - sagði Zlato Lukic, þjálfari Króatíu KRÓATAR sigruðu fyrrum sam- landa stna frá Slóveníu 26:24 f viðureign liðanna f B-riðli í Kaplakrika í gærkvöldi. Króatar voru sterkari aðilinn allan leikinn en Slóvenar voru þó alltaf innan seilingar. Lokatölur 26:24. Við erum ánægðir með þennan sigur og með honum er fargi af okkur létt. Við töpuðum fyrir Sló- venum fyrir tíu dög- um sjðan- í æfinga- leik. Ég vona að leik- um betur í næstu Ieikjum og það verði stígandi í leik okkar, sagði Zlato Lukic, þjálfari Króatíu að leikslok- um. „Við verðum að leika betur en í kvöíd í næstu leikjum en annars óska ég Króötum til hamingju með sigurinn," sagði Slavko Ivezic, þjálf- ari Slóvena og var óánægur með tap sinna manna. Króatar skoruðu fyrsta mark leiks- ins og héldu forystunni allan leikinn að því undanskildu að Slóvenaar komust einu sinni yfir í síðari*hálf- leik. Króatar léku 6:0 vörn enda með hávaxnara lið, en þeir áttu í vandræð- um lengst af með lipra sóknarmenn Slóvena. Slóvenar léku 3:3 vöm allan leikinn og gekk frekar illa. Þeir létu mikið reka sig út af vegna klaufa- brota því þeir voru oft staðir. Bæði lið léku lítt kerfísbundin sóknarleik og fremur bitlausan. Urslit í HM / B15 Staðan í HM / B15 Gleðilega hátíd! SPENNA og eftirvænting fá ílofti Laugardalshallarinnar á-—• sunnudaginn — stóra stundin var runnin upp; heimsmeistara- keppnin í handknattleik var hafin á íslandi. Menn innan hand- knattleikshreyfingarinnar óskuðu hver öðrum gleðilegrar há- tíðar og til hamingju með daginn og þeir gátu gert það með stolti. Umgjörðin í „nýrri“ Laugardalshöll var stórkostleg og hápunkturinn var setningarathöfnin. Það hefur runnið mikið vatn til sjávar síðan fyrsti landsieik- urinn fór fram í Laugardalshöllinni Sigmunduró. tímamótaár í sögu Steinarsson handknattleiksins á sknfar íslandi — gamli Hálogalandsbragginn í Vogahverf- inu í Reykjavík var kvaddur. Fáum hefði dottið í hug fyrir þijátíu árum, þegar Laugardalshöllin var hrá, að heimsmeistarakeppnin í hand- knattleik ætti eftir að verða sett þar. Maðurinn sem á heiðurinn að því, er tvímælalaust Jón Hjaltalín Magnússon, fyrrum landsliðsmaður íslands og formaður Handknatt- leikssambands íslands, sem hefur unnið ómetanlegt starf fyrir hand- knattleikinn — starf sem lengi verð- ur þakkað. Undirritaður var í Laugardals- höllinni þegar hún var tekin í notk- un 1965, þegar Reykjavfkurúrval- ið lék gegn tékkneska liðinu Kar- víná. Stuttu áður en tékkneska lið- ið kom til Reykjavíkur vantaði talsvert uppá að hún væri tilbúin til leikjahalda. Það var þá sem handknattleiksmenn, undir for- ystu Karls G. Benediktssonar, fyrrum landsliðsþjálfara og Birgis Lúðvíkssonar hjá handknattleiks- deild Fram, hlupu undir bagga og luku nauðsynlegum undirbúningi, svo að leikurinn gæti farið fram i höllinni — unnið var dag og nótt síðustu dagana fyrir heimsóknina við smíðar. Margir voru þá vantrú- aðir á, að takast mætti að ljúka verkinu, en svo fór að endar náðu saman. Síðustu hamarshöggin hljómuðu aðeins klukkutírna áður en fyrsti leikurinn fór fram. Þá þótti Laugardaishöllin glæsi- leg, þó svo að hún væri hálfklár- uð. 3000 áhorfendur sáu fyrsta landsleikinn, gegn Sovétmönnum 1965. Rúmlega 5000 áhorfendur sáu leik íslands og Bandaríkjanna, en þess má geta til gamans að það var við hæfi að íslendingar léku gegn Bandaríkjamönnum I sínum fyrsta HM-leik. Það voru einmitt Bandaríkjamenn sem léku fyrsta landsleikinn innanhúss á íslandi — 22. febrúar 1964 í íþróttahúsi bandaríska hersins á Keflavíkur- flugvelli, sem var þá eini völlurinn á íslandi sem bauð upp á völl með löglegri stærð til landsleikja. Þá var ísienska liðið að undirbúa sig fyrir heimsmeistarakeppnina í Tékkóslóvakíu. Svo mikill áhugi var fyrir leikjunum gegn Banda- ríkjamönnum að uppselt var á leik- ina í forsölu — fyrir leikinn streymdu hundruðir bifreiða frá Reykjavík og Hafnarfírði eftir Reykjanesbrautinni; allt að tveim- ur klukkustundum fyrir leik. Þessi ævintýri lifa í minning- unni. Laugardalshöllin er orðin glæsileg keppnishöll — það hefur tekist vel til með að breyta henni. Andrúmsloftið var stórkostlegt í höllinni og ekki nema eðlilegt að menn óskuðu hver öðrum til ham- ingju með daginn og sögðu; Gleði- lega hátfð!. Rubin gerði 700. HM-mark Sviss ÖRVHENTA skyttan Martin Rub- in, sem er á leið til þýska liðsins Dormagen, sem Kristján Arason þjálfar, skoraði 700. mark Sviss- íendinga í heimsmeistarakeppninni, síðan þeir tóku fyrst þátt í HM 1961 í V-Þýskalandi. Þetta tíma- mótamark var 10. mark Iiðsins gegn Túnis í Laugardalshöll á sunnudag. Rubin skoraði markið, 10:8, með skoti utan að velli eftir 24,30 mín. Islendingar voru fyrstu mótheij- ar Svisslendinga í heimsmeistara- keppni, 1961, og lauk leikníim, sem fór fram í Wiesbaden, með sigri íslendinga 14:12. ■ DAGUR Sig-urðsson hefur átt í viðræðum við svissneska liðið Thun í Sviss. Þjálfari liðsins er Hald sem er aðstoðarlandsliðs- þjálfari Sviss. ■ ERWIN Lanc forseti IHF sagði á blaðamannafundi með Juan Antonio Samaranch að hann von- aðist til að skipulag keppninnar hér sýndi ólympíuhrsyfingunni að handknattleikshreyfingin í heimin- um sé sterk. ■ UPPLÝST var á fundinum að Samaranch hafí leikið handknatt- leik á sýnum yngri árum, þegar leikið var á knattspyrnuvelli og 11 voru í liði. ■ LIN Jin-suk, leikmaður S- Kóreu meiddist í leiknum gegn Ungverjalandi, þegar bátsbein á hendi hans brotnaði. Lin mun ekki leika meira í HM.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.