Morgunblaðið - 22.08.1995, Side 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
MMIjarðan fyrir Olympiuleika i sjonvarpi
Greiðslur bandarísku sjónvarpsstöðvanna fyrir sjónvarpsréttinn á Ólympíuleikum, milljónir ísl. kr.
SUMAR-
LEIKAR
14.850
S 5.742
'C3
1.650
99
g 47.190
Uj 26.466
Qj §
5= Oj
19.800
VETRAR
LEIKAR
n
G
NBC greiðir rúma 47
milijarða króna fyrir
sjónvarpsréttinn í
Sydney.
36.630
24.750
19.800
165 422 660
■53K5S* ‘Tssssswfef ÚÁ#
■ OLGA Færesth, landsliðskona í
körfuknattleik og knattspyrnu, mun
ekki leika með íslandsmeisturam
Breiðabliks í körfuknattleik í vet-
,ur. Olga er á förum til náms í
Bandaríkjunum. Blikarnir hafa
fengið Ingu Dóru Magnúsdóttir,
sem lék með Tindastóli, til liðs við
'sig.
■ EYDÍS Konráðsdóttir sund-
kona úr Keflavík fór utan á laugar-
daginn ásamt þjálfara sínum Mart-
in Radermacher til keppni á Evr-
opumeistaramótinu í sundi sem
haidið er í Vínarborg.
■ EYDÍS er eini íslenski sund-
maðurinn sem náði lágmörkum á
'mótið. Hún keppir í 200 m skrið-
Isundi, 100 og 200 m baksundi og
100 m flugsundi.
■ GUÐMUNDUR Albertsson
handknattleiksmaður hefur afþakk-
að boð bandaríska handknattleik-
sambandsins um að leika með
bandaríska landsliðinu á Ólympíu-
leikunum í Atlanta á næsta ári.
Mm
FOLK
Guðmundur hafði fengið boð þess
efnis, en eftir nokkra umhugsun
ákvað hann að vísa boðinu frá
sér.
■ GUÐMUNDUR hefur þess í stað
verið ráðinn aðstoðarmaður Will-
ums Þórs Þórsson þjálfara 1. deild-
ar liðs karla hjá KR auk þess sem
hann mun þjálfa 2. flokk karla.
Guðmundur mun jafnframt leika
með liðinu eins og í fyrra.
■ MONICA Seles tenniskona
keppti um helgina á fyrsta opinbera
móti sínu í 28 mánuði þegar hún
tók þátt í Opna kanadíska meist-
aramótinu. Seles gerði sér lítið fyr-
ir og sigraði í mótinu. Hún sigraði
Amanda Coetzer 6-0, 6-1 í úrslit-
leik sem einungis stóð yfir í 51
mínútur. I undanúrslitum sigraði
Seles, Cabrielu Sabatini einnig í
tveimur lotum, 6-1, 6-0 í leik sem
stóð yfir í 48 mínútur.
■ SELES sem ekki tapaði lotu í
mótinu undirbýr sig nú af kost-
gæfni fyrir Opna bandaríska
meistaramótið sem hefst í byijun
september.
■ ANDREAS Zickler hefur verið
á reynslusamningi hjá Bayern
Miinchen síðustu vikur, en hann lék
áður með Dynamo Dresden. En
eftir að hann skoraði tvö mörk með
Bayern gegn Karlsruhe um helg-
ina undirritaði hann þriggja ára
samning við félagið.
■ ÞÓRÐUR Guðjónsson og félag-
ar í Bochum töpuðu um helgina
fyrir Liibeck 3:0. Þórður kom inn
á 78. mínútu, en náði ekki að setja
mark sitt á leikinn. Liibeck kom
upp úr 3. deild í vor og hefur hafið
keppni 12. deild af krafti.
GOLFMÓT
Landsmótið í golfí er nýafstað-
ið eins og kunnugt er, en
mótið fór fram á Strandarvelli
við Hellu að þessu sinni í mjög
leiðinlegu veðri. Aldrei hafa fleiri
kylfingar tekið þátt í landsmótinu
og kemur það ekki á óvart því
mikill uppgangur hefur
verið í golfíþróttinni
undanfarin ár — og er
enn. Það er því eðiileg
þróun að þátttakendum
fjölgi sífellt í landsmót-
um, en það vekur hins
vegar menn til umhugs-
unar hvort það fyrirkomulag sem
verið hefur á mótinu undanfarin
ár sé ekki úr sér gengið.
Það er nokkuð ljóst að vegna
þessa mikla fjölda keppenda þarf
að ijölga þeim dögum sem leikið
er á landsmóti og vænlegasti
kosturinn virðist vera að hefja
leik á laugardegi og Ijúka síðan
leik næsta föstudag, byrja sem
sagt deginum fyrr en undanfarin
ár. Þetta virðist eina leiðin ef
forsvarsmenn íþróttarinnar vilja
halda fast í þá hefð að ljúka
landsmótinu á föstudegi fyrir
verslunarmannahelgi eins og ver-
ið hefur. Ef hins vegar menn vilja
breyta þá væri vel við hæfi að
flýta mótinu um eina til tvær
vikur og þá er að sjálfsögðu best
að Ijúka mótinu á laugardegi, eða
jafnvel á sunnudegi. Neðri flokk-
arnir myndu þá leika fram á
fímmtudag eða föstudag en
meistaraflokkarnir kláruðu á
laugardegi. Með þessu móti gætu
keppendur fylgst með síðasta
hring þeirra bestu, og jafnvel
tveimur síðustu dögunum meist-
aranna.
Það vekur alltaf jafn mikla
furðu í sambandi við landsmót
að Golfsamband íslands (GSÍ)
skuli ekki sjá um framkvæmd
mótsins. Landsmótið á jú að vera
hápunktur keppnistímabilsins og
það þarf að vera ákveðin reisn
yfir mótinu og það þarf að vera
í ákveðnum og fóstum skorðum.
Menn hafa sagt að þekkingin til
að halda mót sé í klúbbunum og
á það er vel hægt að fallast. En
á móti kemur að klúbbarnir
mynda sérsambandið og því ætti
það að vera leikur einn fyrir GSÍ
að sjá um eitt mót á ári. Hvernig
ætli íslandsmótið í knattspyrnu
væri ef félögin skiptust á um að
sjá um það?
Næsta landsmót verður vænt-
anlega haldið í Vestmannaeyjum
og þá ætti að koma smá reynsla
á að halda mótið viku fyrr en
venjulega því ekki getur það tal-
ist gáfulegt að ljúka mótinu dag-
inn eftir að hið landsfræga Húkk-
araball er í Eyjum og fólk farið
að fjölmenna í Heijólfsdalinn, en
golfvöllurinn er við hliðina á daln-
um.
Skúli Unnar
Sveinsson
Landsmótid þarf að
vera fyrr og það þarf
að fjölga dögunum
Hvernig fannst GUÐRÚNU SÆMUMPSDÓTTUR að skora sigurmarkið?
Tek stundum
til minna ráða
GUÐRÚN SÆMUNDSDÓTTIR skoraði sigurmark Vals gegn
KR í úrslitum bikarkeppni KSÍ á sunnudaginn og sagði hún
markið það mikilvægasta á sínum ferli. Sá ferill spannar um
13 ár og 149 leiki, sem er nærri tvöfalt meira en næsti leikmað-
ur og alltaf með Val, fyrir utan eitt keppnistímabil á Ítalíu.
Hún er án efa einn besti varnarmaður í kvennaknattspyrn-
unni hér á landi. Guðrún er lyfjafræðingur, útskrifaðist fyrir
tveimur árum, vinnur í Breiðholtsapóteki og er aðeins 28 ára.
Guðrún hefur ekki notað skot-
skóna mikið til að skora,
enda aftasti varnarmaður, þó að
hún bregði sér oft fram á völlinn
þegar mikið liggur
við. Hvað segirðu
Stefán Guðrún, !á mikið við
Stefánsson þarna.
„Já, ég gat ekki
séð að hinar ætluðu að klára þetta
sjálfar. Þó að ég skori yfirleitt
ekki, verð ég stundum að taka
mig til þegar hinar eru að klikka.“
Var þetta stór stund fyrir þig?
„Markið var það mikilvægasta
á ferlinum og hef ég þó verið að
síðan 1983. Þetta var stór stund
fyrir félagið og sigur fyrir liðið
því sjö af þeim sem voru í bytjun-
arliðinu í fyrra voru ekki með í
þessum ieik og það voru mikil
umskipti."
Á hvetju vannst þessi sigur?
„Hann vannst fj4st og fremst
á samheldni og svo Jóhanni Inga
[Gunnarssynij sálfræðingi."
Af hveiju honum?
„Hann talaði við okkur í klukku-
tíma fyrir tveimur dögum og það
gekk vel, var mjög skemmtilegt
og gerði ekkert nema gott.“
Er hugarþjálfun það sem koma
skal?
„Já, knattspyrna snýst meira
um vit en krafta þó að það þurfi
auðvitað hæfileika. Það er farið
að hugsa mun vísindalegar um
þetta, ekki bara að skella sér í skó
og hlaupa út á völl.“
En hefur þú bara verið í fót-
bolta?
„Nei ég var í badminton og
handbolta um tíma en þegar ég
var fimmtán eða sextán ára sneri
ég mér alfarið að fótboltanum."
Af hverju fótbolta?
„Eg var bara svo hrikalega léleg
í handboltanum og var þar aðal-
lega með vegna félagsskaparins.
I sambandi við badmintonið var
það spurning um tíma.“
Nú er kvenfólk að þjálfa
kvennaliðin sem standa sig best,
Val og Breiðablik, hefur það eitt-
hvað að scgja?
„Ég veit ekki um það, held
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
GUDRÚN Sæmundsdóttir með bikarinn og skotskóna, sæl,
glöð og örþreytt að ioknum bikarúrslitaleik á sunnudaginn.
raunar að það skipti litlu máli
hvort þar sé karl eða kona en það
munar öllu að þær hafa báðar,
Ragnheiður Víkingsdóttir og
Vanda Sigurgeirsdóttir, spilað
sjálfar."
Fær kvennaknattspyrnan næga
athygli?
„Hún mætti vera meiri. Ef það
er eitthvað spennandi að gerast,
er það tekið fram yfír og það þarf
meira að segja ekkert að vera
mikið spennandi.
En er kvennaknattspyrnunni að
fara fram?
„Þetta er orðið allt öðruvísi en
áður, þeir sem standa á bak við
kvennaknattspyrnuna sinna henni
mun betur en áður og umstangið
í kringum bikarúrslitaleikurinn
var gott dæmi.“
Ert þú ánægð með fyrstu deild
kvenna?
„Hjá sumum liðum er allt í lagi
en það þarf að breyta fyrirkomu-
laginu. Til dæmis með því að
fækka liðunum og spila þá oftar
hvor við aðra. Eins og þetta er
núna má ekki tapa stigi, þá er
deildin farin.“
Fylgist þú með karlaboltanum?
„Já, en það er ekkert gaman
þegar eitt lið er búið að stinga af
þó það sé engin tilviljun að Skaga-
menn séu efstir. Það er heldur
ekkert gaman að því þegar KR til
dæmis hefur að engu að keppa í
deildinni og notar varaliðið þar til
að spara menn fyrir úrslitaleikinn
í bikarnum. Það ætti að banna
það.“
Og þá lokaspurning, hvað ætlnr
þú að vera lengi í boltanum?
„Engar svona spurningar. Jæja,
að vísu hef ég stunduð spáð í að
leggja skónum en gef engar yfir-
lýsingar.“