Morgunblaðið - 09.05.1995, Síða 6
6 B ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Þreytlir
Tékkar
betri
___________________HM í HAIMPKNATTLEIK__
Juan Antonio Samaranch forseti alþjóða ólympíunefndarinnar
íslendingar ráða hvort
þeir sameina ÍSÍ og Óí
Morgunblaðið/Þorkell
Velkominn til íslands!
GEIR H. Haarde, formaður framkvæmdanefndar HM, heilsar
Juan Antonlo Samaranch á Reykjavíkurflugvelll, er Spánverj-
inn kom tij landsins laust fyrir hádegi í gær. Ellert B. Schram,
forseti ÍSÍ er lengst til vinstri, og Olafur B. Schram, bróðir
hans og formaður Handknattleikssambandsins er í baksýn.
JUAN Antonio Samaranch, for-
seti alþjóða ólympíunefndar-
innar (IOC), segir það alfarið í
höndum íslendinga sjálfra
hvernig yfirstjórn iþróttamála
sé háttað hér á landi og hann
sjái þvf ekkert til fyrirstöðu að
íþróttasamband Islands og
Olympíunefnd íslands samein-
ist, svo fremi ólympíusáttmál-
inn sé í heiðri hafður. Talsverð-
umræða hefur verið innan
íþróttahreyfingarinnar hérlend-
is um sameiningu ÍSÍ og Óí og
menn ekki verið á einu máli.
Spánveijinn Samaranch — að
öllum líkindum valdamesti
íþróttaleiðtogi í heiminum — kom
til landsins í gær í einkaþotu sinni
frá Svíþjóð þar sem hann var við-
staddur úrslitaleik Finna og Svía í
heimsmeistarakeppninni í íshokkí.
Samaranch lenti á Reykjavíkurflug-
velli skömmu fyrir hádegi og_ þar
tóku Erwin Lanc, forseti IHF; Ólaf-
ur B. Schram, formaður HSI, Geir
H. Haarde, formaður HM nefndar-
innar og Ellert B. Schram, forseti
ÍSÍ á móti honum.
Samaranch hitti Friðrik Sophus-
son fjármálaráðherra og starfandi
forsætisráðherra og tók síðan á
móti fyrir forsvarsmenn IHF í Smár-
anum síðari hluta dags í gær. Strax
eftir það fylgdist hann með leik
Þýskalands og Rúmeníu og hélt síð-
an blaðamannafund áður en hann
snæddi kvöldverð með íslensku
ólympíunefndinni.
Morgunblaðið spurði Samaranch,
á blaðamannafundinum í Smáran-
um, hvort hann teldi éðlilegt að ÍSÍ
og ólympíunefnd íslands sameinuð-
ust. „Þetta er alfarið vandamál ykk-
ar og við hjá IOC munum ekki skipta
okkur af því hvernig þið takið á
þessu máli,“ sagði forsetinn. „Þið
verðið að velja það form sem þið
teljið best fyrir land ykkar. A síð-
ustu árum hefur svona sameining
orðið í þremur löndum í Evrópu.
Við hjá IOC erum hvorki með eða
á móti sameiningu, viljum aðeins
að ólympíusáttmálinn sé haldinn,“
sagði Samaranch.
Morgunblaðið spurði forseta al-
þjóða ólympíunefndarinnar því næst
hvort hann teldi íslendinga eiga
möguleika á að eignast fulltrúa í
nefndinni á nýjan leik, en svo hefur
ekki verið síðan Benedikt Waage
féll fyrir nærri þijátíu árum. „Hvers
vegna ekki?“ spurði Samaranch á
móti. „Vandamálið er að Evrópa
hefur of marga fulltrúa í IOC miðað
við aðrar heimsálfur. En ég held að
á næsta fundi, sem fram fer í Búda-
pest, verði kjömir fulltrúar frá öðr-
um heimsálfum og þá er vel mögu-
legt að í náinni framtíð getið þið
eignast fulltrúa á ný.“
Morgunblaðið/Gunnlaugur
Ykkar mál
SAMARANCH á blaða-
mannafundinum: „Við mun-
um ekki skipta okkur af því,“
sagði hann um hugsanlega
sameiningu ÍSÍ og Óí.
í dag fundar Samaranch með
Lanc og síðan er hádegisverður í
boði IHF og kl. 14 er fundur með
forsvarsmönnum HSÍ, ÍSÍ og ólymp-
íunefndinni og kl. 15.30 mun hann
gróðursetja tré í Laugardalnum. Það-
an verður haldið í móttöku hjá borg-
arstjóra og síðan að Bessastöðum
þar sem hann ræðir við forseta ís-
lands, Vigdísi Finnbogadóttur og um
kl. 19 heldur hann af landi brott og
mun á næstu dögum fara til Kína
þar sem hann mun fylgjast með
heimsmeistaramótinu í borðtennis.
Tékklendingum tókst að leggja
Marokkómenn að velli, 25:16,
í D-riðlinum í Hafnarfirði. Það var
ekki fyrr en í síðari
c. hálfleik að dæmið
Stefan , ,
Stefánsson £ekk UPP enda
skrifar Tékkar þreyttir,
komu seint til Iands-
ins og voru konir á hótel sitt klukk-
an hálf tvó aðfararnótt leiksins.
Marokkómenn spiluðu varnar-
leikinn utarlega en Tékklendingum
tókst ekki að nýta sér götin sem
mynduðust í vörninni við það. Varn-
arleikur Tékklendinga var líka góð-
ur og Marokkómenn höfðu ekki lík-
amlega burði til að bijóta sér leið
að markinu. En nokkrum mínútum
eftir hlé, þegar staðan var 13:10,
réðust úrslit þegar einbeiting Ma-
rokkómanna fór að gefa sig og leik-
reynsla Tékklendinga kom þeim til
góða, þegar staðan fór í 23:13.
„Eg er ánægður með liðið og
allir náðu.að spila. Sigur okkar var
mjög mikilvægur því við ætluðum
að byija mótið með sigri vegna
þess að framundan eru erfiðir leik-
ir. Stefna okkar er að ná í sæti á
næstu Ólympíuleikum," sagði þjálf-
ari Tékklendinga á blaðamanna-
fundi eftir leikinn. Hann getur varla
verið mjög ánægður með spilið því
betur má ef duga skal í D-riðli.
Stórleikur markvarðarins Slaby
Milos gladdi augað langmest þegar
hann varði 19 skot úr erfiðum fær-
um og Michal Tonar, sem lék með
HK hér á landi, kom honum næst.
Marokkómenn eru að leika í fýrst
sinn á heimsmeistarakeppni. Barátta
þeirra var góð til að byija með en
þegar þurfti að grípa til leikreynsl-
unnar eftir hlé, fór að halla undan
fæti.
Hvererhann þessi MARC BAUMGARTNER stórskyttan í svissneska liðinu?
Fær aldrei hvfld
í landsleikjum
MARC Baumgartner, rétthenta skyttan ísvissneska landslið-
inu, verður án efa mikið i sviðsljósinu á heimsmeistaramótinu
eins og hann hefur reyndar verið allar götur frá árinu 1990
er hann lék sinn fyrsta landsleik. Hann varð markakóngur í
síðustu heimsmeistarakeppni og hefur ætíð verið drjúgur við
að skora. Baumgartner er tveir metrar á hæð, fæddur í Bern
4. mars 1971 og er því 24 ára gamall. Hann er einbirni, ein-
hleypur og leikur með með Lemgo í Þýskalandi, liðinu sem
Sigurður Sveinsson lék eitt sinn með.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
Baumgartner lék knattspyrnu á
yngri árum en byijaði að æfa
handbolta í Bern sem ungur piltur
og var aðeins rúm-
lega 19 ára gamall
þegar hann var
fyrst valinn í
landsliðið og hann
sló strax í gegn. „Ég var heppinn
því allir eldri leikmennirnir voru
hættir og Martin Rubin var aðal-
stjaman í liðinu hjá okk-
ur. Arno Ehret þjálfari
var að byggja upp nýtt
lið og hann sagði við mig
að hann þarfnaðist min í
liðinu og ég held ég hafi
leikið hveija einustu mín-
útu í þeim rúmlega 80
landsleikjum sem ég hef leikið síð-
an 1990. Mér var treyst og í raun-
inni var ekki mikil pressa á mér
því það var enginn annar í þessa
stöðu,“ sagði Baumgartner í við-
tali við Morgunblaðið í gær.
REYKJAVÍK
Hver er þín sterkasta hlið í
handboitanum?
„Ég leik bæði í sókn og vöm
og þó 'svo ég sé ekki neinn af-
burða varnarmaður þá held ég að
ég sé þokkalegur. Ég byijaði eins
og svo margir í hominu í vörn-
inni, en nú er ég kominn inn á
miðjuna. Mín sterkasta hlið er
sóknin held ég og ég kann alltaf
best við mig í stöðunni maður
gegn manni.“
Þú ert einn fárra hand-
boltamanna sem leikur
með hlíf fyrir tönnunum,
svokallaðan góm. Hvers
vegna gerirðu það?
„Fyrir nokkram áram
lenti ég í óhappi. Leikmað-
ur skaut og hnefi hans lenti í and-
litið á mér með þeim afleiðingum
að ég missti tvær framtennur. í
kjölfarið ákvað ég að nota svona
hlíf enda er algengt að íþrótta-
menn leiki með svona, þó svo það
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
MARC Baumgartner, helsta skytta svlssneska landsllðs-
ins, fyrlr utan Scandlc hótel Loftleiðlr, þar sem llðið býr.
sé sjaldgæft í handboltanum.
Þetta háir mér ekkert og ég er
orðinn vanur þessu.“
Hefur þú einhver áhugamál,
önnur en handbolta?
„Ég hef gaman af því að tefla
og spila á spil og svo hlusta ég
mikið á tónlist — rokk frá áttunda
áratugnum er mín uppáhalds tón-
list og fólk eins og [Éric] Clapton,
Tina Turner og fleiri eru í uppá-
haldi hjá mér. Nýlegra rokk höfð-
ar ekki eins mikið til mín. Ég hef
líka gaman af því að fara á skíði
og geri það nokkrum sinnum á
ári, en alls ekki eins mikið og ég
gerði áður.“
Hver er staða handboltans í
heiminum um þessar mundir að
þínu mati?
„Ég held að framfarirnar verði
ekki eins miklar á næstu árum
eins og þær hafa verið undanfarin
ár. Núna era mörg lið orðin góð
og jöfn og komin á það stig að
það er erfitt að bæta sig jafn mik-
ið og hratt og áður. Ég vona bara
að IHF breyti ekki reglunum því
þær breytingar sem menn hafa
verið að prófa hafa ekki gefist
vel.“
Þú leikur með Lemgo þar sem
Sigurður Sveinsson lék. Muna
menn enn eftir honum þar?
„Já, það er alveg ótrúlegt því
það eru sex eða sjö ár síðan hann
lék með liðinu. Menn tala oft um
hann og ég hef heyrt margar sög-
ur af honum — Siggi hlýtur að
vera sérstakur maður fyrst menn
muna enn eftir honum. Fólkið í
Lemgo dýrkar hann greinilega
ennþá.“