Morgunblaðið - 13.05.1995, Blaðsíða 4
4 D LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
HM I HANDKNATTLEIK
Hvað sagði Páll Ólafsson um leikinn gegn S-Kóreu?
AIH liðið brásl
Eg átti von á jöfn-
um og hörðum
leik og ég hafði spáð
því að hann endaði
með janftefli, en það
verður að segjast eins
og er að liðið olli mér
miklum vonbrigðum í
þessum leik. Þó við
höfum tapað með
þremur mörkum þá
vorum við að misnota
alltof mikið af dauða-
færum því menn voru
alltaf að skjóta á
sama stað á mark-
vörðinn. Það finnst
mér vera dæmi að
eitthvað hafi vantað
heimavinnan okkar
nógu góð. Þeir hafa
leiki
Páll Ólafsson
upp á að
hafi verið
leikið þrjá
mótinu og því hafði gefist
góður tími til að skoða hann vel
og hann hefur verið að veija
ágætlega hingað til,“ sagði Páll
Ólafsson, fyrrum landsliðsmaður
í handknattleik, er hann var innt-
ur álits á tapleik íslands gegn
Suður-Kóreu í gærkvöldi.
Hefði viljað sjá grimmari vöm
Náðum aldrei að
jafna
Andlega hliðin hjá
okkur fannst mér vera
frekar slök allan
tíman. Það gekk illa
strax í byijun og það
virtist hafa mikil áhrif
svo menh náðu aldrei
að rífa sig upp það
sem eftir lifði leiks.
Við náum aldrei að
jafna í leiknum og
sækja heldur höfðum
við alltaf á brattann
að sækja. Það komu
kaflar þar sem aðeins
lifnaði yfír leik okkar en þeir stóðu
alltof stutt yfír og við náðum aldr-
ei frumkvæði þannig að þeir þyrftu
að veijast og lenda í álagi.“
Rauða spjaldið var dýrt
„Það var enginn leikmaður í
liðinu að gera neitt rétt og að
missa öll þessi dauðafæri vóg
þungt í öllum leiknum. Það er í
lagi ef tveir leikmenn eru að gera
mistök, en í þetta skiptið var það
allt liðið sem brást og það er atr-
iði fyrir Þorberg og félaga að
hugsa um, því svona megum við
ekki sjá aftur. Rauða spjaldið sem
Patrekur fékk var dýrt, þeir voru
að missa mann útaf og einum
fleiri hefðum við hugsanlega kom-
ist inn í leikinn að nýju, en í stað-
inn verður jafnt í liðum og síðasti
möguleiki okkar rann útí sandinn.
Við áttum ekki möguleika eftir
þetta og Patrekur gerði klaufaleg
mistök þarna sem voru óþarfi, því
klukkan var stopp og engin
ástæða til að gera það sem hann
gerði.“
Sannfærður um sigur íslands
gegn Sviss
„Strákarnir koma tvíefldir til
leiks á morgun [í dag]; ég veit það
því ég þekki strákana í liðinu. Við
vorum rasskelltir í leiknum í dag
[í gærkvöldi] og menn verða stað-
ráðnir í að það gerist ekki aftur.
Eg er sannfærður um að við vinn-
um Sviss. Við töpuðum líka fyrir
Suður Kóreu í Sviss 1986 og það
gerði það að verkum að við komum
á tvöföldum krafti til baka og ég
veit að það verður ejnnig hjá liðinu
núna,“ sagði Páll Ólafsson.
Morgunblaðið/Kristinn
í vök að verjast
„Við skutum markvörðinn í stuð
strax í byijun og misstum boltann
margoft úr höndunum á okkur í
leiknum. Ég veit ekki hvað olli
því, kannski var svona mikil pressa
á leikmönnum. Við náðum aldrei
„kontakt" við sóknarmennina
þeirra í varnarleik okkar. Vömin
var að reyna að veija skotin en
tókst illa. Ég hefði viljað sjá vöm-
ina mikið grimmari. sérstaklega
gegn númer 13, hann fékk að
gera alltof mikið án þess að kom-
ið væri við hann. Hann fékk að
skjóta og skjóta og þannig gekk
þetta fyrir sig fram í miðjan seinni
hálfleik, þá var bara of seint að
gera eitthvað. Það hefði átt að
vera búið að grípa til aðgerða
mikið fyrr.“
Gústaf Bjarnason
IMýttum
illa
dauða-
færin
Gústaf Bjamason stóð sig einna
best íslensku leikamann-
anna. Hann skoraði fimm mörk
úr sjö tilraunum. „Þetta var mjög
erfiður leikur. Það sem réði úrslit-
um í þessum leik eru dauðafærin
sem við klúðrum. Það gengur ekki
að nýta ekki dauðafæri á móti
svona liði eins og Kóreu, sem refs-
ar um leið. Við vorum að skapa
okkur góð færi en það var ekki
nóg,“ sagði Gústaf.
„Það var mikill hraði í þessum
leik og við reyndum okkar besta
en því miður gekk það ekki í dag.
En þetta eru ekki endalokin. Við
eigum Sviss eftir og þann leik
ætlum við okkur að vinna til að ná
í efsta sætið í riðlinum. Við getum
ekki átt tvo svona leiki í röð. Við
erum allir í góðri æfingu og höfum
mikla breidd og því er ég ekkert
hræddur við leikinn gegn Sviss.
Við mætum í hann með fullt sjálfs-
traust," sagði hornamaðurinn.
Öll pressan á
íslenska liðinu
- segir Baumgartner, stórskytta
svissneska landsliðsins
M ARC Baumgartner, stórskytta Svisslendinga, var kátur eftir
leikina í A-riðli í gærkvöldi enda hafði hann ástæðu til. „Við
erum með góða stöðu og það er þægilegt að fara í síðasta Ieikinn
í riðlinum í efsta sæti. Við höfum í rauninni engu að tapa og
mætum því mjög afslappaðir til leiks gegn íslendingum. Öll press-
an er á íslenska liðinu — það verður að vinna og áhorfendur
heimta það,“ sagði Baumgartner.
„Ég er sannfærður um að þetta verður mjögjafn og spenn-
andi leikur. Vörn íslenska liðsins er mjög góð, en sóknarleikur-
inn er ekki eins góður og hann var fyrir nokkrum árum þegar
Kristján Arason og Alfreð Gíslason voru í liðinu. Geir Sveins-
son er yfirburðamaður í íslenska liðinu núna, en Valdimar
Grímsson er líka góður hornamaður. Ég tel okkar Iið ekki lak-
ara en það íslenska og við ætlum okkur því sigur eins og í
hinum leikjunum.“
ÍSLENSKU leikmennirnir áttu í vök að verjast þegar Kyung-
shin Yoon sótti að markinu — hann skoraði átta mörk. Hér
hefur þessa stórsnjalla örvhenta stórskytta betur í viðureign
við Geir Sveinsson og Júlíus Jónasson.
Þrennt brást
- segir Geir Sveinsson, fyrirliði
eir ná undirtökunum í leiknum
strax í upphafi og stjórna hrað-
anum. Við komum$st aldrei al-
mennilega inn í leikinn til að ná tök-
um á honum,“ sagði Geir Sveinsson,
fyrirliði íslenska landsliðsins.
„Að mínu mati voru það einkann-
lega þrír þættir sem brugðust. í
fyrsta lagi létum_ við markvörðinn
veija alltof mikið. í öðru lagi gerðum
við alltof mikið af taktískum mistök-
um og misstum boltann út í loftið
vegna slæmra sendinga meðal ann-
ars og í þriðja lagi fannst mér mar-
kvarslan ekki vera nógu góð.
Ég vil meina að við höfum komið
full spenntir til leiks og leikmenn
hreinlega farið yfir strikið og ekki
verið nógu sterkir á svellinu. Ég vil
meina að vörnin hafi verið bærileg.
í sex núll vörn er ekki hægt að
sækja sóknarmennina mikið lengra
en fram á níu metra og í stórum
dráttum vorum við að gera það.
Þeir hins vegar voru að skora frá
tíu og ellefu metrum og því er erfitt
að veijast í vörninni. Við náðum að
veija nokkur skot, ég hefði viijað
sjá markvörsluna betri, en svo geta
markverðirnir kannski sagt að vörn-
in hafi ekki verið nógu góð; Þetta
þarf að skoða. Þetta var bara ekki
nógu góður leikur hjá okkur frá
byijun til enda.
„Við ætlum okkur að leika betur
á morgun [í dag] gegn Sviss, það
kemur ekkert annað til greina. ís-
lenskir áhorfendur eiga það skilið
að við gerum betur,“ sagði Geir
Sveinsson.
Svisslendingar hafa gang
sett „Mulningsvélina“
SVISSLENDINGAR héldu sigurgöngu sinni áfram á heims-
meistaramótinu í gær er þeir unnu Ungverja 30:23. Þeir sýndu
oft á tíðum mjög góðan leik og þó svo þeir hafi lent undir
í byrjun, gáfust þeir ekki upp — heldur gangsettu „Mulnings-
vél“ sfna og hægt og sígandi kramdi hún Ungverja, sem
voru oft of bráðir i sókninni. Nú er það aðeins spurningin
hvort mulningsvélin virkar eins vel gegn íslenska liðinu í dag.
Urs Muhlethaler, þjálfari Sviss-
lendinga, var ánægður eftir
leikinn. „Þetta var góður sigur og
^ég get ekki annað
ValurB verið ánægður með
Jónatansson gengi liðsins í
skrífar keppninni. Við byij-
uðum að vísu illa,
fyrstu 20 mínútumar, en eftir að
við breyttum vöminni úr 6-0 í 5-1
gekk þetta betur og allt small sam-
an. í seinni hálfleik fórum við iangt
á baráttunni sem var frábær í lið-
inu,“ sagði þjálfarinn.
„Ég er ekki ánægður með leikinn,
enda töpuðum við honum stórt,“
sagði Sándor Kalo, þjálfari Ung-
veija. „Svissneska liðið er mjög
kraftmikið og leikur kerfisbundinn
handbolta sem er árangursríkur. Við
gerðum alltof mörg mistök í sókn-
inni og misstum boltann allt of oft.
Markvörðurinn var okkar besti mað-
ur og segir það allt um leik liðsins."
Þegar hann var beðinn að bera
svissneska og íslenska liðið saman
sagði hann; „Þó þessi lið leiki ólíkan
handknattleik eru þau mjög áþekk
að styrkleika, en ég held að íslenska
liðið sigri vegna heimavallarins sem
er alveg frábær. Við lékum mun
betur gegn fslendingum en Sviss,“
sagði Kalo.
Ungveijar hófu leikinn af krafti
en eftir að svissneska liðið náði að
ræsa vélina undir lok fyrri hálfleiks
var sýnt hvert stefndi. Munurinn
var fimm mörk í hálfleik, 15:10.
Ungveijar náðu að minnka muninn
í eitt mark í síðari hálfleik en þá
sögðu Svisslendingar hingað og
ekki lengra, skiptu um gír og rúll-
uðu hreinlega yfír andstæðingana.
Svissneska vörnin var mjög sterk
og eftir að þeir breyttu henni í 5-1
braut hún niður sóknarleik Ung-
verja. Marc Baumgartner var tek-
inn úr umferð frá fyrstu mínútu og
þá losnaði um aðra. Hann lék held-
ur ekki varnarleikinn í síðari hálf-
leik eftir að hann fékk aðra brottvís-
un sína. Það virtist ekki koma að
sök því risinn Patrick Rohr kom í
hans stað. Hornamennirnir Daniel
Spengler og Stefan Schárer nutu
sín vel og gerðu samtals 13 mörk.
Rubin og Brunner voru einnig frísk-
ir.
Eins og þjálfari Ungveija sagði
var það aðeins markvörðurinn sem
stóð fyrir sínu. Utileikmennirnir
voru of bráðir og gerðu allt of
mörg mistök og það má ekki gegn
eins skipulögðu liði og Sviss. Það
verða íslensku leikmennirnir að
hafa hugfast í dag.