Morgunblaðið - 13.05.1995, Side 2
2 D LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Guðmund-
ur tognaði
fyrir leikinn
GUÐMUNDUR Hrafnkelsson,
markvörður íslenska liðsins,
tognaði í baki í upphitun fyrír
leikinn gegn Suður-Kóreu í
gær og gat ekki spilað. Sig-
mar Þröstur Óskarsson tók
stöðu hans í liðinu á síðustu
stundu. nÞað hafði slæm áhrif
að missa Guðmund út svona
rétt fyrir leik,“ sagði Þor-
bergur Aðalsteinsson, þjálf-
ari.
Hvar var leik-
reynslan?
FATREKUR Jóhannesson
fékk að líta rautt þegar um
í 3 mínútur voru til leiksloka,
iians þríðja brottvísun og
ótrúlega klaufaleg og óþörf.
Yoon var rekinn útaf og
Rlukkan stöðvuð. Patrekur
tók boltann af gólfinu og
henti honum fram völlinn. Til
hvers er ómögulegt að segja
og auðvitað var honum vikið
af velli fyrír bragðið. Kannski
iiefur Patrekuur ætlað að
koma liði sínu i hraðaupp-
hlaup, en klukkan var stopp
og á meðan er alls ekki hægt
að fara í hraðaupphlaup.
Svona nokkuð á jafn leik-
reyndur maður og Patrekur
ekki að láta koma fyrir.
ísland fékk
ekkert víta-
kast í gær
ÍSLENSKA liðið fékk ekki
eitt einasta vítakast £ leiknum
og er það rnjög óvenjulegt.
Það sem meira er, er að dóm-
ararnir höfðu ekki nema einu
sinni í leiknum tækifærí til
að dæma vítakast á Suður-
Kóreu, en slepptu þvi og
dæmdu aukakast S staðinn.
Kóreumenn fengu hins vegar
tvö vítaköst í leiknum og skor-
aði Byung-wook Moon úr
þeim báðum. Fyrra vitakastið
kom er ein og hálf minúta var
til leikhlés og hið síðara var
síðasta mark Kóreu.
Ekkert mark
úr hraða-
upphlaupi
KÓREUMENN gerðu ekkert
mark úr hraðaupphlaupi og
það telst til tíðinda á þeim bæ.
Vörnin þeirra var nyög fram-
arlega og því þurftu okkar
menn að Ieika sóknarleikinn
langt úti á velli, og stundum
alveg aftur undir miðju, þann-
ig að það var stutt að fara
fyrir þá í vörnina. Vörnin var
fljót á sinn stað að þessu sinni
og er það vel. íslendingar
gerðu hins vegar fimm mörk
úr hraðaupphlaupum og þar
af gerði Geir Sveinsson tvö,
en hann er ekki vanur að vera
með fyrstu mönnum i sóknina.
Bjarki stopp-
aði stutt
BJARKI Sigurðsson fékk sitt
fyrsta tækifæri í heimsmeist-
arakeppninni í gær. Hann kom
inná er 1,40 mín. var liðin af
siðari hálfleik en var síðan
rekinn útaf þegar 2,30 mínút-
ur voru liðnar af hálfleiknum.
Hann var því aðeins inná í 50
sekúndur í fyrstu tilraun, en
kom síðan aftur inná.
HM í HAIMDKNATTLEIK
Morgunblaðið/RAX
PATREKUR Jóhannesson kom mlkið vlð sögu í leiknum gegn Suður-Kóreu — hann var sendur tvisvar til að kæla slg og síðan
útllokaður, þegar hann fékk sína þriðju ámlnningu. Hér er Patrekur niðurlútur — á leið af leikvelll.
Dauðafærín ekki nýtt
ÞAR kom að þvíað íslenska landsliðið tapaði íheimsmeistara-
keppninni. Það voru Suður-Kóreumenn sem stöðvuðu sigur-
göngu íslands, sigruðu 23:26 og skutust íannað sætið í A-riðli.
Kóreumenn höfðu undirtökin alian tímann og sigur þeirra var í
raun aldrei í hættu, til þess lék íslenska liðið ekki nógu vel og
markvörðurinn Suk-hyung Lee varði mjög vel og átti mestan þátt
í sigri Kóreu. Það má ef til vill segja að þetta hafi verið rétti
leikurinn til að tapa, því ef ísland vinnur Sviss með fjórum mörk-
um lendir liðið í efsta sæti riðilsins, og þangað er markið sett.
Byrjunin lofaði ekki góðu hjá
íslenska liðinu. Kórea komst í
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
1:4 og síðan 5:10 og menn voru
famir að hafa
áhyggjur af því að
sagan frá HM í
Sviss 1986 ætlaði
að endurtaka sig.
Það hvorki gekk né rak hjá strák-
unum okkar, en Þorbergur Aðal-
steinsson landsliðsþjálfari sá samt
ekki ástæðu til að gera breytingu,
hvorki á sóknarleiknum, sem var
löngum þunglamalegur og vand-
ræðalegur, ná á vörninni sem var
langt frá því að vera nægilega
góð. Leikin var flöt vörn og Ky-
ung-shin Yoon (nr. 13) gerði fjög-
ur mörk með skotum utan af velli
og línumaðurinn Sang-suh Back
(nr. 7) nýtti færi sín vel. Færin
fékk hann þegar vamarmenn
reyndu tveir eða fleiri að veija
skot frá Yoon í stað þess að fara
út á móti honum.
Loksins breytingar
En Þorbergur gerði loks breyt-
ingu þegar tæpar fimm mínútur
voru til leikhlés. Þá var farið í 5-1
vöm og Patrekur kom á vinstri
vænginn í sókninni fyrir Júlíus.
Sigmar Þröstur kom inná um miðj-
an hálfleikinn. Þetta skilaði því
að íslenska liðið gerði fjögur mörg
gegn einu fram að hléi. Það að
breyta hafði góð áhrif en einnig
voru Kóreumenn óheppnir og
klaufskir á þessum kafla, línumað-
urinn greip ekki sendingar og
hraðaupphlaup misfómst.
Jafnræði var framan af síðari
hálfleik og munurinn eitt til tvö
mörk. Dagur tók Yoon úr umferð,
enda kappinn búinn að gera 8
mörk og þar af tvö úr kyrrstöðu.
Skömmu síðar voru Patrekur og
Yoon reknir útaf á sama tíma.
ísland gerði næstu tvö mörk,
17:19 en þá kom ótrúlega klaufa-
legur kafli hjá íslenska liðinu.
Leikmenn gripu ekki boltann og
hvert tækifærið fór forgörðum,
alls sjö hraðaupphlaup fóru í súg-
inn vegna klaufaskapar. Þijú mörk
í röð frá Kóreu og staðan orðin
17:22 og síðan 20:23 þegar sex
mín. voru eftir. Þijú mörk og sex
mínútur. Þetta var þá möguleiki
eftir allt saman!
En sá draumur stóð ekki lengi.
Annar slæmur kafli kom þar sem
SOKNIN, MÖRKIN
OG MARKVARSLAN
ÍSLAND
MörK Sókrilr %
S-KÓREA
MötK Sóknlr %
10 23 44 F.h 12 23 52
13 28 46 S.h 14 27 52
23 51 45 Alls 26 50 52
1 Langskot 12
4 Gegnumbrot 6
5 Hraðaupphlaup 0
5 Horn 2
8 Lína 4
0 Víti 2
12 Varin skot (víti) 19
2 Aftur til mótherja 5
strákamir okkar áttu í erfiðleikum
með að grípa boltann ef menn
náðu þá að senda eitthvað í áttina
til samheija. Markvörðurinn
slökkti endanlega vonameistann
með því að veija tvívegis skot úr
dauðafæmm í sömu sókninni.
Geir yríðarlega sterkur
Sem fyrr var það Geir Sveinsson
sem var bestur í íslenska liðinú.
Hann hefur leikið gríðarlega vel í
mótinu, en spurningin er hvort
hann getur leikið í 60 mínútur í
hveijum einasta leik. Hann er ör-
uggur á línunni, þó svo hann hafi
„aðeins“ verið með 78% nýtingu í
gær, og í vörninni er hann sívinn-
andi og gríðarlega sterkur.
Gústaf komst vel frá sínu í sókn -
inni en var ekki alveg nógu ákveð-
inn í vörninni. Ólafur átti ágætan
dag, en hefði að ósekju mátt reyna
meira í sókninni því hann er góður
maður á móti manni.
Hjá Kóreu var markvörðurinn
frábær og varði 19 skot. Það segir
raunar ekki alla söguna því 14
þeirra voru skot af línu, eftir hraða-
upphlaup eða gegnumbrot, sem
sagt maður gegn manni. Yoon og
Back voru sterkir og einnig Cho
(nr. 10) sem átti átta stoðsending-
ar sem gáfu mark, en skotanýting
hans var ekki nægilega góð.