Morgunblaðið - 13.05.1995, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.05.1995, Blaðsíða 1
m <*■ 1995 LAUGARDAGUR 13. MAÍ BLAD Fékk ekki að mæta á fund Cins og fram hefur komið fékk Anatolí Evtú- “tsjenko, þjálfari Kúveits, tveggja leikja bann eftir að hafa fengið rauða spjaldið í leiknum gegn Egyptalandi sl. þriðjudag. Evtútsjenko sat uppi í stúku í gær þegar Kúveit mátti þola stórtap gegn Hvíta-Rússlandi en mætti á fréttamannafund eftir leikinn. Þar ætlaði hann að sitja fyrir svörum en eftirlitsmaður Alþjóða handknattleikssambandsins bannaði honum að vera á fundinum. Sagði að hann gæti staðið fyrir framan í vinnuaðstöðu fréttamanna á Akureyri. Þjálfarinn lét ekki bjóða sér þetta og gekk út og þar með var þjálfari Hvíta-Rússlands eini fulltrúi liðanna á fundinum. ■ Viðtal við Evtochenko / D6 HM I HANDKNATTLEIK Gátum varla skorað „ÉG er auðvitað alls ekki sáttur við að tapa þessum leik, en það má kannski segja að það hafi verið ián í óláni að tapa núna. Það er jú betra en að tapa þegar riðlakeppn- inni er lokið. Ég held að við höfum leyst heima- vinnuna okkar ágætlega, en við komum bara ekki tuðrunni í markið í dag,“ sagði Valdimar Grímsson eftir tapið gegn S-Kóreu í gærkvöldi, 23:26. Er þessi leikur enn eitt dæmið um að íslenska Iandsliðið getur ekki leikið vel á móti 3-3- vörn? „Nei, það held ég ekki. Við leystum það dæmi ágætlega og vorum að skapa okkur færi sem við nýttum bara ekki. Mark- maðurinn þeirra var í miklu stuði og varði frá okkur skot sem við feng- um eftir að hafa leyst vörn þeirra. Ég heid að skot yfir og undir'hann séu þau skot sem hafa hingað til dugað best gegn honum, en í dag varði hann ailt. Við gát- um varla skorað." Hvað með framhaldið? „Það er náttúrlega ekkert með það, nema vinna Sviss með nægi- lega miklum mun til að lenda í efsta sæti.“ m mu ■ ■■ ^ Morgunblaðio/Cjunnlaugur Kognvaldsson Vinnusamur markvorður SUK-hyung Lee, markvörður Suður-Kóreumanna, var helsta hindrun íslendinga í leiknum í gær sem Suður-Kórea vann 23:26. Hann varði 19 skot og flest þeirra úr sannkölluðum dauðafærum; þrjú langskot, sex af línu, tvö úr hornum, tvö eftir hraðaupphlaup og sex eftir gegnumbrot. Hann hefur varlð alls 63 skot í fjórum leikjum og þar af þrjú vítaköst. Hann var ekki aðgerðarlaus og gat leyft sér að þurrka gólfið í vítateignum hjá sér um leið og hann fylgdist með sókn sinna manna. ■ Allt um leikinn / D2,D3,D4. Láttu þig ekki vanta, stuðningur áhorfenda getur ráðið úrslitum. Miðasalan opnar kl. 10:00. Og aftur bjóðum við 1.200 miða í stæði í nýju viðbyggingunni á í dag ráðast úrslitin í riðli A. Leikurinn við Sviss hefst kl. 16:00. Hvað gerir tröllið Baumgartner gegn troðfullri Höil? aðeins 1.000 kr. sæti kostar 3.300 kr. Láttu þig ekki vanta, troðfyllum Höllina. Áfram ísland! o (JbMVlfi, * i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.