Morgunblaðið - 09.08.1995, Page 1
1995
MIDVIKUDAGUR 9. AGUST
BLAÐ
MEISTARI
Á SÍNU SVIÐI
Ljósritunarvélar
og faxtæki
mita „ÉjjL
Styrktaraöili HM í frljálsum íþróttum.
djksgill Guttormsson - Fjölval hf.
Mörkin 1 • 128 Reykjavík • Símar: 581 2788 og 568 8650 • Bréfsími: 553 5821
Kristinn Björnsson tekinn
afturvið stjórninni
STJÓRN knattspyrnudeildar Vals ákvað í gær-
kvöldi að segja upp samningi deUdarinnar við
Hörð Hilmarsson, þjálfara liðsins í sumar, og
ráða aftur Kristinn Björnsson en hann hafði ver-
ið með liðið undanfarin tvö ár. Hann tók við
æfingum strax í gærkvöldi.
f fréttatilkynningu deildarinnar segir meðal
annars að ástæða uppsagnarinnar sé að liðið hafi
verið komið í sjálfheldu í leik og ieikaðferðum,
sem leiddi til þess að árangur hefur ekki verið
sá sem vænst var eftir. Því hafi verið gripið til
róttækra aðgerða með því að skipta um þjálfara.
„Menn voru sammála um Kristinn og er samning-
urinn við hann út keppnistímabilið,“ sagði Theód-
ór S. Halldórsson formaður deildarinnar. „Það
var rætt um hann þar sem málin þróuðust öðru-
vísi en Jagt var af stað með og þaraf leiðandi
voru ýmis mál stöðugt í endurskoðun.“
Kristinn þjálfar nú kvennalandsliðin í knatt-
spyrnu og mun gera það áfram en tveir landsleik-
ir eru framundan í september og einn í október.
„Þetta er bara afmarkað verkefni hjá Val til að
reyna að breyta atburðarrásinni og I haust verð-
ur að stokka upp spilin,“ sagði Kristinn í gær-
kvöldi. „Ég vil meina að þjálfaraskipti breyti
ekki öllu, stundum gengur það og stundum ekki
en finna þarf nýja uppstillingu, bæta varnarleik,
fá kraft í sóknarleikinn og láta leikmenn finna
það besta þjá sér. Nýr maður blæs öðruvísi í lúðr-
ana og nú þarf að vinda ofan af ógæfunni,“ sagði
Kristinn en hann hefur hefur séð flesta heima-
leiki Iiðsins og nokkra útileiki. „Ég veit nokkurn
veginn hvað klukkan slær, hef gengið í gegnum
þennan feril áður og þekki bæði innviði liðsins
og einnig mótheija."
Mynd/Göran Hger^ord
GUÐRÚN Arnardóttir í 400 m grindahlaupi í HM í Gautaborg — hún tryggði sér rétt til
að keppa í annari umferð.
Heppnin
ekki með
íslensku
liðunum
DREGIÐ var í Evr-
ópukeppninni í
handknattleik í gær
og fer fyrri leikur-
inn fram 7. eða 8.
október næstkom-
andi en sá síðari 14.
eða 15. sama mán-
aðar. Ljóst er flest
íslensku liðin eiga
erfiða ferð fyrir
höndum.
Af karlaliðunum
fékk Valur fyrst
heimaleik gegn
CSKA Moskva í
meistarakeppninni
og Afturelding fer
til Makedóníu og
leikur við Povard-
aria Negotino í
borgarkeppni Evr-
ópu. I keppni bikar-
hafa fer KA frá
Akureyri hins vegar
til Noregs og leikur
gegn Víking frá
Stafangri en Vík-
ingar fá Gumany
Zubri frá Tékklandi
í heimsókn í Evr-
ópusambands-
keppninni. Kvenna-
lið Sljörnunnar fær
Anaganesi Artas frá
Grikklandi í meist-
arakeppninni og i
bikarkeppninni fær
Fram, D.H.C Me-
arwen frá Hvíta-
Rússlandi í heim-
sókn.
Jón Amar meiddist og hætti
Guðrún komst áfram. Meiðsli Péturs tóku sig upp í upphitun og hann tók ekki þátt í kúluvarpskeppninni
Jón Arnar Magnússon meiddist í
tugþrautarkeppni heimsmeist-
aramótsins á mánudaginn og hætti.
Hann hafði verið
dæmdur úr leik í 400
m hlaupinu daginn
áður, fyrir að stíga á
línuna sem skilur að
brautirnar; á vinstri línu í beygju,
sem er harðbannað. Seinni daginn
meiddist hann svo í stangarstökkinu
og hætti keppni. Hann sagðist hafa
verið vel upplagður, taldi sig vera á
svipuðu róli eftir fyrri daginn og í
Götzis í Austurríki i vor þegar hann
Skapti
Hallgrímsson
skrífar frá
Gautaborg
setti íslandsmet. En meiðslanna
vegna varð hann að hætta nú og fór
heim til íslands í gær.
Birgir Guðjónsson, einn yfirdóm-
ara mótsins, ráðlagði Islendingunum
að kæra ekki úrskurð brautardómara
í tilviku Jóns Arnars. Hann skoðaði
myndband af atvikinu og sagði enga
von um að ákvörðun brautardómara
yrði breytt. „Það var ekki gaman að
þurfa að gera þetta, en ég er hérna
sem hlutlaus starfsmaður en ekki
sem íslendingur. Ég þurfti að skýra
þetta svona út í þremur tilvikum, og
sagði mönnum bara að þeir myndu
örugglega tapa sínum 100 dollur-
um,“ sagði Birgir við Morgunblaðið.
Þá upphæð þarf að greiða þegar
kært er. „Það var ekki nokkur leið
að sjá annað en hann stigi á línuna
— að sjá atvikið í sjónvarpinu var
st'aðfesting á því að ákvörðun braut-
ardómarans væri rétt og ekki nokkur
leið að afsanna hana,“ sagði Birgir.
Athygli vakti að bandaríski hlaup-
arinn Darnell Hall var dæmdur úr
leik í undanúrslitum 400 metra
hlaupsins, Bandaríkjamenn kærðu
og kæran var tekin til greina. Hann
verður því með i úrslitahlaupinu í
dag. Greinilega sést á sjónvarpsmynd
að Hall stígur á vinstri línu, í beygju,
ekki bara einu sinni heldur fjórum
sinnum, og því vaknar sú spurning
hvort ekki sé sama Jón eða séra
Jón, því Hall er heimsmeistari innan-
húss. „Ég get ekki útskýrt þetta.
Þetta var ekki rætt á fundi okkar í
dag og ég hef ekki séð atvikið. Ég
verð að kynna mér það áður en get
sagt eitthvað um það,“ sagði Birgir.
Guðrún Arnardóttir keppti í 400
metra grindahlaupi í gær og komst
áfram í undanúrslit. Pétur Guð-
mundsson var hins vegar ekki með
í kúluvarpskeppninni. Hann hefur
verið meiddur á hendi, og sagði áður
en hann hélt á völlinn, að hann myndi
ekki taka neina áhættu. Meiðslin
tóku sig hins vegar upp strax í upp-
hituninni, þannig að hann gat ekki
verið með.
Guðrún Arnardóttir hleypur aftur
i dag og Vésteinn Hafsteinsson tekur
þátt í riðlakeppni kringlukastsins.
■ Allt um HM Gauta-
borg / B4,B5,B6,
87,810,811,812
HESTAR: SIGURÐUR OG HUGINIM HOFÐU TVO GULL A HORKUNNI / B8,B9,B11