Morgunblaðið - 15.06.1995, Síða 1
ferðamAl
_______Hótel í
Hveradölum /3
______BANKAR
Fjármálamiðstöö
að Kirkjusandi /4
FÓLK
Frá Össur til
Oxford /8
VIÐSKIFn MVINNULÍF
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 15. JÚNÍ 1995 BLAÐ n
Ríkisbréf
Alls bárust 35 gild tilboð í öðru
útboði 3ja ára óverðtryggðra ríkis-
bréfa sem lauk í gær. Heildarfjár-
hæð tilboðanna var 480 milljónir.
Þá bárust 9 gild tilboð í 3ja mánaða
ríkisvíxla að ijárhæð 767 milljónir
króna. Engum tilboðum var tekið í
ríkisvíxlana en heildarfjárhæð tek-
inna tilboða í ríkisbréf er 290 millj-
ónir á meðalverðinu 9,75%.
Parkett
Byko hefur framleitt nokkur hund-
ruð fermetra af parketti úr íslensku
lerki úr Hallormsstaðaskógi. Is-
lenska parkettið er í dýrari kantin-
um miðað við innflutta framleiðslu,
en samt ekki fjarri henni. Ætlunin
er að íslenska parkettið verði komið
í almenna sölu síðari hluta sumars
og munu viðtökurnar ráða umfangi
framleiðslunnar.
Útbod
STJÓRN Innkaupastofnunar
Reykjavíkurborgar hefur samþykkt
að leggja til við borgarráð að til-
boði lægstbjóðanda, Sveinbjarnar
Runófssonar sf. verði tekið í lagn-
ingu Strandvegar og undirganga.
Tilboðið hljóðaði upp á tæpar 54
milljónir eða 55,9% af kostnaðar-
áætlun. Verklok eru haustið 1996.
SÖLUGENGIDOLLARS
*
Yfirmenn Eftirlitsstofnunar Islands
koma til viðræðna við stjórnvöld
Kanna réttmæti
mismununar á
tryggingargjalds
EFTIRLITSSTOFNUN EFTA (ESA)
hefur hafíð rannsókn á því hvort
álagning svonefnds tryggingagjalds
feli í sér einhveija mismunun gagn-
vart atvinnugreinum hér á landi og
hvort það samrýmist samningnum um
Evrópska efnahagssvæðið. Trygg-
ingagjald er lagt á launagreiðslur
fýrirtækja og nemur 3% í sjávarút-
vegi, landbúnaði, hugbúnaðariðnaði,
ferðaþjónustu og samkeppnisgrein-
um. Aðrar greinar greiða hins vegar
6,35% tryggingagjald.
Magnús Pétursson, ráðuneytisstjóri
í fjármálaráðuneytinu, staðfesti í sam-
tali við Morgunblaðið að von væri á
yfirmönnum ESA hingað til lands á
mánudag vegna þessa máls.
Skilar 10,9 miiyörðum
Tryggingagjaldið var fyrst lagt á
árið 1991 þegar ýmis smærri gjöld
eins og launaskattur, atvinnuleysis-
tryggingagjald o.fl voru sameinuð.
Um er að ræða mjög stóran tekju-
stofn fyrir ríkissjóð því áætlað er að
hann skili um 10,9 milljörðum í ár.
Ljóst er að álagning trygginga-
gjalds í landbúnaði er utan lögsögu
ESA og hið sama á við um sjávarút-
veg. Hins vegar gæti komið til kasta
stofnunarinnar ef í ljós kemur að
álagning gjaldsins feli í sér einhveija
mismunun milli fyrirtækja í sam-
keppnisgreinum.
Fulltrúar ESA munu einnig ræða
við stjómvöld um önnur mál sem
snerta ríkisstyrki t.d. um hvort banka-
starfseminni í landinu sé mismunað,
styrki til skipaiðnaðar og styrki vegna
markaðssetningar á EES.
íslandsbanki fól á sínum tíma lög-
fræðingi sínum kanna hvort ríkis-
ábyrgð á starfsemi ríkisbankanna og
aðrar stjómvaldsaðgerðir þeim til
styrktar samrýmdust EES-samningn-
um. Vakti bankinn athygli ESA á
nokkmm atriðum er þessi mál snertu.
Ráðuneytið svaraði fyrirspum ESA
um málið í mars með því að gera
grein fyrir lögum og regtum um ríkis-
ábyrgð og niðurstöðum Seðlabankans
úr athugun á samkeppnisstöðu banka.
Samkeppnisstofnun skoðar
útboð Tryggingarstofnunar
STOÐTÆKJAFYRIRTÆKIÐ Össur um, en í kjölfar þess samdi stofnunin
hf. og Skóstofan Dunhaga hafa kært við átta fyrirtæki um kaup á spelkum,
úrvinnslu Tryggingarstofnunar á út- gervilimum og bæklunarskóm.
boði sem stofnunin hélt undir lok síð- Páll Ásgrímsson hjá Samkeppn-
asta árs, fyrir Samkeppnisstofnun. isstofnun, sagði í samtali við Morg-
Um er að ræða útboð vegna kaupa unblaðið, að þar væri enn unnið að
Tryggingarstofnunar á hjálpartækj- gagnaöflun í málinu.
Glitnirhf
DÓTTURFYRIRTÆKI ÍSLANDSBANKA
Ármúla 7, 155 Reykjavík Sími 560 88 00 og 560 88 20. Myndsími 560 88 10.
að hug$a um að j)átfese<
Vegna sérstakra laga um flýtifyrningar er rekstraraöilum afar hagstætt aö
fjárfesta í atvinnutækjum nú í ár.
Við hjá Glitni sérhæfum okkur í fjármögnun atvinnutækja. Með Kjörleiðum
Glitnis bjóðast þér fjórar ólíkar leiðir til fjárfestingar í atvinnutækjum.
Hafðu samband og fáðu að vita meira um
flýtifyrningar, skattfrestun og hvernig þú losnar við að
binda rekstrarfé í tækjakosti.
Út er komið upplýsingarit um Kjörleiðir
Glitnis. Þar er á einfaldan hátt fjallað
um ólíkar gerðir fjármögnunar.
Hringdu og fáðu eintak eða líttu inn
og spjallaðu við ráðgjafa okkar.
0TTÓ - GRAFlSK HÖNNUN LJÓSM: THE IMAGE BANK / BRETT FR00MER