Morgunblaðið - 13.05.1995, Síða 8
8 D LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1995
HM I HANDKNATTLEIK
MORGUNBLAÐIÐ
-1
■ BO Johannson dómari frá Sví-
þjóð, sem dæmir á HM, hefur
ákveðið að hætta eftir þetta mót.
Hann hóf að dæma 1973 í sænsku
deildinni.
* ■ BERNT Kjellqvist, sem dæmt
hefur með Bo mun ætla að þrauka
eitt ár til viðbótar og dæma þá með
Krister Broman.
■ DÓMARAR reyna að hittast af
og til í keppninni til að stytta sér
stundir. Þeir fóru í fótbolta, út að
skokka, í Mátt og næst eru það
sundlaugamar.
■ STEFÁN Amaldsson, hand-
knattleiksdómari býr á Akureyri
og er því mikið á ferð og flugi og
oftast notar hann áætlunarflug á
ferðum sinum. Flugfélög gefa
punkta fyrir hvert flug, til dæmis
1.000 fyrir innanlandsflug og allt
að 1.500 fyrir flugferð til útlanda.
Stefán er kominn með yfir 150.000
punkta og á inni að minnsta kosti
fjórar flugferðir út í heim.
■ UÓSMYNDARl Morgunblaðs-
ins mætti niður í Mátt á fímmtudag-
inn til að mynda dómara púlandi í
þrektækjum. Þegar þeir sáu hann
voru sumir fljótir að rétta upp hönd
með tvo fíngur á lofti - sem þýðir
eins og kunnugt er brottrekstur.
■ HLYNUR Jónasson, íþrótta-
fræðingur og leiðbeinandi í Mætti,
sagði að Stefán Arnaldsson væri
í sérstaklega góðri æfingu. „Það er
- spuming um hvort eigi ekki að Iáta
hina moka snjó," sagði Hlynur og
vísaði til viðtals við Stefán þar sem
hann segist hafa mokað mikinn snjó
fyrir norðan í vetur.
■ BRÆÐURNIRHanz og Jilrgen
Thomaz dæma á HM. Þeir bræður
er frá Þýskalandi og hafa dæmt
saman í 25 ár, þaraf 20 ár í alþjóð-
legum mótum.
Stefán
þrekmesti
dómarinn
STEFÁN Araaldsson er í
bestu formi af öllum dómur-
um á HM95. Það sýnir niður-
staða úr þrekprófi sem allir
dómarar á HM fóru f fyrir
skömmu. Niðurstððurnar
voru flokkaðar niður í nokkra
hópa. í hópi þeirra sem eru
f efsta flokki, með mest þrek,
voru tveir islenskir dómarar,
Stefán Arnaldsson sem var
efstur og Hákon Siguijónsson
sem kom þar rétt á eftir. í
næsta flokki voru þeir sex
dómarar sem voru í næst
H bestu formi, þar voru hinir
tveir islensku dómararnir á
HM, þeir Kögnvald Erlings-
son og Guðjón L. Sigurðsson.
Semsagt af þeim tólf dómur-
um sem eru í bestu formi á
HM eru allir þeir fslensku þar
á meðal.
Stefán
Stefánsson
skrifar
DÓMARARNIR, sem starfa í A, B og C-riðli,
mættu í líkamsræktarstöðina Mátt á fimmtudags-
morguninn. Aðallega sér til dægradvalar og til
að hitta aðra dómara, en einnig til að teygja á
og hreyfa sig undir leiðsögn. Að sögn leiðbein-
enda er upp og ofan í hvernig ástandi dómararn-
ir eru, íslendingarnir séu í góðu formi en sumir
séu hins vegar varla í nógu góðu líkamlega
ástandi, en dugi samt.
Dómarar voru látnir hlaupa í 10 til 15 mínútur, síð-
an var farið í tækin til að reyna á styrkinn og
svo tóku við teygjur „enda menn stirðir og veitir varla
af eftir erfiða leiki,“ sagði Hlynur Jónas-
son Ieiðbeinandi. „Það virðist góður andi
í hópnum enda þekkjast þeir eflaust vel
frá mörgum mótum í gegnum árin“.
Tveir af leikreyndustu dómurum
keppninnar eru Svíarnir Bo Johannson og Bemt Kjellq-
vist en þeir hafa dæmt saman síðan 1979 og marga
úrslitaleiki. Þeir dæma auðvitað ekki leiki hjá Svíum
en hafa gert samning við landsliðsþjálfara Svía. „Við
gerðum samning við Bengt Johann-
son um að ef hann komist ekki í
úrslit munum við halda uppi merki
Svíþjóðar og dæma. Samningurinn
var gerður í Tékkóslóvakíu og hefur
haldið síðan en þeir leyfðu okkur að
dæma í Svíþjóð," sögðu þeir félagar
eftir notalega hvíld í heita pottinum
í Mætti. Þeir segjast ekki æfa svo
mikið að lyfta lóðum eða æfínga-
tækjum, heldur hlaupi meira. „Ann-
ars er of mikið af lélegum liðum í
keppninni — það er alveg nóg að
hafa sextán lið,“ sagði Bo Johann-
son.
Klukkumar ekki notaðar
Tveggja mínútna klukkur, sem
mæla tímann í brottvísunum, eru í
flestum íþróttahúsum en eru ekki
notaðar í heimsmeistarakeppninni
nú. Að sögn dómara eru aðallega
tvær ástæður fyrir því: Önnur er að
það þarf sitthvom fingurinn til að
setja af stað brottvísanaklukkuna
og aðalklukkuna en þá getur skeikað
sekúndubrotum. Hin ástæðan er sú
að það þyrfti að minnsta kosti þrjár
slíkar klukkur á hvort lið.
DANIR NÁLÆGT TOPPNUM - SÍÐAN SKELLUR
Sæti í
úrsfita- 1938
keppni Þýskaland
1954
S4ÍÓÍ
1958
«4>ýskl
1961
1964
Tékkó.
1967
1970
Frakkland
1974
A-ÞýskaL
1978
Danlmörk
1982
V-Þýskal.
Danmork íekk silfur
á HM utanhúss 1948
8
Árangur Dana f HM
9 KEPPNI Leikir U J T Mörk Stiq Sæti
10 1038 3 0 0 3 6:20 0 4
1084 3 1 0 2 44:45 2 5
11 1058 6 4 0 2 121:86 8 4
1081 6 4 0 2 92:78 8 5
12 1064 6 3 0 3 105:96 6 7
1067 6 4 0 2 88:81 8 2
13 1070 6 3 0 3 103:116 6 4
1074 6 2 0 4 78:100 4 8
14 1078 6 4 1 1 114:101 9 4
1082 7 4 1 2 150:143 9
1086 7 3 0 4 152:160 8 8
15 1090
16 1003 7 2 2 3 145:156 6 9
Samta!*: 69 34 4 31 1198:1182 72 52,2%
Sigmundur Ó. Steinarsson tók saman *
— /Mocgunbtaóið, AIG -
Morgunblaðið/Sverrir
DÓMARAR á æfingu í Mættl. Fremstur á myndinni er Þjóðverjlnn Hans Thom-
as og bróólr hans Jörgen sést í baksýn.
Spáte er
tengi-
liður dóm-
araog
þjálfara
DIETRICH SpSte er í þjálfara-
nefnd alþjóða handknattleiks-
sambandsins (IHF), sem vinnur
með dómararnefnd IHF, og er
hann tengiliður milli þjálfara
og dómara, þar sem farið er
yfir dómgæslu og hvernig línur
skuli lagðar. Hans er líka að
fylgjast með líkamlegu ástandi
dómara.
Að sögn Dietrichs eru dómar-
ar í góðu formi en það sé ekki
allt: „Þeir þurfa aðeins að ná
ákveðnum grunnií þreki og
styrk því aðallega þurfa þeir
að halda góðri einbeitingu í
sextíu mínútur. Að vísu getur
einbeiting minnkað ef líkams-
ástandið er ekki gott,“ sagði
hann þar sem hann fylgdist með
dómurum teygja stirða íimi í
Mætti á fimmtudagsmorgun.
„Mótið hefur gengið vel en
það verða öðruvísi leikir í næstu
viku því sum liðin eru að und-
irbúa sig fyrir þá leiki í riðlun-
um. Ég er mest undrandi yfir
Alsír en tel gott fyrir handbolt-
ann að fá slík lið. 3-2-1 leikstill
þeirra er meira fyrir áhorfend-
ur og í 6-0 vörn eins og Evrópul-
iðin spila fá stjörnur ekki að
njóta sín,“ sagði Dietrich að Iok-
um en hann var aðstoðarþjálfari
þýska landsliðsins um tíma og
tók einnig þátt í þjálfun íslenska
unglingalandsliðsins 1986 og
1987, með Jóhanni Inga Gunn-
arssyni, sem þá var þjálfari.
Morgunblaðið/Sverrir
SÆNSKA dómaraparlð Bo Johansson og Bernt KJelqvist, sem
dæmdl úrslitaleik helmsmeistarakeppninnar í Svíþjóð 1993.
1986
Sviss
1990
TÍWcó.
1993
SviWÓJ
Danir komust til
Svíþjóðar þegar bann
var sett á Jiigóslavíu
I Svlþjóð unnu þeir sér
rétt til að teika á íslandi
Árangur Dana gegn einstökum þjóðum í HM
Þjóð Leikir U J T Mörk
Svíþjóð 7 2 0 5 101:112
ísland 7 5 0 2 135:122
Rúmenía 7 2 0 5 114:137
Tékkóslóvakía 6 1 0 5 79:102
Ungverjaland 6 2 1 3 119:125
Pólland 5 2 0 3 94:98
Júgóslavía 4 2 0 2 65:72
Þýskaland 4 0 1 3 49:62
Sovétrfkin 3 1 1 1 47:45
Frakkland 3 3 0 0 58:32
V-Þýskaland 2 1 0 1 30:37
Austurríki 2 1 0 1 24:25
Suður-Kórea 2 1 1 0 47:43
SviSS 2 2 0 0 34:26
Spánn 2 2 0 0 42:37
Noregur 1 1 0 0 10: 9
Túnis 1 1 0 0 23:10
Brasiiia 1 1 0 0 32:12
A-Þýskaland 1 0 0 1 15:19
Kúba 1 1 0 0 28:21
Alsfr 1 1 0 0 27:18
Góður
andií
dómara-
hópnum
„Það eralveg nóg að
hafa sextán lið,“ sagði
Bo Johannson
H