Morgunblaðið - 09.05.1995, Side 12

Morgunblaðið - 09.05.1995, Side 12
12 B ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR KNATTSPYRNA II ÍSHOKKI Bayem berst fyrir sæti í Evrópukeppni Bayem Miinchen vann mikilvægan 2:1 sigur á Bayer Uerdingen á laug- ardaginn. Liðið á ekki möguleika á sigri í þýsku deildarkeppninni en sigurinn er mikilvægur fyrir þær sakir að liðið heldur opnum möguleik- anum á að krækja sér í sæti í Evrópukeppninni og ekki spilar síður inní það sæti gæti reynst agnið til að lokka landsliðsfyrirliðann Jiirgen Klins- mann frá Tottenham í Englandi. Borussia Mönchengladbach og Bayem Miinchen eru með jafn mörg stig í fímmta og sjötta sæti, 37, en Gladbach er með betri markatölu. Fimmta sætið er síðasti möguleiki á öruggu Evrópusæti. Celtic burstaði meistara Rangers Glasgow Rangers, sem þegar hefur tryggt sér skoska meist- aratitilinn steinlá í nágrannaslagn- um gegn Celtic, 3:0, í úrvalsdeildar- leik liðanna á sunnudag. Mörkin komu öll í síðari hálfleiknum; hol- lenski leikmaðurinn Pierre Van Hooydonk gerði það fyrsta með þru- muskoti frá vítateig á 50. mínútu, varnarmaður Rangers skoraði síðan sjálfsmark tólf mínútum síðar og Albaninn Rudi Vara skoraði þriðja markið úr aukaspymu á 82. mínútu. Sigurinn var sá stærsti hjá Celtic á tímabilinu og markvörður Rangers fékk að sjá rauða spjaldið fyrir að fella Brian McLaughlin utan víta- teigs. Baráttan á botninum er mun harð- ari en þar beijast Hearts, Aberdeen og Dundee United fyrir lífí sínu í deildinni. Dundee-liðið er nú í botn- sætinu eftir 1:2 tap gegn Aberdeen sem við sigurinn færðist upp í næst neðsta sætið. Dundee United hefur 36 stig, Aberdeen 38 og Hearts 40 þegar einni umferð er ólokið. Neðsta lið úrvalsdeildarinnar fellur í 1. deild og næst neðsta liðið leikur aukaleiki við næst efsta lið 1. deildarinnar. Reuter DAVID May, varnarmaðurlnn sterki hjá Unlted, t.h., fagnar markl sínu gegn Sheffleld Wednesday ðsamt Paul Ince. Dauðaslys fyrir leik í Lissabon May tryggði United sigur í Sheffield PORTO tryggði sér á sunnudag- inn sigur í portúgölsku 1. deild- inni með sigri á Sporting Lissa- bon á útivelli. Einn áhorfendi lést og 25 slösuðust, þar af sex alvarlega eftir að öryggisgirðing á leikvanginum gaf sig áður en leikurinn hófst. Domingo Oliveira skoraði eina mark leiksins á 58. mínútu og með því tryggði Porto sér titil- inn. Liðið hefur sex stiga forskot á Spordng þegar þrjár umferðir eru eftir. Sporting getur náð Porto að stigum en sú regla er í gildi í deildinni að árangur úr innbyrðis leikjum liðanna gildir og þar stendur Porto betur að vígi en liðin gerðu jafntefli í fyrri leiknum. Slysið á leikvanginum varð með þeim hætti að fjöldi áhorf- enda stóð fyrir ofan innganginn að búningsherbergjum. Þegar annað liðið mætti á leikvanginn ruddist hópur áhangenda fram til að sjá liðsmenn þess, með fyrr- greindum afleiðingum. Girðingin gaf sig og um 20 manns féllu um tíu metra niður á malbik framan við Ieikvanginn. MANCHESTER United á enn möguleika á að verja meistara- titil sinn í Englandi eftir 1:0 sig- ur á Sheffield Wednesday á sunnudag. Barátta United og Blackburn um meistaratitilinn er hörð, en verði liðin jöfn fagna leikmenn United þriðja titlinum í röð því markatala þeirra er mun betri en Black- burn. Manchesterliðið á eftir að leika gegn Southampton á heima- velli á morgun og á útileik gegn West Ham á laugardaginn. Black- bum sem lék gegn Newcastle í gærkvöldi á aðeins eftir leik á Anfi- eld, gegn Liverpool á laugardaginn. Sigurmark Manchester í Sheffíeld kom strax á 6. mín. Vamarmaðurinn David May var þar á ferðinni, en svo skemmtilega vill til að hann að fyrmm leikmaður Blackbum — var keyptur þaðan til United fyrri ári síðan. Hann skoraði af stuttu færi eftir fyrirgjöf Paul Scholes. May var svo skipt út af eftir aðeins 23 mínút- ur; hafði orðið fyrir bakmeiðslum í upphituninni fyrir leikinn, og Alex Ferguson þjálfari vildi ekki taka neina áhættu. Markaskorarinn mikli hjá Nott- ingham Forest, Stan Collymore skoraði eina mark leiksins þegar Manchester City kom í heimsókn á City ground. Markið gulltryggði Nottinghamliðinu sæti í Evrópu- keppni næsta vetur og verður það í fyrsta skipti í tíu ár sem liðið tekur þátt í Evrópukeppni. Forest hefur gengið allt í haginn upp á síðkastið, - ekki tapað í síðustu tólf viðureign- um og hefur fengið 28 stig af þijá- tíu mögulegum í síðustu tíu leikjum sínum. Draumur Tottenham um Evrópu- sæti fékk skjótan endi í Lundúna- slagnum gegn QPR sem fyrir leikinn hafði ekki skorað í þremur síðustu leikjum sínum. Teddy Sheringham kom Tottenham yfír á lokasekúndum fyrri hálfleiksins en Les Ferdinand skoraði tvívegis fyrir QPR í síðari hálfleiknum. Sjöunda tapleikur Norwich í deild- inni í röð var gegn Leeds og gerði það að verkum að liðið er fallið í aðra deild. Norwich komst yfír á 36. mínútu með marki Ashley Ward en möguleikar liðsins voru úr sögunni tíu mínútum fyrir leikslok þegar dæmd var umdeild vítaspyrna fyrir brot á Tony Yeboah. Gary McAllist- er skoraði úr spyrnunni og Carlton Palmer skoraði síðan sigurmark Le- eds á lokamínútunni. Leeds hefur ekki tapað í síðustu sex leikjum sín- um. Sóknarleikur Aston Villa hefur ekki verið til fyrirmyndar í síðustu leikjum og sóknarmenn liðsins höfðu fyrir laugardaginn ekki skorað mark í ellefu leikjum. Breyting varð á gegn Liverpool sem ekki hafði tapað leik á útivelli frá því í nóvember. Dwight Yorke frá Trínidad skoraði bæði mörk Birminghamliðsins með skalla en þrátt fyrir sigurinn er liðið en í bullandi fallhættu. Crystal Palace heldur ennþá í vonina að sleppa við fall eftir 1:0 heimasigur á West Ham. Ray Houg- hton var maður þessa leiks og átti stóran þátt í markinu. Tékkinn í marki West Ham, Ludek Miklosko varði skot Houghtons glæsilega en hélt ekki knettinum og Chris Arm- strong fylgdi vel á eftir skoraði. Finnar urðu heims- meistarar FINNAR unnu einn sætasta sigur sinn í íþróttum á sunnu- dag þegar íshokkílið þeirra varð heimsmeistari f fyrsta sinn. Finnar sigruðu Svía 4:1 í úrslitaleik í Stokkhólmi. Kanada náði þriðja sætinu með sigri á Tékkum með sömu markatölu. Jarmo Myllis markvörður og væng- maðurinn Ville Pelzonen voru hetjur Finna í úrslitaleiknum. Myllis varði oft vel og Pelzonen skoraði þijú af mörkunum og lagði upp fjórða markið. „Réttlætið nær alltaf að sigra að lokum og það var komið að okkur að sigra í dag,“ sagði Curt Lindström, hinn sænski þjálfari Finnanna eftir að sigurinn var í höfn. „Við stefndum á gullið og þetta verð- ur ekki okkar síðasti titill. Áhuginn á íshokkí er gífurlegur í Finnlandi og áhorfendum fjölgar með hveiju árinu,“ sagði Lindström sem var aðstoðarþjálfari Svíanna þegar liðið varð heimsmeistari 1987. Þjálfarinn sagði að fleiri Finnar hefðu horft á útsendingu frá leiknum en á nokkurt annað dagskrárefni í fínnska sjón- varpinu frá upphafi. „Finnar kunna að fagna og ég veit að viðtökumar verða stórkostlegar þegar við komum heim,“ sagði Lindström. Mörk Pelzonen komu á 9., 38., og 40. mín. og lögðu grunninn að einum sætasta sigri finnskrar íþróttasögu. Vamarmaðurinn Timo Jutila kom Finnum í 4:0 á 44. mínútu en Jonas Bergkvist minnkaði muninn mínútu síðar. Finnar fengu stuðning frá fjöl- mörgum löndum sínum á áhorf- endapöllunum sem voru vel með á nótunum. Finnar léku oft einum færri því þeir misstu leikmenn útaf í sextán mínútur gegn sex mínútum Svíanna. Markvörður Finna, Jarmo Myllis sá til þess að Svíarnir næðu ekki að nýta sér liðsmuninn, hann varði nokkru 'sinnum meistaralega. Finnsku leikmennimir þökkuðu markverðinum í lokin, þeir fleygðu frá sér hjálmum sínum og kylfum og báru markvörð sinn á gullstóli um ísinn. Markvörðurinn tryggði Kanada bronslð Fyrrum heimsmeistarar, Kanada tryggðu sér þriðja sætið með sigri á Tékklandi. Corey Hirsch, markvörð- ur Kanada átti stórleik i leiknum og bjargaði hvað eftir annað. Jafnt var 1:1 eftir fyrsta leikhlutann en sókn- arlína Kanada var beittari þegar leið á leikinn. „Það er ekkert lið sem gerir sér þriðja sætið að góðu en miðað við ástandið á íshokkí í Norður-Ameríku getum við ekki annað en verið stolt- ir,“ sagði þjálfari Kanada, Tom Renney. Engir leikmenn úr NHL- deildinni léku á HM að þessu sinni þar sem keppni í deildinni dróst vegna verkfalls. Það kom illa niður á Kanadaliðinu sem lék án margra lykilmanna. Gudni og félagar leika um sæti í úrvalsdeildinni MIDDLESBRO er öruggt um sæti í ensku úrvalsdeildinni á næsta keppnistímabili en fjögur önnur lið þurfa að leika í aukakeppni um síðara sætið í deildinni. Reading sem náði 2. sæti deildarinnar með sigri á Charlton leikur gegn Tranmere sem hafnaði í 5. sæti deildarinnar. Bolton, liðið sem Guðni Bergsson leikur með á einn- ig möguleika á sæti í úrvalsdeildinni. Bolton sem hélt jöfnu, 1:1, gegn Burnley á laugar- daginn með marki Finnans Mixu Paatelain- en á lokamínútunni leikur gegn Wolves sem hafnaði í fjórða sæti deildarinnar. Þau lið sem sigra í leikjunum tveimur leika svo úrslitaleik um úrvalsdeildarsæti. Guðnl Juventus traust í efsta sæti þrátt fyrir stórtap Juventus tapaði 0:3 á heimavelli gegn Lazio á heimavelli, í ítölsku 1. deildinni á sunnudaginn á sama tíma og Parma sem er í öðru sæti gerði márkalaust jafntefli við Genúa. Þrátt fyrir þetta tap Juventus hefur liðið enn sjö stiga forystu í deildinni þegar fjórar umferðir eru eftir af ítölsku deildinni. Eftir markalausan fyrri hálfleik í leik Juventus og Lazio tóku gestirn- ir til sinna ráða og Roberto Di Matteo, Krótatinn Alen Boksic og Diego Fuser skoruðu hver sitt mark- ið án þess að leikmenn Juventus gætu svarað fyrir sig. Markvörður Lazio, Luca Marchegiani, var þeim fjötur um fór og kom í veg fyrir að þeir skoruðu. Leikmenn Parma söknuðu sárt Gianfranco Zola í viðureign sinni við við Genúa. Þeir gerðu markalaust jafntefli og létu þar með gullið tæki- færi að minnka forskot Juventus enn frekar, sér úr greipum ganga. AC Milan festi sig í sessi í þriðja sætinu með 3:0 sigri á Foggia. Gianluigi Lentini kom liðinu á bragð- ið á 44. mínútu, Dejan Savicevic skoraði annað markið á 56. mínútu og Marko Simone innsiglaði sigurinn þegar hann gerði sitt sextánda mark á tímabilinu. Argentínski leikmaðurinn Abel Balbo skoraði fyrra mark Róma og sitt átjánda á tímabilinu í 2:0 sigri þeirra á Fiorentina. Sampdoria held- ur enn í vonina um sæti í Evrópu- keppninni eftir að David Platt skor- aði tvö mörk fyrir lið sitt á síðustu fimm mínútunum í 2:1 sigri gegn Brescia.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.