Morgunblaðið - 23.05.1995, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. MAl 1995 B 3
IÞROTTIR
KNATTSPYRNA / 2. DEILD
17 ára nýliði skor-
aði tvö fynr Þrótt
ÞRÓTTARAR byrjuðu sumarið
með 3:0 sigri á Þórfrá Akur-
eyri á gervigrasinu í Laugardal
og gerði Heiðar Sigurjónsson,
17 ára strákur frá Dalvík sem
gekk í Þrótt í vetur, tvö mörk.
jþróttarar réðu yfir miðjunni í byij-
un og vörnin var góð með Ag-
úst Hauksson aftastan að venju. Eft-
ir 22 mínútur skoraði
Stefán Heiðar fyrra mark
Stefánsson sitt með góðu skoti
skrifar eftir snögga sókn
Þróttara.
Eftir hlé komust Þórsarar betur
inní leikinn og fengu gullið tækifæri
til að jafna á 73. mínútu þegar dæmd
var vítaspyma á Ágúst fyrir að stjaka
við Áma Þór Ámasyni inni í vítateig
Þróttar. Fjalar Þorgeirsson gerði sér
lítið fyrir og varði vítaspymu Páls
Gislasonar en atvikið sló Þórsara útaf
laginu og í þokkabót sneru Þróttarar
vörn í sókn og Heiðar bætti við öðm
marki eftir laglega fyrirgjöf Sigfúsar
Kárasonar, 2:0. Gunnar Gunnarsson
innsiglaði 3:0 sigur eftir góða send-
ingu Páls Einarssonar.
„Ég vil bara segja að við ætlum
að gera betur í deildinni en í fyrra
því það er ekki gott að éta sífellt ofan
í sig loforðin," sagði Ágúst þjálfari
og leikmaður Þróttar, sem var góður
í vöminni. Páll, Heiðar og Fjalar áttu
einnig góðan leik.
Hjá Þórsurum var fátt um fína
drætti en ekki er hægt að dæma lið-
ið af frammistöðunni í þessum leik
því liðið hefur ekki komið á gervigras-
ið í Laugardal í rúmt ár.
GuAmundur misnotar
vftaspymu
Hann var ekki rishár leikur Fylk-
is og HK á F'ylkisvellinum í
gærkvöldi. Lítið bar á samspili og
greinilegt að leikmenn em ekki bún-
■■■■■i ir að hrista með öllu
ívar úr sér vetur konung.
Benediktsson Fylkismenn sigmðu
skrifar með marki frá Þór-
halli Dan Jóhanssyni
á 38. mínútu.
Leiðinlegt atvik átti sér stað strax
á fyrstu mínútu þegar Fylkismannin-
um Þorsteini Þorsteinssyni og Reyni
Bjömssyni úr HK skullu harkalega
saman með þeim afleiðingum að
Þorsteinn rotaðist og var fluttur á
spítala.
Á 5. mínútu var Ingvari Ólasyni
leikmanni Fylkis bmgðið innan víta-
teigs og dæmd var vítaspyma. Hinn
gamalreyndi knattspyrnukappi Guð-
mundur Torfason tók spymuna en
Gunnar Sigurðsson í marki HK varði,
boltinn barst aftur til Guðmundar
og enn á ný varði Gunnar í marki
HK. Fyrir utan vítaspyrnuna og
mark Þórhalls þá fengu Fylkismenn
þijú færi en án árangurs.
Eftir að hafa verið sterkari í fyrri
hálfleik bökkuðu Fylkismenn nokkuð
í síðari hálfleik og HK náði að kom-
ast meira inn í leikinn án þess þó
að ná marktækifærum. Engu breytti
þó Ingvari Ólasyni, Fylkismanni
væri vísað af velli fyrir leikbrot á
63. mínútu.
BADMINTON
Morgunblaðið/Bjami Eiríksson
HEIÐAR Sigurjónsson, 17 ára plltur frá Dalvík, byrjaðl tfmabil-
IA hjá Þrótti meA glœsibrag f gserkvöldl þegar hann gerði tvö
mörk í 3:0 sigri á Þór frá Akureyri. Hár er hann á miðri mynd
að snúa á Eið Pálmason og f fjarska horfir Þórir Áskelsson á.
GóA byrjun Stjömunnar
Stjarnan sigraði ÍR með þremur
mörkum gegn engu í fyrstu
umferð íslandsmótsins i 2. deild karla
■■■■■ á Stjörnuvelli í gær.
Ingi Rúnar Stjaman byijaði vel
Gíslason og gerði Birgir Sig-
skrifar fússon fyrsta markið
eftir rúmlega stund-
aríjórðung og þannig var staðan í
hálfleik.
Stjaman sóttu stíft í upphafí síð-
ari hálfleiks og uppskar annað mark
eftir aðeins þijár mínútur. Þar var
að verki Bjami Gaukur Sigurðsson
pg eftir mikinn baming í vítateig
ÍR-inga, skoraði hann af stuttu færi.
ÍR-ingar áttu eina og eina skyndi-
sókn sem mnnu jafn óðum út í
sandinn. Garðbæingar gulltryggðu
sigurinn með marki sjö mínútum fyr-
ir leikslok er Valdimar Kristófersson
fékk boltann út við hægra víteigs-
homið og skoraði með fallegu skoti
efst í markhomið. Bæði liðin fengu
síðan góð færi á að skora á síðustu
mínútunum en án árangurs.
Nokkur vorbragur var á leik lið-
anna og eiga þau sjálfsagt eftir að
bæta leik sinn er líða tekur á sumar-
ið. Meðalmennskan var allsráðandi.
Öruggur sigur KA
KA vann góðan sigur á Víkingum,
3:0, er liðin mættust á Akureyri
í gærkveldi. Sigur KA var verðskuld-
■■^■■1 aður og er iiðið til
ReynirB. alls líklegt í barátt-
Eiríksson Unni í 2. deild í sum-
skrifar ar KA-menn mættu
ákveðnir til leiks og
sóttu þeir stíft að marki Víkinga í
upphafi og komust gestirnir ekki fram
fyrir miðju á fyrstu mínútúnum. Vík-
ingar komust smám saman inn í leik-
inn en KA hafði þó alltaf undirtökin.
Fyrsta færi leiksins var þó Víkinga
er Hörður Theodórsson átti skot yfir
af stuttu færi. Það var svo Þorvaldur
Sigbjörnsson sem gerði fyrsta mark
KA á 36. mínútu. Dean Martin átti
fallega sendingu af kantinum á Þor-
vald sem skallaði yfir markvörðinn
sem kom út í teig.
Seinni háfleikurinn var ekki nema
þriggja mfnútna gamall þegar KA jók
forskot sitt í 2-0 með marki Gísla
Einarssonar sem skallaði í netið af
markteig eftir fyrirgjöf Helga Aðal-
steinssonar. Víkingar urðu atkvæða-
meiri um hríð og sóttu nokkuð en
KA vörnin var vel á verði og braut
sóknir Víkinga á bak aftur. Víkingar
áttu tvö þokkaleg færi á þessum leikk-
afla en tókst ekki að nýta þau. KA
innsiglaði sigur sinn á 85. mínútu
þegar Dean Martin gaf stungusend-
ingu inn á Þorvald sem lék í átt að
markinu og skaut góðu skoti sem
Sveinbjöm Allansson markvörður
Vfkinga varði, en Þorvaldur fékk frák-
astið og skallaði í netið af stuttu færi.
Eins og áður sagði var sigur KA
verðskuldaður og lék liðið oft á tíðum
ágætlega þrátt fyrir að leikið væri á
malarvelli, en í heildina bar leikurinn
greinileg merki þess. Sókn KA var
fljót og leikin og verður hún eflaust
margri vöminni erfiður ljár í þúfu f
sumar. Leikmenn liðsins vom ákveðn-
ir og fljótir á boltann og gáfu hvergi
eftir.
Víkingar náðu sér lítið á strik í
þessum leik og virtust leikmenn liðs-
ins ekki ná upp nógu góðri baráttu
til þess að ógna KA mönnum vem-
lega.
Slakt hjá VíAi
Víðismenn ollu áhangendum sínum
í Garðinum vonbrigðum með
leik sínum gegn Skallagrími. Þeir
vom slegnir út af lag
Bjöm 'nu strax í upphafi
Blöndal leiks þegar Þórhallur
skrífar Jónsson skoraði fyrra
mark Skallagríms
með föstu skoti utan úr teig.
í síðari hálfleik endurtóku gestirn-
ir sama leikinn og í þeim fyrri með
marki á tíundu mínútu. Eftir það var
allur vindur úr heimamönnum og
gestirnir áttu meira í leiknum og áttu
sigurinn fyllilega skilin þegar upp var
staðið.
URSLIT
KORFUKNATTLEIKUR
Elsa IMielsen lagði Spánveija
ELSA Nielsen vann í gær Spánverjann Patricia Perez 12-10 11-5
í einliðaleik á heimsmeistaramótinu í badminton, sem fer fram í
Sviss. Guðrún Júlíusdóttir tapaði í oddaleik fyrir Santi Wibowo
frá Sviss, 2-11,11-3,11-1. Todor Velkov frá Búlgariu vann Árni
Hallgrímsson 15-6 15-5 og Vacharapan Khamthong frá Thælandi
vann Brodda Krisijánsson 15-9 15-3.
Auðveldur sigur
Skúli Unnar
Sveinsson
skrífar frá
Sviss
ÍSLENSKA landsliðið í körfu-
knattleik átti ekki íteljandi
vandræðum með slakt lið Aust-
urríkis í fyrsta leik liðsins í
C-riðli Evrópukeppninnar. Eftir
að hafa þriggja stiga forystu í
leikhléi kom góður kafli í þeim
síðari sem gerði út um leikinn.
Öruggur sigur, 74:58.
Leikurinn var mjög rólegur og virt-
ust leikmenn beggja liða dálítið
taugaveiklaðir og kom það niður á
leiknum, sérstaklega
sóknarleik okkar
manna, sem var tals-
vert langt frá því að
vera góður. Menn
flýttu sér allt of mikið og skutu úr
hálffærum þrátt fyrir að nægur tími
væri eftir á skotklukkunni. Skotnýt-
ingin var líka eftir því, aðeins 23% í
þriggja stiga skotum. Vömin var
ágæt, góð lenst af en það komu þó
kaflar þar sem menn misstu einbeit-
inguna.
Það var allt annað lið sem kom
inná í síðari hálfleik og nú var barátt-
an í lagi og menn léku leikkerfin og
allt gekk upp. Staðan allt í einu orð-
in 63:37 fyrir ísland og ömggur sig-
ur í uppsiglingu. Torfí Magnússon
landsliðsþjálfari lét alla tólf leikmenn-
ina leika að þessu sinni og kom það
vel út. Síðustu sjö mínútumar vom
engir úr byijunarliðinu inná og þá
náðu Austurríkismenn að minnka
muninn aðeins en sigurinn var aldrei
í hættu.
Austurríska liðið er ekki eins sterkt
og menn bjuggust við. Það munaði
þó miklu að stærsti leikmaðurinn
þeirra, 210 sentímetrar, meiddist
snemma leiks og varð að fara útaf.
HERBERT Arnarson var
stigahæstur íslendinga.
Hann fékk hnykk á hálsinn og gat
ekki hreyft höfuðið. Það munar um
minna og okkar strákar vom fegnir
að þurfa ekki að kljást við þennan
risa.
íslenska liðið náði ekki að sýna
sitt rétta andlit í Jeiknum, ef undan
em skildar fyrstu tíu mínútumnar í
síðari hálfleik. Það má segja að það
sé gott að liðið náði ekki toppleik því
strákamir gætu þá komið mótheijum
sínum á óvart í næstu leikjum.
Allir strákarnir léku vömina vel,
en mönnum vom nokkuð mislagðar
hendur í sókninni. Guðmundur
Bragason, Valur Ingimundarson,
Herbert Árnarson og Teitur Örlygs-
son vora bestu menn liðsins, en Her-
mann Hauksson og Marel Guðlaugs-
son léku báðir vel svo og Jón Kr. og
Hinrik. En engu að síður geta allir
leikið betur en í gær, og það ætla
strákamir að gera.
Var hræddur
fyrir leikinn
- sagðiTorfi Magnússon, landsliðsþjálfari
Knattspyrna
2. deild karla
Stjarnan - ÍR....................3:0
Birgir Sigfússon (18.), Bjami Gaukur Sig-
urðsson (48.), Valdimar Kristðfersson (88.).
Þróttur - Þór....................3:0
Heiðar Siguijónsson (22., 76.), Gunnar
Gunnarsson (90.).
Fylkir-HK........................1:0
Þórhallur Dan Jóhannsson (36.)
Víðir - Skallagrimur.............0:2
Þórhallur Jónsson (6.), Hjötur Hjartarson
(55.)
KA- Víkingur.....................3:0
Þorvaldur Makan Sigbjörnsson 2 (36., 85.),
Gísli Einarsson (48.).
Eg var hræddur fyrir þennan leik,
það er alltaf viss spenna í manni
fyrir fyrsta leik, og ég er því auðvit-
að ánægður með sigurinn," sagði
Torfí Magnússon landsliðsþjálfari eft-
ir að liði hans hafði tekist að yfír-
stíga fyrstu hindmnina á leiðinni að
áframhaldandi keppni í Evrópu-
keppninni í körfuknattleik.
„Annars spiluðum við ekki vel,
nema fyrstu tíu mínútumar í síðari
hálfleik, og það má ef til vill segja
að það hafí verið gott fyrst við þurft-
um ekki að leika vel til að vinna. Það
fengu allir að spila og það er hið
besta mál. Ég átti von á Áusturríkis-
mönnum sterkari en raun varð á, og
þeir em sterkari en þeir sýndu í kvöld.
Þeir misstu miðheijann útaf snemma
í leiknum og það hefur auðvitað áhrif
á liðið, sem hélt samt í við okkur þó
svo við lékum sæmilega vöm. Én
eftir kaflann í síðari hálfleik var þetta
aldrei spurning," sagði Torfi.
Ætlum okkur stóra hluti
„Við emm ánægðir með þetta, þó
svo við væram ekki að leika neitt
frábæran körfubolta. Þessar tíu mín-
útur í síðari hálfleik dugðu,“ sagði
Jón Kr. Gíslason fyrirliði liðsins eftir
sigurinn.
Firma- og félagakeppni
26. og 27. maí nk. heldur ÍH firma- og
félagakeppni í handknattleik.
Þátttökutilkynningar berist eigi síðar en 25. maí.
Upplýsingar hjá Sveinþóri í síma 565 3383 e. kl. 17.00
Einnig hjá Sveinbirni í síma 567 1800 á daginn
og 565 4191 á kvöldin.
„Við vomm hálf stressaðir í byrjun }
en eftir að við náðum að leika eðli-
lega í upphafi síðari hálfleiks var
þetta í fínu lagi. Það var mikilvægt
að vinna þennan leik. Við eigum að
geta unnið bæði Sviss og Kýpur og
með þessum sigri emm við komnir á
bragðið, sem er mjög mikilvægt því
við ætlum okkur að gera stóra hluti
hérna.“
Áfall aA tapa
Peter Wolf, þjálfari Austurríkis-
manna, var ekki ánægður eftir tapið
enda hafði hann gert sér vonir um
að lið hans yrði í baráttunni um þriðja
sætið í riðlinum og þar með áfram-
haldandi þátttöku í Evrópumótinu.
„Ég hafði gert mér vonir um að það
yrðum við, íslendingar og Sviss sem
berðumst um þriðja sætið, en eftir
tapið í kvöld og meiðsli Haid þá er
ég ekki bjartsýnn. Þetta tap var áfall
fyrir okkur,“ sagði hann.
„Ég ætlaði að vinna þennan leik á
hæðinni en eftir að Haid fór útaf
urðu mínir menn taugaveiklaðir en
komu þó aðeins til baka undir lokin.
Venjulega geram við um og yfir 75
stig í leik en núna vomm við að gera
tæp 60 stig, það er ekki nóg.“