Morgunblaðið - 09.05.1995, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 09.05.1995, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1995 B 7 HM I HANDKNATTLEIK Morgunblaðið/RAX DMÍTRÍJ Fillppov, leikmaður Stjörnunnar, var elnna spræk- astur í heimsmeistarallðl Rússa og markahæstur. Hér skor- ar hann eitt sex marka sinna gegn Kúbumönnum í gær. Rúmenar réðu ekki við þýska vamamnúrinn RÚMENAR réðu ekkert við sterka vörn Þjóðverja í síðari hálfleiknum í leik liðanna í C- riðli í Smáranum í gær. Leikur- inn var í járnum í fyrri hálfleikn- um en í þeim síðari skellti þýska liðið og markvörður þess, Jan Holbert í lás og eftir það áttu Rúmenar ekki mögu- leika. Lokatölur urðu 27:19 eft- ir að jafnt hafði verið í leikhléi 11:11. Það var mikil pressa á liðinu fyrir keppnina og ég er ánægður að þetta skyldi ganga svo vel. Baráttan var góð í vörninni og leikgleðin mikil hjá liðinu," sagði Arno Ehret, þjálfari á fréttamannafundi Frosti Eiðssort skrífar Þýskalands eftir leikinn, Fyrri hálfleikur bauð ekki upp á mörg falleg tilþrif hjá liðunum, Rúmenar virtust þungir og þrátt fyrir einstaka fallega sókn hjá Þjóð- veijunum voru mistök þeirra mV mörg, bæði í vörn og sókn. Rúmenar skoruðu fyrsta mark síðari hálfleiksins og náðu foryst- unni 12:11 en eftir það settu Þjóð- veijar fyrir lekann í vörninni, - voru mun hreyfanlegri og Rúmenar fengu miklu minni frið en í fyrri hálfleiknum. Hetjur Þjóðveija í leiknum voru þeir Jan Holbert sem leysti Andreas Thiel af í markinu í síðari hálfleiknum og tvítugur hornamaður, Stefan Kretzschmar, sem fór á kostum í síðari hálfleikn- um og skoraði þá sex mörk með fjölbreyttum skotum. „Við lékum illa og gerðum allt of mikið af slæmum mistökum. Við komum ekki hingað fyrr en Meistaramir gerðu það sem til þurfti HEIMSMEISTARAR Rússa voru ekki að sýna of mikið þegar þeir spiluðu fyrsta leik sinn í heimsmeistarakeppn- inni, gegn Kúbu í B-riðli Hafn- arfirði í gær. Liðið virkaði þungt og gerði ekki meira en til þurfti þegar það sigraði 21:17. Leikurinn var frekar jafn í upp- hafi og Kúbumenn áttu í fullu tréi við Rússana, sem voru þó nokkr- um mörkum yfir lengst af í fyrri hálf- leik. En á síðustu mínútu fyrri hálf- leiks tókst Kúbu- mönnum að jafna 9:9. Strax eftir hlé sættu Rússar fær- is þegar andstæðingar þeirra misstu Stefán Stefánsson skrífar niður baráttuna um tíma og á tíu mínútna kafla breyttist staðan úr 10:10 í 16:10. Þá tók Andrey Lavrov, markvörður Rússa, loks við sér og draumar Kúbumanna voru að engu orðnir. Undir lokin söxuðu þeir þó á forskotið gegn þreytulegum Rússum sem virtust fyllilega sáttir við að ná ekki betra markahlutfalli. Það er víst að Rússar geta mun meira en þeir sýndu í þessum leik, það hefur oft sýnt sig að þeir gera það sem til þarf — þegar þörf er á. Andrey Lavrov varði varla skot fyrstu 15 mínúturnar en sýndi meistaratakta eftir það. Stórskytt- an Vasily Kudinov sást varla eftir að hafa verið stöðvuð strax í upp- hafi en línumaðurinn Dimitriy Torgovanov sýndi góða takta þar til Kúbumenn lokuðu fyrir þann leka. Vörnin var ekki árennileg með þijá tveggja metra menn á miðj- unni, Atavin, Grebnev og Torgo- vanov, sem tókst að halda Kúbu- mönnum að mestu leiti í skefjum. Einna sprækastur í liðinu var Dmítríj Filippov, sem leikur með Stjörnunni, en hann var snöggur í hraðaupphlaupin og truflaði sókn- arleik Kúbu, sem „indjáni" í vörn Rússa. Kúbumenn fá hrós fyrir að vaða óhræddir inní vöm Rússa og reyna sitt besta. Hinsvegar tókst þeim ekki að halda uppi slíkri baráttu all- an leikinn og margreynt lið eins og Rússar refsa strax fyrir öll mistök, enda komu 8 mörk úr hraðaupp- hlaupum í 8 tilraunum. Markvörður- inn Vladimir Rivero Hernandez lét ekki sitt eftir liggja í markinu og Reynaldo Hernandez var góður í skyttuhlutverkinu. Rimanov og Gopin til liðs við Rússa í vikunni RÚSSNESKI þjálfarinn Vladimir Maximov sagði að enn væri von á tveimur leikmönnum i rússneska hópinn; Alexander Ri- manov kemur frá Þýskalandi og Valery Gopin, sem leikur á Italíu, er væntanlegur á miðvikudaginn þegar ítölsku deildinni lýkur. Það er víst að þessir snillingar munu fríska verulega uppá rússneska liðið. Annars var Maximov ekki hress með leik sinna manna og sagði að þetta væri í fyrsta sinn sem þeir spila allir saman. „Það kom mér á óvart hversu reynslumiklir leik- menn geta farið mikið á taugum og þeir gerðu alls ekki það sem fyrir þá var lagt. Kúbumenn eru líkamlega sterkir og við megum þakka fyrir að hafa unnið þá,“ sagði Maximov á blaða- mannafundi eftir leikinn. Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson VINSTRI hornamaðurinn Stefan Kretzschmar ðtti stóran þátt f sigrl Þýskalands á Rúmenum í gær. Hér skorar hann eitt marka sinna af miklu harðfylgi þrátt fyrlr að fá óblíðar métttökur frá varnarmanni Rúmena elns og sjá má. klukkan þijú í gærmorgun og leik- menn mínir eru enn þreyttir eftir ferðalagið," sagði Vasile Stinga, hinn frægi þjálfari Rúmena sem sagði að féleysi stæði handknatt- leiknum fyrir þrifum í Rúmeníu og að liðið hefði ekki komið fyrr til landsins vegna fjárskorts. Vinstri handar skyttan Robert Licu var bestur í liði Rúmena en hann mátti sín samt ekki mikils frekar en samlandar hans í síðari hálfleiknum. Köttur og mús Leikur Frakka og Japana var leikur kattar að mús í fyrri hálfleik. Franska liðið sem skipað ■■■■■■ er mörgum leik- Frosti mönnum sem Eiösson reynst hafa íslend- skrífar ingum erfiðir í gegn um tíðina höfðu al- gjöra yfirburði og náðu snemma yfirburðarforskoti en lokatölur urðu 33:20. Japanir náðu aldrei að beita sínu sterkasta vopni, hraðanum, gegn andstæðingunum sem voru mun hávaxnari en Japanarnir sem ör- ugglega tefla fram einu lægsta liði heimsmeistarakeppninnar. Flest skot Asíuliðsins höfnuðu í varnar- vegg Frakka eða framhjá markinu. Síðari hálfleikurinn var á allt öðrum nótum og lítil alvara að baki leik Frakkanna; þeir linuðu takið á bráðinni og tóku lífinu létt og reyndu sirkusmörk í tíma og ótíma. „Við höfum alltaf tapað fyrsta leik á heimsmeistaramóti og það er gaman að byija á þennan hátt. Við þekkjum japanska liðið vel og það er alltaf gaman að leika gegn því,“ sagði Costantini, þjálfari Frakka. Maí Frí gasfylling með hverju grilli. ‘ '•< ’' 0 I ■ ffffl k'15.900 PU FÆRÐ UPPLYSINGAR UM HM'95 5 í VmDARVEFNUM <v . V '*0DÍ*S' ICELAND 1995 ORACLG" W o r I d W i d e W e b I n I e r f a c e K i t http://www.handball.is TEYMI HUCBÚNADUR Á ÍSIANDI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.