Morgunblaðið - 22.08.1995, Blaðsíða 7
6 B ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 1995
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
+
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 1995 B 7
KNATTSPYRNA
Valsmenn
sýndu á sér
nýja hlið
Eyjamenn á græna grein
EF markja má leik Valsmann
gegn FH á Hlíðarendavelli á
laugardaginn þá hafa greini-
leg umskipti átt sér stað á lið-
inu eftir að þjálfaraskiptin
áttu sér stað hjá þeim fyrir
skemmstu. Valsmenn sem
voru fyrir leikinn á botni deild-
arinnar ásamt FH léku oft á
tíðum við hvern sinn fingur í
viðureigninni og verðskuld-
uðu 3:0 sigur að leikslokum
sem var síst og lítill miðað við
gang leiksins. Leikmenn FH
voru hins vegar daufir og bar-
áttulausir allan tímann og virt-
ist oft á tíðum eins og þeir
gerðu sér ekki grein fyrir því
hversu mikið væri í húfi að
ná stigi eða stigum úr leikn-
um.
Valsmenn gerðu sér aftur á
móti fyllilega grein fyrir hvað
var í húfi og hófu leikinn af miklum
krafti og sóttu stíft. Mikil barátta
■■^■■1 var í liðinu auk þess
[vgr sem það sýndi á sér
Benediktsson hlið sem iítið hefur
skrifar sést í sumar og það
var að leika léttan og lipran fót-
bolta. Eftir nokkrar harðar sóknir
að marki FH opnuðu Hlíðarendap-
ilatarnir markareikning sinn á 12.
mínútu, en létu ekki þar við sitja
heidur héldu áfram að sækja þrátt
fyrir að ekki tækist að bæta fleiri
mörkum við í fyrri hluta leiksins.
Leikmenn FH réðu ekkert við
Valsmenn og áttu í mesta basli
að byggja upp leik sinn og aðeins
langskot Harðar Magnússonar af
25 m færi gat talist ógnun við
Valsmarkið í fyrri hálfleik.
Valsmenn tóku síðan leikinn í
sínar hendur strax í bytjun síðari
hálfleiks og skoruðu strax á fyrstu
mínútu. Ekki varð það til að hressa
upp á gestina á Hlíðarenda að
þessu sinni. Valsmenn réðu oft á
tíðum lögum og lofum á vellinum
með baráttu og skipulögðum leik.
Leikmönnum FH virtist falla allur
ketill í eld og þeir smátt og smátt
lögðu niður rófuna. Það reyndist
því Valsmönnum auðvelt að skapa
sér nokkur góð marktækifæri til
viðbótar og úr einu þeira gull-
tryggðu þeir sigurinn á 84. mínútu.
„Já, það var allt annað að sjá
til strákanna í þessum leik. í liðinu
var mikil lífsgleði og sigurvilji sem
gaman var að sjá. Okkur vantaði
nauðsynlega stigin því hvert stig
nú er gulls ígildi. Nú small þetta
saman hjá okkur og vonandi verð-
ur framhald á,“ sagði Kristinn
Björnsson, þjálfari Vals glaðbeittur
að leikslokum.
Fall FH—inga er mikið nú í
sumar eftir að hafa verið í öðru
sæti deildarinnar tvö sl. ár. Nú
virðist algjört andleysi ríkja í
hópnum inn á vellinum og eins
og liðið lék á Hlíðarenda verða
leikmenn að fara gera eitthvað
róttækt í sínum málum eigi að
koma í veg fyrir fall.
Þrátt fyrir að Valsliðið hafi leik-
ið vel að þessu sinni meiga menn
ekki láta það blinda sig í framhald-
inu. Liðið er enn á hætttusvæði
þrátt fyrir sigurinn, ekkert er enn
í hendi.
1aAÁ 13. mín. tók HÖrð-
■ %#ur Már Magnússon
hornspymu frá vinstri og sendi
inn í markteig hægra meginn
þar sem Jón Grétar Jónsson kom
og skallaði að marki, Stefan
Toth bjargaði á marklínu, en
Kristinn Lárusson kom fyrstur
að frákastinu og spymti í mark-
ið af stuttu færi.
■ ^%Aðeins var liðin hálf
■ VFmínúta af síðari háif-
ieik þegar Hörður Már Magnús-
son tók boltann við miðjuna iék
upp að vítateig FH vinstra meg-
in sendi stutt á Stuart Beards
sem sendi rakieitt í þríhyrning
á Hörð Má aftur rétt innan við
vítateigshomið. Hörður Már
tvínónaði ekki heidur skaut
föstU' skoti f fjærhornið.
3m ^^Kristinn Lámsson
■ %Jstakk sér inn fyrir
vöm FH á 84. mín vinstra meg-
in og framlengdi boltann áHörð
Má og hann afgreiddi knöttinn
á fyrsta framhjá Stefáni Arnar-
syni og í markið.
EYJAMEMN tilltu sér á græna
grein 1. deildar með harðsótt-
um sigri á baráttuglöðum Kefl-
víkingum í Eyjum, 3:2. Leikurinn
einkenndist af mikilli baráttu,
hörðum en drengilegum leik og
miklum vindgangi verðurguð-
anna. Þeir fáu áhorfendur sem
lögðu leið sína á Hásteinsvöll
fengu mikið fyrir sinn snúð,
fimm mörk og merkilega góðan
leik þrátt fyrir slæmar aðstæð-
ur.
■C eflvíkingar léku undan vindin-
um í fyrri hálfleik, en engu
að síður voru það Eyjamenn sem
sóttu fast fyrstu mín.
Hermann Kr. °S uppislráru mark
Jónsson strax á fjórðu mín.
skrifar Þetta sló þó Keflvík-
inga ekki útaf laginu
og áður en fimmtán mín. voru komn-
ar uppá vallarklukkuna höfðu þeir
komist yfir, 1:2. Keflvíkingar voru
síðan mun aðgangsharðari i fyrri
hálfleiknum, en Eyjamenn skutu inn
skyndisóknum á milli. Kjartan Ein-
arsson og Ragnar Steinarsson fengu
upplögð færi til að skora, en brást
bogalistin, skutu framhjá. Marco
Tanasic skaut yfir úr hættulegu
færi eftir að brotið hafði verið á Ola
Þór Mágnússyni. Tryggvi Guð-
mundsson átti hættulegasta færi
Eyjamanna, Ólafur Gottskálksson
varði gott skot hans.
Eyjamenn komu baráttuglaðir til
seinni hálfleiks og sýndu strax víg-
tennurnar. Eftir stanslausa sókn frá
upphafsflauti dómarans hlaut eitt-
hvað að láta undan í vörn Keflvík-
inga. Ólafur Gottskálksson varði frá-
bærlega frá Leifi Geir Hafsteins-
syni, úr dauðafæri, og skömmu síðar
iúmska hornspyrnu Tryggva Guð-
mundssonar. Á 48. mín. kom Ólafur
engum vörnum við þegar Martin
Eyjólfsson jafnaði. Eftir markið
sóttu Eyjamenn ákaft, en Ólafur
varði allt sem á markið kom. Tví-
vegis var Tryggvi Guðmundsson
hársbreydd frá því að skora, en í
bæði skiptin sá Ólafur við honum.
Þá varði Ólafur þrumuskot frá Frið-
riki Sæbjörnssyni af löngu færi.
Um miðjan hálfleikinn fór mestur
broddurinn úr sóknarkrafti Eyja-
manna og Keflvíkingar tóku til við
að ógna marki þeirra með skipu-
lögðum skyndisóknum. Allt stefndi
í jafntefli þegar Bjarnóifi Lárussyni
var skipt inná og hann hafði ekki
verið lengi inná vellinum þegar
hann skoraði sigurmark IBV með
ólýsanlegu þrumuskoti af löngu
færi — annað eins mark hefur varla
sést á Hásteinsvelli, 3:2.
Eyjamenn náðu að innbyrða öll
þrjú stigin með sínum þriðja sigur-
leik í röð og verma nú öllu þægi-
legra sæti en þeir hafa mátt venj-
ast á undanförnum árum. Eins og
fyrr einkehndist leikur þeirra af
öflugri baráttu og miklum sigur-
vilja. Keflvíkingar misstu Eyja-
menn upp að hlið sér á stigatöfl-
unni með þessum ósigri. Leikur
þeirra var nokkuð kaflaskiptur,
þeir náðu ekki að fyigja eftir ágæt-
um leik sínum í fyrri háifleik.
1l^\Eftir þunga sókn ÍBV björguðu Keflvíkingar í horn á 4.
■ ^Jmín. Steingrímur Jóhannesson sendi knöttinn fyrir markið
— beint fyrir fætur Hermanns Hreiðarssonar, sem skoraði auðveld-
lega óáreittur af varnarmönnum Keflvíkinga.
1a 4 Keflvíkingar fengu aukaspyrnu á 9. mín. út við hiiðarjínu,
■ I rétt innan miðlínu. Sendingin kom hátt inn að marki ÍBV,
þar sem Ární Vilhjálmsson náði að sneyða knöttinn laglega framhjá
Friðriki Friðrikssyni.
1B^%Marco Tanasic gerði mikinn usla í vöm Eyjamanna á 15.
■ ■■mín., sendi knöttinn á Ragnar Margeirsson, sem rétt utan
vítateig skaut þrumuskoti í þverslánna, knötturinn hrökk niður og
small síðan uppi í þaknetið. Glæsimark Ragnars!
2«^Eyjamenn byijuðu síðari hálfleikinn með látum og stór-
■ JEasókn. Martein Eyjólfsson jafnaði á 48. mín. með góðu
skoti, eftir frábæran undirbúning Inga Sigurðssonar.
3a Bjarnólfur Lárusson, nýkominn inná sem varamaður, var
méSmmeð knöttinn á miðjum vallarhelmingi Keflvíkinga, smell-
hitti knöttinn sem hafnaði út við stöng án þess að Ólafur Gottskálks-
son ætti minnstu möguleika að veija. Sjaldséð slík glæsimörk!
Skagamenn
hentufrá
sér sigri
VALSSTÚLKUR sigruðu KR með
einu marki gegn engu í heldur
daufum bikarúrslitaleik á Laugar-
dalsvelli á sunnudaginn. Þetta var
sjöundi bikarmeistaratitill Vals-
stúlkna og hefur ekkert lið sigrað
jafn oft í bikarkeppni kvenna. KR
stúikur léku til úrslita annað árið
í röð og þurftu aftur að játa sig
sigraðar.
Hávaðarok setti óneitanlega svip sinn
á leikinn. KR-stúlkur léku með
vindinn í bakið í fyrri hálfleik og voru
mun meira með boltann.
Þær náðu þó ekki að
nýta sér vindinn sem
skyldi, áttu nokkur væn-
leg skot að marki sem
öll fóru framhjá. Vals-
stúlkur fengu eitt færi í fyrri hálfleik,
Stefán
Eiríksson
skrifar
er Kristbjörg Ingadóttir skaut í hliðar-
netið á 35. mínútu.
Flestir bjuggust við því að róðurinn
yrði KR-stúlkum þungur í síðari hálf-
leik, þegar vindurinn yrði í bak Vals-
stúlkna. Sú varð ekki raunin. Valsstúlk-
um gekk jafnvel enn verr en KR-stúlkum
í fyrri hálfleik að nýta sér vindinn þó
þær næðu tveimur vænlegum skotum
að marki. Á 82. mínútu kom síðan sigur-
markið eftir hornspyrnu, og voru KR-
stúlkur ósáttar við það, töldu að brotið
hefði verið á Sigríði markverði með þeim
afleiðingum að hún missti knöttinn.
Nokkuð líf færðist í KR stúlkur en þeim
tókst ekki frekar en áður að skapa sér
vænleg færi og urðu því að lokum að
sætta sig við ósigur.
Leikurinn var fremur rislítill og lítið
fyrir augað lengst af. Bæði lið sýndu þó
góða baráttu og einkum var varnarleikur-
inn öruggur. Guðrún Sæmundsdótt-
ir átti mjög góðan leik og kórónaði
frammistöðu sína með því að skora
sigurmarkið. Þá lék íris Eysteins-
dóttir vel á miðjunni og Birna
Bjömsdóttir var yfirveguð í mark-
inu. Hjá KR átti Inga Dóra Magnús-
dóttir góða spretti, en hún meiddist
í síðari hálfleik og veikti það KR-lið-
ið nokkuð. Guðlaug Jónsdóttir lék
ágætlega og Ásdís Þorgilsdóttir
stjómaði vöminni röggsamlega.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
UM það er deilt hvort brotið hafi verið á Sigríði F. Pálsdóttur, markverði KR, áður en Guðrún Sæmundsdóttir skoraði sigurmark Vals.
Myndirnar sýna aðdragandann að sigurmarkinu, sem Guðrún skoraði.
Valsstúlkur
bikarmeistarar
FOLK
Sigurviljinn til staðar
„ÉG er ákaflega ánægð með þetta. Leikurinn var nokkuð jafn en við höfðum
það. Stelpumar sýndu mikla baráttu og kláruðu leikinn með sóma. Þetta var
mjög erfiður leikur, en I svona leikjum er það fyrst og fremst dagsformið sem
ræður sem og sigurviljinn, og hann var til staðar,“ sagði Ragnheiður Víkingsdótt-
ir þjálfari Vals.
„Það var allt mjög skemmtilegt við þennan leik,“ sagði Guðrún Sæmundsdótt-
ir fyrirliði Vals, en hún skoraði sigurmarkið í leiknum. „En ég er alveg búin. Ég
hef ekki oft spilað svona erfiðan leik.“ Aðspurð sagði Guðrún að í svona leik
væri þetta auðvitað spurning um heppni og hún hefði verið með þeim. Um mark-
ið sagðist Guðrún ekki geta sagt til um það hvort brotið hefði verið á mark-
verði KR. „Ég veit það ekki, ég potaði bara í boltann og hann fór inn, en get
ekki sagt hvort eitthvað óieyfilegt hafi gerst á undan því.“ Guðrún sagði að
Valsstúlkur ætluðu að einbeita sér að deildarkeppninni næst, en þær eru nú á
toppnum ásamt Breiðabliki. „Við ætlum samt að njóta þess í kvöld og nótt að
vera bikarmeistarar og hugsa um eitthvað allt annað á rnorgun," sagði Guðrún
eftir leikinn.
Valsstúlkur fengu
hornspymu á 82.
mínútu. íris Eysteinsdóttir
spyrnti knettinum beint inn í
markteig KR og Sigríður F.
Pálsdóttir virtist handsama
knöttinn. Guðrún Sæmundsdótt-
ir og Ólöf Helgadóttir sóttu fast
að Sigríði og Sigríður missti
knöttinn frá sér. Guðrún Sæ-
mundsdóttir var fljótust að átta
sig og potaði honum í netið.
■ RAGNHEIÐUR Víkingsdóttir
þjálfari Vals fékk ekki vanalega
flugferð sem þjálfarar fá eftir að
lið þeirra hefur tryggt sér titil.
Ástæðan var einföld, Ragnheiður
er komin rúmlega átta mánuði á
leið.
■ KRISTBJÖRG H. Ingadóttir
leikmaður Vals hljóp inn í búnings-
klefa áður en verðlaunaafhendingin
fór fram eftir leikinn, og kom út
aftur með pakka sem hún færði
Sigríði F. Pálsdóttur markverði
KR. Aðspurð sagði Kristbjörg að
í pakkanum hefði verið vasaklútur
og var honum pakkað inn í silfurlit-
aðan pappír af augljósum ástæðum.
Aðspurð hvort það hefði ekki verið
áhætta að pakka gjöfinni svona inn
fyrir leikinn sagði hún sposk að
menn yrðu að taka áhættu í knatt-
spyrnunni.
■ OLGA Færseth og Guðlaug
Jónsdóttir leikmenn KR eru á leið
til Bandaríkjanna í nám og var
bikarúrslitaleikurinn líklega síðasti
leikur þeirra með KR í sumar. Þó
er möguleiki á því að þær leiki með
liðinu gegn IA áður en þær halda
af landi brott.
DRAUMUR Skagamanna að Ijúka íslandsmótinu með fullu hús
stiga varð að engu þegar liðið nánast henti frá sér sigrinum
gegn barátuglöðu liði Leifturs á Akranesi á laugardaginn. Þegar
aðeins sex mínútur voru til leiksloka virtist ekkert geta komið f
veg fyrir sigur heimamanna. Þeir höfðu tveggja marka forystu,
en agaleysi á lokakaflanum varð þess vaidandi að Leiftursmenn
jöfnuðu leikinn og kræktu í annað stigið.
Sigþór
Eiríksson
skrifar frá
Akranesi
Eg kom hingað til að ná í stig,
en ég verð að viðurkenna að
við ætluðum frekar að ná í varnar-
stig, en stigið kom
á óvæntari hátt en
ég átti von á. Strák-
arnir sýndu mikinn
baráttuvilja og
náðu að jafna í lok-
in úr því er virtist vonlausri stöðu,“
sagði Óskar Ingimundarson, þjálf-
ari Leifturs kampakátur að leiks-
lokum.
Leikurinn fór fremur rólega af
stað, en Skagamenn voru meira
með knöttinn- en tókst ekki að
skapa sér nein afgerandi mark-
tækifæri í hálfleiknum utan þess
þegar Bjarki Gunnlaugsson slapp
inn í vítateig Leiftursmann og átti
skot naumlega framhjá fjærstöng.
En það voru gestirnir sem fengu
besta marktækifæri hálfleiksins.
Eftir um hálftíma leik léku þeir
Sverrir Sverrisson og Gunnar
Oddsson skemmtilega _ í gegnum
vörn Skagamanna, en Árni Gautur
Arason, markvörður ÍA varði
meistaralega. Fjórum mínútum fyr-
ir leiksloka átti Páll Guðmundsson
þrumuskot sem Árni Gautur gerði
vél í að slá yfír.
Logi Ólafsson, þjálfari ÍA hefur
líklega talað hressilega yfir hausa-
mótunum á sínum mönnum í leik-
hléi því þeir komu tvíelfdir til leiks
í síðari hálfleik og Arnar Gunn-
laugsson gaf tóninn þegar hann
átti þrumuskot í þverslána á fyrstu
mínútu hálfleiksins. Tveimur mín-
útum síðar varði Þorvaldur Jóns-
son mjög vel eftir að Bjarki Gunn-
laugsson hafði prjónað sig laglega
í gegnum vörn Leifturs.
Leiftursmenn komu aftur inn í
leikinn eftir þessa orrahríð og voru
hársbreidd frá því að jafna þegar
Sigursteinn Gíslason, varði skot á
marklínu. Sigur heimamenna virtist
vera í höfn þegar Arnar Gunnlaugs-
son skoraði annað mark þeirra. En
það var öðru nær því Leiftursmenn
voru alls ekki á sama máli. Mínútu
eftir fyrra mark Leifturs gátu
Skagamenn gulltryggt sigurinn þeg-
ar Bjarki Gunnlaugsson komst einn
inn fyrir vöm gegstanna en hann
skaut framhjá úr upplögðu færi.
„Ég ætla ekki að velta mér upp
úr því hvort dómurinn í lokinn var
réttur eða rangur, en lið eins og
Akranes á ekki að missa niður
tveggja marka forystu þegar svo
stutt er til leiksloka og því er ég
afar ósáttur með hvernig þetta fór
hjá okkur. Við lékum vel í síðari
hálfleik og fengum nóg af mark-
tækifærum til að klára leikinn,
meðal annars þrjú skot i stöng.
Við getum sjálfum okkum um
kennt hvernig fór,“ sagði Logi Ól-
afsson, þjálfari Skagamanna.
Það er engum blöðum um það
að fletta að Leiftursmenn eru með
eitt skemmtilegasta liðið sem sótt
hefur Skagann heim í sumar. Liðið
er léttleikandi og reynir umfram
allt að láta knöttinn vinna fyrir lið-
ið og það er greinilega engin tilvilj-
un að þeir eru í þriðja sæti deildar-
innar. Leiki þeir eins og þeir gerðu
að þessu sinni í framhaldinu þá er
annað sætið í deildinni ekki svo fjar-
lægur draumur.
1B^\Haraldur Ingólfsson vann knöttinn af varnarmanni Leifturs
■ Vá 51. mín. og sendi fyrir markið, Júlíus Tryggvason skall-
aði frá, en boltinn féll fyrir fætur Ólafs Þórðarsonar sem iék með
knöttinn í átt að vítateignum og skaut síðan efst upp í þaknetið.
2I#%Á 80. mínútu fengu Skagamenn aukaspyrnu hægra megin
■ ^#við vítateigshomið og Amar Gunnlaugsson gerði sér iítið
fyrir og skoraði með snúningsskoti á nærstöng.
2m 4 Páll Guðmundsson geystist með knöttinn inn í teig Skaga-
■ I manna og er hann var kominn upp að endamörkum kom
Zoran Milkjovic og felldi Pál. Dæmd var vítaspyrna. Úr spymu skor-
aði Pétur Björn Jónsson af öryggi.
^■^Á 90. min kom löng og há sending f áttina að vftateig
mm ■ áE»Skagamanna, Gunnar Már Masson fylgdi hemii vel á eftir
og Þórður markvörður var kominn f skógarferð, Gunnar náði að vippa
yfir hann en ólafur Adolfsson skallaði frá. Þá var Þórður kominn
aftur til baka og grípur knöttin þegar hann fellur inn f teiginn. Ólafur
Ragnarsson dómari taldi Þórð hafa verið utan teigs þegar hann greip
knöttinn og dæmdi því aukaspyrnu á vítateigslínunni. Úr spyrnunni
skoraði Gunnar Oddsson.
„Markið var vafasamt"
Eg er auðvitað mjög fúll yfir þvf
að við skyldum ekki klára
leikinn. Þetta var jafn leikur og
aðeins spurning hvort liðið yrði á
undan að skora,“ sagði Einar
Sveinn Árnason þjálfari KR eftir
úrslitaleikinn. „Markið var að mínu
mati vafasamt, markvörðurinn var
með boltann og það var ruðst á
hana. En auðvitað er þetta spurn-
ing um heppni eins og það lið sem
sigrar er það sem hefur heppnina
með sér.“ Aðspurður sagðist Einar
vera sáttur við sumarið þrátt fyrir
ósigurinn. „Við erum í úrslitum í
bikarkeppninni og nú í þriðja sæti
i deildinni og stefnum að því að
halda því. Þetta er auðvitað fúlt í
dag en það kemur dagur eftir
þennan. Það eru margar ungar og
efnilegar stúlkur að koma upp hjá
KR og ég er því bjartsýnn.“
lUeistann vantaði
„Það vantaði eitthvað upp á hjá
liðinu, neistinn sem verið hefur í
síðustu bikarleikjum var ekki til
staðar,“ sagði Helena Ólafsdóttir
fyrirliði KR eftir leikinn. „Það var
líka lykt af markinu finnst mér.
Það hefur yfirleitt verið dæmt á
svona brot í kvennaboltanum í
sumar.“ Helena sagði að þær hefðu
fengið færi í leiknum sem þær
náðu ekki að nýta, en varla neitt
sem kalla megi dauðafæri. „Við
höfðum vindinn í bakið í fyrri hálf-
leik og hefðum átt að notfæra
okkur það betur. Það lægði síðan
í síðari hálfleik og þá virtist hann
ekki skipta eins miklu máli. Síðan
veikti það okkur er Inga Dóra
[Magnúsdóttir] fór meidd út af,“
sagði Helena.