Morgunblaðið - 09.05.1995, Page 11

Morgunblaðið - 09.05.1995, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1995 B 11 HM I HANDKIMATTLEIK Góð stemmning meðal áhorfenda Heimsmeistaramótið í hand- knattleik hófst með pompi og prakt á sunnudaginn og stemmningin á áhorfendapöllunum var stórkostleg, einna líkust karnivali. Nokkrir lögðu sérstak- lega mikið á sig til skapa stemmn- ingu. Ingi Amarsson og Bjöm Þorlákur Björnsson úr Garðabæ vom ekki að tvínóna við hlutina, mættu í stuttbuxum og höfðu málað skrokkinn á sér í fánalitun- um. „Þetta er frábært. Við vildum fá athygli - og hana fengum við,“ sögðu piltarnir og tóku fram að þeir ætluðu að mæta á fleiri leiki eins til fara. Stuðningsklúbbur landsliðsins er hópur sem hefur það að markm- iði að styðja við landsliðið. Hópur- inn á 5 ára afmæli í maí og teljast félagar um 170, þar af vom rúm- lega 80 mættir í Höllina á sunnu- daginn. Árni Hannesson og Sigrún Gestsdóttir voru þar á meðal og skemmtu sér konunglega. Morgunblaðið/Gunnlaugur IIMGI Arnarsson og Björn Þorlákur Björnsson vildu athygll og fengu hana. Morgunblaðið/Gunnlaugur ÁRNI Hannesson og Slgrún Gestsdóttlr skemmtu sér í Höllinni á sunnudaglnn. Byung-wook með 500. HM- mark S-Kóreu MOON Byung-wook skoraði þriðja mark landsliðs Suður Kóreu í leiknum gegn Ungvetja- landi á sunnudaginn. Þetta var 500. mark Suður-Kóreumanna í heimsmeistarakeppninni. Fyrsti leikur Suður-Kóreu- manna í heimsmeistarakeppni var gegn íslendingum og skor- uðu þeir þar af leiðandi fyrsta HM-mark sitt í þeim leik. ís- lendingar máttu sætta sig við óvænt tap í þeirri viðureign, 21:30, í fýrsta leik HM í Sviss 1986. Auglýsa fisk á gólfunum SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihús- anna gerði samning við fram- kvæmdanefnd heimsmeistara- mótsins þess efnis að auglýsing frá fyrirtækinu verður á miðju gólfi íþróttahúsanna íjögurra meðan á mótinu stendur. SH hefur á síðustu áratugum verið stærsti útflytjandi á fiskafurð- um og „því vel við hæfí að þeir komi skilaboðum áleiðis til þeirra fjölmörgu víðsvegar um heim sem sjá keppnina," sagði í fréttatilkynningu. Rúmlega þrjátíu sjónvarpsstöðvar, sem taldar eru ná til um 50 milljóna manna, senda út frá keppninni. Verðmæti samningsins nemur u.þ.b. 5 milljónum króna — þar af fær HSI þijár milljónir og svissneksa sjónvarpsréttarfyrir- tækið CWL tvær. Lanc mjög ánægður Forseti alþjóða handknattleiks- sambandsins, Austurríkismað- urinn Erwin Lanc, sagði á blaða- mannafundi fyrir fyrstu leiki HM í Laugardalshöll á sunnudaginn að hann væri mjög ánægður með alla umgjörð mótshaldsins og allt virtist í stakasta lagi. „Ég vil þakka skipuleggjendum þessa móts fyrir frábært starf og ég vil óska íslensku þjóðinni til hamingju! Höllin hér hefur tekið miklum breytingum og er orðin hið glæsilegasta mannvirki. IHF er í nokkuð sérstakri aðstöðu núna. Þetta er fjölmennasta og stærsta mót á vegum IHF og það er haldið í einni smæsta aðildarlandinu. Þó ísland sé ekki stórt þá er það stórt á sviði handknattleiksins," sagði Lanc. Ólafur B. Schram formaður HSÍ sagði við þetta tækifæri að hann væri hreykinn af því að hafa alla þessa erlendu gesti hér á landi. „Is- lendingar eru ekki margir, en þó svo við séum fámenn þá þýðir það ekki að við séum veikburða. Fyrir svona fámenna þjóð er mikið mál að halda svona keppni og í raun meira mál en fyrir stórþjóð að halda Ólympíuleika. Vonandi verða allir ánægðir með aðstöðuna hér. Við höfum gert okkar besta og vonandi er það nógu gott,“ sagði Ólafur. TJALDVAGMAR Hinlr vinsælu rOMAMCMC. t/agnar. Erum fluttir úr Lágmúlanum Sendum bæklinaa um allt land jpio alla helgina EVRO HF Suðurlandsbraut 20, simi 588-7171. PÓSTUR OG SÍMI ÞJÓNUSTUAÐILIHM 199S jpl —------------------------------- i t'if1 Vl'V,' ' i tuðlum etð góðutn árangri íslenska landsliðsins á HM1995. Nú er tækijærið til að styðja við bakið á okkar mönnum á heimavelli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.