Morgunblaðið - 18.05.1995, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
JHtfiputlifaMfe
1995
FIMMTUDAGUR 18. MAÍ
BLAÐ
C
Fær Evrópa 12
sæti í Japan?
Þær Evrópuþjóðir sem kom-
ast í úrslitakeppni EM á Spáni
fara á HM íJapan 1997
Tólf Evrópuþjóðir verða meðal þátttökuþjóða á HM
í Japan 1997. Álfurnar fjórar eiga allar þrjú
sæti á HM’97 eða samtals tólf. Gestgjafarnir, Japan,
eiga eitt sæti víst og hugsanlega Eyjaálfa annað og
síðan hafa Egyptar tryggt Afríku eitt sæti til viðbót-
ar. Þá eru eftir níu sæti sem koma í hlut Evrópu.
Evrópuþjóðirnar tiyggja sér ekki sjálfkrafa keppn-
isrétt hér á HM í Japan heldur verða það þær þjóðir
sem komast í 12-liða úrslitakeppni Evrópumótsins á
Spáni sem fara þangað. ísland er þar í riðli með
Rússum, Rúmenum og Pólveijum og kemst aðeins
efsta lið riðilsins til Spánar þannig að róðurinn gæti
orðið þungur hjá íslenska liðinu.
* Morgunblaðið/Sverr
Þátttöku Islands í HM lokið
ÍSLENSKA landsliðið tapaði fyrir Hvít-Rússum 23:28 í Laugardalshöil í gærkvöldi og lauk þar með keppni á heimsmeistaramótinu og endaði í 13. - 16. sæti. Eins
og sjá má á látbragðl fyrirliðans, Geirs Sveinssonar, er ævintýrið úti og aðal markmlðið náðist ekki — að tryggja llðinu sætl á Ólympíuleikunum í Atlanta á næsta ári.
Formaður HSI
Hef ekki
misst trú
á Þorbergi
„SAMNINGUR Þorbergs er
runninn út. Hann gilti þar til
þátttöku okkar lyki í heims-
meistarakeppninni, og rann því
út í kvöld,“ sagði Ólafur B.
Schram, formaður Handknatt-
leikssambands Islands, við
Morgunblaðið eftir tapið gegn
Hvíta-Rússlandi í gærkvöldi, síð-
asta leik íslenska liðsins á HM
að þessu sinni.
„Næstu verkefni liðsins eru í
haust, þegar Evrópukeppnin
hefst, og nú leggjast menn und-
ir feld. Eg vil ekki meina að
Þorbergur sé slæmur þjálfari
og hann kemur vel til greina
sem þjálfari liðsins áfram. Ég
tek þetta sem gerðist ekki sem
hans mistök á neinn hátt; fóta-
hreyfingar markmanns á ein-
hverjum tíma eru ekki hans mál
eða undirhandarskot einhvers
sóknarmannsins. Ég hef ekki
misst trú á Þorbergi," sagði ÓI-
afur B. Schram.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Rússar kæra
RÚSSAR kærðu úrslitin í leik sínum við Þjóðveija í gær. Ástæðan er sú
að þegar Börresen og Strand, hinir norsku dómarar leiksins, vísuðu Arno
Ehret þjálfara Þjóveija upp í stúku í fyrri hálfleik gleymdu dómararnir
að láta taka einhvern þýskan leikmann útaf eins og reglur gera ráð fyr-
ir. Nefnd á vegum IHF kemur saman kl. 9 árdegis í dag og úrskurðar
um kæruna. Ekki er búist við að neitt verði að gert. Á myndinni er
Maxímov, þjálfari Rússa, til hægri, en hann fékk að sjá rauða spjaldið í
leiknum eins og hinn þýski starfsbróðir hans.
„Held að þetta
hafi engin áhrif
á handboltann"
Höggið að tapa í fyrrakvöld í
16 liða úrslitum var mikið og
menn settu alla þá orku sem til var
í þann leik. Það var því erfitt að
rífa okkur upp í morgun og und-
irbúa okkur fyrir leikinn gegn
Hvít—Rússum. Sóknarleikurinn
rúllaði ágætlega í fyrri hálfleik og
við gerðum fimmtán mörk sem er
mjög gott. í síðari hálfleik gekk
ekki eins vel, en við hefðum átt að
vera búnir að gera út um leikinn í
fyrri hálfleik," sagði Þorbergur
Áðalsteinsson, landsliðsþjálfari eftir
fjórða tapleikinn í röð á HM —
23:28, fyrir Hvít Rússum í gær-
kvöldi. „Við náðum bara ekki nógu
góðri ferð á varnarleikinn til þess
að það væri mögulegt, því miður.“
Eftir kraftmikinn sóknarleik í
fyrrí hálfleik, þá virðast sóknar-
mennirnir verða mjög ragir í síðarí
hálfleik, hvernig stóð á því?
„Þeir bökkuðu mikið og þeir voru
ekki nógu ákveðnir í aðgerðum og
ég hef enga skýringu á því aðra
en að það vantaði meiri kraft í leik-
menn til að halda áfram. Leikurinn
gegn Rússum kostaði verulega mik-
ið og Rússarnir virtust ekkert frek-
ar en við vera búnir að jafna sig í
leiknum gegn Þjóðveijum í dag [í
gær].“
Hvaða áhríf heldur þú að þessi
slaki árangur hafi fyrír handknatt-
leikinn í landinu.
„Ég held að þetta hafi engin
áhrif á handboltann, þvert á móti
þá hefur þetta mót verið glæsilegt
og góð auglýsing fyrir handboltann.
Það eina sem gerist er að við förum
ekki inn á Olympíuleikana og það
er náttúrlega sárt því það er
skemmtilegasta mót sem hægt er
að sækja. Að öðru leyti hefur árang-
urinn engin áhrif. HSÍ stendur
ágætlega og við eigum mikið af
ungum og efnilegum leikmönnum
og nú er bara að stefna á Evrópu-
keppnina sem hefst í haust,“ sagði
Þorbergur Aðalsteinsson landsliðs-
þjálfari að lokum.
KNATTSPYRNA: IA OG KR MÆTASTIMEISTARAKEPPNIKSIIKVOLD / C12