Morgunblaðið - 09.05.1995, Side 3

Morgunblaðið - 09.05.1995, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1995 B 3 HM I HANDKNATTLEIK ■ ÆVAR Österby trommuleikari frá Selfossi var mættur í Höllina í boði_ HSÍ og stjórnaði taktinum i leik Isiendinga við Bandaríkin. Honum til aðstoðar var Jón Davíð Ragnarsson úr Aftureldingu og höfðu þeir tvær trommur til að slá taktinn en ekki er leyft að hafa fleiri. ■ RÓBERT Sighvatsson, línu- maðurinn úr Mosfellsbæ sem var ekki valinn í endanlega landsliðs- hópinn var á áhorfendapöllunum þegar félagar hans léku við Banda- ríkjamennina. Hann sagði ekki létt að horfa aðeins: „En svona er þetta og það er hluti af leiknum að detta út. En minn tími mun koma“ sagði Róbert hress. ■ BIRGIR Guðjónsson, Sigurður Magnússon og Guðmundur Gísla- son standa fyrir lyfjaprófunum á handknattleiksmönnunum. Nokkr- um mínútum fyrir leikslok velur læknanefnd IHP, Alþjóðahand- knattleikssambandsins, tvo leik- menn úr hvoru liði og skulu þeir skila þvagprufu til greiningar. Og ef bunan kemur ekki, eru þeir út- völdu látnir drekka gos eða pilsner - ekki bjór. ■ BIRGIR og félagar hafa þjálfað upp um 25 manns til starfa fyrir lyfjanefndina á stuttum tíma og telja að vel hafí til tekist. ■ BJÓRSALA fyrsta daginn var um 300 lítrar og var aðeins selt í sérstöku tjaldi. Að sögn afgreiðslu- fólks fór salan vel fram. ■ ARNDÍS Kristjánsdóttir mark- aðsfulltrúi stóð í ströngu i minja- gripasölunni í Höllinni. Henni tald- ist til að salan hefði verið um hálf miljón og sú tala væri frekar í lægri kantinum. „Islendingar eru duglegir við að fjárfesta og eru helst að kaupa boli, húfur og veifur en út- lendingarnir kaupa meira minjagripi svo sem penna, úr, lyklakippur og svoleiðis. Asíubúarnir eru hinsveg- ar mjög hrifnir af Agli og Diddú og vilja fá allt tengt þeim,“ sagði Arndís. ■ E1 Ghoul Habib í liði Túnis var fyrstur til að fá tveggja mínútna brottvísun á HM 95. ■ GAMLA kempan í liði Ung- verja, Peter Kovacs, var fyrstur til að fá rautt spjald í keppninni í leik Ungveija og Suður-Kóreu- mánna. Kovacs var í þrígang rek- inn út af í tvær mínútur vegna leik- brota, í síðasta skipti á 40. mínútu leiksins. ■ SIGMAR Þröstur Óskarsson, Gunnar Beinteinsson, Bjarki Sig- urðsson og Konráð Olavson hvíldu í fyrsta leik islenska liðsins gegn Bandaríkjamönnum á sunnudag. ■ PER Skaarup, fyrrum landsliðs- maður Dana í handknattleik, lenti í kröppum dansi í Smáranum á laugardaginn. Hann starfar sem aðstoðarmaður hjá Danmarks Rad- io og var að undirbúa sig meðan Þjóðveijar voru á æfingu. Þýsku handknattleiksmennirnir þekktu handboltakappann og töldu hann vera að „njósna" fyrir Danina. Þeir stöðvuðu æfinguna og heimtuðu að Skaarup færi út úr húsinu meðan æfíngin færi fram og lá við handa- lögmálum er hann var að reyna að skýra það út fyrir þeim að hann væri á vegum danska sjónvarpsins. ■ JAE-won Kang fyrrum stór- skytta frá Suður-Kóreu er aðstoð- arþjálfari landsliðsins, en hann leik- ur með Winterthur í Sviss. Vegna meiðsla í öxl bannaði liðið honum að leika á HM en hann hefði líklega verið valinn í hópinn hefði hann fengið leyfi frá liði sínu. Kang varð m.a. markakóngur á HM í Sviss 1986 og skoraði þá 67 mörk sem er met á HM. Hvað sagði Páll Ólafsson um leik Islands? Svart og hvítt „ÞAÐ var jafn mikill munur á leik Islands í fyrri og seinni hálfleik, eins og á svörtu og hvítu,“ sagði Páll Ólafsson, fyrrum landsliðs- maður. „Fyrir leikinn reiknaði ég með að strákarnir myndu hrista Bandaríkjamenn af sér eftir tutt- ugu mínútur, en þeir náðu sér ekki á strik — léku illa. Það var ekki fyrr en í seinni hálfleik að íslenska liðið fór að leika eins og það á að leika — það var góð barátta í vörn- inni, þar sem leikmenn léku fyrir hvern annan og þá komu hraðaupp- hlaupin og auðveld mörk. Strákarn- ir nýttu tækifærin sín betur í seinni hálfleiknum. Eftir erfiðan fyrri hálf- leik, var mjög gott fyrir íslenska liðið að ná taktinum strax í byijun seinni hálfleiksins — ég get ekki annað séð en að það sé komið gott stuð í liðið, sem er til alls líklegt. Áhorfendurnir veittu strákunum góðan stuðning og ég get ekki ann- að en verið bartsýnn um framhald- ið. Patrekur Jóhannesson lék mjög vel í fyrri hálfleik og þá lék Geir Sveinsson allan leikinn vel. Sigurð- ur Sveinsson lék mjög vel fyrir liðið þegar hann kom inná — átti góðan sendingar, sem slógu Bandaríkja- menn út af laginu," sagði Páll 01- afsson. Guðjón L. og Hákon norður DÓMARARNIR Guðjón L. Sig- urðsson og Hákon Siguijónsson munu í vikunni halda til Akur- eyrar til að vera til taks í dóm- gæslunni á HM. Þeir voru fyrstu varadómarar á mótinu en nú hefur dómararnefnd IHF, al- þjóðahandboltasambandsins, ákveðið að þeir skuli halda norður. Að sögn Gunnars Kjart- anssonar formanns dómarar- nefndar HSÍ telur hann mjög líklegt að þeir muni dæma ein- hveija ieiki, annars hefðu þeir ekki verið sendir á staðinn. Þess vegna valdi HM'95 Xerox Ijósritunarvélar frá Nýherja. NÁNARI UPPLÝSINGARÁ HEIMASÍÐU NÝHERJA: http://www.nyherji.is I heimsmeistarakeppni má ekkert út af bregða 20 eintök á mínútu. 50 blaða frumritamatari (aukabún.). 10 hólfa afritaraðari (aukabún.). Ljósritar í tveimur litum. Sjálfvirkur skerpustillir. Stækkun og minnkun 50-200% í I % þrepum. Heppileg mánaðarnotkun: 4.000-20.000 eintök. Mjög hljóðlát. Myndvinnsla. Aðgangsnúmer fyrir notendur. _1\ m Með hverri Ijósritunarvél 1 fylgja 2 miðar á einn leik íslands í heimsmeistarakeppninni. Xerox 5320 Við bjóðum Xerox 5320 Ijósritunarvélina á sérstöku HM-verði meðan á keppni stendur! 249.900.- stgr. RANK XEROX ÖLL LJÓSRITUN Á HM'95 <C^ NÝHERJI SKAFTAHLÍÐ 24 - SlMI 569 7700 Alltaf einu marki yfir X RANK XEROX The Document Company NÝHERJI / GÉPÉ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.